Morgunblaðið - 15.07.1999, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Talsmenn banka og sparisjóða um rekstrarkostnað fiármálastofnana
Stjórn Básafells
Taka þarf tillit tii smæðar
og mismunandi reglna
ÞÓR Gunnarsson, fonnaður Sambands íslenskra
sparisjóða, segir að þeir sem gagnrýni háan
rekstrarkostnað íslenskra fjármálastofnana verði
að taka tillit til smæðar markaðarins og starfs-
reglna sem dragi úr tekjumöguleikum hér á
landi. Hann bendir einnig á að það séu ekki bank-
ar og sparisjóðir sem séu umsvifamestir á mark-
aðnum heldur lífeyrissjóðimir.
I skýrslu Samtaka iðnaðarins og Iðn- og at-
vinnurekendasamtaka Evrópu um starfsskilyrði
frumkvöðla, sem sagt var frá í Morgunblaðinu í
gær, kemur fram að háir vextir séu einn þeirra
þátta sem veiki stöðu frumkvöðla í íslensku at-
vinnulífí.
„Eg mótmæli því ekki að rekstrarkostnaður
banka og sparisjóða sé mikilll, en menn verða
gera sér grein fyrir því þegar þeir segja þetta að
Islendingar eru aðeins um 275 þúsund talsins,“
segir Þór. „Margir þeir sem við erum bomir
saman við myndu ekki láta sér detta í huga að
hafa þjónustu við svona lítinn hóp.“
Þór bendir einnig á að aðrar starfsreglur gildi
á Islandi en í samanburðarlöndum, sérstaklega
hvað varðar svonefnt „flot“. „Flot er það að taka
við greiðslum og skila þeim ekki samdægurs eða
daginn eftir,“ segir Þór. „Við höfum þann hátt á
hér á Islandi að allt sem borgað er inn til banka
og á að fara til einhvers annars er skilað sam-
dægurs. Alls staðar erlendis taka menn sér 3-5
daga í þetta, til þess að fyrirbyggja misnotkun á
kerfinu. I reyndina þýðir þetta það að bankar,
sparisjóðir og fjármálastofnanir em með peninga
í höndunum sem kosta þá ekki neitt. Þetta era
engar smátekjur sem af þessu hljótast."
Þór bendir einnig á að stimpilgjaldið auki
kostnað fjármálastofnana, og ekki hafi tekist að
fá því aflétt, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
„Stærstu aðilamir á markaðnum era enda
komnir með fyrirtæki erlendis til að fara í kring-
um stimpilgjaldið."
Vaxtamunur
minnkar hratt
Þór segir að bilið milli íslenskra og erlendra
fjármálastofnana fari þó minnkandi, enda sé
vaxtamunur á hraðri niðurleið hér á landi. „Við
megum þó ekki gleyma því að einn stærsti aðil-
inn á markaðnum er lífeyrissjóðirnir, þannig að
vaxtastigið ræðst mikið af því hvað þeir eru til-
búnir að sætta sig við sem ávöxtun."
Þór segist hafa velt því fyrir sér í fullri alvöru
hvort ekki væri heppilegra að leggja niður krón-
una sem gjaldmiðil. „Af hverju föram við ekki
bara yfir á evrana, þá eram við komnir í sömu að-
stöðu og aðrir. Þá stöndum við að vísu og föllum
með þróun okkar efnahagslífs og evrannar og
getum ekki gert annað en raunsæjar efnahags-
ráðstafanir, ég veit því ekki hvort stjórnmála-
mennimir era tilbúnir að leggja af krónuna, við
höfum oft notað gengið til að jafna sveifiur.“
Hagræðing er framundan
Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri hjá
Landsbanka Islands, sagði í raun ekkert nýtt
koma fram í skýrslunni, vaxtamunur hefði farið
lækkandi síðustu árin, bankamenn hefðu bent á
að kostnaðarhlutfall þyrfti að lækka og frekari
hagræðing í bankakerfinu væri nauðsynleg.
Brynjólfur sagði vaxtamun hafa lækkað úr nærri
4% árin 1994-1995 í 3,3% í fyrra.
Hann benti á að í skýrslu Landsbankans fyrir
síðasta ár hefði komið fram að kostnaðarhlutfall
hérlendis væri hærra en í nágrannalöndunum og
ætlunin væri að vinna að því að bæta úr því.
Einnig hefðu bankamenn bent á mikilvægi þess
að sameina einingar viðskiptabanka svo og að ís-
lensk stjómvöld þyrftu að draga úr þátttöku
sinni á fjármálamarkaði sem Brynjólfi fannst
gerast nokkra hægar en hefði mátt vænta.
í lokin minnti Brynjólfur á nýtt félag, Lands-
bankann-Framtak hf. sem hefði það hlutverk að
sinna frumkvöðlaþjónustu af ýmsu tagi auk þess
sem bankinn sjálfur hefði oft og tíðum lánað
beint til nýrra greina.
Sala togarans
Sléttaness
staðfest
STJÓRN Básafells hf. í ísafjarðar-
bæ hefur staðfest samning um sölu
togarans Sléttaness með aflaheim-
ildum til Ingimundar hf. og Látra
ehf. í Reykjavík. Það er því ákveðið
að togarinn verður seldur og nemur
verð hans og þeirra aflaheimilda,
sem honum fylgja, um 1,5 milljörð-
um króna. Togarinn verður afhent-
ur nýjum eigendum á tímabilinu 15.
október til fyrsta nóvember.
Salan var samþykkt með þremur
atkvæðum í stjóminni, en tveir
stjómarmanna sátu hjá, þeir Hall--
dór Halldórsson, bæjarstjóri Isa-
fjarðarbæjar, og Hinrik Matthías-
son. Sala skipsins og aflaheimild-
anna er liður í því að minnka skuldir
Básafells, sem fyrir söluna nema
um 5 milljörðum króna. Jafnframt
hefur verið ákveðið að selja togar-
ann Orra IS án aflaheimilda, en
enginn samningur um sölu hans
liggur fyrir.
Svanur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Básafells, vildi lítið
um málið segja. Hann vildi ekki
gefa upp hvemig söluverð skiptist á
milli aflaheimilda og skips, en stað-
festi að um 800 tonna þorskkvóti
fylgdi skipinu auk annarra afla-
heimilda.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
um skýrslu Samtaka iðnaðarins
Brýnt að hraða
einkavæðingu
fj ármálastofnana
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vatnsmýrin fyrir
hús undir rann-
sóknastarfsemi?
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að margt sé nei-
kvætt í skýrslu Samtaka iðnaðarins
og Iðn- og atvinnurekendasamtaka
Evrópu um starfsskilyrði fram-
kvöðla á Island. „En þar er jafn-
framt margt jákvætt að finna. Ég
tel að við höfum verið á réttri leið á
undanförnum árum, en hins vegar
er það þekkt að við búum við viss
vandamál sem skerða samkeppnis-
hæfni okkar,“ segir Halldór.
Kostnaður vegna
smæðar þjóðarinnar
Halldór segir að íslendingar séu
lítil þjóð í stóra landi. „Við búum
við meiri kostnað vegna smæðar en
margar aðrar þjóðir. Við því er lítið
að gera. Samkvæmt skýrslunni er-
um við með tiltölulega háa sam-
neyslu, 22% af landsframleiðslu.
Stjórnvöld heyra samt meiri gagn-
rýni frá samfélaginu um að sam-
neysla sé ekki nægilega há og það
þurfi að veita meira fé til ýmissa
velferðarmála," segir hann.
Að sögn Halldórs sýnir skýrslan
að ekki sé ávallt einfalt að minnka
opinber útgjöld. „Það er mikill mis-
skilningur hjá mörgum í samfélag-
inu að ríkið eigi alltaf nóg af pen-
ingum. En þannig er nú umræðan
oft,“ segir Halldór.
Halldór segir að ekki komi á
óvart að eitt af vandamálunum sem
rakin séu í skýrslunni sé íslenski
fjármagnsmarkaðurinn og óhag-
kvæmni bankakerfisins. „Þar hefur
orðið töluverð breyting á, en það er
ætlun ríkisstjórnarinnar að ganga
lengra í þeim efnum, með því að
koma fjármálastarfsemi að mestu
eða öllu leyti í hendur einkaaðila,"
segir hann.
Vandamál fjármála-
kerfís er eignarhald
Halldór samþykkir að eitt aðal-
vandamál fjármálakerfisins sé
óljóst eignarhald, eða eignarhald
ríkisins. „Málið er það að við búum
við allt önnur skilyrði en fyrir
nokkrum áram og okkur hefur
ekki tekist að bregðast nægilega
hratt við þeim. Fjármálastofnan-
irnar era komnar í mikla sam-
keppni við erlendar stofnanir og
þau lögmál sem giltu hér fyrir
nokkrum áram eiga ekki við nú.
Þess vegna er nauðsynlegt að
hraða þeim breytingum sem þurfa
að verða,“ segir hann, „ætlun ríkis-
stjórnarinnar er að gera það.“
Halldór á ekki von á að skýrsla
Samtaka iðnaðarins verði til þess
að þeim breytingum verði enn
frekar hraðað. „Skýrslan staðfestir
það sem við vissum og er í sjálfu
sér engin ný tíðindi.“
Kría eign-
ast þrjú
lömb í júlí
Fagradal - Á bænum Götum í
Mýrdal lauk hefðbundnum sauð-
burði um tuttugasta maí en ærin
Kría varð eitthvað sein á fengi-
tíma og er nýbúin að eignast
þrjú falleg lömb, tvær gimbrar
og einn hrút. Ærin er 6 vetra og
búin að eignast 17 lömb, þ.e.
fimm sinnum þrjú og einu sinni
tvö, þá veturgömul. Það er frek-
ar óvenjulegt að ær séu
marglembdar þegar þær bera á
þessum tíma árs eins og gerðist
núna.
„ÞAÐ eina sem ég hef heyrt er að
fyrirtækið sé að velta fyrir sér að
byggja og það er eðlilega spennandi
fyrir íyrirtæki af þessu tagi að leita
eftir því að vera í nánd við aðra
rannsóknastarfsemi," segir Páll
Skúlason háskólarektor um þá hug-
mynd forráðamanna Islenskrar
erfðagreiningar að falast eftir lóð á
háskólasvæðinu. Fyrirtækið er nú til
húsa á þremur stöðum í borginni.
Páll sagði að Háskólanum kæmi
best ef flugvöllurinn yrði færður er
hann var spurður um lóðamál Há-
skólans almennt. „Best færi á því að
svæðið yrði tekið undir vísindastarf-
semi og ég held að það sé bara tíma-
spursmál hvenær að því kemur,“
sagði háskólarektor.
„Ef við horfum til lengri tíma þá
sýnist mér mjög skynsamlegt að á
flugvallarsvæöinu verði reist hús-
næði fyrir þekkingariðnað, fyrirtæki
sem stunda rannsóknir, slíkt væri
mjög æskileg og jákvæð þróun. Hér
hefur þó engin umræða farið fram
um þetta en þessi hugmynd kviknaði
hjá mér í framhaldi af umræðum um
að erfitt gæti verið að koma íbúða-
byggð fyrir í Vatnsmýi-inni. Þess í
stað mætti reisa færri hús undir
svona starfsemi. Vatnsmýinn er sér-
stök með fuglalífi sínu og tjörnum,
þarna er skemmtilegt útivistarsvæði
og með þessu væri hægt að fram-
lengja miðborgina og tengja hana við
baðstaðinn og útivistarsvæðið í Naut-
hólsvík," og lagði Páll að lokum
áherslu á að þessar hugmyndir væru
aðeins draumar og ómögulegt að
segja hvað um þær yrði.
heimilisbankinn
www.bi.is
J!S5»KEÍ»»
Þú velur greiðsludaginn - Heimilisbankinn borgar reikninginn
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki