Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐYIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 3^ HJÖRDÍS JÓNSDÓTTIR + Hjördís Jóns- dóttir fæddist í Reykjavík 27. júní 1970. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 30. maí síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 8. júní. Hjördís tengdadóttir mín er farin, aðeins 28 ára gömul. Með söknuði og hlýhug vil ég minn- ast elsku Hjördísar sem svo skyndilega var tekin frá okkur. Mér er illmögulegt að kyngja því að þessi kraftmikla stúlka í blóma lífs- ins hafi kvatt þennan heim. Við eram öll hai'rni slegin. Fyrir níu árum kynnti Þóroddur Elmar, sonur minn, mig fyrir þessari háu, grönnu, ijóshærðu stúlku. Þau geisluðu bæði tvö af gleði og ham- ingju. Ég hreifst strax af hreinskilni hennar og hláturmildi. Ekki var það til að skyggja á gleðina að komast svo að því að henni fylgdi lítil rauð- hærð hnáta, hún Þórunn litla, þá að- eins eins árs. Ég var því ekki aðeins að eignast tengdadóttur heldur líka bamabarn. Tveimur árum seinna æxlaðist það svo að þessi litla fjöl- skylda varð húsnæðislaus svo þau fluttust tímabundið til mín í litlu íbúðina mína. Ég sé núna betur en áður hve dýrmætir þessir mánuðir munu ávallt verða mér. Þarna kynnt- ist ég mannkostum Hjördísar, hún var mjög skynsöm og vel gefin. Sambúð okkar í þröngu húsnæði var ekki árekstralaus, við flæktumst oft hvert fyrir öðru. En fyrir hrein- skipti Hjördísar sofnuðu allir oftast sáttir. Á þessum tíma fjölgaði enn í hreiðrinu hjá okkur, Hjördís og Elmar eignuðust lítinn gullmola, hann Þórberg ísak. En þröngt mega sáttir sitja og mun ég alla tíð varð- veita þennan tíma í hjarta mínu. Þegar nýja íbúðin þeirra í Laufengi 25 var tilbúin flugu ungarnir mínir allir glaðir út í nýjan kafla tilverunn- ar. Þar eignaðist fjölskyldan sitt fyrsta heimili, dásamlegt heimili, sem Hjördís sinnti af alúð og um- hyggju, enda framúrskarandi mynd- arleg húsmóðir og yndisleg móðir bamanna sinna. Þó í mörg hom væri að líta með nýtt heimili og ung börn þá lauk Hjördís stúdentsprófi af sjúkraliða- braut fró Fjölbrautaskóla Breiðholts síðastliðið vor. Með sama kraftinum hélt hún svo rakleitt í Háskóla ís- lands haustið eftir. Hún hafði rétt lokið vorprófunum er hún lést. Án efa verður útkoman þar glæsileg eins og alltaf þegar Hjördís ætlaði að ná takmarki sínu. Við sitjum eftir með óteljandi spurningar sem enginn hefur svör við. Það er sérstaklega erfitt fyrir Isak, sex ára gamlan, og Þórunni, tíu ára, að skiija tilveruna í dag. En eitt er víst að þau eiga góðar minningar um mömmu sína og mörg erum við sem munum sjá um að viðhalda þeim minningum er börnin vaxa úr grasi. Ég trúi því að hún muni áfram fylgj- ast með bömum sínum og vernda þau af öllum mætti. Ég bið almættið um að gefa for- eldrum, systrum og öðrum aðstand- endum Hjördísar, styrk í þeirra miklu sorg. Ásta Þórey Ragnarsdóttir. Mig langar í örfáum orðum að kveðja með virðingu og þakklæti Hjördísi Jónsdóttur. Kunningsskapur okkar á sér ekki langa sögu. Ég kynntist Hjördísi fyrst er hún og Þóroddur Élmar, systursonur minn, tóku að draga sig saman fyrir um það bil níu árum. Þrátt fyrir 20 ára aldursmun okkar Hjördísar náðum við vel saman. Enn sterkari tengsl og meiri samgangur myndaðist milli fjölskyldna okkar ár- ið 1993 er við báðar eignuðumst syni það ár. Þeir írændurnir urðu strax miklir vinir og verða það vonandi um ókomna framtíð. Mér eru sérstaklega minnisstæðar allar þær skemmtilegu stundir sem við áttum mörg saman uppi í sumarbú- stað. Sumarbústaður- inn sem við Steinar átt- um við Meðalfellsvatn stóð Hjördísi og Elmari alltaf opinn, hvort sem okkar fjölskylda væri þar eða ekki. Bústaðn- um yfirleitt skilað fínni en hann var er þau komu, enda var Hjördís einstaklega hreinleg og myndarleg húsmóðir. Eftir að við fluttumst austur fyrir fjall, komu Hjördís og Elmar með börnin eins oft í helgarheimsóknir og þau mögulega gátu. Nú síðast um miðjan maí áttum við öll mjög svo skemmtilega helgi saman. Þá var mikið rætt um heima og geima, enda brosti lífið og framtíðin við henni. Hjördís fór aldrei í launkofa með skoðanir sínar, kom til dyranna eins og hún var klædd, einlæg og skemmtileg. Ég á erfitt með að trúa því að þetta hafi verið hennar síðasta ferð hingað austur til okkar. Fjölskyldu Hjördísar votta ég mína dýpstu samúð á þessari kveðju- stundu og bið algóðan Guð um að veita þeim öllum styrk í sorginni. Þau mega svo sannarlega vera stolt af Hjördísi og vita það að ætíð mun geisla af minningu hennar. Rósalind Ragnarsdóttir. Það er sunnudagur, sólskin úti og lífið að því virðist fullkomið. Það er sunnudagur. Við fáum þær fréttir að ein af æskuvinkonunum sé látin. Af hverju? spyr maður sjálfa sig. Af hverju hún frá tveimur ungum böm- um og manni sem öll elskuðu hana? Hjördísi kynntist ég þegar við vor- um í Fossvogsskóla, við vorum nokkrar saman sem mynduðum hóp sem haldist hefur síðan, með mis- miklum samskiptum þó og sumar náðu betur saman en aðrar. Það má eiginlega segja að við Hjördís höfum náð aftur saman þeg- ar ég hóf nám við viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla íslands. Þar voru Hjördís og Svandís systir hennar við nám. Ég dáðist að Hjördísi, þaraa var hún með tvö börn og í fullu námi og stóð sig mjög vel. Hún lagði gífur- lega mikið á sig, var stöðugt að læra. í prófunum nú í vor sátum við hér heima á Hagamelnum að reikna og við reyndum hvað við gátum að að- stoða hvor aðra, það var nú samt ein- hvem veginn þannig að það var alltaf Hjördís sem aðstoðaði mig því ég var stöðugt að stranda á einhverj- um dæmum og Hjödda var ekki lengi að koma mér aftur á rétta braut, henni þótti ég vera að gera hlutina miklu erfiðari en þeir voru. ,Ásta mín, þetta er ekki svona flókið, sjáðu bara.“ Þessa setningu heyrði ég oft nú í vor. Svo sýndi hún mér hvernig átti að gera þetta. Guð einn veit hversu mikið hún hjálpaði mér á þessum tíma. Við sátum svo fyrir framan aðal- byggingu Háskólans í byrjun mai og reyndum að hvetja hvor aðra, fórum yfir hvað gæti mögulega komið og hvað við hefðum kannski átt að leggja meiri áherslu á. Við hittumst síðast fóstudaginn 28. maí. Við sátum í eldhúsinu hjá Hjöddu og vorum að skipuleggja hvemig sumarið átti að vera, hvera- ig og hvenær við ætluðum að lesa fógin. Hjördís var búin að skipu- leggja þetta allt saman fyrir okkur, við myndum fara létt með þetta. Ég sit hér nú og hugsa: Hvernig get ég þetta ein? Við ætluðum að hjálpast að, ég fann svo mikið öryggi í því að vita af Hjöddu, vita það að hún ætlaði að kenna mér þetta allt saman, við ætluðum að „rúlla sumr- inu upp“ eins og Hjödda orðaði það. Ég vildi bara með þessum fáu orðum segja þér, Hjödda mín, hversu stolt ég var af þér því við sátum oft og ræddum um stelpurnar sem voru með okkur í fögunum í vor, þessar sem ekki áttu böra og þurftu ekki að hafa áhyggjur af heimilinu, gátu bara mætt í tíma, farið heim og lagt sig og mætt svo hressar eftir kvöld- mat til þess að læra á meðan Hjödda og ég vorum orðnar hálflúnar eftir verkefni dagsins. Elsku Hjördís, ég get ekki annað en kvatt þig með söknuði og ég mun hugsa til þín þegar ég les fógin „okk- ar“ í sumar. Ég bið um styrk handa Þórunni, Isaki og Elmari. Fjölskyldu hennar allri sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Missir ykkar allra er mikill. Eins og heili manns má skynja og skilja, skrá og geyma í minning jarðarheimsins, man um eilífð heili hnattageimsins hljóm hvers sálarstrengs í lífsins nki. (Einar Ben.) Ásta Dís Óladóttir. Hjördís mín, það var mér mikið áfall að fá fregnir um andlát þitt, svo alltof fljótt. Það er óskiljanlegt að þú, þessi orkumikla og fjöruga stelpa, skulir vera búin með þinn tíma hér, þú sem áttir eftir að gera svo margt. Minningarnar fljúga í gegnum hugann og ég sé þig fyrir mér þar sem þú kemur labbandi eftir gangin- um í FB, á leið í spænskutíma, og segir „hæ, dúllan mín“ eða „hvað segirðu, rófan mín?“ því alltaf léstu alla finna fyrir að þeir væru þér mik- ils virði og alltaf komstu mér í gott skap. I spænskutímum hjá okkur var al- veg frábært, við þessar gömlu fífluð- umst og gerðum grín að okkur sjálf- um, þá var glatt á hjalla og mikið hlegið. Svo var einnig þegar við skrifuðum okkar fyrstu spænskurit- gerð saman því annað kom ekki til greina og fengum við sérstaka und- anþágu hjá Jesus til þess. En sam- vinnan skilaði sér í einkunn sem við vorum mjög stoltar af. Margar stundir áttum við saman, annaðhvort við að sinna lærdómnum eða í notalegu spjalli um heima og geima, lífið og tilveruna og var þá oft rætt um starf þitt sem sjúkraliði og þegar þú talaðir um sjúklingana þína var greinilegt að þú barst hag þeirra svo sannarlega fyrir brjósti. Mér er svo minnisstæður útskrift- ardagurinn þinn í fyrra, þú geislaðir af gleði og varst svo glæsileg, lang- þráðu takmarki var náð og þú varst að uppskera árangur alls erfiðisins. Duglegri námsmann hef ég aldrei þekkt. Ekkert var of erfitt, þú gafst ekki upp heldur leystir hlutina á auð- veldan hátt. Ég hrósaði þér oft fyrir dugnað en þú gerðir lítið úr því og þegar ég tal- aði við þig síðast, rúmri viku fyrir andlát þitt, og þetta barst í tal sagðir þú mér að þú myndir aldrei gefast upp ef þú værir búin að ákveða að taka þér eitthvað fyrir hendur heldur klára það. Þú gafst aldrei upp og gafst öllum í kringum þig aukinn kraft. í þessu síðasta samtali okkar gafst þú mér góð ráð sem ég mun sannarlega nota sem veganesti í lífinu. Börnin þín fengu að njóta þess að eiga svo umhyggjusama móður sem bjó þeim öruggt athvarf, frá þeim er mikið tekið en ég veit að þú fylgist með þeim og veradar þau og styður eins og þú alltaf gerðir. Með þeim lif- ir minningin um þig. Megi algóður Guð fylgja þeim alla tíð. Ég bið um styrk fyrir Elmar, foreldra þína og vini, söknuður allra er mikill. Kæra vinkona, við kvöddumst svo oft með því að segja hasta manana, nú kveð ég þig í hinsta sinn með því að segja hasta luego. Megir þú hvfla í friði, Hjördís mín. Þín vinkona Harpa. Með auðmýkt langar mig að minn- ast minnar bestu vinkonu, Hjördísar. Margar hugsanir mínar undanfarna daga hefjast á orðum á borð við: Ég vildi að ég hefði ... Ég get engan veginn sætt mig við það hveraig síð- ustu samskipti okkar Hjördísar voru. Það var oft sagt við okkur að við værum eins og hjón í storma- sömu hjónabandi. Vinskapur okkar var þannig að við vorum ýmist óað- skiljanlegar eða að við töluðum ekki saman svo dögum skipti. Því miður var því þannig háttað núna þegar hún var tekin frá okkur. Hjördís stóð alltaf vörð um hags- muni mína. Ef henni þótti einhver sýna mér ósanngimi eða vanvirðingu stóð hún ávallt upp og svaraði fyrii’ mig. Hún var svo hreinskilin og bein- skeytt. Það er af mörgum minningum að taka en sumar eru ofar öðrum á þessum sorgardögum. Útskriftardagur hennar er mér mjög minnisstæður. Þegar hún kom heim eftir útskriftarathöfnina hélt hún vinum sínum hóf. Minning þessa kvölds er mér afar kær. Þó hún gerði ekki mikið úr því var hún svo stolt og ánægð að hafa lokið þessum áfanga. Síðustu önnina hennar í FB ákvað hún að fara í viðskiptafræði við Há- skóla íslands. Þar sem ég var nýút- skrifuð og ekki ákveðin varðandi framhaldið hvatti hún mig með sér. Svo fór að ég ákvað að fara í sama nám. Hún stóð eins og klettur við hliðina á mér varðandi þau verkefni sem því fylgdi að flytja af lands- byggðinni til Reykjavíkur. Hún skoðaði fyrir mig fullt af íbúðum og fann reyndar fyrir mig það sem er heimili mitt í dag. Þegar svo að flutn- ingi kom stóð ekki á henni að hjálpa mér við að koma mér fyrir. Sumarið ‘97 vantaði mig húsa- skjól fyrir mig og börnin mín þrjú um tíma. Ég var heilmikið að vand- ræðast með þetta en Hjördísi fannst þetta ekkert stórmál og sagði við mig: „Inga mín, þetta er ekkert mál, þið komið bara hingað, nóg er plássið!" Og þangað fórum við. Sá tími með henni er mér mjög dýrmætur. Við áttum svo margar góðar stundir. Elsku Elmar, Þórunn, Isak, Sól- veig, Jón, Bryndís, Svandís og Val- dís. Missir ykkar er mikill og fá orð geta huggað ykkur í sorginni. Ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Inga. Með miklum söknuði kveð ég þig, mín kæra vinkona, Hjördís. Engin orð megna að lýsa sorg minni. Eng- inn fær skilið gjörðir Drottins. Og ég veit við munum hittast aftur þegar minn tími kemur. Við áttum svo margt ósagt og ógert. Þú varst mér sönn vinkona og trúnaðarvinur og þau níu ár sem við áttum saman sem vinkonur voru gjöful, enginn mun koma í þinn stað. Óvænt og ótíma- bært fráfall þitt kemur illa við svo marga. Þú varst svo rík af vinum, en þó er sorg og missir fjölskyldu þinn- ar mestur, fjölskyldunnar sem var þér svo kær. Megir þú hvíla í friði, elsku vinkona. Ég votta Elmai-i, börnum og ást- vinum Hjördísar mína dýpstu sam- úð. Megi Guð veita ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Þín vinkona Katrín Kristín Hallgrímsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐMUNDUR JÓNSSON, Lftlabæ, Vallargötu 23, Keflavík, lést á heimili sínu laugardaginn 29. maí sl. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Ólöf Eggertsdóttir, Lúðvík Guðmundsson, Bjarney Sigurðardóttir, Halldóra Jóna Guðmundsdóttir, Ingólfur Bárðarson, Inga Kristín Ciotta, Anthony Ciotta, Þórhaliur Arnar Guðmundsson, Sigríður Friðjónsdóttir, Bima Guðmundsdóttir, Donald Lovejoy, Gréta Hand, James W. Hand, Ólöf Edda Guðmundsdóttir, Gísli S. Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir minn, JÓN HJALTALÍN GRÍMSSON vélstjóri, áður til heimilis á Framnesvegi 50, Reykjavík, lést mánudaginn 7. júní á Hrafnistu, Reykjavík. Fyrir hönd barna, Kolbrún Erna Jónsdóttir. + Móðir okkar, MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR frá Skarfsstöðum, Hvammssveit, Dalasýslu, andaðist fimmtudaginn 3. júní. Jarðsungið verður frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 10. júní kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Halldóra Ólafsdóttir, Alexander Ólafsson, Dúfa Ólafsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.