Morgunblaðið - 16.06.1999, Page 10

Morgunblaðið - 16.06.1999, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Aldamótanefnd falið að búa norrænt samstarf undir áskoranir nýrrar aldar Kópavogur Varpi ljósi á þróun norrænna Morgunblaðið/Jón Svavarsson SAMSTARPSRÁÐHERRAR Norðurlandanna héldu út fyrir borgina að loknum fundi sínum í gær þar sem áð var í Hvalfjarðargöngunum og víðar. Frá vinstri: Peter Angelsen, sjávarútvegsráðherra Noregs, Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landstjórnarinnar, Hagni Hoydal, sem fer með sjálfstæðismál í færeysku landsstjórninni, og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra. samfélaga Á FUNDI norrænna samstarfs- ráðherra, sem haldinn var í Reykjavík í gær, var tekin sú ákvörðun að skipa skyldi nefnd sérfræðinga til að búa norrænt samstarf undir þær áskoranir sem vænta má að norrænu sam- félögin muni standa frammi fyrir í upphafi nýrrar aldar. Formaður nefndarinnar er Jón Sigurðsson, bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans, en í nefnd- inni sitja auk hans sjö nefndar- menn. Aldamótanefndin fær það hlut- verk að varpa ljósi á þróunina í norrænu samfélögunum og skil- greina á hvaða sviðum löndin geta nýtt sér sameiginleg einkenni en þar með munu opnast nýir mögu- leikar fyrir svæðið í heild og sam- starfið milli landanna. Menning, menntun, réttarein- ing, landamærahindranir, nor- rænt atvinnusamstarf og tengsl Norðurlanda við grannsvæði eru meðal þeirra hugtaka sem nefnd- inni er ætlað að vinna með. Á fundinum í gær var einnig rædd hugmynd um að taka upp grannsvæðasamstarf við Skotland, Shetlandseyjar, Orkn- eyjar, írland og norðvestursvæði Kanada. Var hún rædd með sér- stakri áherslu á verndun hafsins og umhverfismál og verður síðar rædd í norrænu aldamótanefnd- inni. Meðal annarra mála sem ráð- herrarnir ræddu var stöðu- skýrsla um norrænt samstarf á sviði Evrópumála og aukið nor- rænt samstarf við fijáls félaga- samtök á Norðurlöndum. 7,6 milljarðar á íjárlögum nefndarinnar Á fundinum var gengið frá tjárhagsáætlun Norrænu ráð- herranefndarinnar fyrir næsta ár, en hún hljóðar upp á 7,6 millj- arða íslenskra króna. Greiða fs- lendingar 1% af þeirri Qárhæð. Að sögn Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra, sem stýrði fundinum í fyrsta skipti sem nor- rænn samstarfsráðherra, verður fénu m.a. varið í að styrkja frjáls félagasamtök á Norðurlöndum, norrænt nemendasamstarf og samstarf á embættismannasvið- inu. Siv sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að loknum fundinum að norrænt samstarf væri afar mikilvægt fyrir fslendinga. „Við höfum ekki yfir jafnmörg- um sérfræðingum að ráða eins og hinar Norðurlandaþjóðimar þannig að þetta samstarf er okk- ur afar mikilvægt, ekki síst á póli- tíska sviðinu, þegar þrjár Norður- landaþjóðir era komnar inn í Evr- ópusambandið, en við stöndum fyrir utan það ásamt Norðmönn- um. Vegna þróunarinnar í Evr- ópu hefur gildi aukins norræns samstarfs fyrir Islendinga frekar aukist heldur en hitt,“ sagði Siv. Að loknum fundi samstarfsráð- herranna var farið í skoðunar- ferð út fyrir borgina þar sem áð var í Hvalfjarðargöngunum, í Reykholti, við Deildartunguhver og víðar. Samfylkingin vill að bensíngjaldshækkunin verði afturkölluð Ráðherra segir ekki ástæðu til að dttast verðlagshækkanir JÓHANNA Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, mælti fyrir framvarpi til laga á Alþingi í gær sem miðar að því að aftur- kalia þá bensíngjaldshækkun sem kom til framkvæmda 1. júní sl. „Efni frumvarpsins er að fjár- málaráðherra verði óheimilt að hækka bensíngjald á árinu 1999 en frumvarp þetta er þáttur í að- gerðum sem þingflokkur Samfylk- ingarinnar beitir sér nú fyrir til þess að sporna við verðbólgu," sagði Jóhanna meðal annars. I greinargerð frumvarpsins segir að í forsendum fjárlaga fyrir árið 1999 sé gert ráð fyrir hækkun bensíngjalds miðað við verðlag auk 2% viðbótarhækkunar til að standa undir auknum fram- kvæmdum í vegagerð fyrir 400 milljónir króna. „í gildandi vegaá- ætlun er einnig gert ráð fyrir þessari hækkun en einnig áætluð endurgreiðsla lánsfjár að fjárhæð 420 millj. kr. Með því að fresta endurgreiðslum má komast hjá því að draga úr framkvæmdum þrátt fyrir að hækkun bensín- gjalds verði slegið á frest,“ segir ennfremur í greinargerð. Jóhanna benti á að Samfylkingin teldi það afar mikilvægt að stjórn- völd og Alþingi beittu sér fyrir við- námsaðgerðum gegn verðbólgu. „Það er ástæða til þess að geta þess að í nýafstaðinni kosningabar- áttu hélt hæstvirtur forsætisráð- hen-a [Davfð Oddsson] því fram að það eina sem gæti ógnað stöðug- leikanum í þjóð- félaginu og komið af stað verðbólguhjól- inu væri það að Samfylkingin kæmist til valda. Kosningarnar vora ekki fyrr afstaðnar en verðbólguhjólið fór af stað og hækkanirnar að dynja yfir lands- menn. Nú er það hlutskipti sam- fylkingarinnar að tala fyrir því að gripið verði til nauðsynlegra að- gerða, til þess að reyna eins og kostur er að spoma við því að verðbólgan fari af stað á nýjan leik.“ Jóhanna gerði hækkun trygg- ingafélaganna á iðgjaldi bifreiða- trygginga einnig að umtalsefni og sagði að það væri álit Samfylking- arinnar að vinnubrögð trygginga- félaganna í aðdraganda hækkunar- innar gæfu fullt tilefni til að kann- að yrði af hálfu Samkeppnisstofn- STEFNT er að því að þingi ljúki um hádegi í dag eða eftir að sam- þykktar hafa verið breytingar á kjördæmaskipun landsins. Þing- fundur Alþingis hefst kl. 10.30 og að loknum fyrirspuraum til ráð- herra fer fram utandagskrárum- unar hvort fé- lögin hefðu beitt ólögmætu sam- ráði um hækk- unina. „Þing- flokkurinn fól fulltrúum sínum í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis að taka málið upp og kalla til fulltrúa Samkeppnisstofnunar til að fara yfir þann þátt málsins. Það hefur þegar verið gert og kom fram hjá tveimur fulltrúm Samkeppnis- stofnunar sem mættu á fund nefndarinnar að Samkeppnisstofn- un hefði þegar ákveðið að taka þetta mál upp, þ.e.a.s. Samkeppn- isstofnun hefur þá sjálf álitið nauð- synlegt að kanna hvort um verð- samráð milli ti-yggingarfélaganna hafi verið að ræða.“ Hækkun SVR endurskoðuð í umræðunum á eftir kom m.a. fram að Geir H. Haarde fjármála- ræða um athugasemdir Sam- keppnisstofnunar um samkeppni á fjarskiptamarkaði. Málshefjandi er Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra verður til andsvara. ráðherra væri andsnúinn fram- varpinu og sagði að bensíngjalds- hækkanirnar hefðu ekki átt að koma nokkrum manni á óvart. „Allir þeir sem tóku þátt í af- greiðslu fjárlaga hér fyrir síðustu jól áttu eða máttu vita að þar var gert ráð fyrir ákveðnum hækkun- um bæði á bensíngjaldi og þunga- skatti," sagði hann. Um aðgerðir Samfylkingarinnar gegn verðbólg- unni sagði hann hins vegar eftir- farandi: „Það er ánægjulegt verð ég að segja að Samfylkingin, eins og það heitir, ætlar að beita sér fyrir því að sporna við verðbólgu. Það er mjög ánægjulegt ef ríkis- stjórnin og efnahagsstofnanirnar í landinu hafa fengið bandamann í því efni. Mætti ég þá benda hátt- virtri Samfylkingu á að snúa sér til R-listans í Reykjavík og biðja um að hækkunin á fargjöldum SVR um 25% verði kannski endurskoð- uð.“ Síðar í ræðu sinni lagði ráðheraa áherslu á að ekki væri ástæða til að gera því skóna að miklar almennar verðlagshækkanir væru endilega framundan. „Við gerum okkur von- ir um að verðlagsforsendur fjár- laganna í ár, sem miðuðu við það að verðbreyting milli áranna 1998 og 1999 yrði að meðaltali 2,5%, verði ekki fjarri lagi. Það hefur farið næiri því að standast [...] en auðvitað er óheppilegt þegar svona hækkanir koma inn á einum og sama tímapunktinum eins og hér hefur orðið.“ mmmrnm Þingi lýkur um hádegi í dag Bæjarráð hafnar tillögu kennara BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur hafn- að tillögu kennara um 170 þús. króna eingreiðslu fyrir síðasta skólaár. Að sögn Braga Miehaelssonar, for- manns skólanefndar, hefur kennur- unum verið gert svipað tilboð og I Reykjavíkurborg hefur boðið sínum j kennurum. Brynjar Valdimarsson \ fulltrúi kennara í samninganefnd, j segir að samþykkt bæjaiTáðs séu vonbrigði. Bragi sagði að kennurum hefði upphaflega verið boðið að ganga til samstarfs um nýjar tillögur launa- nefndar sveitarfélaga. „Þeir töldu sig ekki geta gengið tO þess og töldu að það mál væri í höndum Kennarasam- bandsins og buðu okkur að ganga tO samninga og greiða 170 þús. króna j eingreiðslu fyrir síðastliðið skólaár," í sagði hann. „Þeirri tillögu hafnaði f bæjaiTáð í síðustu viku en í mölitíð- P inni höfum við gert kennurum tilboð svipað og Reykjavíkurborg hefur gert um að vinna að ákveðinni fram- vindu skólanámsskrár og breyttu skólastarfi með því að greiða 10 tíma stöðugildi næsta skólaár." Sagði hann að fræðslustjóra, kennurum og skólastjórum hefði verið falið að gera tillögur að vinnufyrirkomulagi | og greiðslum, sem yrðu á bilinu . 130-140 þús. á stöðugildi yfir skóla- ; árið og væri þá miðað við starfs- pP reynslu kennara og laun. Ákvörðun hvers og eins Brynjar Valdimarsson fulltrúi kennara í samninganefnd segir að samþykkt bæjarráðs um að hafna 170 þús. króna eingreiðslu séu von- brigði. „Við erum ekki farin að hug- leiða neinar aðgerðir enda getum við j í samninganefndinni ekki gert það,“ j sagði hann. „Það verður hver og einn | að taka ákvörðun um hvað hann vOl fc gera í framhaldi en við munum væntanlega koma saman í nefndinni á næstunni til að ræða stöðuna." Samband ungra sjálfstæðismanna Jónas Þór gef- ur kost á sér til formennsku JÓNAS Þór Guðmundsson, 1. vara- formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna, lýsti því yfir á fundi með ungum sjálf- stæðismönnum í Kópavogi sl. mánudagskvöld að hann hygðist gefa kost á sér til formennsku í sambandinu á næsta þingi þess, sem fram fer í Vestmannaeyjum 20.-22. ágúst. „Ég hef áhuga á því að leggja baráttunni fyrir frelsi einstaklingsins til orða og athafna lið og starf innan SUS er spennandi vettvangur í því efni. Meginverkefn- ið verður að berjast fyrir framgangi sjálfstæðisstefnunnar og það eru mörg verkefni óunnin þegar kemur að því að draga úr útþenslu ríkisins. Það verður verðugt verkefni fyrir ungt sjálfstæðisfólk að hvetja ráða- menn Sjálfstæðisflokksins til dáða í þeim efnum og veita þeim jafnframt málefnalegt aðhald þegar út af brcgður," sagði Jónas Þór í samtali við Morgunblaðið. Núverandi formaður SUS, Ásdís Halla Bragadóttir, hefur lýst því yfir að hún gefi ekki kost á sér áfram. V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.