Morgunblaðið - 13.07.1999, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Tuttugu og fímm húsbrunar af völdum raftækja á þessu ári
MED BOSABERJUM,
RÚrlN OG
BIOFLAVÓNÍÐUM
Lykilatriði að
taka raftæki
úr sambandi
NáttúruLegt
C-vítamfn!
Ék
eilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
ÞAÐ SEM af er þessu
ári hafa 24 húsbrunar
orðið af völdum raf-
tækja. Að sögn Jó-
hanns Ólafssonar,
deildarstjóra raf-
magnsöryggisdeildar
Löggildarstofu, hafa á
síðustu árum flestir al-
varlegir húsbrunar
vegna raftækja orðið af
völdum sjónvarpstækja
og annarra skyldra raf-
tækja s.s. myndlykla,
myndbandstækja og hljómflutn-
ingstækja. „A þessu hefur nú orð-
ið breyting þar sem brunar af
völdum eldavéla, uppþvottavéla
og þvottavéla eru að
aukast mikið.“
Gleymska eða vangá
Jóhann segir eftir-
tektarvert að í 9 tilfell-
um af 24 er um ranga
notkun eldavéla að
ræða og þá er algeng-
ast að fólk gleymi að
slökkva á þeim. „Flest-
ir eldsvoðar í eldhúsi
verða vegna gleymsku
eða af vangá. Fólk fer
að heiman eða sofnar út frá tækj-
um sem kveikt er á. Algengast er
að skilið sé við pott á eldavél."
Jóhann segir að sumir setji
uppþvottavélarnar í gang áður en
gengið er til náða en hann segir
að slíkt sé einmitt mjög varhuga-
vert. „Það á að forðast að skilja
raftæki eftir í gangi þegar farið
er að heiman eða gengið til
náða.“
Fjöltengi eða gaumljós
Hann segir að lykilatriði til að
sporna við bruna af völdum raf-
tækja sé að hafa þau ekki lengur í
sambandi en nauðsyn krefur.
„í því sambandi má nefna að
hægt er að fá fjöltengi með rofa og
gaumljósi sem þægilegt getur ver-
ið að nota við sjónvarpstæki,
myndlykla og myndbandstæki svo
dæmi séu tekin. Einnig hafa marg-
ir rofa við inngang í viðkomandi
rými sem rýfur straum að
innstungum."
Leyffluhjartanu
aflráfla!
81,5%
1 Sólblóma er hátt
hlutfaU fjölómett-
aðrar fitu og lítið
af mettaðri. Með því
að velja Sólblóma á *
brauðið dregur þú úr
hættu á aukinni
blóðfitu (kólesteróli).
Fita í 100 g
Nýtt
Lyf við
offítu
komið á
markað
XENICAL nefnist lyf sem skráð er
til notkunar við offitu og komið er á
markað hér á landi. I fréttatilkynn-
ingu frá Thorarensen Lyí7Roche
kemur fram að lyfið, sem er lyfseð-
ilsskylt, virki eingöngu í meltingar-
veginum. Það hamlar virkni ensíms-
ins lípasa sem brýtur niður fitu og
hindrar þannig að líkaminn nýti um
þriðjung af þeirri fitu sem neytt er.
I fréttatilkynningunni kemur fram
að aukaverkanir séu aðallega frá
meltingarvegi en mjög fáir hætti í
meðferð vegna aukaverkana. Hætta
á meltingartruflunum eykst ef lyfið
er tekið með fituríkri fæðu. Xenical
fæst aðeins gegn lyfseðli en allir
læknar mega ávísa lyfinu. Trygg-
ingastofnun ríkisins tekur ekki þátt í
greiðslu ljfsins nema sjúklingar hafi
lyfjaskírteini. Xenical er í 120 mg
hylkjum og fæst í 42 og 84 stk.
pakkningum sem kosta að hámarki
5.466 krónur og 9.740 krónur. Fram-
leiðandi lyfsins er svissneska lyfja-
fyrirtækið Hoffman-La Roche.
Morgunblaðið/Jim Smart
Spurt og svarað um neytendamái
Vinningum í töppum
gosflaskna hefur fækkað
Fæst í apótekum
og heilsubúðum
Z* • TM
inaxin____________
( BNOiFBPMVLKI
Pað er munur á engifer.
Zinaxin inniheldur staölaöan engifen-extnakt
sem tryggin jafnan styrk virku efnanna í hvemi framleiðslu.
Sömu gæðin í hvert sinn.
í Kína hefur engiferrót verið notuð við ferðaveiki, sem styrkjandi
fyrir meltingarfærin og við bólgum og stirðleika í liðum.
HEFUR vinningum í töppum gos-
flaskna Vífilfells fækkað frá í
fyrra? Fjölgaði flöskum í leiknum
með þátttöku Sprite, Fresca og
Fanta?
„í fyrra voru vinningamir um
250.000 talsins og þar á meðal voru
mjög margir „sumarglaðningar"
sem voru smávinningar á við lykla-
kippur, penna og segla á ísskápa",
segir Guðjón Guðmundsson, mark-
aðsstjóri kóladrykkja hjá Vífilfelli.
„Á síðastliðnu hausti kom fram
megn óánægja viðskiptavina með
þessa vinninga sem þóttu of smáir
og ómerkilegir. Þá töldu viðskipta-
vinir einnig að stærstu vinningarn-
ir, sem voru bílar, væru ekki æski-
legir vinningar því þeim fylgdu
kvaðir frá skattstjóra um tekju-
skattsgreiðslu sem nam hundruð
þúsunda króna.
Niðurstaða okkar sem byggð var
á þessum upplýsingum var því að
fækka vinningum í rúmlega 55.000
í sumar en hafa fleiri veglega vinn-
inga. Heildarverðmæti vinninga
hefur tvöfaldast milli ára og er nú
um 38 milljónir. Með þátttöku ann-
arra vörumerkja eins og Sprite og
Fanta í leiknum gerum við ráð fyr-
ir að flöskum fjölgi um u.þ.b. 15%.
-------------------
Heildsölubirgðir af vettlingum.
Ymsar stærðir og gerðir.
Níðsterkir, verð mjög hagstætt.
S. Gunnbjönnsson ehf.
v sími 565 6317 >
Ferskar kjötvörur og
Svínabúið á Kjalarnesi
Svínakjöts-
verð lækkar
um 6%
í DAG, þriðjudag, lækka allar svína-
kjötsvörur frá Ferskum kjötvörum
um 6% til neytenda og er um varan-
lega verðlækkun að ræða.
I fréttatilkynningu frá kjötvinnsl-
unni Ferskum kjötvörum og Svína-
búinu á Kjalarnesi kemur fram að
lækkunin sé komin til vegna hagræð-
ingar og framfara í framleiðslu á
svínakjöti.
Kjötvörur frá Ferskum kjötvörum
eru á boðstólum víða um land, m.a. í
Nýkaupi, Hagkaupi, Bónus, 10-11
búðunum og hjá Hraðkaupi.