Morgunblaðið - 25.06.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 9
FRÉTTIR
*
I Þróunarsetri Vestfjarða starfa fímm stofnanir undir einu þaki
Háskóli Islands boðar
rannsóknastöðu við setrið
ÞRÓUNARSETUR Vestfjarða
tók nýlega til starfa. Háskóli Is-
lands ætlar að koma á fót rann-
sóknastöðu í tengslum við starf-
semi setursins, segir Aðalsteinn
Óskarsson, formaður stjórnar set-
ursins. I Þróunarsetri Vestfjarða
eru saman komnar undir einu þaki
fimm stofnanir með 18 starfsmenn
sem sameiginlega og hver í sínu
lagi vinna að ýmsum verkefnum
sem tengjast Vestfjörðum. Þetta
eru Hafrannsóknastofnunin,
Rannsóknastofnun fískiðnaðarins,
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða,
Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða og
Fjórðungssamband Vestfirðinga.
Aðalsteinn Óskarsson er for-
maður stjórnar Þróunarseturs
Vestfjarða og framkvæmdastjóri
Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.
Hann segir að þrátt fyrir að stofn-
anirnar fimm sinni áfram sínum
sjálfstæðu verkefnum hafi þær nú
sameiginlega ritaraþjónustu og
ýmis sameiginleg verkefni að
vinna að.
„Atvinnuþróunarfélagið skarast
á við hina aðilana," segir hann.
„Við erum með rannsóknarverk-
efni, tengd sjávarútvegi með
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
Hafrannsóknastofnun stundar
veiðarfærarannsóknir og hug-
myndir eru uppi um frekari rann-
sóknir á vannýttum stofnum, eins
og ýmsum botndýrum, svo og
rækju. Fjórðungssamband Vest-
firðinga vinnur meira á hinum
pólitíska vettvangi fyrir sveitar-
stjórnarmenn en við fáum rekstr-
arframlag frá þeim vegna okkar
starfsemi í Atvinnuþróunarfélag-
inu og erum að vinna verkefni fyr-
ir þá. Svæðisvinnumiðlunin er
mest út af fyrir sig. Hennar hlut-
verk er dagleg atvinnuleysisskrán-
ing og vinnumiðlun, en í lögum er
gert ráð fyrir þátttöku vinnumiðl-
ana í atvinnuþróunarstarfi og við
erum í sameiginlegum verkefnum
t.d. varðandi styrkleika og veik-
leikagreiningu varðandi Vestfirði
þar sem, að þeirra tillögu, er litið á
félagslega þáttinn."
Eignarhaldsfélag stofnað
Hann sagði að við opnunina
hefði því verið lýst yfir að í þróun-
arsetrinu væri unnið að stofnun
eignarhaldsfélags fyi-ir Vestfirði, í
tengslum við nýsamþykkta
byggðaáætlun Alþingis, líkt og
gert hefur verið á Austurlandi.
Byggðastofnun muni væntanlega
leggja fram allt að 40% af stofn-
framlagi eignarhaldsfélagsins.
„Þetta verður hlutafjársjóður,
sem við vonumst til að stofna í
ágúst - september og hefur það að
markmiði að stuðla að nýsköpun
og koma að fyrirtækjum sem eru
með nýjar hugmyndir sem hafa
verið þróaðar í þessu setri en vant-
ar fjármagn til að þróa áfram yfir
á nýtt stig.“
Þá var því lýst yfir við opnunina
að Háskóli Islands ætli að setja
upp rannsóknastöðu í tengslum við
setrið á svipaðan hátt og í Ný-
herjabúðum á Höfn í Hornafirði.
„Þetta er hluti af nýrri stefnu há-
skólans að tengja sig atvinnulífi og
nýsköpunarstarfi," sagði Aðal-
steinn. Hann sagði að forstjóri
Hafrannsóknastofnunar hefði
einnig lýst því yfir að fengjust
auknar fjái’veitingar væri ofarlega
á blaði að auka umsvifin í útibúi
stofnunarinnar á Vestfjörðum.
Prologic
EINSTAKT FÆÐUBÓTAREFNI
AFSLÁTTUR
ÞEGAR ÞÚ VILT SNÚA
VORNí SOKN
fæst í flestum apótekum og
lyfjaverslunum um land allt.
Heldur þú að
B-vítamm sé nóg ?
NATEN
- er nóg!
1/1
QJ
*->
ca
c
£
£
30-70% afsláttur
5/ssa t-ískuhús
mmmn «, sím ssa s„o £>jssa ^ískuhÚS
LAUGAVE6I 87, SÍMI 562 5112
Opið til kl. 22 í kvöld og um helgina.
Franskir opnir
sumarskór
* ” V^eðst vi& Dunhago,
simi 562 2230.
Opið virka daga 9-
laugardaga 10-
-18,
-14.
NvÉsending af FUBU
(barnastæröir) .
m
mi -
Kringíunni, sími 568 3242
LIHGÁkNI
LAUGAVEGI 35, SÍMI 552 1033
HVERAFOLD 1-3 SÍMI 567 6511
Utsalan er hafin
15-50% afsláttur
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vib hreinsum:
Rimla, strimla, plíseruö og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúft.
Sækjum og sendum ef óskaó er.
41 Níí0
íL tækníhreinsunin
Sólhelmar 35 • Sími: 533 3634 • GSM: 897 3634