Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 3lt kom andlát hans öllum á óvart. Afi var heilsuhraustur og mjög hress alla tíð. Tveimur dögum fyrir andlát- ið tók hann göngutúr um bæinn sinn, teinréttur og fínn. Afi Gummi var eins og manni finnst að afar ættu að vera, hann var alltaf til staðar til að spjalla við og hvetja mann áfram í lífinu. Það var alltaf til „lifandi“ kaffi á könnunni í Litlabænum, ekkert sull úr sjálfvirkri kaffikönnu, eins og hann sjálfur orðaði það. Það koma margar minningar upp í hugann hjá okkur systkinunum þeg- ar við lítum til baka, þó ber hæst hjá okkur öllum hvað það var alltaf nota- legt að koma á Vallargötuna til afa og ömmu og spjalla við þau. Ella minnist þess að þegar hún var lítil fóru þau oft að tína ber út við Helgu- vík og á hún eftir að sakna þess að fá ekki sent normalbrauð frá honum til Ameríku. Ai’nar man hvað vinir hans voru hissa þegar afí Gummi kom í heimsókn á Hlíðarveginn og fór að slást við okkur strákana, - þetta var alveg meiriháttar að eiga afa sem var til í að slást og fara í eltingaleik. Okkur sem þekktum afa fannst það bara sjálfsagt mál. Ragga minnist þess þegar þau bjuggu í kjallaranum og afi kenndi henni að klemma „rétt“ út og allra föstudaganna sem þeim var boðið í saltfisk sem Óli færði þeim og grjónagrautur var í eftir- rétt. Brynja minnist þess hvað afa tókst alltaf að láta henni finnast hún sérstök og að hún ætti sérstaka fjöl- skyldu og hvatti hana áfram í lífinu. Gummi man sérstaklega eftir því þegar hann tók fólsku tennurnar út úr sér, hljóp á eftir okkur og stríddi með því. Við sem leigðum kjallarann viljum þakka sérstaklega fyrir þann tíma sem við áttum þar. Saga kjallarans í Litlabænum er efni í heila bók út af fyrir sig, því stærstur hluti fjöl- skyldunnar hóf sinn búskap einmitt þar. Afi hafði mjög ákveðnar skoðanir á hlutunum, t.d. var hann mjög á móti því að nýtt safnaðarheimili yrði reist á kirkjulóðinni. Honum fannst vera búið að skemma útlit kirkjunn- ar og að það væri búið að eyðileggja eitt fallegasta svæðið í Keflavík. Hann kunni þeim mönnum sem stóðu að þessari framkvæmd litlar þakkir. Hann var aftur mjög ánægð- ur með hvernig gamli bæjarhlutinn í Keflavík var að breytast til hins betra. Ó, Jesú, bróðir besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (P. Jónsson) Þetta litla vers á mjög vel við um minninguna okkar um þig. Og þökk- um við fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman með ykkur ömmu. Elín Jóhanna, Arnar, Ragnhild- ur Helga, Brynja, Guðmundur Þórir og fjölskyldur. Elsku afi, okkur langar að kveðja þig með örfáum orðum og þakka þér fyrir yndislegar samverustund- ir og þá sérstaklega síðastliðin tvö ár, þá fluttum við Róbert niður í kjallarann til þín og hreiðruðum vel um okkur þar og undirbjuggum okkur fyrir fjölgun í fjölskyldunni. Um tveimur mánuðum síðar kom svo yndisleg lítil stúlka í heiminn og áttum við margar skemmtilegar samverustundir uppi hjá þér við að fylgjast með henni vaxa og dafna. Það var svo gaman að koma með hana upp til þín, þú lyftist alltaf all- ur upp og fórst að atast í henni, sem henni fannst nú ekki leiðinlegt. Ég tala nú ekki um þegar afi fór fram í eldhús að bauka eitthvað og kom svo til baka með súkkulaði eða kandís mulið niður í lófanum, hún ljómaði öll og ski’íkti þegar þú réttir henni svo höndina. Okkur fannst líka svo gaman að fylgjast með henni þegar hún fór að geta hlaupið um alla íbúð. Henni fannst svo gam- an að hlaupa í hringi eins og við kölluðum það, vitnaðir þú þá oft í það þegar börnin þín hlupu skríkj- andi um húsið í gamla daga og að oft hefði verið fjör í Litlabænum. Það var líka svo gaman að sitja yfir góðum kaffibolla og hlusta á þig segja frá hvernig lífið var hér á ár- um áður, þú sagðir svo skemmtilega frá og mundir þetta allt eins og það hefði gerst í gær. Það var gott að búa hjá þér afi og vita af þér á efri hæðinni og eins og Róbert orðaði það; það voru forréttindi að fá að kynnast manni eins og þér. Við þökkum þér samveruna og vitum að núna líður þér vel, við vitum að þú fylgist með okkur öllum, bara frá öðru sjónarhorni. Við eigum eftir að hittast aftur. Bryndís, Róbert og Aníta Lind. Elsku afi Gummi minn, því heitt ég dái þig ég hef alltaf elskað þig svo lengi sem ég man Guð blessi þig. Gréta Mar. „Hvað er hel? Öllum líkn sem lifa vel.“ Þessar ljóðlínur komu upp í hugann þegar mér var tilkynnt lát fóðurbróður míns Guðmundar Jóns- sonar í Litlabæ. Guðmundur kveður síðastur níu systkina frá Litlabæ, ósk hans rættist, hann fékk að sofna í bólinu sínu heima, á nítugasta og öðru aldursári. Það verður sjónar- sviptir að sjá hann ekki lengur tein- réttan og sporléttan fá sér göngutúr í Keflavík eða ganga upp á sjúkra- hús í heimsókn til Lóu konunnar sinnar, sem hann fór til á hverjum degi, en hún hefur verið sjúklingur um nokkurt skeið. Guðmundur var fallegur og góð- ur maður og alltaf uppbyggilegt að heimsækja hann, hann var hafsjór af fróðleik og unun að hlusta á hann segja frá lífinu í Keflavík „í gamla daga“, hann var einstakur ljúfling- ur. Kæri frændi, ég á eftir að sakna þín, en þetta er leiðin okkar allra... Við Kristinsböm og fjölskyldur okkar þökkum samfylgdina og biðj- um algóðan guð að styrkja Lóu og öll börnin þeirra, já alla aíkomendur Guðmundar. Guð blessi minningu heiðurs- mannsins Guðmundar Jónssonar í Litlabæ. Jóhanna Kristinsdóttir. Elsku Gummi afi, ég vil þakka þér fyrir öll góðu árin sem ég átti með þér. Þú kenndir mér svo margt í þessu lífi, sem er ómetanlegur fjár- sjóður. Ég veit þér líður vel núna í faðmi ástvina þinna, sem fóru á und- an þér. En auðvitað sakna ég þín af öllu mínu hjarta. Það er svo skrítið að keyra framhjá Litla-Bæ, og geta ekki skroppið inn til þín og ömmu í kaffi og spjalla um lífið og tilveruna. Ég var svo stolt af því að eiga þig fyrir afa, alltaf svo beinn í baki og svo mikil reisn yfir þér þegar þú fórst þínar daglegu göngur um bæ- inn, þó kominn yfir nírætt. En minn- ingarnar geymi ég vel í mínu hjarta, um ókomin ár. Svo veit ég að við hittumst seinna hinum megin. Guð blessi þig, elsku afi . Þegar sólin rís. Kyssir döggina. Ogvekurfuglana. Saknaégþínmest í erli hvunndagsins, sem engan endi ætlar að taka. Sakna ég þín mest. Þegar húmar að kveldi oghtrófhiminsins, minnir á gimstein. Saknaégþínmest. aföllu. (Margrét S. Guðnadóttir.) Þín Ósk og hennar fjölskylda. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar afmæl- isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Þegar andlát ber að höndum Útfararstofan annast meginhluta allra útfara á höfuðborgarsvæðinu. Þarstarfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. AlúSleg þjónusta sem byggir á langri reynslu Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlíð 2 — Fossvogi — Sími 551 1266 LEGSTEINAR f Marmari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágrýti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík 1 sími 5871960, fax 5871986 + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ANNA DANÍELSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtu- daginn 10. júní kl. 14.00. Gunnar Júlíusson, Sigrún Gunnarsdóttir, Björgvin Eyþórsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Viðar Gunnarsson, Hafdís Sigurþórsdóttir, Daníel Gunnarsson, Hrefna Valsdóttir, ívar Gunnarsson, Bjarney Pálsdóttir, Dröfn Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓFEIGUR ÓLAFSSON húsgagnasmíðameistari, Mávahlíð 21, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtu- daginn 10. júní kl. 13.30. Guðrún H. Gissurardóttir, Erla Ófeigsdóttir, Ingvar Pálsson, Ólafur Ófeigsson, Ragnhildur Bjömsdóttir, Gísli Ófeigsson, Guðrún Bjarnadóttir og fjölskyldur. + Útför SIGURVALDA S. BJÖRNSSONAR frá Gauksmýri f Línakradal, verður gerð frá Grensáskirkju fimmtudaginn 10. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélag íslands. Fyrir hönd vandamanna, Hilmar Björgvinsson, Karl H. Björnsson. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, MAGNÚS ÞORLÁKSSON húsgagnasmíðameistari, Gullsmára 7, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstu- daginn 11. júní kl. 15.00. ívar Magnússon, Arnheiður Sigurðardóttir, Margrét Magnúsdóttir, Vilhjálmur Magnússon, Ann Marí Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, stjúpföður, tengda- föður og afa, KRISTINS HALLBJÖRNS ÞORGRÍMSSONAR, Túnbrekku 5, Ólafsvík. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á Sjúkra- húsinu á Akranesi fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Ebba Guðbjörg Jóhannesdóttir Gerður Hrund Sigurðardóttir, Þorgrímur R. Kristinsson, Hafsteinn Kristinsson, Emil Már Kristinsson, Hermann Kristinsson, Ólína Björk Kristinsdóttir, Jóhanna K. Gunnarsdóttir, Birgir B. Gunnarsson, Guðmundur H. Gunnarsson, Delight Gunnarsson og barnabörn. Freyja Bergþórsdóttir, Hrafnhildur Karlsdóttir, Þórður Stefánsson, Trausti Magnússon, Christie Gunnarsson,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.