Morgunblaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 1
11
tmnnH*frifr
STOFNAÐ 1913
157. TBL. 87. ARG.
FIMMTUDAGUR 15. JULI1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Djukanovic ljær
máls á sjálfstæði
Ósló. Reuters, AFP.
MILO Djukanovic, forseti Svart-
fjallalands, sagði í gær að Svartfell-
ingar myndu stefna að fullu sjálf-
stæði ef viðræður þeirra við Serba
um framtíð júgóslavneska sam-
bandsríkisins bæru ekki árangur.
Djukanovic, sem hefur lengi ver-
ið upp á kant við stjórnvöld í
Belgrad, vill að dregið verði úr
völdum júgóslavnesku stjórnarinn-
ar og að sjálfstjórnarréttindi Svart-
fjallalands verði aukin. Hann sagði
eftir viðræður við Knut Vollebæk,
utanríkisráðherra Noregs, að
stjórn Svartfjallalands myndi verða
sveigjanleg í viðræðunum við flokk
Slobodans MOosevics Júgóslavíu-
forseta sem hófust í Belgrad í gær.
„Eg vil fyrst og fremst tryggja
að Svartfjallaland verði lýðræðis-
legt ríki, dafni efnahagslega og taki
þátt í samrunanum í Evrópu," sagði
Djukanovic. „Ef það reynist hins
vegar ekki mögulegt [í ríkjasam-
bandinu við Serbíu] verður ekki hjá
því komist að velja sjálfstæði."
N-írskir sambandssinnar setjast ekki í stjórn með Sinn Féin
Friðarsamkomu-
lagið í uppnámi
London, Bclfast. Reuters.
ENGAR líkur virtust á því í gær að heimastjórn kaþólskra og mótmælenda
á Norður-írlandi yrði skipuð í dag, eins og áætlað hafði verið, eftir að sam-
bandssinnar ítrekuðu í gær að afstaða þeirra væri enn sú að þeir gætu ekki
samþykkt að setjast í stjóm með fulltrúum Sinn Féin, stjórnmálaarms
Irska lýðveldishersins (IRA), nema IRA hæfi afvopnun fyrst. Ekki er ljóst
hver framtíð friðarumleitana á N-írlandi verður en bresk stjómvöld munu
að öllum líkindum boða í dag endurskoðun á friðarsamkomulaginu sem
kennt er við föstudaginn langa. Sú endurskoðun gæti tekið marga mánuði.
Ónafngreindur heimildarmaður
Reuters í bresku ríkisstjórninni
sagði í gærkvöldi að þessi ákvörðun
sambandssinna myndi fresta mynd-
un n-írsku heimastjórnarinnar um
óákveðinn tíma. Stjórnin myndi eins
og málum væri komið fara aftur yfir
lykilatriðin varðandi framkvæmd
friðarsamkomulagsins. Þessi yfir-
ferð gæti tekið „allt sumarið".
Með afstöðu sinni í gær hafnaði
stærsti fiokkur sambandssinna
(UUP) í raun framkvæmdaáætlun
sem Tony Blair og Bertie Ahern,
forsætisráðherrar Bretlands og Ir-
lands, lögðu fram fyrir tæpum
tveimur vikum um hvernig standa
skyldi að skipun heimastjórnarinnar
og afvopnun öfgahópa.
Ljóst var af orðum Davids
Trimbles, leiðtoga stærsta flokks
sambandssinna (UUP), eftir fund
framkvæmdaráðs UUP í Belfast, að
sambandssinnar teldu sig enn ekki
hafa hlotið fullnægjandi tryggingar
fyrir því að IRA myndi sannarlega
afvopnast strax í kjölfar skipunar
stjórnarinnar, ef af henni yrði. Því
væri afstaða UUP í raun óbreytt, að
IRA yrði að byrja afvopnun áður en
sambandssinnar samþykktu að setj-
ast í stjórn með Sinn Féin.
Engu að síður kemur n-írska
ÞÁTTTAKENDUR í fjöldagöngu í Teheran halda á loft slagorðum til stuðnings klerkastjórninni og myndum af
Leiðtogum hennar í gær, þar á meðal Ajatollah Kliomeini, hinum látna leiðtoga íslömsku byltingarinnar í Iran.
Tugþúsundir frana fylktu í gær liði til stuðnings klerkastjórninni
Iransstjdrn segist hafa
náð valdi á ástandinu
Teheran. Rcutcrs.
ÍRANSSTJÓRN sagði í gærkvöldi
að öryggissveitir hefðu náð valdi á
uppþotum þeim sem skekið hafa
höfuðborgina Teheran frá því í síð-
ustu viku, en þessar nýjustu óeirðir
þykja hinar alvarlegustu frá því í
byltingunni sem kom klerkastjórn-
inni til valda í landinu árið 1979.
Tugþúsundir stjórnarsinna fylktu í
gær liði eftir götum Teheran og
fleiri borga til að sýna vanþóknun
sína á lýðræðisumbótakröfum þeirra
sem staðið hafa að mótmælafundum
undanfarinna daga.
„Tekizt hefur að ná stjórn á
ástandinu," sagði innanríkisráðherr-
ann Abdolvahed Mousavi-Lari í út-
sendingu íranska sjónvarpsins í
gærkvöld. Sagði hann ró vera
komna á í Teheran, þar sem í fyrra-
dag urðu mikil átök milli umbóta-
sinnaðra námsmanna og lögreglu,
og að öryggissveitir héldu áfram
„umfangsmiklum aðgerðum" til að
handtaka þá sem taldir væru hafa
staðið á bak við óeirðir. Þegar hefði
allnokkur fjöldi verið hnepptur í
varðhald, sagði ráðherrann.
Fyrr um daginn höfðu tugþúsund-
ir borgara gengið fylktu liði um göt-
ur höfuðborgarinnar til að lýsa van-
þóknun sinni á óeirðunum og hlýddu
á talsmann klerkastjórnarinnar lýsa
því yfír að þeir sem hefðu átt upp-
tökin að þeim mættu búast við því
að eiga dauðai’efsingu yfir höfði sér.
„Þeir sem hlut áttu að uppþotum
undanfarinna daga, eyðileggingu op-
inberra eigna og árásum á kerfið
verða dregnir fyrir dóm og refsað
sem mohareb [þeim sem berjast
gegn Guði] og mofsab [þeim sem út-
breiða spillingu],“ sagði Hassan
Rowhani, ritari þjóðaröryggisráðs
írans. Þeir sem ákærðir eru fyrir
þessar sakir eiga dauðadóm yfir
höfði sér samkvæmt refsilögum
Irans, sem grundvallast á Kóranin-
um.
Ungmenni handtekin
Vitni að fjöldagöngunum í gær
sögðust hafa séð um 50 ungmenni
handtekin og lokuð inni í lögreglu-
bílum. Þar á meðal hefði verið kona,
sem hélt á spjaldi sem á stóð: „Fyrir
hvaða glæp voru þau drepin?“
Þetta skilti vísaði til ungmenna
sem sagt er að hafi verið drepin í
árás öfgamanna múslima og lög-
reglu á friðsamlegan útifund náms-
manna sl. fimmtudag, þar sem lýð-
ræðisumbóta var krafizt. Sam-
kvæmt opinberum tölum lézt einn í
árásinni, en hún hrinti af stað hrinu
uppþota og óeirða í Teheran.
Talsmaður nefndar námsmanna
við Teheran-háskóla tjáði Reuters í
gær að þeir hefðu ákveðið að hætta
heimastjórnarþing-
ið saman í dag og
þar mun Mo
Mowlam, N-ír-
landsmálaráðherra
bresku stjórnar-
innar, biðja þá
stjórnmálaflokka,
sem rétt eiga á
sæti í heimastjórn,
að tilnefna fulltrúa
sína í stjóm. Sambandssinnar munu
væntanlega neita að tilnefna fulltrúa
sína og þar sem friðarsamkomulagið
kveður á um stofnun samsteypu-
stjórnar kaþólskra og mótmælenda
er það í rauninni runnið út í sandinn
með þessum tíðindum.
Ljóst er hins vegar að bresk og
írsk stjórnvöld munu leita leiða til
að halda friðanimleitunum á N-ír-
landi áfram og því er næsta víst að
þau boði endurskoðun á friðarsam-
komulaginu. Ekki er hins vegar talið
líklegt að þau muni ógilda þá þætti
samkomulagsins sem þegar hafa
komist til framkvæmda og varða t.d.
lausn liðsmanna öfgahópanna á N-
írlandi úr fangelsi.
Blair reyndi að tryggja
stuðning sambandssinna
Fyrr í gær hafði Tony Blair gert
allt til að reyna að tryggja að sam-
bandssinnar legðu blessun sína yfir
framkvæmdaáætlun breskra og
írskra stjórnvalda. I óþökk leiðtoga
Sinn Féin bauðst hann þá til að gera
breytingar á lagafrumvarpi í sam-
ræmi við sjónarmið sem fram höfðu
komið við þingumræður á þriðjudag.
mótmælaaðgerðum að sinni, en þeir
biðu enn eftir svari frá stjórnvöld-
um um hvað orðið hefði um „píslar-
votta úr röðum námsmanna og lík
þeirra". Námsmannanefndin hafði
áður gefið út kröfugerðarlista, þar
á meðal að ríkislögreglustjórinn
yrði rekinn og réttað opinberlega
yfír þeim tveimur lögreglumönnum,
sem voru reknir fyrir að hafa fyrir-
skipað árásina á útifund náms-
mannanna í síðustu viku, og að lík-
um þeirra sem voru drepnir yrði
skilað.
í fjöldagöngum gærdagsins, sem
valdastétt klerkastjórnarinnar hafði
kallað til og nutu stuðnings flestra
hófsamra stjórnmálaafla, voru
íranskir fánar á lofti og myndir af
Ajatollah Khomeini heitnum, fyrr-
verandi leiðtoga íslömsku byltingar-
innar, sem og af arftaka hans, Aja-
tollah Ali Khamenei.
Kjötbanni
aflétt
London. Daily Telegraph, Reuters.
BANNI við útflutningi nauta-
kjöts frá Bretlandi verður
aflétt 1. ágúst, nærri þremur
og hálfu ári eftir að Evrópu-
sambandið (ESB) kom því á,
þegar „kúariðufárið" stóð sem
hæst. Þetta var tilkynnt i höf-
uðstöðvum framkvæmda-
stjórnar ESB í Brussel í gær,
en það sló fljótt á fögnuð
brezkra bænda yfir tíðindun-
um er þeir komust að því hve
miklum takmörkunum útflutn-
ingurinn verður háður eftir
sem áður.
Þegar bezt lét námu árs-
tekjur brezkra nautgripa-
bænda af kjötútflutningi yfir
60 milljörðum króna. Útflutn-
ingsbannið var sett í marz
1996, eftir að þáverandi heil-
brigðisráðherra Bretlands
birti niðurstöður rannsóknar
sem sýndi fram á samhengi
milli kúariðu og dauða nokk-
un-a brezkra ungmenna úr
heilahrörnunarsjúkdómnum
Creutzfeldt-Jakob. Vitað er
um 41 dauðsfall í Bretlandi af
völdum þess sjúkdóms fram að
þessu.