Morgunblaðið - 01.07.1999, Qupperneq 56
.56 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Framtíðin byrjar
núna, Ragnar!
RAGNAR Önundarson, fram-
kvæmdastjóri Europay á Islandi,
fullyrðir í viðtali í Morgunblaðinu 11.
júní sl., að hið nýstofnaða kortafyrir-
tæki Kort hf. leggi af stað með við-
skiptahugmynd sem ekki komi til
með að ganga upp, en rökstyður það
ekki frekar. Hann nefnir einnig að
hún gæti verið tæknilega varasöm!
Agæti Ragnar - hvað gengur þér
til með fullyrðingum þínum? Ertu
kannski að segja almenningi og kort-
höfum þínum, að stærstu viðskipta-
vinir þínir, eigendur Korts hf., séu
ekki færir um að leggja mat á við-
skiptahugmyndir yfir höfuð? Ertu
kannski með þessu að segja að sú
mikla vinna sem lögð hefur verið í
stofnun Korts hf. hafí verið illa unnin
af þessum viðskiptavinum þínum?
Síðar í sama viðtali kveður við nýjan
og ánægjulegan tón þegar þú ræðir
um hagsmuni kaupmanna sem þína
og segir þar orðrétt: „Eg hef áhyggj-
ur af því að kaupmenn fjárfesti í
tækjum sem ekki muni geta gengið
með stöðlunum sem enn eru að
breytast eða eru ekki komnir fram.“
Föðurlegt og göfugt er að deila
hugsunum þínum með lesendum
Morgunblaðsins og helstu viðskipta-
vinum þínum, en aldrei grunaði mig
að framkvæmdastjóri fyrirtækis eins
og Europay ísland hf. væri jafn illa
að sér um grunnforsendur þeirrar
tækni sem hann sjálfur er að fara að
taka í notkun fljótlega.
I Ijósi þess vil ég því leiðrétta
missagnir framkvæmdastjórans og
leiða hann inn á rétta braut að nýju!
Sannleikurinn er sá að helstu við-
skiptavinir þínir hafa lagt mikla
vinnu og fjármuni í að
gera þetta hagsmuna-
mál kaupmanna og
korthafa að veruleika.
Eg geri engum þá hugs-
un upp að halda að
starfsmenn, sem og
stjórnarmenn fyrir-
tækjanna sem að Korti
hf. standa, séu svo skyni
skroppnir að þeir geti
ekki lagt mat á góða
viðskiptahugmynd! Ég
vil jafnframt benda á að
þeir hafa þegar fjárfest
í henni fyrir 175 milljón-
ir króna. Fjárfesting-
unni er ætlað að skila
korthafa og kaupmanni
miklu hagræði þegar
fram líða stundir. Astæðan fyrir því
að þessir aðilar, sem koma úr ýms-
um greinum viðskiptalífsins, stofna
umarviku
Heimilistækj'
nýtt kortafyrirtæki og
hefja rekstur sem eng-
inn þeirra var í fyrir, er
óánægja með þjónustu
bankakerfísins og
gömlu kortafyrirtækj-
anna á þessu sviði.
Varðandi ummæli þín
um tæknileg atriði ertu
ekki aðeins á hálum ís,
heldur lætur nærri að
þú hafir fallið í vökina
líka og sért rennblautur
að krafsa þig upp á ís-
inn aftur. Ég vil benda
þér á að sú tækni sem
stuðst er við, smart-
Þorsteinn kortatæknin, er ekki ný
Geirsson af nálinni. Um er að
ræða 20 ára gamla
tækni sem tekist hefur að þróa með
þeim hætti að fjárfestar í verslun og
þjónustu eru tilbúnir til að ganga
veginn til enda og nýta sér tæknina
sem þú virðist hafa efasemdir um!
Þetta vekur upp þá spurningu
hvort Eruopay og Visa ætli virkilega
að gefa út örgjörvakort (smartkort)
til þess eins að ná að gefa þau út fyr-
ir lok ársins? Verður þetta til kostn-
aðarauka fyrir kaupmenn? Er rétt af
Kortafyrirtæki
Aldrei grunaði mig,
segir Þorsteinn Geirs-
son, að framkvæmda-
stjóri fyrirtækis eins og
Europay Island hf.
væri jafn illa að sér um
grunnforsendur þeirrar
tækni sem hann sjálfur
er að fara að taka í
notkun fljótlega.
Europay ísland hf. að gefa út nýtt
greiðslukort ef sjálfur framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins hefur efasemdir
um ágæti tækninnar, og sér heldur
ekki til lands hvað varðar viðskipta-
grundvöll slíkra korta? Spyr sá sem
ekki veit!
Þeir kortalesarar (posar/snjallar)
sem kaupmönnum standa til boða frá
Smartkorti ehf. og fleirum taka allar
kortagerðir, Visa og Euro meðtalin.
Posarnir eru þegar í notkun hér á
landi og er mikil ánægja á meðal
kaupmanna með þá þar sem þeir eru
bæði mjög hljóðlátir og handhægii'.
Posar þessir hafa hlotið vottun, og
uppfylla alla staðla sem á markaðn-
um eru í dag þ.m.t. EMV / Geldkar-
te-staðalinn sem stuðst verður við
hér á landi. Að lokum vil ég leyfa
mér að fullvissa lesendur Morgun-
blaðsins, kaupmenn og korthafa um
land allt um að sú fjárfesting sem
lagt hefur verið í verður bæði kaup-
mönnum og öllum viðskiptavinum
þeirra til hagsbóta!
Það frumkvæði sem Kort hf. hefur
sýnt hefur vakið verðskuldaða at-
hygli innanlands og utan fyrir áræði,
frumkvæði og eftirtektarverða fram-
tíðarsýn. Slíkt ætti að þakka í stað
þess að sá fræjum tortryggni í ann-
ars mjög frjóan akur!
Höfundur er framkvæmdastjóri
Smartkorta ehf.