Morgunblaðið - 01.07.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 29
Ránarborg, fyrirtæki Þorsteins Vilhelmssonar, kaupir í Hraðfrystihúsinu hf.
„Á að geta orðið
mjög gott félag“
„MÉR lízt vel á það sem er að gerast
með sameingingu Gunnvarai-, Ishús-
félags ísiirðinga og Hraðfrystihúss-
ins. Þess vegna ákvað ég að fara í það
í samvinnu við Þormóð ramma - Sæ-
berg að kaupa hlut í hinu sameinaða
fyrirtæki. Þegar eignir hafa verið
seldar og hagrætt í rekstrinum á
þetta að geta orðið mjög gott félag,“
segir Þorsteinn Vilhelmsson í samtali
við Morgunblaðið.
Fyiirtæki í eigu Þorsteins, Ránar-
borg, hefur keypt 10% hlut í hinu
sameinaða félagi af Islandsbanka
F&M, en Þormóður rammi - Sæberg
keypti jafnmikið. Saman eiga þessi
fyrirtæki því 20% í hinu sameinaða
félagi og Islandsbanki jafnmikið, en
til stendur að selja hlut hans. Hlutur
fyrri eigenda er þá 60% samanlagt.
Þorsteinn Vilhelmsson segist von-
ast til þess að salan á 20% Islands-
banka verði í góðri samvinnu við
Ránai'borg og Þormóð ramma - Sæ-
berg, en hann verður fulltrúi fyrir-
tækjanna tveggja í aðalstjórn félags-
ins.
„Við teljum að þarna eigi að geta
orðið til gott félag með góða kvóta-
stöðu og það eigi að vera hægt að
reka það með hagnaði," segir Þor-
steinn. Hann segir að þessi kaup
hans tengist ekki á nokkum hátt
brotthvarfi hans frá Samherja fyrir
skömmu. Þetta sé nýtilkomið og ein-
faldlega góður fjárfestingarkostur.
Reynsla Þorsteins mun
nýtast vel
Róbert Guðfinnsson, formaður
stjórnar Þormóðs ramma - Sæ-
bergs, tekur í sama streng og Þor-
steinn. Hann segir þetta góðan fjár-
festingarkost og er viss um að hægt
verði að ná góðum árangri í rekstri
þess eftir sameiningu og hagræð-
ingu í kjölfar hennar.
„Við höfum áhuga á að vinna með
þessu fólki. Eftir þessa miklu upp-
stokkun verður til fyrirtæki, sem
verður fullfært um að standa sig í
þessum harða heimi. Okkur lízt
einnig vel á að fara þarna inn í sam-
vinnu við Þorstein Vilhelmsson.
Hann er reynsluríkur og sterkur
stjómandi. Hann hefur áhuga á því
að halda áfram í sjávarútvegi og
reynsla hans og þekking mun vafa-
laust nýtast hinu sameinaða fyrir-
tæki vel,“ segir Róbert Guðfinns-
son.
„Kvótinn
er meinið“
Fiskverkunin
Unnur á Þingeyri
segir starfsfólki
sínu upp
„ÞAÐ er nauðsynlegt að endur-
skipuleggja reksturinn. Verð á leigu-
kvóta er allt of hátt og sömu sögu er
að segja af mörkuðunum. Þess vegna
segjum við fólkinu upp störfum.
Kvótinn er meinið, að þurfa að leigja
til sín allan fisk. Það stendur þessu
öllu fyrir þrifum,“ segir Sigfús Jó-
hannsson, eigandi og framkvæmda-
stjóri Unnar ehf. á Þingeyri, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Unnur er eina starfandi fisk-
vinnsluhúsið á Þingeyri eftir að
starfsemi Rauðsíðu stöðvaðist. 14
manns hafa unnið við söltun í fisk-
verkunarhúsi fyrirtækisms að und-
anfijrnu og nokki'ir hafa starfað við
beitningu og á sjó. Unnur var stofn-
uð fyrir nokkmm ámm og hefur
unnið 300 tonn á ári, verkað í salt og
harðfisk. Fyrirtækið er með eina
trillu en fleiri báta í viðskiptum og
hefur þurft að leigja um 200 tonn af
kvóta til að halda vinnslunni gang-
andi. Einnig hefur fiskur verið
keyptur á fiskmörkuðum.
„Þótt fólkinu hafi verið sagt upp
störfum emm við ekkert að fara að
loka. Það era allir á sjó í dag. Þetta
er bara varúðarráðstöfun til að sjá til
hvað gerist með nýju fiskveiðiári,
enda koma sumar uppsagnanna ekki
til framkvæmda fyrr en í haust. Þeg-
ar maður sér að dæmið gengur ekki
upp breytir maður einhverju ef mað-
ur getur. Við höfum nú frekar verið
að auka vinnsluna en hitt að undan-
förnu, en það þarf svo mikla peninga
til að fá fískinn upp úr sjónum. Það
fæst enginn fiskur úr sjó án þess að
borga einhverjum öðram fyrir hann
áður. Ég er bara með litla trillu með
10 tonn á henni, tvo aðkomubáta og
skakbátana sem era að byrja.
Meinsemdin er sú að þú þarft að
borga okurverð fyrir fiskinn ein-
hveijum Pétri eða Páli áðm' en þú
tekur hann úr sjónum og verður að
vera með alls konar raglvesen í
kringum það. Svo lifa fleiri kvóta-
bankar á þessu líka. Verðið á mörk-
uðunum er einnig of hátt og fiskur-
inn þar ekki nógu góður heldur. Það
er bezt að fá fiskinn beint upp úr
bátunum,“ segir Sigfús Jóhannsson.
----------------
Marokkó
lokar á út-
lendinga
RÍKISSTJÓRN. Marokkó hefur
hvatt spænsk sjávarútvegsfyrh'tæki
til að stofna fyrirtæki með sjávai'út-
vegsfyrirtækjum í Marokkó þar sem
erlendum skipum verður ekki leyft
að stunda veiðar innan lögsögu
Marokkó eftir áramót. Um 500
spænsk skip stunda veiðar við
Marokkó en sjávarútvegsráðherra
Spánar er að leita nýrra veiðisvæða
fyrir flotann víðs vegar um heiminn.
í Hagkaupi
1 *-
m I
iif
Dömugallabuxur verð frá 989 kr.
Dömujoggingbuxur verð frá 989 kr.
Dömujoggingpeysur verð frá 1.295 kr.
Herraflíspeysur verð frá 989 kr.
Herraskyrtur verð frá 789 kr.
Regngallar verð frá 1.995 kr.
Sportskór verð frá 1.995 kr.
Sandalar verð frá 1.295 kr.
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup