Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 39
I
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999
39*
UMRÆÐAN
Sorgardagur
í Grjótaþorpi
ÞÆR sorgarfréttir
bárust okkur íbúum
Grjótaþorps með
sunnudagsútgáfu
Morgunblaðsins 11.
júlí sl. að búið væri að
veita Hlaðvarpanum
v/Vesturgötu leyfí til
skemmtanahalds til
klukkan þrjú á næt-
urnar. Með í kaupun-
um fylgdi leyfi til vín-
veitingasölu utanhúss
til klukkan átta á
kvöldin. Ógjörningur
er að gera sér í hugar-
lund hvernig rekstrar-
aðilar hyggjast standa
að þeirri áfengissölu ef
ekki við húsgafl okkar íbúa hverfis-
ins er næst Hlaðvarpanum búum
og þar með fyrir framan nefið á
börnunum okkar.
Sigríður Erla Jónsdóttir,
skemmtanahaldari staðarins, segir
í blaðinu það alls ekki meininguna
að storka nágrönnum staðarins.
Um sé að ræða sjaldgæfa viðburði.
Ef svo væri, er það þá ekki alveg
nóg til að raska ró íbúa hverfisins?
Hvaða viðmiðun setur Sigríður
Erla við heimili sitt?
Þá áréttar Sigríður Erla í blað-
inu að í Hlaðvarpanum hafi verið
rekin menningarmiðstöð kvenna í
15 ár og verði gert áfram. Ibúar
Grjótaþorps hafa lítið sem ekkert
orðið varir við menningarstörf
kvenna í Hlaðvarpanum ef undan
eru skildar þær örfáu stúlkur sem
virðast reyna að verða sér út um
vasapeninga með því að halda
dansleiki í húsinu fram á rauða
nótt og þar með vöku
fyrir þeim konum, eig-
inmönnum þeirra og
börnum er í hverfinu
búa.
Nokkrar konur
gerðu sér ferð á dögun-
um út í Viðey og komu
í land með ósk upp á
tugi ef ekki hundruð
milljóna króna af al-
mannafé til uppbygg-
ingar jógastöðvar á
Kirkjubæjarklaustri.
Nær væri að þær
kæmu hingað í Gijóta-
þorpið til okkar,
hreinsuðu brennivínið
úr Hlaðvarpanum og
stunduðu sína íhugun þar.
Sigríður Erla segist hafa átt góð
samskipti við íbúa í hverfinu og von-
ar að svo verði áfram. Undir þær
framtíðaróskir skal heilshugar tekið
en Sigríður Erla hefur ekki hug-
mynd um hvernig samskiptin hafa
verið hingað til. Hún er nýtekin við
„rekstrinum". Hún segir þær Hlað-
varpastelpur eingöngu vera að auka
„lífið“ í húsinu: Það er stundum svo
mikið „líf“ í húsinu að ólíft er á
heimilum íbúa hverfisins. Ef einhver
stjóm situr yfir þessari „menningar-
miðstöð" í Hlaðvarpanum má hún
gjaman koma upp á yfirborðið og
hreinsa svolítið tíl í húsinu.
Ingibjargarþáttur
Sólrúnar
Eftir sex bréf greinarhöfundar
til borgarstjórans í Reykjavík á
jafnmörgum vikum um neyðará-
stand það er skapast hefur hér í
hverfinu (engu þeirra hefur hún
svarað enn, ekki frekar en bréfrit-
ari væri hundur) hefur hún nú
loks upp raust sína í hinni sömu
Morgunblaðsfrétt 11. júlí sl. Ingi-
björg Sólrún er pólitískt heljar-
menni og ákaflega vel máli farin.
Og hún er líka snillingur í að tala
ekki um það sem um er rætt. Það
gerir hún einmitt í umræddri
frétt. Það þarf líka snilling á borð
við Ingibjörgu Sólrúnu til að stað-
Svefnfriður
Leita þarf aftur til
valdatíma kommúnista
Ráðstj órnarríkj anna,
segir Oddur Björnsson,
að sambærilegum
valdhroka.
setja Erotic Club Clinton, Aðal-
stræti 4B, innan „miðbæjarsvæð-
is, jafnvel þó svo hann teygi sig
inn í íbúðarhverfið Grjótaþorp"
eins og hún orðar það svo listilega
við blaðamann. Að hús er stendur
við Fischersund, með aðal- og
bakinngang frá Fishcersundi telj-
ist ekki standa í íbúðarhverfinu
Grjótaþorpi er aðeins á færi slíkra
snillinga að skilja. Þess háttar við-
miði hefur væntanlega verið beitt
á Nesveginum um daginn þegar
lítilli verslun með saklausan heim-
ilisiðnað var gert að loka án nokk-
urs fyrirvara vegna kvartana frá
íbúum nærliggjandi húsa. Borgar-
Oddur
Björnsson
yfirvöld hafa, að sögn borgar-
stjóra, ekki fjallað um óskir um
rýmkun leyfis og lengri af-
greiðslutíma, „þannig að íbúar
Grjótaþorps hafa enga ástæðu til
að vera með yfirlýsingar um það
mál“ er haft eftir honum í sömu
frétt og greinir frá veitingu fulls
skemmtanaleyfis til klukkan þrjú
á nóttunni! Leita þarf aftur til
valdatíma kommúnista Ráðstjórn-
arríkjanna að sambærilegum vald-
hroka. íbúar Grjótaþorps eiga
ekki að vera með óþarfa yfirlýs-
ingar! En borgarstjóri gleymir
sinni eigin yfirlýsingu í Morgun-
blaðinu 31. mars 1998, þá nokkrum
vikum fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar í Reykjavík. íbúasamtök
Grjótaþorps höfðu kallað eftir við-
brögðum borgaryfirvalda vegna
veitingareksturs í Aðalstræti 4B,
svona til að vita hvar þeir stæðu í
komandi kosningum, og ekki stóð á
svari: „Tel rekstur í húsinu full-
reyndan," sagði borgarstjóri, og
lýsti því í fréttinni að leyfi staðarins
yrðu ekki endumýjuð.
Lögreglan í Reykjavík
En snillingarnir leynast víðar.
Til að segja eitthvað lætur for-
vamafulltrúi lögreglunnar í
Reykjavík, Karl Steinar Valsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn, hafa
eftir sér í títtnefndri frétt að íbúar
Grjótaþorps séu haldnir einhvers
konar heyrnarbilun. Já, ekki
heymarskorti heldur heymarbil-
un: „Ekki er hægt að merkja að
hávaðinn komi sérstaklega frá
ákveðnum veitingastað eins og
Oddur Björnsson sagði í samtali
við Morgunblaðið sl. fostudag,"
sagði Karl Steinar. „Við höfum
ekki getað tekið undir allt sem
(Oddur) talar um og merkt það ein-
um veitingastað," bætir Karl við.
Greinarhöfundur hefur setið
nokkra fundi með Karli Steinari og
minnist þess ekki að hafa verið
boðið í heyrnarpróf. Hins vegar
kemur mjög á óvart að heyra sjálf-
an forvarnafulltrúann taka upp
*
Ibúasamtök Grjótaþorps mót-
mæla rangfærslum borgarstjóra
ÞAÐ VAR merkileg
reynsla núna um helg-
ina að verða vitni að
viðbrögðum ýmissa
Iháttsettra embættis-
manna í Reykjavík við
þeirri tiltölulega hóf-
sömu kröfu íbúa í
Grjótaþorpi að svefn-
friður verði tryggður í
íbúðarhverfinu. Þessi
viðbrögð vora fullkom-
lega óskiljanleg, bæði
íbúum Grjótaþorps og
þeim , fjölmörgu
Reykvíkingum sem
ennþá líta svo á að
borgarstjórn og lög-
regla í höfuðborginni
séu tíl að þjóna borgur-
unum og tryggja þeim lágmarks-
mannréttindi.
Helgi Hjörvar, nýkjörinn forsetí
borgarstjórnar, sagði í útvarpsvið-
tali á föstudagskvöld að ástandið í
Gijótaþorpinu væri óviðunandi en
fannst jafnframt við hæfi að skilyrða
svai' sitt - EF íbúarnir væru að
Isegja satt og rétt frá því að hávaði
frá skemmtistöðum héldi vöku fyrir
þeim um nætur.
Um aðgerðir af hálfu borgarinnar
til að tryggja Reykvíkingum svefn-
frið hafði forseti borgarstjórnar
ekkert að segja en vék talinu að því
að nauðsynlegt væri að halda uppi
atvinnustarfsemi í borginni og bættí
því við að nú væru komnar nýjar
reglur svo að borgarstjórn gæti far-
ið að sið knattspyrnudómara og út-
Ibýtt gulum og rauðum spjöldum til
veitingahúsa í borginni.
Þetta svar forseta borgarstjómar
var með ólíkindum, ekki síst með
það í huga að hvorki þarf mikla
manngæsku né sér-
staka hlýju í garð íbúa
Grjótaþorps til að sjá
að málið snýst um
svefnfrið í íbúðarhverfi
í Reykjavík en ekki um
vínveitingalöggjöfina
almennt. í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins
var rætt við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra þar sem
hún hefur litla samúð
með frekjulegum kröf-
um Grjótaþorpsbúa um
svefnfrið. Borgarstjór-
inn segir í viðtalinu:
„Við höfum ekki fjallað
um óskir um rýmkun
leyfis og lengri opnun-
artíma hjá borginni, þannig að íbúar
Grjótaþorps hafa enga ástæðu til að
vera með yfirlýsingar um það mál.“
Það er erfítt að sjá hvernig þessi
ummæli borgarstjórans geta verið
sannleikanum samkvæm því að
Hlaðvarpanum var veitt fullt
skemmtanaleyfi sl. fimmtudag og
geta nú kvenréttindakonurnar látið
dansinn duna til kl. þrjú á nóttunni
allai' helgar án þess að hafa fyrir því
að biðja um leyfi í hvert sinn! Þetta
kemur fram í sömu frétt og borgar-
stjórinn heldur því fram að engar
óskir séu uppi um rýmkun leyfis.
Ennfremur segir borgarstjórinn um
klámbúlluna „Club Clinton - Erotic
Club“ í Grjótaþorpi að: „Umræddur
staður teljist til miðbæjarsvæðis,
jafnvel þó svo að hann teygi sig inn í
íbúðahverfið Grjótaþorp og sam-
ræmist starfsemi hans því skipulagi
sem gert er ráð fyrir á miðbæjar-
svæði, þ.e. verslun, veitingastarf-
semi eða öðra slíku.“ Þetta er rangt
með farið. Grjótaþorp takmarkaðist
fyrir borgarstjóratíð Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur af Aðalstrætí,
Túngötu, Garðastræti og Vestur-
götu og mun halda áfram að gera
það löngu eftir að hennar tími er lið-
inn.
Karl Steinar Valsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík, talar máli klám-
klúbbanna og skemmtistaðanna í
viðtali í sama blaði og vii'ðist ekki
hafa áhyggjur af því að vændi og eit-
urlyf tengist slíkum stöðum. Um sí-
endurteknar kvartanir og kærur
Svefnfriður
Svar forseta borgar-
stjórnar, segir Finnur
Guðsteinsson, var
með ólíkindum.
íbúanna vegna hávaða hefur aðstoð-
aryfirlögregluþjónninn þetta að
segja: „Ekki sé hinsvegar hægt að
merkja að hávaðinn komi sérstak-
lega frá ákveðnum veitingastað eins
og Oddur Björnsson sagði í samtali
við Morgunblaðið og birtist sl. föstu-
dag.“ Þessi aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn tekur fjölmiðlabikarinn þessa
helgina fyrir einhverja heimskuleg-
ustu yfirlýsingu sem lengi hefur sést
á prenti, þar sem hann setur fram
þá kenningu að djöfulgangurinn í
miðbænum sé einfaldlega það mikill
að Oddur Bjömsson sé orðinn svo
vankaður að hann viti ekki hvaðan
sá hávaði kemur sem heldur vöku
fyrir honum um nætm' - og sama
gildir þá væntanlega um aðra íbúa í
Grjótaþorpi. Þess má þó geta að
Fisehersund 3 stendur í 6 metra
fjarlægð frá Hlaðvai-panum og við
fullyrðum að ekki fyrirfinnist svo
sljór aðstoðaryfirlögreglumaður að
hann geti ekki úr 6 metra fjarlægð
greint á milli tónleikahalds í Hlað-
varpanum og hávaða frá skemmti-
stöðum utan íbúðahverfisins. Nú er
sannleikurinn sá að Oddur Björns-
son er tónlistarmaður að atvinnu og
leikur í Sinfóníuhljómsveit Islands
og hefur ekki greinst með heyrnar-
skerðingu. Oddur býr í um 25 metra
fjarlægð frá Hlaðvarpanum og á
ekki í nokkram vanda með að greina
hvort það er Botnleðja eða Big Band
Brútal sem er að leika hverju sinni á
þeim helgarhljómleikum sem
kvennahreyfingin í Hlaðvarpanum
telur vera Grjótaþorpinu „til fram-
dráttar og fegurðarauka".
Framkoma ofantalinna embætt-
fsmanna Reykjavíkurborgar, þeirra
Helga Hjörvars, Ingjbjargar Sól-
rúnar Gísladóttur og Karls Steinars
Valssonar, í fjölmiðlaviðtölum nú
um helgina er ömurlegt dæmi um
valdhroka og skilningsleysi í garð
fólks sem hefur það eitt til saka
unnið að hafa vakið athygli fjöl-
miðla á getuleysi borgaryfirvalda
til að tryggja venjulegu fólki frið
fyrir klám- og hávaðabúllum sem
borgaryfírvöld hafa veitt leyfi til að
stunda iðju sína inni í miðju íbúða-
hverfi. Að lokum viljum við taka
fram að: Við neitum því að A (borg-
arstjórn Reykjavíkur) hafi heimild
til að leyfa B (Club Clinton og
Hlaðvarpanum) að halda vöku fyrir
C (íbúum Reykjavíkur).
Greinarhöfundur situr ístjóm Ibl'ui-
samtaka Grjótaþorps.
Finnur
Guðsteinsson
hanskann fyrir nektar- og eitur-
lyfjabúllur bæjarins aðeins sólar-
hring eftir að fimm manns var
stungið í steininn fyrir tilraun til að<_
smygla 1000 e-pillum inn í landið.
Þar af voru tvær útlendar nektar-
dansmeyjar, ef marka má hádegis-
fréttir RÚV laugardaginn 10 júlí.
Karl Steinar bendir í fávisku sinni
á að bæði Hlaðvarpinn og Erotic
Club Clinton hafi skert leyfi og
aðrir veitingastaðir í nágrenninu
hafi opið mun lengur. Það era eng-
ir aðrir dans- og nektarstaðir í
Grjótaþorpinu og Hlaðvarpinn er
kominn með fullt leyfi eins og áður
greinir. Forvarnahvað?
Nýr forseti borgarstjórnar
Nýkjörinn forseti borgarstjóm-
ar lætur einnig ljós sitt skína í fjöl-
miðlum um málefni íbúa Grjóta-
þorps og hafði yfirlýsinga hans
verið beðið með eftíi-væntíngu. í
kvöldfréttum RÚV föstudags-
kvöldið 9. júlí fór forsetinn um víð-
an völl, útbjó nýtt litakerfi fyrir
nektarbúllurnar, gul spjöld og
rauð, tók ofan fyrir atvinnulífinu í
Reykjavík (hvað kemur það svefn-
traflunum borgarbúa við?) og sagði
mál íbúa Grjótaþorps alvarlegt,
EF það sem þeir segðu reyndist
satt. Að öðru leyti var harla lítið
sagt í mörgum orðum. Hitt er svo
annað að Reykjavíkurborg er að
reyna að vera svo fín með sig að
leki örlítil peningalykt yfir bæinn á
12 mánaða fresti frá Örfyrisey ætl-
ar allt um koll að keyra innan borg-
arkerfisins. Bréf eru skrifuð, yfir-
lýsingar gefnar og forstjórum hót-
að öllu illu ef þeir voga sér að láta
slíkt henda nokkurn tímann aftur.
Það er sitt hvað atvinnulíf og at-
vinnulíf í Reykjavíkinni okkar.
Greinarhöfundur óskar nýkjömum
forseta borgarstjórnar velfarnaðar
í nýju starfi og býður hann hér
með velkominn að Mjóstræti 2B
(tímasetning að eigin vali) í leit
sinni að sannleikanum.
Höfundur er hljómlistarmaður.
law 5/ Negro
Skólavörðustig 21 o
101 Reykjavík
Sírai/fox 552 1220
Netfang:
blonco@itn.is
Veffong:
www.blonco.ehf.is
V-