Morgunblaðið - 15.07.1999, Síða 18

Morgunblaðið - 15.07.1999, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI I i \ I f Sl8l|S#lllS KÝRNAR sóttar og Qósverk heQast, Ferðamanna- fjós í Mý- vatnssveit Morgunblaðið/Sverrir ÓLÖF Hallgrímsdóttir ásamt einni kúnni á bænum ÓLÖF Hallgrímsdóttir bóndi á Vogabúi, Vogum í Mývatnssveit, hefur ásamt fjölskyldu sinni opnað svo- kallað ferðarnannaljós. Úr kaffístofu hafa gestir út- sýni inn í íjósið, yfir mj'altabásinn og sjá mjólk- ina fossa í rörin sem Iiggja í gegnum kaffístofuna inn í mjólkurhúsið. Gestirnir geta svo gætt sér á ýmsu góðgæti svo sem hvera- bökuðu rúgbrauði með sil- ungi úr Mývatni, vöfflum með ijóma og kökum að ógleymdri mjólkinni sem að sjálfsögðu er tekin beint úr tanknum. Búskapur hjá ungu fólki í dag Fjósið er nýlega byggt, var tekið í notkun í ágúst á síðasta ári. Hins vegar segir Ólöf að þau séu ný- byrjuð á því að bjóða ferðamönn- um inn í kaffistofuna til að fylgj- ast með mjöltunum. „Ástæðan að baki því að fara út í þetta ferða- mannafjós er af tvennum toga. Við vorum aðeins með um sjö mjólkandi kýr i fímmtíu ára gömlu fjósi áður en við byggðum þetta. Það var því komið að því að taka ákvörðun um að hætta með kýrnar eða fara út í þetta. Við vildum líka opna búið fyrir almenningi, gefa fólki kost á því að sjá hvernig búskapur hjá ungu fólki fer fram í dag. Mér fínnst stundum eins og fólk sem ekki er úr sveit hafi myndað sér staðlaða og kannski skakka mynd af sveitalífínu,“ sagði Ólöf. Hreyfing fyrir kýmar Með byggingu nýja fjóssins var kúnum fjölgað. Nú eru básar fyr- ir 16 kýr, auk pláss fyrir kálfa og geldneyti. Einnig hafa þau mjaltabás sem tekur fjórar kýr i einu. „Þeim sem hönnuðu fjósið fannst það algert brjálæði að hafa mjaltabás fyrir 16 kýr en við vorum hörð á því. Maður fæð- ist aðeins með eitt bak og það er eins gott að fara vel með það. Svo fá kýrnar hreyfingu tvisvar á dag, þær myndu annars standa allan veturinn á básunum. Það skilar sér svo í heilbrigðari kúm og betri mjólk og um það snýst jú búskapurinn," sagði Ólöf. Krakkarnir geta sótt kýrnar Ólöf segir að það komi vel til greina að leyfa gestum að taka meiri þátt í mjöltunum heldur en eingöngu að fylgjast með þeim í gegnum glerið. „Við leyfum fólki að koma inn í fjósið. Við erum stór fjölskylda svo að kýrnar kippa sér ekkert upp við það þótt að fleira fólk sé í fjósinu en vana- lega,“ sagði Ólöf. Þegar blaða- maður spurði hana um hvort kæmi til greina að leyfa krökk- um að sækja kýrnar sér til skemmtunar, þá svaraði hún: „Ekkert sjálfsagðara," og var ekki ljóst við að glampi kæmi í augun á henni. „Eg bara bíð eftir að krakkarnir hérna stækki svo að þau geti náð í kýrnar upp á eigin spýtur," sagði hún. Hafa sótt um vínveitingaleyfí Á Vogabúinu er einnig rekin ferðaþjónusta. „Við erum með tjaldsvæði og gistiskála sem við höfum verið með í nokkur ár. Við STÚLKURNAR Arnþrúður og Nanna klappa kálfinum Maísfjörnu sem fæddist á kosninganóttina. GESTIR fylgjast með mjöltum úr kaffistofunni, vonumst til þess að við fáum eitt- hvað af fólki af tjaldsvæðinu hingað til okkar í kaffístofuna og Qósið,“ sagði Ólöf. Hún sagði einnig að þau væru búin að sækja um vínveitingarleyfí og hefðu þá einmitt erlenda ferðamenn í huga. „Þegar þeir koma inn á kaffihús þá fínnst þeim sjálfsagt að hægt sé að fá bjór eða léttvín, eru vanir því í sínu heimalandi. Við munum þá væntanlega lengja opnunartímann ef að leyf- ið fæst,“ sagði Ólöf. Eins og er hafa þau opið frá 8 til 10 á morgnana og 17 til 20 á kvöldin. Um helgar er svo opið til klukk- an 22 á kvöldin. Alltaf nóg að gera Ekki er nóg með að Ólöf og fjölskylda hennar reki ferðaþjón- usta og hafí nú opnað ferða- mannaljós heldur eru þau einnig með 250 íjár og nokkra hesta. „Við erum með meðalstórt bland- að bú í raun og veru. Þessi ferða- mannabúgrein er tilraun til að skapa atvinnu, ekki það að mað- ur hafí ekki alltaf nóg að gera,“ sagði Ólöf. Enn sem komið er er það Qölskylda Ólafar sem vinnur við búið en reyndar er hún núna með franskan vinnumann og frændi hennar á staðnum hefur þýska stúlku sem húshjálp(au-pa- ir). „Það má kannski segja að þetta sé alþjóðlegur vinnustað- ur,“ sagði Ólöf. Að spjallinu við Ólöfú loknu þá var kominn tími fyrir hana og aðra fjölskyldumeðlimi að sækja kýrnar og heQa mjaltir. Krakk- arnir á bænum voru áhugasamir um að blaðamaður og ljósmynd- ari kynnitust búpeningnum náið og kynntu þá meðal annars fyrir kálfinum Mafsljörnu og ýmsum öðrum íbúum þessa ljóss. Eftir að mjöltum var lokið var kominn tími til að kveðja þetta ferða- mannafjós þar sem kýr og menn una hag sínum saman. Teknir með fíkni- efni TVEIR menn voru handteknir af fulltrúum í rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri í vik- unni vegna gruns um fíkniefna- neyslu. Þeir reyndust við eftir- grennslan vera undir áhrifum fíkniefna og viðurkenndu við yfirheyrslur neyslu og kaup á fíkniefnum. Overulegt magn fíkniefna fundust í íbúð sem þeir dvöldu í. Um liðna helgi var maður handtekinn á skemmtistað á Akureyri en hann hafði í fórum sínum eitt gramm af am- fetamíni. Hjá rannsóknardeild lög- reglunnar á Akureyri fengust þær upplýsingar að áberandi mikil aukning hefði orðið á fíkninefnamálum í bænum á þessu ári. Þegar hafa 23 mál af slíku tagi komið til kasta rann- sóknardeildar en voru 13 á sama tíma í fyrra. Vaxandi framboð á hvers konar fíkni- efnum skýrir að einhverju leyti þessa miklu aukningu. Kristni- boðsmót KRISTNIBOÐSMÓT á vegum Kristniboðssambandsins verð- ur haldið að Löngumýri í Skagafirði dagana 16. til 18. júlí. Mótið hefst föstudags- kvöldið 16. júlí með samkomu þar sem Sigríður Halldórsdótt- ir talar. Biblíulestur í umsjá Benedikts Amkelssonar verð- ur á laugardagsmorgun og kristniboðssamkoma sem sr. Helgi Hróbjartsson kristniboði sér um verður síðdegis. Um kvöldið verður vitnisburðar- samkoma. Messað verður í Miklabæj- arkirkju að morgni sunnudags. Jónas Þórisson kristniboði predikar. Sr. Stína Gísladóttir og sr. Dalla Þórðardóttir pró- fastur Skagfirðinga þjóna fyrir altari. Lokasamvera kristni- boðsmótsins verður kl. 14 á sunnudag þar sem sr. Helgi talar en mótinu verður slitið kl. 15. Skráning er á Löngumýri hjá sr. Stínu Gísladóttur. Akureyrar- maraþon um helgina HIÐ árlega Akureyrarmara- þon fer fram næstkomandi laugardag, 17. júlí. Þrjár vega- lengdir verða í boði fyrir hlaupara, hálft maraþon, 10 km hlaup og 3 km skemmtiskokk. Hlaupið hefst á Akureyrarvelli kl. 12 en forskráning þarf að berast fyrir fimmtudaginn 15. júlí en skráningu lýkur föstu- dagskvöldið 16. júlí. Skráning fer fram í Sportveri á Akur- eyri, hjá UFA, hjá ÍBA og á skrifstofu Reykjavíkurmara- þons. Húfa á Pollinum Dægurlagapönkhlj ómsveitin Húfa verður með uppákomu á veitingahúsinu Pollinum í kvöld, fimmtudagkvöldið 15. júlí. Hljómsveitina skipa Hreinn Laufdal og Rögnvaldur gáfaði og mun hann einnig flytja ljóð og gamanmál milli laga. Hljómseitin sem er álitin „besta“ hljómsveit landsins mun útdeila gjöfum tO við- staddra og reyna þannig að standa undir væntingum svo þeir haldi titlinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.