Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ingvar FRÁ slysstað á Reykjanesbraut. Piltur beið bana í árekstri SAUTJÁN ára piltur beið bana í umferðarslysi skömmu eftir klukk- an 19 í gærkvöldi á Reykjanes- braut, milli Vífilsstaðavegar og Hamrabergs, þegar fólksbifreið hans lenti framan á vöruflutninga- bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Tildrög slyssins eru óljós en þau eru til rannsóknar hjá lögreglunni í Hafnarfirði. Okumaður fólksbifreiðarinnar var á leið austur eftir Reykjanes- braut þegar slysið varð og lést hann samstundis við áreksturinn. Hann var einn í bifreiðinni. Ökumaður vöruflutningabifreið- arinnar meiddist ekki, en nokkrar skemmdir urðu á bifreið hans. Loka varð Reykjanesbrautinni í um klukkustund meðan lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig á vett- vangi. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. FRÉTTIR Framleiðendur á félagssvæði KÞ vilja samstarf við KEA Um 100 bændur fallast á samstarf við KEA Akureyri. Morgunblaðið. KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur gert samkomulag við um 100 fram- leiðendur á félagssvæði Kaupfélags Þingeyinga þess efnis að þeir leggi inn afurðir sínar til MSKÞ ehf. eða annarra afurðastöðva á vegum KEA. Samkomulagið nær einnig til Kjötiðj- unnar ehf. sem er í eigu Landsbanka Islands. Stefán Skaftason, ráðunautur hjá Ráðunautaþjónustu Þingeyinga, sagði að framleiðendur á félagssvæði KÞ væru um 100 talsins og að stærstur hluti þeirra hefði skrifað undir. „Það er almennur vilji meðal bænda að fara þessa leið og talið að þetta sé það skásta fyrir þá til fram- tíðai’ litið. Sú hagræðing sem þetta leiðir af sér muni jafnframt tryggja besta afkomu þeirra til framtíðar," sagði Stefán og bætti við að héraðinu myndi blæða gengi þetta ekki eftir. Forsvarsmenn Kaupfélags Eyfirð- inga kynntu samkomulagið á fundi með framleiðendum á félagssvæði KÞ á Breiðumýri á dögunum en á þeim fundi kom fram eindreginn vilji bænda til að vinna áfram með KEÁ að málefnum KÞ. Margir þeirra skrifuðu undir samkomulagið strax á fundinum en aðrir tóku plaggið með sér heim til frekari skoðunar. Frá þeim tíma hafa svo fjölmargir bæst í hópinn. Verðgildi mjólkursamlagsins minnkar Stefán sagði að menn hefðu heldur ekki séð það, að þótt einhver huldu- maður hefði bæst í hópinn og keypt mjólkursamlagið, að hann gæti tryggt það sama og menn vita heldur ekki hver hann er eða hvað hann er að bjóða. „Það er ekki bara að menn kaupi þetta og borgi eitthvað af skuldunum. Málið snýst um að tryggja hér búsetu, rekstur og rnark- aðsstöðu okkar til frambúðar. Á með- an þessi maður gefur sig ekki upp er heldur ekki hægt að taka afstöðu til hans og verður ekki gert. Hvað sem mönnum finnst um það hefur enginn komið hingað til að rétta hjálparhönd nema KEA og þannig held ég að bændur h'ti á málið.“ Stefán sagði jafnframt að um leið og bændur skiifuðu undir samning við KEA minnkaði verðgildi mjólkur- samlagsins að sama skapi fyrir aðra kaupendur. í samkomulaginu kemur fram að greiðsla fyrir innlegg afurða færist inn á viðskiptareikning framleiðenda hjá KEA. Framleiðandi hefur jafn- framt heimild til að taka út hjá KEA og dótturfélögum rekstrarvörur og neysluvörur til búsins, sem nemur allt að inneign hans á viðskipta- mannareikningi hjá KÞ, að viðbættu mánaðarinnleggi fi-amleiðanda til af- urðastöðva KEA. Sé 'framleiðandi hins vegar í skuld á viðskiptamanna- reikningi KÞ er honum heimilt að taka út hjá KEA sem nemur mánað- arinnleggi hans til afurðastöðva KEA. Ennfremur kemur fram í sam- komulaginu, að þegar greiðslustöðv- un KÞ lýkur, eða gjaldþrotaskiptum, fari félagið í gjaldþrot, framleiðandi lofi við samþykki samkomulags þessa að það sem fæst greitt af inneign hans hjá KÞ leggist inn á viðskipta- mannareikning hans hjá KEA. Verði framleiðandi skuldlaus við KEA skal hann ráðstafa inneign sinni hjá KÞ að eigin vild þegar hún kemur til greiðslu en verði framleiðandi í skuld við KEA, umfram mánaðarinnlegg , skuli aðilar semja um greiðslu henn- ar innan þriggja mánaða. ■ Tæplega 80%/17 Morgunblaðið/Golli Hitaveiturör í sundur HITAVEITURÖR fór í sundur við gatnamót Rauða- lækjar og Bugðulækjar um klukkan hálffimm í gær og urðu íbúar heitavatnslausir við þessar götur ásamt hluta Langholtsvegar og Kleppsvegar. Þegar var hafist handa við að lagfæra leiðsluna og lauk viðgerðum skömmu fyrir klukkan 22 í gærkvöldi. Ný flug- braut byggð fyrir snerti- lendingar SAMÞYKKT var á fundi ríkis- stjómar í gær að tillögu samgöngu- ráðherra að hann fái heimild til að ljúka viðræðum við borgaryfirvöld um framtíðarstarfsemi Reykjavík- urflugvallar og deiliskipulag íyrir flugvallarsvæðið. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir viðræður hafa staðið milli samgönguráðuneyt- isins og borgarinnar undanfarið en hugmyndin er meðal annars að færa hluta af æfingaflugi frá vellinum. Með því að færa æfingaflugið, og þá einkum svokallaðar snertilend- ingar flugnema sem eru stór hluti af umferðinni um Reykjavíkurflugvöll, segir samgönguráðherra unnt að draga úr óþægindum og hávaða frá flugumferð en slíkt hefur m.a. verið umkvörtunai-efni íbúa næst flugvell- inum. „Með því að færa snertilend- ingamar annað yrðu vemlegar úr- bætur fyrir þessa íbúa,“ sagði Sturla Böðvarsson en samþykkt var að taka upp í næstu flugmálaáætlun tillögu um flugbraut eða - brautir utan Reykjavíkurflugvallar sem nýst gætu æfingafluginu. Samgönguráð- herra sagði hvorki unnt að segja hvenær slík braut yrði tekin í notkun né hversu mikið hún myndi kosta. Henni væri eingöngu ætlað að sinna æfingaflugi og þar yrði komið upp allri nauðsynlegri öryggisþjónustu. Morgunblaðið/Árni Sæberg RAGNAR Gfslason verslunar- stjóri með nýju kartöflumar. Nýjar ís- lenskar kartöflur í Nóatúni í NÓATÚNI er liafin sala á nýj- um ylræktuðum Premier-kartöfl- um úr Biskupstungum. Að sögn Matthíasar Sigurðssonar, fram- kvæmdasljóra Nóatúns, er þetta í fyrsta skipti sem Nóatún fær nýj- ar fslenskar kartöflur í sölu í júnímánuði og að sögn hans eru gæðin fyrsta flokks. Kílóverð er 299 krónur. ► SJÓMANNADAGURINN skipar stóran sess í máli og myndum í Ver- inu dag og sagt er frá komu nýs báts til Keflavíkur og vaxandi um- svifum SIF í Brazilfu. Fiskverð ytra og heima er að vanda í blaðinu. ◄ MEÐ Morgunblaðinu í dag er dreift bæklingi frá Sóma, „Samlokubakkar sem henta við flest tæki- færi“. Bæklingnum er dreift á höfuðborgar- svæðinu. ► MEÐ Morgunblaðinu í dag er dreift blaði frá Firðinum - miðbæ Hafnar- fjarðar, „Tílboðsdagar". Blaðinu er dreift i Kópa- vogi, Hafnarfirði, Garða- bæ, Bessastaðahreppi og á Suðurnesjunum. HÁLFUR MÁNUÐUR AF DAGSKRÁ FRÁ MIÐVIKUDEGI TIL ÞRIÐJUDAGS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.