Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 17
Nordjobbverkefnið af stað í 15. sinn
Ungt fólk í vinnu í
nágrannalöndunum
NORDJOBBVERKEFNIÐ, þar sem
ungu fólki á aldrinum 18-26 ára er
gefinn kostur á að vinna í einhverju
nágrannalandanna í nokkrar vikur yf-
ir sumarið og kynnast á þann hátt
landi og þjóð, er komið af stað í 15.
sinn.
A svæði Norrænu upplýsingaskrif-
stofunnar á Akui-eyri er um 15 ung-
menni í sumar en undanfarin ár hefur
Akureyrarbær sýnt þessu mikinn vel-
vilja. I sumar verða ungmenni á Dal-
vík og Húsavík í fyrsta sinn og er mik-
il ánægja með að sveitarfélögin skuli
sýna þessu verkefni skilning og átta
sig á þýðingu þess fyrir báða aðila.
í sumar kemur til landsins hópur
ungs fólks frá Vesturheimi í svokallað
Snorraverkefni. Hópurinn dvelur hér
á tímabilinu 12. júlí til 6. ágúst og er
verið að leita að ættingjum þeirra sem
hugsanlega vildu leyfa þeim að búa
hjá hér þessar fjórar vikur. Stefnt er
að því að útvega ungmennunum
ólaunaða ,,sumarvinnu“ en að þau fái
vasapening við komuna til landsins.
Fyrir áhugasama, þá liggja upplýs-
ingar um nokkur þessara ungmenna á
Norrænu upplýsingaskrifstofunni á
Akureyri.
Rúmlega 150
hundar sýndir
HIN árlega hundasýning Hunda-
ræktarfélags Islands og svæðafélags
H.R.F.I. á Norðurlandi verður haldin
í Iþróttahöllinni á Akureyri helgina
26. og 27. júní nk. Alls verða sýndir
153 hundar af 32 tegundum en dóm-
ari verður Tore Fossum frá Noregi.
Keppni hefst á laugardag kl. 11 og
verður þá keppt í tegundahópum 1-5-
4-6 og 8. Keppni hefst á sama tíma á
sunnudag en þá verða dæmdir teg-
undahópar 2-3-7 og 9. Úrslit sýning-
arinnar eru áætluð um kl. 18 en val-
inn verður besti hvoipur sýningar-
innar, besti öldungur, besti af-
kvæmahópur, besti ræktunarhópur
og besti hundur sýningarinnar.
Keppni ungra sýnenda verður á
laugardag og hefst kl. 17.
í Hagkaupi
Hettupeysa
Bolir, verð frá
Joggingbuxur
Meira úrval - betri kaup
Mazda 323F
1.490.000