Morgunblaðið - 15.07.1999, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
AKUREYRI
MORGUNB LAÐIÐ
F erðafélag
Akureyrar
Gengið í
Glerárdal
FERÐAFÉLAG Akureyrar
efnir til gönguferðar í Glerár-
dal um komandi helgi.
Gengið verður inn Glerárdal
og í Lamba, skála félagsins
þar, á föstudagskvöld. A laug-
ardag verður gengið á fjöll við
dalbotninn og gist aftur í
Lamba um nóttina, en á
sunnudeginum verður gengið
heim um Bægisárdal. Rúta
tekur göngufólk þar og ekur
til Akureyrar. Fararstjóri er
Ingvar Teitsson.
Skráning er á skrifstofu
Ferðafélags Akureyrar við
Strandgötu en þar fást einnig
nánari upplýsingar um ferð-
ina.
Robin Nolan
tríó í
Deiglunni
HIÐ víðþekkta Robin Nolan
tríó leikur á þriðja Tu-
borgdjassi á heitum fimmtu-
degi í Deiglunni í kvöld,
fimmtudagkvöldið 15. júlí kl.
21.30.
Robin Nolan Trio staldrar
hér við á leið sinni frá Kanada
þar sem þeir hafa leikið á virt-
um djasshátíðum og fjölmörg-
um tónleikum auk þess að
halda námskeið.
Á Akureyri leiðbeina þrí-
menningamir á þriggja daga
námskeiði sem fram fer í Tón-
listarskólanum á Akureyri,
Hafnarstræti 81 og er nám-
skeiðið þegar uppbókað.
Á tónleikunum verða flutt
sígild djasslög eftir Django
Reinhardt og fleiri ásamt tón-
list eftir þá félaga.
Notkun ýmissa stofnana á staðarheitinu/örnefninu Mývatn
Ankannaleg notkun sem
valdið getur misskilningi
INGÓLFUR Á. Jóhannesson, dósent við Háskól-
ann á Akureyri, hefur síðustu misseri bent ýms-
um opinberum og hálfopinberum stofnunum á að
staðarheitið/ömefnið Mývatn sé notað á ankanna-
legan hátt sem valdið geti misskilningi. Beinist
gagnrýni Ingólfs að því að notkun þessa staðar-
heitis eða örnefnis, Mývatns, er látið vísa til ann-
ars svæðis, þ.e. Reykjahlíðar eða til stærra svæð-
is, þ.e. sveitarinnar allrar. Af þessu tilefni ritaði
hann íslenski'i málnefnd bréf nýlega og bað um
álit nefndarinnar á því að þessar stofnanir tækju
upp slíka útþanda merkingu á staðarheitinu.
I bréfinu kemur fram að undanfarin ár hafi
heitið Mývatn, sem eitt sinn hafi einungis vísað
til stöðuvatnsins Mývatns, verið notað á mun víð-
tækari hátt en áður tíðkaðist.
Breytingu hafnað
Fyrir þremur áram benti Ingólfur forsvai’s-
mönnum Vegagerðarinnar á að á vegskiltum
þeirra t.d. við Akureyri stæði Mývatn en vísað
væri tii Reykjahlíðar. Bað hann um breytingu en
því var hafnað.
Póstáritun fyrir póst í Skútustaðahrepp hefur
allt þar tU á síðasta ári verið „660 Reykjahlíð", en
því var breytt á liðnu ári í „660 Mývatn". Ingólfur
hefur farið fram á við íslandspóst að póstáritun-
inni verði breytt tU fyrra horfs eða „Mývatns-
sveit“ verði sett í staðinn. Bréfið tU Islandspósts
var skrifað í ágúst í fyrra en svar hefur enn ekki
borist.
Þá bendir Ingólfur á að þegar veðurlýsingar
era lesnar í útvarpi era lesnar lýsingar frá veður-
stöðinni Mývatn. Veðurstöðin er á Neslanda-
tanga við Mývatn.
ÓheppUegt að nota heitið í víðtækari merkingu
Islensk málnefnd er sammála sjónarmiðum
Ingólfs og telur nefndin óheppilegt að nota heitið
Mývatn í annarri og víðtækari merkingu en
tíðkast hefur frá fomu fari, en það er nafn á tU-
teknu stöðuvatni.
Bendir nefndin á að ef Mývatn er nefnt á veg-
vísum og fjarlægð þangað talin í kílómetram
skuli miðað við vatnið sjálft eða þann stað sem
fyrst verður fyrir þegar að því er komið. Vilji
menn miða við þorpið í Reykjahlíð skulu þeh-
ófeimnir nefna það á vegvísum.
Hvað póstáritun varðar sé venja að nota heiti
þess staðai’ þar sem pósthúsið er niðurkomið þótt
viðtökustaðurinn sé á stundum víðs fjarri. Bent
er á að í nýútgefinni símaskrá hafi Reykjahlíð
verið breytt í Mývatn, sem sé fjarstæða, Mývatn
er heiti vatnsins en ekki pósthússins.
Þá telur nefndin fráleitt að nefna veðurstöð
Mývatn, því ekki muni hún vera niðri í vatninu.
Regla Veðurstofu sé að nefna bæinn þar sem at-
huganir fari fram, en kjósi hún að nefna sveitina
alla í veðurfregnum heiti hún vissulega Mývatns-
sveit, ekki Mývatn.
Þung ábyi'gð
Loks er nefnt að nýlega hafi fyrirsögnin
„Óljnnpíuhlaup á Mývatni“ verið á aðsendri grein
í Morgunblaðinu. Það orðalag stríði gegn mál-
venju og máltilfinningu, en þetta dæmi sýni að
aðgátar er þörf. Opinberar og hálfopinberar
stofnanir beri þar þunga ábyrgð og þurfi að
ganga á undan með góðu fordæmi og gæta þess
að fara rétt með íslensk ömefni.
Landssími íslands
Bókasafn Háskól-
ans á Akureyri
Safn heim-
spekirita
afhent
Ný NMT-
farsíma-
stöð á
Gagnheiði
LANDSSÍMI íslands tók í vik-
unni í notkun nýja NMT-far-
símastöð á Gagnheiði, en með
henni mun NMT-samband á
Háreksstaðaleið, nýn-i leið yfir
Möðrudalsöræfi, batna til mik-
illa muna, að sögn Ólafs Steph-
ensen forstöðumanns upplýs-
inga- og kynningarmála Lands-
símans.
Um tveggja rása stöð er að
ræða, þannig að a.m.k. tveir
geta verið í sambandi í einu á
þessum slóðum. Sambandjð á
þessari leið var að sögn Ólafs
frekar tæpt, en mun batna mik-
ið í kjölfar þessarar nýju far-
símastöðvar.
NMT-farsímakerfið nær nú
meira og minna til ails landsins,
en með stöðinni á Gagnheiði og
tveimur öðram til viðbótar, á
Fjórðungsöldu og Gunnólfsvík-
urfjalli, er búið að loka síðustu
götunum í kerfinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Kalsalegt norðanlands
HELDUR kalsalegt hefur verið norðan heiða nú í
vikunni, norðanáttin ræður nú ríkjum og andar held-
ur köldu auk þess sem þó nokkuð hefur rignt. Það er
því eins gott fyrir þá sem þurfa að vera á ferðinni
útivið að hneppa vel upp í háls á regnúlpunni. Eins
getur verið gott þegar sem mest hellist niður úr skýj-
unum að verja sig með því sem nærtækast er á hverj-
um tíma, líkt og þessi ungi maður sem var á ferð yfir
göngubrú við Strandgötu á Akureyri. Hann varði
höfuð sitt með plastpoka. Ferðamenn eru hins vegar
oftar betur búnir og geta brugðið upp regnhlíf.
Á TÍU ára afmæli Háskólans á
Akureyri ánafnaði Páll S. Árdal
fyrrverandi heimspekiprófessor
í Ontario í Kanada Bókasafni
Háskólans á Akureyri heim-
spekibókasafn sitt. Athöfn verð-
ur í hátíðarsal háskólans föstu-
daginn 16. júlí kl. 16 þar sem
ættingjar Páis frá Kanada af-
henda gjöfina formlega. Flutt
verða ávörp við athöfnina, m.a.
flytjur Jörandur Guðmundsson
heimspekingur og nemandi
Páls erindi um hann og verk
hans. Maja Árdal talar fyrir
hönd aðstandenda.
í safni Páls era aðallega rit af
heimspekilegum toga, þar er að
finna almenn heimspekirit,
margar bækur eftir og um
breska heimspekinginn David
Hume og rit um siðfræðileg
málefni innan læknisfræði og
lögfræði.
Fjölbreytt dagskrá á Fjölskyldu-
hátíð fullveldisins í Hrísey
HIN árlega Fjölskylduhátíð full-
veldisins í Hrísey verður haldin um
næstu helgi, dagana 16. tii 18. júlí,
og er þetta í þriðja sinn sem hátíð
þessi er haldin í eynni.
Gestir fá afhent vegabréf ásamt
dagskrá hátíðarinnar um borð í ferj-
unni og verður að því búnu haldið í
gegnum tollinn þar sem stimplað
verður í vegabréfin. Ókeypis er á há-
tíðina og ferðir frá bryggju að tjald-
stæði í næsta nágrenni verða í boði.
Á föstudag verður diskótek fyrir
ungu kynslóðina, ökuferðir um þorp-
ið og gönguferðir með leiðsögn um
eyna auk þess sem dagskrá verður á
veitingastöðunum Brekku og Foss-
inum.
Formleg setning hátíðarinnar er á
laugardag ki. 11. Leiktæki verða
sett upp fyrir börnin, Sundlaug
verður opin og boðið upp á ökuferðir
út í vita. Markaðstorg verður opið,
bátaleiga í sandfjöranni og keppni í
akstursleikni á dráttai’vélum hefst
kl. 13.
Brynja Amadóttir opnar mynd-
listarsýningu á pennateikningum, en
hún stendur tii 8. ágúst næstkom-
andi. Kvartmflukeppni á dráttarvél-
um fer fram kl. 15. Ratleikur hefst
kl. 17. Kveikt verður á útigrillum á
hátíðarsvæðinu kl. 19 og kvöldvaka á
hátíðarpalli verður um kvöldið þar
sem ýmsii’ listamenn mæta til leiks,
s.s. Guðrún Gunnarsdóttir, Valgeir
Skagfjörð, Michael Clarke og fleiri.
Óvissuferð er í boði og dansleikur
hefst kl. 23.30 þar sem hljómsveitin
Einn og sjötíu leikur. Flugeldasýn-
ing verður á bryggju á miðnætti.
Aukaferð verður farin með ferjunni
á Ái’skógsströnd að dansleik lokn-
um;
Á sunnudag verður markaðstorg
opið og stangveiðikeppni hefst kl. 13.
Jassband Hríseyjar ásamt Hauki
Ágústssyni leikur léttan djass,
söngvarakeppni bama verður kl.
14.30 og úrslitakeppni í akst-
ursleikni á dráttarvélum hefst kl.
16.30.