Morgunblaðið - 01.07.1999, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Léttur og skemmtilegur GSM sími.
Ending rafhlöðu allt að 5 klst. í notkun,
númerabirting og val um 30 hringitóna, þar
af 13 stef. Mögulegt að skipta um framhlið
símans, auka glær eða silfur ffamhlið fylgir.
Með símanum fylgir Frelsi frá Símanum GSM,
án allra skuldbindinga; GSM númer, talhólfs-
númer, 500 kr. inneign auk 1000 kr.
aukainneignar við skráningu.
UMRÆÐA
Um aðferðir
í kjarabaráttu
ARI Skúlason skrifaði
26. júní grein í Morgun-
blaðið þar sem hann
fjallar meðal annars um
uppsagnir kennara.
Meginniðurstaða hans er
að uppsagnir meðal ann-
ars kennara séu hættu-
legar öðrum launamönn-
um og því þurfi þeir að
berjast gegn þeim!
Samanburðarfræðin
Ari segir í grein sinni:
„Kjarasamningar hinna
einstöku hópa eru
stöðug samanburðar-
fræði. Allir reyna að ná
sem mestu fram og allir
miða sig við aðra.“ Eg gef lítið fyrir
samanburðarfræðina hans Ara. Mér
er nákvæmlega sama þótt aðrir hóp-
ar hafi hærri laun en kennarar. Eg
miða kröfu mína um laun við það
sem þarf til mannsæmandi lífs. Eins
og kennaralaun eru núna þá eru þau
fjafri því.
Eg tel að samanburðarfræðin
standi í vegi fyrir árangri í kjarabar-
áttu margra hópa. Einkum þeirra
hópa sem vinna á töxtunum og geta
ekki gert neina sérsamninga.
Grunnskólakennarar hafa brotist út
úr þessum viðjum með því að þeir
gera viðbótarsamninga við sveitar-
félögin. Þannig á það að vera. Heild-
arkjarasamningur um réttindamál,
launatöflur og fleira, lágmarks-
samningur og síðan viðbótarsamn-
ingar.
Þetta er svipað og
gengur og gerist á
vinnumarkaði. Hópar
og einstaklingar beita
ýmsum aðferðum til að
fá yfirborganir. Nú er
komið að kennurum að
fara þessa leið og þeir
beita þeim aðferðum
sem þeim finnst best
duga.
Samanburðarfræðin
í meðförum Ara Skúla-
sonar hvílir á hinni
vafasömu launaköku-
kenningu. Að ein kaka
sé til skiptanna fyrir
launamenn og ef einn
hópur fái meira minnki
hlutur hinna. Þetta er rangt. Ef
launamenn fá meira þá minnkar
hlutur atvinnurekandans. Það er
mergurinn málsins.
Samanburdarfræði
Eg hélt að forystu-
------------7--------
menn ASI hefðu
þroskast það mikið,
segir Eiríkur Brynj-
ólfsson, að þeir
væru búnir að vinna
sig út úr launa-
Eiríkur
Brynjólfsson
&
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
i^jyæða flísar
^jyæða parket
verð
ij?óð ^)ó
nusta
lögguhlutverkinu.
Uppsagnirnar
„Abyrgð þeirra sem hafa látið
undan og þannig stuðlað að því að
aðgerðir af þessu tagi hafa skilað
árangri er mikil.“ Þetta segir
framkvæmdastjóri ASÍ.
Semsagt: Ábyrgð þeirra sem
semja betur við starfsfólk sitt en
lágmarkssamningar segja er mikil.
Vá! Það er að segja: Sveitarstjórn-
armenn sem hafa gert vel við
kennara, skammist ykkar! Ég verð
að játa að ég hreinlega skil ekki
hvernig framkvæmdastjóri
stærstu samtaka launamanna get-
ur látið svona orð falla um aðra
launamenn. Ég átti von á þessum
röddum úr herbúðum viðsemjenda
kennara. En það er frjálst val
framkvæmdastjóra ASI að gerast
forsöngvari í kór avinnurekenda.
Friðarskyldan
Ara verður tíðrætt um friðar-
skylduna. Ekki skal ég gera lítið
úr henni. Þetta er hlutur sem hver
og einn einasti kennari veltir fyrir
sér áður en hann segir starfi sínu
lausu. Niðurstaða mín var þessi:
Þegar ég sagði kennarastarfi mínu
lausu þá var ég ekki að brjóta
neina friðarskyldu. Það er réttur
hvers vinnandi manns að segja
starfi sínu lausu. Kennarafélögin
koma ekki á nokkurn hátt að þess-
um uppsögnum. Þau hafa ekki
brotið neina friðarskyldu. Þær eru
ekki fyrirfram skipulagðar. Þetta
er sjálfsprottin hreyfing sem á
rætur að rekja til kennara á Álfta-
nesi fyrir um ári.
Allar þessar uppsagnir eru á
einstaklingsgrunni. Hver og einn
þeirra sem sögðu upp tók sína eig-
in ákvörðun. Þetta eru háalvarleg-
ar ákvarðanir. Menn gera það ekki
að gamni sínu að segja ævistarfinu
lausu. Mér er líka kunnugt um að
það liggja mismunandi ástæður að
baki uppsagnanna. Sumir eru í
raun og veru hættir að kenna og
farnir í önnur störf. Aðrir líta á
þetta sem kjarabaráttu. Ari notar
það sem rök að kennararnir sem
hafa sagt upp skipuleggi sig og
eigi sér talsmenn. Það er alveg
rétt. Kennararnir skipuleggja sig.
Það á ekki að koma forystumanni í
ASÍ á óvart að launamenn skipu-
leggi sig og baráttu sína.
Uppsagnir
Ari heldur því fram að hættan af
þessum aðgerðum felist í því að at-
vinnurekendur grípi til uppsagna í
kjarabaráttu sinni. Hann óttast að
þetta geti skaðað ráðningarrétt-
indi launamanna. Ekki skal ég
gera lítið úr ótta Ara þótt ég deili
ekki hræðslunni með honum.
Ég bendi á að með sömu rökum
mætti dæma verkföll úr leik sem
baráttutæki því atvinnurekendur
geta beitt verkbönnum. Og hafa
reyndar gert.
Ég bendi líka á að atvinnurek-
Fólk í fréttum í dag
Pétur Blöndal ræðir við spænsku
leikkonuna Victoriu Abril sem leikur
eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni
101 Reykjavík.