Morgunblaðið - 01.07.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 53,
UMRÆÐAN
SÆLL og blessað-
ur, Sveinn. Bestu
þakkir fyrir greinina
þína hér í blaðinu, 12.
júní sl., þar sem þú
fjallar um skort á
starfsfólki á hjúkrun-
arheimilum aldraðra,
bæði hvað varðar
hjúkrunarfræðinga og
fólk í umönnunarstétt-
um þ.e. sjúkraliða og
sóknarstarfsmenn
(reyndar hefur Sókn
nú sameinast meira
verkalýðsfélögum
undir samheitinu Efl-
ing). Jafnframt veltir
þú fyrir þér nokkrum
leiðum til lausna og hvetur til um-
ræðna um þau og þennan vanda í
heild sinni. Ég vil nú taka þinni
áskorun og vona að fleiri fylgi í
kjölfarið. Þú talar um að hjúkrun-
arfræðingar sæki í æ ríkari mæli á
stjórnunarstörf og vitnar í bréf
sem þið forstjórar hjúkrunarheim-
ilanna senduð heilbrigðisráðherra
sl. ár. Þar sem þið
bentuð á „sem eina
leið til að leysa vand-
ann að auka menntun
sjúkraliða og þannig
gætu þeir tekið að sér
ýmis verkefni sem
hjúkrunarfræðingar
annast í dag og hjúkr-
unarfræðingar jafn-
framt snúið sér enn
frekar að stjórnunar-
störfum". En Sveinn,
ekki að ég hafi á móti
aukinni menntun
sjúkraliða, ég styð
hana heils hugar, en
ég tel þó heillavæn-
legast að finna fyrst
lausn þeirrar gátu hvers vegna
hjúkrunarfræðingar sækja fremur
í stjórnunarstöður en beina hjúkr-
un, og langar að viðra hér hug-
myndir mínar um þau mál. Raun-
ar finnst mér ósköp ljóst hvaða
meginorsök er hér að baki og held
að flesta sem hugleiða þessi mál
renni hana í grun. Orsökin er það
Hjúkrunarfræðingar
Jöfnum kjörín, fjölgum
stöðugildum og fletjum
út valdapíramítann, seg-
ir Þóra Asdís Arnfinns-
dóttir, í opnu bréfi til
Sveins H. Skúlasonar.
gildismat sem ríkir í okkar þjóðfé-
lagi og sem við hvert og eitt erum
meira og minna mótuð og undir
áhrifum af. Gildismat sem ræður
því (hvernig svo sem við reynum
að blekkja okkur með öðrum skýr-
ingum) að langveikir, fatlaðir,
aldraðir, sjúkir og þeir sem þeim
sinna, eiga stöðugt undir högg að
sækja með að fá og veita þá þjón-
ustu sem nauðsynlegast er. Hvað
þá halda uppi þeim gæðastaðli
sem þeir geta sætt sig við. Ég tel
það ekki lengur vera launamálin
sem slík sem halda hjúkrunar-
fræðingum frá því að vinna á
hjúkrunarheimilum aldraðra,
heldur hinar erfíðu starfsaðstæð-
ur og viðvarandi mannekla bæði
hjúkrunarfræðinga og aðstoðar-
fólks sem valda því meðal annars
að víðast er allt innra starf og
Hjúkrun á heimil-
um fyrir aldraðra
Þóra Ásdís
Arnfinnsdóttir
skipulag deildanna meira og
minna í molum.
Hjúkrunarfræðingar ná einfald-
lega ekki að veita þá faglegu for-
ystu og leiðsögn sem er nauðsynleg
til að góður árangur náist, ánægja
ríki og þekking þeirra nýtist. Und-
anfarin fjórtán ár hef ég starfað við
öldrunarhjúkrun á ýmsum stofnun-
um hér í Reykjavík auk þess að
vinna á tveim stöðum úti á landi
nokkra mánuði í senn. Á þessum
árum hef ég ýmist sinnt stjórnun,
kennslu eða unnið sem ;,óbreyttur“
hjúkrunarfræðingur. Eg hef því
kynnst fjöldanum öllum af frábæru
starfsfólki umönnunar stétta sem
hafa sannfært mig um að hér á
landi er enginn skortur á fólki sem
hefur næga þekkingu og færni til
að vinna vel þessi störf. Það sem
skortir fyrst og fremst eru bætt
launakjör þess og betri og meiri
áhugavekjandi vinnuaðstæður. Því
legg ég til áður en lengra er haldið
að við leggjumst á eitt um þetta,
fagfólk, opinberir aðilar, og aðrir
sem málið varðar. Jöfnum kjörin,.^*
fjölgum stöðugildum og fletjum út
valdapíramítann. Þannig að þekk-
ing og færni allra fái að njóta sín.
Aðeins með þeim hætti mun okkur
takast að byggja þann heimilis-
anda, umhyggju, vináttu og virð-
ingu sem hinir öldruðu skjólstæð-
ingar okkar eiga skilið, og við hin
reyndar líka! Að endingu vil ég
taka undir með þér, Sveinn, og
skora á fleiri að láta álit sitt í ljós,
bæði á síðum þessa blaðs og ann-
arra sem víðast. Hafðu aftur kæra
þökk fyrir frumkvæðið.
Höfundur er geðlyúkrunarfræðing-
ur og starfar á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum.
Vítvl v\w eWt gcH- <?vé
ölltAVM SHMböllAVVlAVn SDAlAlM
\>ó iMcné iav sé eYY\ Ue'uMín!
Með símtalsflutningi Símans er hægt að vísa öllum hringingum
í þinn síma, í annað númer hvar sem er á landinu.* Hægt er að
vísa símtölunum í venjulegan síma, farsíma, talhólf, svarhólf
eða boðtæki og sá sem hringir verður ekki var við flutninginn.
Sækja þarf um símtalsflutning hjá Símanum.
Símtal flutt: □ 21 □. Númerið sem á að flytja hringinguna
í er valið og síðan ýtt á □.
Þjónusta gerð óvirk: □ 210.
Sá sem hringir í númer sem flutt hefur verið greiðir fyrir það símtal, en eigandi
númersins sem flutt er úr greiðir fyrir símtal í það númer sem flutt er í.
www.simi.is
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN SIMTALSFLUTNINGS
7000
ÞU GETUR PANTAÐ SERÞJONUSTU A ÞJONUSTUMIÐSTOÐVUM SIMANS OG I GJAIDPRJALSU NUMERI
«