Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Sigurbjörn Björnsson með forystu í Bikar- keppninni í skák SKÁK BIKARKEPPNIN í SKÁK 1999 Febrúar - ágúst1999 BIKARKEPPNIN í skák er nýj- ung í íslensku skáklífi sem hefur farið mjög vel af stað. Pað eru Tafl- félagið Hellir, Skákfélag Hafnar- fjarðar, Tafífélag Reykjavíkur, Taflfélag Garðabæjar og Taflfélag Kópavogs sem standa fyrir keppn- inni. Bikarkeppnin samanstendur af fimm skákmótum: Meistaramót Hellis Skákþing Hafnarfjarðar Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur Skákþing Garðabæjar Skákþing Kópavogs Tveimur mótum er nú lokið í Bik- arkeppninni. Meistaramót Hellis fór fram í febrúar og Skákþing Hafnarfjarðar um síðustu helgi. Að þessum mótum loknum er Sigur- björn Bjömsson efstur í keppninni, hefur hlotið 27 stig. Næstur er Jón Viktor Gunnarsson með 25 stig og þriðji er Stefán Kristjánsson með 18 stig. Röð efstu manna í opnum flokki er annars þessi: 1. Sigurbjörn Bjömsson 27 st. 2. Jón Viktor Gunnarsson 25 st. 3. Stefán Kristjánsson 18 st. 4. Sigurður P. Steindórss. 14 st. 5. Vigfús Óðinn Vigfusson 13 st. 6. Bjöm Porfinnsson 12 st. 7. Ólafur Isberg Hannesson 8 st. 8. Amar Porsteinsson 7 st. 9. Þorvarður F. Ólafsson 7 st. 10. Davíð Kjartansson 6 st. 11. Torfi Leósson 6 st. í flokki skákmanna undir 2000 skákstigum er Sigurður Páll Stein- dórsson efstur með 27 stig og Vig- fús Óðinn Vigfússon annar með 24 stig. Ólafur Isberg Hannesson er þriðji með 19 stig. í unglingaflokki eru þeir Guðjón Heiðar Valgarðsson og Helgi Egils- son jafnir og efstir með 8 stig, en þeir Gústaf Smári Bjömsson og Knútur B. Otterstedt koma næstir með 6 stig. í kvennaflokki hafa þær Harpa Ingólfsdóttir og Ingibjörg Edda Birgisdóttir 8 stig. Næsta mót í Bikarkeppninni er Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur, sem hefst í kvöld, miðvikudag, klukkan 19:30. Sævar - Stefán Eftirfarandi skák var tefld á Skákþingi Hafnarfjarðar sem fram fór um síðustu helgi. Sævar lendir í byrjunargildm, en þegar skákin virðist búin eftir u.þ.b. 20 leiki leik- ur Stefán af sér með því að taka ekki mann sem Sævar fómar. Stað- an var hins vegar það góð fyrir hjá Stefáni, að það kom ekki að sök! Hvítt: Sævar Bjamason Svart: Stefán Kristjánsson Frönsk vörn [C06] l.e4 e6 2.d4 d5 3.Rd2 Rf6 4.e5 Rfd7 5.Bd3 c5 6.c3 Rc6 7.Re2 Db6 8.RÍ3 cxd4 9.cxd4 f6 10.exf6 Rxf6 11.0-0 Bd6 12.Rc3 a6 13.a3 0-0 14.Hel Dc7 15.Bg5? Sævar varar sig ekki á hættunni. Betra var 15.h3. 15...Rg4 16.h3 Bh2+ 17.Kfl SJÁ STÖÐUMYND Rxf2! Nú hrynur hvíta staðan eins og spilaborg! 18.Kxf2 Dg3+ 19.Ke3 Ef 19.Kfl þá er 19...Dxg5 einfaldast og svartur er peði og stöðunni yfir. 19...Hxf3+ 20.Dxf3 Dxg5+ 21.KÍ2 Rxd4 22.Dg4 Df6+ 23.Ke3 e5 24.Bxh7+ Kh8? Nú, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, þiggur svartur ekki manninn. Eftir 24.. .Kxh7 25.Dh5+ Dh6+ 26.Dxh6+ gxh6 er ekki annað að sjá en að hvítur geti gefist upp! 25.Dh5 Dh6+ 26.Dxh6 gxh6 27.Bd3 Be6 Stefán er ennþá með unna stöðu vegna þess hversu slæm hvíta kóngsstaðan er. Svartur hótar með- al annars Rb3 og að gaffla með d4 í kjölfarið. 28.Re2 Ef 28.Hadl Hf8 29.Re2 Rb3 er hvíti kóngurinn ber- skjaldaður. 28...Rb3 29.g3 Sævar reynir í örvæntingu að loka bisk- upinn inni, en lendir í mátneti í staðinn. 29...d4+ 30.KÍ2 Hf8+ 31. Rf4 Eftir 31.Kg2 lendir hvítur í svikamyllu með 31...Bd5+ 32.Kxh2 Hf2+ 33,Kgl Hg2+ 34.Khl (ef 34.Kfl verður hvítur mát 34...Rd2) 34.. .Hxg3+ 35.Kh2 Hg2+ 36.Khl Hxe2+ 37.Kgl Hg2+ og svartur hefur gjömnna stöðu. 31...exf4 32. Hxe6 Bxg3+ 33.Kf3 Rxal 34.Hxh6+ Kg8 35.Hd6 He8 36.Be4 Rb3 37.Bd5+ Kh8 38.Kg4 Rc5 39.b4 Re4 40.Hb6 d3 0-1 Stefán Kristjánsson sigrar á atkvöldi Stefán Kristjánsson sigraði á at- kvöldi Hellis, 7. júní 1999. Stefán hlaut 5V2 vinning í 6 umferðum. Stefán leyfði aðeins eitt jafntefli, á móti Magnúsi Emi Úlfarssyni, en lagði aðra. Annar varð Andri Ass Grétarsson með 5 vinninga og þriðji varð Magnús Öm Úlfarsson með 4V4 vinning. Úrslit urðu annars sem hér segir: 1. Stefán Kristjánsson 5‘/2 v. 2. Andri Áss Grétarsson 5 v. 3. Magnús Öm Úlfarsson 4!4 v. 4. -5. Bjöm Freyr Björnsson 4 v. 4.-5. Gunnar Bjömsson 4 v. 6.-10. Guðni Stefán Pétursson 3 v. 6.-10. Bjami Magnússon 3 v. 6.-10. Rolf Stavnem 3 v. 6.-10. Vigfús Óðinn Vigfusson 3 v. 6.-10. Ingvar Öm Birgisson 3 v. 11.-14. Aldís Rún Lárasdóttir, Andrés Kolbeinsson, Finnur Kr. Finnsson og Knútur Birgir Otterstedt 2!4 v. 15.-17. Gústaf Smári Björnsson, Birgir Pór Magnússon og Ingibjörg Edda Birg- isdóttir 2 v. Skákstjórar vom Vigfús Óðinn Vigfússon og Gunnar Björnsson. Næsta atkvöld verður haldið mánudaginn 5. júlí, kl. 20. Skákmót á næstunni Tilkynningar um skákmót og aðra viðburði sendist til umsjónar- manna skákþáttar Morgunblaðsins. Tölvupóstfangið er dadi@vks.is. Einnig má senda annað efni og at- hugasemdir við skákþættina á sama póstfang. 9.6. Boðsmót T.R. 16.6. Guðmundar Arnlaugss. mótið 25.6. Hellir. Jónsmessumót (kl. 22) Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson Stretchbuxur verslunarmiðst. Eiðstorgi, sími 552 3970. í DAG VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Gerðarsafn og Salurinn - kærar þakkir FÖSTUDAGINN 28. maí fór ég ásamt leikfimihóp Hallgrímskirkju í Gerðar- safn að sjá sýningu Magn- úsar Á. Árnasonar. Þessi sýning er stórkostleg yfir- litssýning á listaverkum þessa fjölhæfa listamanns. Húsið Gerðarsafn er svo falleg bygging að manni hættir til að dvelja of lengi þar inni. Við fengum okkur kaffi og með því í kaffiteríunni, starfsfólkið þar er frábært og stjanaði við okkur og gekk um og bauð ábót á kaffið eins og hver vildi, nokkuð sem ekki er al- gengt á kaffihúsum. Ein stúlkan spurði hvort við vildum ekki kíkja á Salinn, hið nýja tónlistarhús þeirra í Kópavogi. Við héldum þangað að lokinni kaffidrykkju og elskuleg stúlka, sennilega forstöðu- maðurinn, fór með okkur um allt húsið og fræddi okkur um byggingarsögu hússins þar sem gildi úr ís- ienskri náttúru ráða ríkj- um. Þegar við kvöddum og stigum inn í rútuna, fund- um við að þessu síðdegi hafði verið vel varið. Ef ykkur langar til að gera ykkur dagamun, mæli ég með því að þið skreppið á menningarhæðina í Kópa- vogi og þar fáið þið gott viðmót í kaupbæti. Hafið heila þökk fyrir móttök- urnar. Júhanna Sigr. Sigurðardúttir. Röng frétt VIÐ viljum leyfa okkur að mótmæla alrangri frétt Heimsferða um seinkun frá Benidorm, en við hjón- in vorum svo óheppin að kaupa ferð þangað 11.-26. maí sl. Ferðin hófst í flugvél Sabre-flugfélagsins þar sem þrengslin eru slík að sætin eru nánast eins og fyrir böm. Eiginmaðurinn er slæmur í hné og urðu þrengslin til þess að hann varð ógöngufær og varð að leita læknis í upphafi ferð- ar og eyðilagði það allar áætlanir. En sannleikurinn um tafirnar á fluginu er sá að við komum til íslands und- ir morgun, fimmtudaginn 26. maí, eftir 10 tíma bið á flugvelli í Benidorm og síð- an nærri 5 tíma flug. Þessir klukkutímar liðu þannig: Eftir 5 tíma bið á flugvelli, þar sem upplýs- ingar voru nánast engar, komu fararstjórar Heims- ferða í mýflugumynd, en sáu þó til þess að við fengj- um matarbita í kaffiteríu. Síðan hurfu þeir og við bið- um aðra 5 tíma í algeru af- skipta- og upplýsingaleysi. Þá kemur leiguvélin loks- ins og kemur í ljós að við getum hvorki fengið vott né þurrt á u.þ.b. 5 tíma flugi. Allir mótmæltu og það endaði með því að ein- hver drykkjarfóng voru út- veguð. Veitingarnar voru rúmlega hálft glas af kóki eða vatni. Finnst okkur þetta algjört hneyksli og væri hægt að nota mörg sterkari orð um það. Eins er að fararstjórar Heimsferða eru kornung og reynslulaus og kunna ekkert til verka í svona til- fellum. Að sjálfsögðu hefði annað þeirra átt að vera með hópnum, sem var ca. 100 manns á öllum aldri, þar til farið var í loftið. Eins var framkomu spænsku starfsmannanna mjög áfátt. Við hjónin emm eldra fólk en ferðumst mjög mikið og viljum hafa ör- yggi og þægindi í okkar ferðum. Þess vegna mun- um við ekki velja ferðir Heimsferða eftir þessa óskemmtilegu reynslu. Virðingarfyllst, Elín Kristinsdúttir, Haukur Andrésson, Lindarflöt 26, Garðabæ. Eurovision ÉG er búinn að fylgjast með Eurovision-keppninni síðan ég fékk vit og sjaldan eða aldrei hef ég séð jafn fallegan og tilfinninga- þrunginn dans og hjá þeim Daníel Traustasyni og Brynjari. Fyrst í stað hélt ég að þeir væru kvenmenn því fimir voru þeir með eindæmum. En svo þegar ég setti á mig gleraugun komst ég að því að þetta voru gullfallegir gagnkyn- hneigðir karlmenn, að ég best veit. Sporin sem þeir sýndu minntu helst á hinn smáa en knáa Michael Pat- rick Gallagher, dansara í Riverdance. Þess má geta að ég á Riverdance-spól- una og horfi á hana við hvert tækifæri. Ég tel að dansararnir hafi verið lyk- illinn að árangri okkar ís- lendinga, þeir vom landi og þjóð til sóma. Ég vona að þessir dansarar fari aft- ur út að ári liðnu og hver veit nema þeir hefji ,AU out of luck“-dansnámskeið. Með léttri sveiflu, Haukur S. Hauksson. Tapað/fundið Skemmtikvöld sjálfstæðiskvenna Kápa í misgripum Fimmtudagskvöldið 6. maí var kvennakvöld í kosningamiðstöð Sjálf- stæðisflokksins að Skip- holti 19 og tók þá einhver í misgripum ljósa kápu (frakka) og skildi aðra svipaða eftir en þó aðeins stærri. Mig langar að biðja konur sem vom þarna um- rætt kvöld að athuga í skápana sína. Finnandi vinsamlega hringi í Fann- ey í síma 551 6137. Dýrahald Kettlingar fást gefins GÆFIR og greindir kett- lingar fást gefins. Kassa- vanir. Upplýsingar í síma 552 0834. Sandra er týnd SANDRA er svört og hvít læða með rauðköflótta ól. Hún er 7 mánaða með stór eyru og svartan blett undir hökunni. Hennar er sárt saknað. Þeir sem vita um hana vinsamlegast hringi í síma 5621209 eða 551 0687. VÆRI þér sama þútt þú færðir þig aðeins fjær okkur? GLEYMDU þessu, hann trúir ekki á drauga. Yíkverji skrifar... BÍLASÍMAR eru þarfaþing og GSM-símar einnig. Oft kemur sér vel að geta gripið í þessi þæg- indi, til dæmis þegar menn eru úti að aka í tvennum skilningi. Kunn- ingi Víkverja hefur hins vegar nokkrar áhyggjur af sífelldri og að því er hann segir stóraukinni notk- un manna á þessum tólum við akst- ur. Er hann á því að banna notkun tækjanna í akstri. Víkverji getur tekið undir að hvimleitt er að aka á eftir þessum önnum köfnu mönnum sem varla geta haft hugann við akstur eða hönd á stýri af þvi þeir þurfa að tala í símann. Greinilegt er nefnilega að við það að tala í símann slaknar nefnilega á akstrinum, menn hægja á sér, gleyma sér og eru að hugsa um allt aðra hluti. Þetta atriði er það sem er vara- samt. Það er svosem alveg hægt að stjórna bíl með aðra hönd á stýri eins og Bjössi gerði, ekki síst ef hann er sjálfskiptur, en það er at- hyglisbresturinn sem er alvarlegri. Menn fylgjast ekki með umhverf- inu, missa árvekni og taka varla eft- ir umferðarmerkjum né samferða- mönnum. Og þótt Víkverji sé ekki hrifinn af boðum og bönnum kemur að því að hér þarf að taka málin föstum tökum - og væri ekki úr vegi að fá ábendingar fyrir þar til bær stjórnvöld um slíkt. XXX EGNA umfjöllunar hjá Vík- verja á dögunum um þann sið forráðamanna flugfélagsins Atlanta að nefna breiðþotur sínar eftir ís- lenskum frumkvöðlum í flugi sendi flugsöguáhugamaður ábendingu. Hann taldi það ofmælt hjá Víkverja að þetta væri til þess að nöfnin gleymdust ekki þar sem séð hefði verið fyrir þvi í íslenskum flugsögu- bókum. Er þetta réttmæt ábending en vonandi getum við verið sam- mála um að tiltæki Atlantamanna sé þáttur í því að nöfnin gleymist ekki. Flugsöguáhugamaðurinn spyr í lokin hvenær höfuðborgin eignast eigið flugminjasafn og er það áhugaverð spurning og kannski enn áhugaverðara að heyra svar borgar- yfirvalda. Merkilegt flugminjasafn er að Hnjóti vestra eins og margir þekkja en víst væri það nógu fróð- legt og nógu mikil ástæða til að hafa að minnsta kosti útibú frá slíku safni á höfuðborgarsvæðinu. Gæti borgin ekki tekið höndum saman við Egil á Hnjóti Ólafsson við varð- veislu flugminja, báðir aðilar safnað þeim og skipst á gripum? XXX AF hverju má ekki lengur segja gola og kaldi í veðrinu? Er nokkuð að því þótt metrar á sek- úndu séu líka notaðir svona með- fram fyrir fræðin? Veðurspár verða alltof þurrpumpulegar ef við notum bara tölur og væri yfirbi'agð þeirra miklu hressilegra ef við fengjum að nota alla þessa orðgnótt sem við eigum um veðrið. Hvað á þá að segja þegar við tölum við veði'ið framvegis? Jæja, skyldu verða fimm metrar á sekúndu á morgun? Er hann ekki orðinn einir tíu metr- ar núna? Víkverji hefur allt að því áhyggjur af þessu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.