Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 11 FRÉTTIR Formennska stjórnarand- stæðinga í þingnefndum Á ekki stoð í þingsköpum NEMENDUR, sem brautskráðust frá Tónlistarskólanum í Reykjavík nú í vor, ásamt Halldóri Haraldssyni skólastjóra. Tónlistarskólanum í Reykjavík slitið 14 nemendur braut- skráðir með 15 lokapróf SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir, formaður þingflokks sjálfstæðis- manna segir að þess sé hvergi getið í þingsköpum Aiþingis að stjórnar- andstæðingar skuli veita fasta- nefndum Alþingis formennsku og segir að það hafi orðið að ráði að þessu sinni að gera ekki tillögu um að stjómarandstæðingar stýri fastanefndum þingsins. Stjómarandstæðingar höfðu for- mennsku í þremur fastanefndum Alþingis á síðasta kjörtímabili og hafa gagnrýnt þá ákvörðun stjóm- arflokkanna að svo verði ekki áfram. „Þetta fyrirkomulag hefur auðvitað bæði kosti og galla,“ segir Sigríður Anna og telur að það hafí að ýmsu leyti reynst ágætlega en að öðm leyti miður á síðasta kjörtíma- bili. „Ég veit að margir höfðu áhuga á að halda þessu áfram en þetta varð niðurstaðan. Það er í sjálfu sér ekkert meira um það að segja,“ seg- ir hún ennfremur. Einfaldlega niðurstaðan Kristinn H. Gunnarsson, formað- ur þingflokks framsóknarmanna, HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær þrjá menn til fangelsis- vistar fyrir aðild að vopnuðum rán- um í tveimur söluturnum í vetur. Þyngsta dóminn fékk 34 ára gam- all karlmaður, Gauti Ólafsson, fyrir að hafa rænt söluturn við Grundar- stíg hinn 3. febrúar síðastliðinn. Fór hann inn í söluturninn með hníf í hendi, hettu yfir andliti og ógnaði starfsstúlku með hnífnum og neyddi hana til að afhenda sér 20-25 þúsund krónur úr sjóðvélum sölutumsins. Seinna ránið framdi maðurinn í sölutuminum Bússu í Garðastræti þar sem hann fór með flökunarhníf í hendi og með hluta úr sokkabuxum yfír höfði og andliti og skipaði starfs- stúlku sölutumsins að afhenda sér peninga og ógnaði henni með hnífn- um. Hann hvarf síðan af vettvangi með 12 þúsund krónur. Litið var til þess að maðurinn, sem segir að það hafí einfaldlega verið niðurstaða stjómarflokkanna að hverfa frá því fyrirkomulagi, sem gilti á síðasta þingi, að eftirláta þingmönnum stjórnarandstöðunnar formennsku í þremur fastanefndum Alþingis. Kristinn sagði að fyrir dyrum standi að endurskoða þingsköp Al- þingis og ágætt gæti verið að meta reynsluna af umræddu fyrirkomu- lagi í tengslum við hana. Á meðan sé rétt að „halda að sér höndum,“ eins og hann orðar það. „Ég bendi á að þetta fyrirkomu- lag [um að stjómarandstaðan fái formennsku í fastanefndum] er ný- mæli sem tekið var upp á síðasta kjörtímabili. Og þeir flokkar sem nú era í stjórnarandstöðu hafa ekki haft áhuga á því að taka upp slíka skipan þegar þeir hafa verið í stjórn," segir hann. Sjálfur kveðst hann á hinn bóginn þeirrar skoðun- ar að skynsamlegt sé að stjómar- andstaðan komi einnig að stjórn þingsins með aðild að forsætisnefnd Alþingis og/eða með formennsku í fastanefndum. hefur ítrekað gerst sekur um ráns- brot, hefur að langmestu leyti játað brot sín. Ennfremur var litið til þess að hann á við geðsjúkdóm að stríða og þótti því refsing hans hæfilega ákveðin þriggja og hálfs árs fangelsi Tveir samverkamenn dæmdir í fangelsi Jafnaldri mannsins var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi en hann var fundinn sekur um undanfarandi hlutdeild í fyrra ráninu með því leggja til hettu, sem hann vissi að nota ætti til ráns í einhverjum sölu- tumi. Sannað þótti ennfremur að þeir hefðu skipt með sér fengnum. Þriðji maðurinn, sem er 32 ára gamall, og hlaut 10 mánaða fangelsi, var fundinn sekur um hlutdeild I seinna ráninu, en hann lagði Gauta til sokkabuxurnar, sem hann notaði við ránið og tók við ránsfénu. TONLISTARSKÓLANUM í Reykja- vík var slitið í 69. sinn 28. maí í Há- teigskirkju. Strengjasveit Tónlistar- skólans í Reykjavík, undir stjóm, Marks Reedman lók lokaþáttinn Finale úr Serenöðu í C-dúr eftir Tsjaíkovskí. Halldór Haraldsson skólastjóri flutti ræðu um helstu at- burði skólaársins og efstu mál á baugi nú eins og Listaháskóla ís- lands sem taka mun til starfa í þremur áföngum, tónlistardeild væntanlega haustið 2001. Að því loknu afhenti hann þeim nemend- um, sem nú útskrifast frá skólanum, skírteini sín. Að þessu sinni braut- skráðust 14 nemendur frá skólanum með 15 lokapróf því einn nemandi lauk tvenns konar prófum. Sex nemendur luku tónmenntakennara- prófl, tveir burtfararprófí og tveir einleikaraprófí. Skólaárið hófst með námskeiði tveggja kennara frá Guildhall School of Music and Drama í skap- andi tónlist og tónlistarmiðlun. Þetta var stærsta og fjölmennasta námskeiðið til þessa og lauk því með stórtónleikum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á þessu skólaári sóttu ýmsir aðrir erlendir gestir skólann heim og héldu námskeið fyrir nem- endur og kennara. Þar er fyrst að nefna námskeið bræðranna Stefans og Dimitris Ashkenazy í október. Dimitri hélt námskeið í klarínettu- leik 6. október en Stefan námskeið í píanóleik 9. október. Þá hélt finnski kórsljórinn Seppo Murto námskeið í kórstjórn 17. október og breski sellóleikarinn Stefen Isserlis nám- skeið í sellóleik 20. nóvember. Hinir þekktu bandarfsku fiðluleikarar og kennarar Roland og Anita Vamos héldu námskeið í skólanum 4. til 6. janúar og opinbera tónleika í Saln- um í Kópavogi 7. janúar. Námskeið þeirra var ekki beinlínis á vegum skólans en hann styrkti námskeiðið ásamt nokkrum öðrum tónlistar- skólum. Veg og vanda af fram- kvæmd þess hafði Guðný Guð- mundsdóttir. Á tónleikunum 7. jan- úar stjómaði hún jafnframt strengjasveit sem, auk Gunnars Kvaran, var skipuð mörgum strengjanemendum skólans. Þá hélt Sibyl Urbancic námskeið í febrúar í Feldenkrais-tækni. Föstudagsfyrirlestra héldu Atli Heimir Sveinsson tónskáld, sem kynnti hinn nýja píanókonsert sinn, Runólfur Þórðarson verkfræðingur fjallaði um nemendur Franz Liszt, bandaríska tónskáldið og kennarinn Stephen Mosko um bandarfska sam- tíðartónlist og Dieter Kaufmann frá Tónlistarháskólanum í Vínarborg fyrirlestur um elektróníska tónlist. 34 tónleikar haldnir á vegum skólans f vetur voru alls haldnir 34 tón- leikar á vegum skólans, þar af 17 opinberir tónleikar utan skólans og 17 reglulegir tónleikar innan skóla. Meðal þessara tónleika voru hljóm- sveitartónleikar þar sem frumflutt- ur var Konsert fyrir hljómsveit eftir dr. Victor Urbancic, tvennir strengjasveitar-tónleikar, tvennir kammertónleikar og athyglisverðir tónleikar nemenda tónfræðadeildar skólans. Þess má geta að Kammermúsikklúbburinn í Reykja- vík bauð nemendum skólans að halda tónleika í upphafi árs á sínum vegum sem viðurkenningarvott um góða frammistöðu nemenda. Listasjóður Tónlistarskólans í Reylgavík veitti fjóram nemendum viðurkenningu með bókargjöf fyrir framúrskarandi árangur í námi, þeim Ástríði Öldu Sigurðardóttur, sem lauk einleikaraprófi, Ástríði Haraldsdóttur, sem lauk píanókenn- araprófi, Ingunni Jónsdóttur, sem lauk blásarakennaraprófi, og Þór- dísi Heiðu Kristjánsdóttur sem lauk tónmenntakennaraprófi. Kennarar kveðja Á þessu vori kvöddu tveir kenn- arar skólann, þær Selma Gunnars- dóttir píanókennari, sem lætur af störfum eftir 40 ár, og Sieglinde Kahmann óperusöngkona sem í mörg ár hefur miðlað af reynslu sinni og þekkingu. í lok skólaslita gáfu nemendur þeir, sem braut- skráðust, skólanum þarfa gjöf, vandaðan geislaspilara. Ásdís Stross, sem fagnaði 40 ára útskrift- arafmæli, gaf bókasafni skólans nokkra árganga af „Das Orkester". Fyrir munn 30 ára nemenda talaði Sigríður Sveinsdóttir, formaður Fé- lags tónlistarkennara, sem gáfu skólanum, auk peningajafar til bókasafnsins, lagasafn eftir Loft Loftsson og hljómplötu með Barna- kór Tónlistarskóla Rangæinga und- ir stjóm Sigríðar Sigurðardóttur til minningar um þau, en þau braut- skráðust fyrir 30 árum. Þá má nefna að Hermína S. Kristjánsson, stofnandi og í mörg ár deildarstjóri píanókennaradeildar, gaf skólanum nýlega plötusafn sitt. Þrír menn dæmd- ir í fangelsi Ólafur Örn Haraldsson, þingmaður Framsóknarflokks „Vekur athygli að formaður- inn er andstæðingur NATO“ Valið stóð á milli manna, segir Kristinn H. Gunnarsson „ÞAÐ vekur óneitanlega athygli að þingmaður sem fyrir örfáum mánuð- um greiddi atkvæði með því að hafn- ar yrðu viðræður við bandarísk stjórnvöld um brottflutning hersins skyldi hafa verið kosinn formaður og talsmaður þingflokks Framsóknar- flokksins þar sem vera hersins og aðOd Islands að Atlantshafsbanda- laginu (NATO) er einn af hornstein- um íslenskrar utanríkisstefnu,“ segir Olafur Örn Haraldsson, þingmaður Framsóknarflokks, í samtali við Morgunblaðið. Er hann með þessum orðum að vísa til þess að Kristinn H. Gunnars- son, nýkjörinn formaður þingflokks framsóknarmanna, hafí einn fram- sóknarmanna í byrjun mars sl. stutt þingsályktunartillögu Steingn'ms J. Sigfússonar, sem þá var í þingflokki óháðra, um brottför bandaríska hersins og yfirtöku íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar. Ólafur Örn bauð sig fram til emb- ættis formanns þingflokks Fram- sóknarflokksins gegn Kristni H. Gunnarssyni í fyrradag en varð að lúta í lægra haldi. Kveðst hann afar óánægður með þá skipan mála. Ólafur Örn, sem er þingmaður Reykvíkinga, segir það nauðsynlegt fyi-ir Framsóknarflokkinn að styrkja stöðu sína á höfuðborgarsvæðinu en það hefði hann getað gert með því að velja þingflokksformann úr Reykja- vík. Þá bendir hann á reynslu sína sem varaformaðm- þingflokksins og segist hafa fengið lof fyrir þau störf. Auk þess hafi hann staðið sig vel sem formaður umhverfisnefndar Al- þingis. „Þegar þingmaður óskar jafn eindregið eftir þingflokksformennsk- unni og ég gerði, í ljósi áðumefndra starfa, og er síðan hafnað af flokks- forystunni fer maður að efast um að góð vinnubrögð séu metin til aukinna ábyrgðarstarfa,“ segir hann. Hlutur Reykjavíkur er góður Kristinn H. Gunnarsson segir um formannskjörið í þingflokknum á mánudag að valið hafi einfaldlega staðið á milli manna og að ekki hafi verið „unnið gegn neinum." Aðspurður segir Kristinn hins vegar að það megi vel vera að kjör- dæmissjónarmið hafi ráðið einhverju um þá niðurstöðu þótt það eitt og sér hafi ekki ráðið úrslitum. „Það má vera að menn hafi eitthvað litið til þess að ráðherrar koma úr flestum kjördæmum landsins nema Vest- fjarðakjördæmi," segir hann og bendir jafnframt á að hlutur Reykja- víkur sé góður að því leyti að þaðan komi einn ráðherra, Finnur Ingólfs- son, og einn formaður fastanefnda Alþingis, Ólafur Örn Hai-aldsson for- maður umhverfisnefndar Alþingis. Aðspurður neitar Kristinn því að hann hafi sótt fast eftir formanns- embættinu í þingflokknum en kveðst hins vegar hafa látið það koma fram að hann myndi taka við formennsk- unni yrði þess óskað. Þá segir hann aðspurður að gengið hefði verið frá skipan formannsembættisins á mánudag og að hann hefði ekki vitað neitt fyrir víst fyrr en þá. Orkubú Yestfjarða Meðalhækk- un raforku- verðs 2,88% VERÐ á raforku frá Orkubúi Vest- fjarða hækkar að meðaltali um 2,88% hinn 1. júlí næstkomandi. Kristján Haraldsson orkubússtjóri segir almennan taxta og afltaxta lækka um 2% en rafmagn til húshit- unar hækka um 6%. Stjórn Orkubús Vestfjarða ákvað að breyta nokkuð uppbyggingu verð- skrár fyrirtækisins og segir Kristján markmiðið með því vera að orkan verði seld sem næst því verði sem kostnaður við hvern þátt orkuaf- hendingarinnar nemur. Segir hann fyrsta skrefið í þá átt stigið nú en ekki sé unnt að ná því markmiði í einu stökki. Almennur heimilistaxti og afltaxti, þ.e. raforka til stórnotenda, lækkar um 2% en orka til húshitunar hækk- ar um 6%. Segir Kristján að í raun hafi almenni taxtinn verið að greiða niður aðra taxta. Breytingarnar á gjaldskránni þýða meðalhækkun um 2,88%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.