Morgunblaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ
■*o0 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
Nýjar myndir vikulega
á mbl.is
Svipmyndir vikunnar er vefur á mbl.is þar sem birtar eru myndir sem
Ijósmyndarar Morgunblaösins hafa tekið. Á vefnum er einnig hægt að
ná í ókeypis myndir til að nota sem skjámyndir og eru endurnýjaðar á
tveggja mánaða fresti, kaupa myndir úr Myndasafni Morgunblaðsins
-p og tengjast ýmsum áhugaverðum Ijósmyndavefjum.
vg'mbl.is
UMRÆÐAN
Lögmætar og
ólögmætar
hópuppsagnir
í GREIN sem birtist
hinn 7. júh' sl. fjallar
Magnús M. Norðdahl,
lögfræðingur ASI, um
það sem hann telur
vera ólögmætar hóp-
uppsagnir vinnuveit-
enda. Par túlkar hann
gildandi reglur um
hópuppsagnir mjög
frjálslega og ber sam-
tökum atvinnurekenda
og þá væntanlega VSI
jafnframt á brýn að
virða ekki skyldur sín-
ar í því sambandi.
Þessar ásakanir
koma mjög á óvart
þegar litið er til þess
að VSI hefur gengist fyrir víðtækri
kynningu á efni laga um hópupp-
sagnir og þeim skyldum sem vinnu-
veitendum eru lagðar á herðar með
þeim. í því skyni hefur VSÍ m.a.
gefið út sérstakan bækling um hóp-
uppsagnir og kynnt reglur sem um
þær gilda reglulega á námskeiðum.
Þá leita aðildarfyrirtæki samtak-
anna yfirleitt ráðgjafar hjá VSI
þurfi þau að grípa til slíkra að-
gerða. Er þá jafnan haft að leiðar-
ljósi að fylgja sem best þeim regl-
um sem lög kveða á um enda skal
ekki um það deilt að eftir lögum og
samningum skuli fara. Fram-
kvæmdin hefur líka sjaldnast valdið
ágreiningi.
Magnús M. Norðdahl vill standa
vörð um það sem hann kallar félags-
leg réttindi launþega með öllum
ráðum. Slík réttindi eru þó lítils
virði nema fyrirtækin séu þess
megnug að veita atvinnu. Hópupp-
sagnir þær sem lögin taka til eru al-
mennt liður í endurskipulagningu
eða rekstrarbreytingum fyrirtækja
með það að markmiði að bæta
rekstur þeirra og tryggja þar með
atvinnu þegar til lengri tíma er litið.
Það er einmitt sveigjanleiki íslensks
vinnumarkaðar sem á snaran þátt í
að hér á landi hefur ekki skapast
viðvarandi kerfislægt
atvinnuleysi á sama
hátt og í flestum ríkj-
um Evrópu þar sem
strangar reglur um
ráðningarvemd virka
sem hemill á nýráðn-
ingar. Islensk fyrir-
tæki hafa því verið fljót
að bregðast við sveifl-
um og getað verið
óhrædd að ráða fólk til
vinnu þegar úr rætist.
Þessum hópupp-
sögnum er ekki á neinn
hátt ætlað að hafa áhrif
á samningsbundin
launakjör starfsmanna.
Sameiginlegar upp-
sagnir starfsmanna sem undanfarið
hafa verið til umræðu era af öðrum
toga. Hér er því um tvennt ólíkt að
ræða. Um þær síðamefndu gilda
reglur laga um stéttarfélög og
vinnudeilur. Samkvæmt 19. gr.
Uppsagnir
Uppsagnir vegna
rekstrarbreytinga og
hópuppsagnir starfs-
manna sem liður í
kjarabaráttu, segir
Hrafnhildur Stefáns-
dóttir, eru tvennt ólíkt.
þeirra jafngildir það verkfalli segi
starfsmenn upp störfum tO að ná
sameiginlegu markmiði í kjaramál-
um og brýtur gegn friðarskyldu
kjarasamninga. Með slíkum aðgerð-
um er því vegið að kjarasamnings-
kerfinu sem slíku en friðarskyldan
hefur frá upphafi verið einn af hom-
steinum þess.
Höfundur er lögfræðingur VSJ.
Hrafnhildur
Stefánsdóttir
Einn vinsælasti
síminn i dag!
• Þyngd:150 gr.
• Skjár:3 línur x 12 stafir
• Rafhlaða: 80 klst. í bið
3 klst. i tali
Innbyggður titrari
5110 ►
Sá vinsælasti
• Þyngd:167 gr.
• Skjár:4 línur x 16 stafir
• Rafhlaða: 270 klst. I bið
5 klst. I tali
Klukka, vekjari, leikir ofl.
Ef þú kaupirT3£., þ.e. geristTímaTALs
áskrifandi í tólf mánuði með kreditkorti, bjóðast
þér þessir símar á frábæru TAL12 verði.
Athugið:TALkort kostar 1.999,- og er selt aukalega. Hægt er að velja mismunandi
þjónustuleiðir.Til dæmisTímaTAL 30 sem innrfelur 30 mínútna taltíma, talhólf,
númerabirtingu og SMS textaskilaboð. Allt fyrir aðeins
kr. 990,- á mánuði.
<EITTH\SA£> /VVTT
III
»T:I:
'lpnnnl