Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Afram sam-
starf við
Japani
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN
og MAR Co. Ltd. í Japan hafa gert
samning um áframhald samstarfs
um tilraunaveiðar á túnfiski innan
íslenskrar efnahagslögsögu á þessu
ári. Samningurinn er sambærilegur
við samninga sem gerðir hafa verið
sl. þrjú ár samkvæmt sérstakri
heimild sjávarútvegsráðuneytisins.
Gert er ráð íyrir að fímm japönsk
túnfiskveiðiskip veiði innan lögsög-
unnar 1. ágúst til 30. nóvember í ár.
Skipunum er gert að fara um skil-
greint svæði sunnan og suðvestan
við landið og safna með skipulögð-
um hætti upplýsingum um gang
veiða og umhverfisþætti. Um borð í
skipunum verða íslenskir rann-
sóknamenn sem kanna afla og taka
sýni til rannsókna aldurssamsetn-
ingu og fæðuvistfræði túnfisks á Is-
landsmiðum. Enn fremur tryggir
samningurinn áframhald erfðarann-
sókna, sem ætlað er að varpa ljósi á
stofngerð túnfisks í Norður-Atl-
antshafi.
Samkvæmt ákvæðum samnings-
ins er gert ráð fyrir að Japanirnir
aðstoði íslensk skip sem hug hafa á
að ná tökum á túnfiskveiðum. Norð-
ur-Atlantshafsráðið, ICCAT, fer
með stjórn túnfiskveiða á Norður-
Atlantshafi og er gert ráð fyrir að
öllum rannsóknaniðurstöðum verði
jafnóðum komið á framfæri á vett-
vangi vísindanefndar ICCAT.
---------------
Veiðarfæragerð
2 milljóna
námsstyrkur
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
auglýsti fyrir skömmu styrk til
meistara- eða doktorsnáms í veiðar-
færafræðum og nemur styrkurinn
að hámarki tveimur milljónum
króna á ári í allt að þrjú ár.
Svona hár styrkur er nýmæli hjá
Hafrannsóknastofnun en að sögn
Jóhanns Sigurjónssonar forstjóra
var ákveðið að fara þessa leið vegna
mikilvægis menntunar á umræddu
sviði og á næstunni yrði a.m.k. einn
annar ámóta styrkur auglýstur.
„Við teljum mikilvægt að stuðla að
því að það komi vel menntað fólk til
starfa á þessu sviði og viljum gera
það með þessum hætti,“ sagði Jó-
hann við Morgunblaðið.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið
fyrri hluta prófi á háskólastigi í
verkfræði, tæknifræði eða skyldum
greinum raunvísinda, líffræði eða
öðrum undirbúningi sem hentað
getur framhaldsnáminu. Gert er ráð
fyrir að námsverkefnið verði unnið í
samráði við sérfræðinga Hafrann-
sóknastofnunai-innar og er umsókn-
arfrestur til 15. júlí.
------♦-♦-♦----
Fá kvóta í
Máritaníu
RÚSSAR fá 250.000 kvóta í Márit-
aníu í ár samkvæmt samningi sem
þjóðirnar gerðu með sér fyrir
skömmu en 1996 gerðu þær samn-
ing varðandi fiskveiðar sem gildir út
líðandi ár. Pað sem af er samnings-
tímabilinu hafa Rússar veitt meira
en 500.000 tonn í lögsögu Máritaníu
og greitt Máritönum 20% aflans
fyrir kvótann.
Mikil samvinna er á milli þjóð-
anna í sjávarútvegsmálum. Rúss-
neskir sérfræðingar hafa reglulega
fylgst með stofnstærð tegunda í lög-
sögu Máritaníu og ráðlagt hvernig
eigi að verja þá og byggja þá upp
auk þess sem þeir hafa kennt
heimamönnum á þessu sviði. I stað-
inn hafa rússneskir sjómenn fengið
ákveðin réttindi í Máritaníu, Márit-
anar hafa séð um viðgerðir á togur-
um þeirra og útvegað þeim fæði og
eldsneyti.
st'ríp'
Þjónustu og ábyrgðaraðilar eru:
Gleraugnaverslunin í Mjódd • Gleraugnaverslun Keflavíkur • Gleraugnaversiun Suðurlands
Nýr Gandí
til Vest-
mannaeyja
NÝR Gandi sigldi inn í Vest-
mannaeyjahöfn á þriðjudags-
morgun. Um er að ræða 10 ára
gamalt skip, 34 metra að lengd
og 8,20 metra á breidd, sem út-
gerðarfyrirtækið Gandí ehf. í
Vestmannaeyjum keypti í Ala-
sundi í Noregi fyrir 250 milljón-
ir króna.
„Við erum að endurnýja og
yngja upp,“ sagði Gunnlaugur
Olafsson útgerðarstjóri við
Morgunblaðið og bætti við að til
stæði að selja dragnóta- og
netabátinn Guðjón VE sem áður
hét Gandí. Hann var smíðaður í
Noregi 1961, yfirbyggður 1981
og Iengdur 1990. „Við vorum á
netum og snurvoð en verðum
eingöngu á línu,“ sagði Gunn-
laugur.
Morgunblaðið/Sigurgeir
GANDÍ VE 171 kom til Vestmannaeyja í fyrsta sinn á þriðjudag.
Að sögn Gunnlaugs er nýja
skipið sérbyggt línuskip með
frystingu. „Við ætlum að róa
með línu og frysta aflann um
borð,“ sagði hann. Gandí er með
900 hestafla vél og sagði Gunn-
laugur að vel hefði farið um
menn á leiðinni heim. „Það var
blíðskaparveður og því reyndi
lítið á skipið en okkur leið vel.“
Níu manns voru í áhöfn á
eldra skipinu og 11 þegar það
var á netum en 14 .verða í áhöfn
nýja skipsins, undir stjórn Stef-
áns Sigurðssonar skipstjóra.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar • Sími: 425 0500