Morgunblaðið - 15.07.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Belgrad. AP, AFP, The Daily Telegraph.
ÁKVÖRÐUN Vuk Draskovics,
leiðtoga stjórnarandstöðuflokks-
ins Endurreisnarhreyfíng Serbíu
(SPO), þess efnis að vilja skipu-
leggja mótmæli gegn Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseta á eig-
in spýtur en ekki í samvinnu við
aðra stjórnarandstöðuflokka hef-
ur vakið reiði meðal leiðtoga
stjórnarandstöðunnar. Megin-
vandamál stjórnarandstöðunnar
gegn Milosevic sl. tíu ár hefur
verið samstöðuleysi og óttast
menn nú að afstaða Draskovics
verði til að ýta undir frekari óein-
ingu og styrkja þar með stöðu
Milosevics á ný.
Draskovie lýsti því yfír sl.
þriðjudag að hann hefði ekki
áhuga á að starfa með Samtökum
um breytingar (SZP), sem eru
regnhlífasamtök u.þ.b. þrjátíu
stjórnarandstöðuflokka og -hópa í
Serbíu, en þau hafa skipulagt
mótmæli gegn forsetanum sem
átt hafa sér stað nánast daglega
víðsvegar um landið sl. tvær vik-
ur.
Leiðtogar SZP höfðu farið þess
á leit við Draskovic að hann
slægist í hóp þeirra og saman
myndu flokkarnir mynda heild-
stæða og sterka samstöðu gegn
Milosevic. Er fyrrnefnd afstaða
Draskovic lá ljóst fyrir sökuðu
þeir hann um að vera tækifæris-
sinna og kameljón í stjórnmálum
og sögðu hegðun hans muna
styrkja stöðu Milosevic enn frek-
ar.
Óvíst hvað vakir
fyrir Draskovic
Sag'ður tækifærissinni og kameljón
Hefur Draskovic hvatt fylgis-
menn SPO að fylkja liði og krefj-
ast afsagnar forsetans næstkom-
andi laugardag í Kragujevac og
sagðist hann búast við að hundruð
þúsunda manna tækju þátt í þeim.
Leiðtogar SZP höfðu ráðgert að
stofna til fjöldamótmæla einmitt í
þessum sama bæ í dag.
Óeining innan raða stjórnar-
andstöðunnar hefur í gegnum tíð-
ina valdið því að ekki hefur tekist
að steypa Milosevic af stóli, ekki
síst vegna þess að enginn einn
leiðtogi hefur staðið uppi sem sér-
staklega fýsilegur arftaki forset-
ans, hvort heldur sem er í augum
Serba eða leiðtoga á Vesturlönd-
um.
Draskovic, sem leiddi fjölmenn
þriggja mánaða mótmæli gegn
Milosevic veturinn 1996-7, kom þó
á sínum tíma til greina sem eftir-
maður forsetans, ekki síst í aug-
um Vesturlanda.
Hins vegar kom hann mörgum í
opna skjöldu er hann tók við emb-
Reuters
DRASKOVIC vill ekki mótmæla
samhliða öðrum sljórnarand-
stöðuflokkum og hefur þar
með, að mati margra frétta-
skýrenda, ýtt undir frekari
óeiningu innan raða pólitiskra
andstæðinga Milosevics.
ætti aðstoðarforsætisráðherra Jú-
góslavíu í byrjun þessa árs, en
hann var síðar rekin úr ríkis-
stjórninni. Af þessum sökum hafa
ráðamenn í Bandaríkjunum ekki
viljað styðja við bakið á Draskovic
gegn Milosevic þar sem ljóst þyk-
ir að hann sé „tækifærissinni," að
því er haft var eftir embættis-
mönnum í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu.
Milosevic reynir að fá
Draskovic á sitt band
Frá því að átökunum í Kosovo
lauk hefur Milosevic reynt að fá
Draskovic til samstarfs við ríkis-
stjórn sína á ný til málamiðlunar
vegna vaxandi óánægju meðal al-
mennings í landinu og fjölmennra
mótmæla sem fara vaxandi með
degi hverjum.
Er stjórnarandstaðan hóf að
skipuleggja mótmæli í byrjun
mánaðarins lýsti Draskovic því yf-
ir að mótmæli væru ekki rétta
leiðin til að steypa Milosevic af
stóli. í vikunni sagði hann hins
vegar mótmæli vera einu réttu
leiðina til að koma forsetanum frá
og að borgarastríð væri handan
hornsins, færi Milosevic ekki úr
embætti.
Enginn veit með vissu hvað
vakir fyrir Draskovic, þar sem lík-
legt þykir að ákvörðun hans um
að starfa ekki með hinum stjórn-
arandstöðuflokkunum gegn
Milosevic sé olía á eldinn hvað
andstöðu gegn forsetanum varð-
ar.
Draskovic gróf enn frekar und-
an stjórnarandstöðunni í gær er
hann sagðist vera þess fullviss að
flokkur hans væri eina stjórn-
málaaflið í Serbíu sem hróflað
gæti við forsetanum.
„Það er einungis á færi míns
flokks [SPO] að fá Milosevic frá
völdum ... Þetta er eina leiðiri til
að bjarga Serbíu og okkur öllum,“
sagði Draskovic.
Enn héldu mótmæli áfram gegn
Milosevic víðsvegar í gær en þá
hafði SZP ráðgert að halda mót-
mæli í Subotica í Vojvodina-héraði,
í samvinnu við stjómmálaflokka
ungverska minnihlutans þar.
Stjórnarandstaðan hélt í gær
áfram að safna undirskriftum til
stuðnings afsagnar Milosevic, en
á 29 stöðum höfðu íbúar Belgrad,
höfuðborgar Serbíu, tækifæri til
að sýna andstöðu sína við forset-
anum og skrifa undir listann.
150.000 undirskriftum hefur verið
safnað þrátt fyrir að yfírvöld hafí
lagt bann við Ústanum.
Huldukonan í
lífí Murdochs
Reuters
HIN nýgiftu hjón, Rupert Murdoch, eigandi News Corp. og Wendy Deng, sjást hér yf-
irgefa boð saman sem þau voru viðstödd í janúar sl.
HINN áttunda júní sl. skildi Rupert Mur-
doch, eigandi News Corp. fjölmiðlarisans,
við Önnu, eiginkonu sína til þrjátíu ára.
Sautján dögum síðar, giftist Murdoch á ný,
að þessu sinni hinni 32 ára gömlu, kín-
verskættuðu, Wendy Deng. Einkalíf Mur-
dochs hefur ekki verið mikið til umfjöllunar
í slúðurblöðum beggja vegna Atlantsála og
stafar það e.t.v. af því að Murdoch á flest
þeirra. En dularfull fortíð Wendyar og skjót
umskipti á lífsförunautum Murdochs hefur
nú gefíð sögusögnum byr undir báða vængi.
Ofan á það bætist svo yfirlýsing Murdochs í
liðinni viku þar sem hann segir að ekkert
bama sinna - sem hann átti með Önnu - sé
undir það búið að stjóma fjölmiðlasam-
steypu sinni er hann dragi sig í hlé. Peter
Chemin, framkvæmdastjóri samsteypunnar
og hægri hönd Murdochs síðustu árin, verð-
ur eftirmaður hans - tíl að byrja með a.m.k.
Er fregnir fóm að berast af því að Mur-
doch ætlaði sér að giftast Wendy, fyrram
starfsmanni Sfcar TV, gervihnattasjónvarps-
stöðvar Murdochs í Asíu, breyttist afstaða
kínverskra fjölmiðla tíl umsvifa Murdochs í
landinu, til hins betra. „Murdoch er tví-
kvæntur og á fjögur böm,“ var ritað í leið-
ara dagblaðsins Economic Daily sem gefíð
er út í Peking. „Aldursmunur Murdochs og
Wendyar Deng er svo mikill sem 36 ár. Ef
af bameignum verður er allt eins víst að
slagur muni standa um framtíð fjölmiðla-
samsteypunnar meðal næstu kynslóðar.“
Wendi Deng fæddist í Shandong-héraði í
norðausturhluta Kína sama ár og hinn ástr-
alski Murdoch gekk að eiga Önnu. Nokkrum
áram síðar fluttist fjölskylda Wendyar til
Guangzhou, höfuðborgar hins gjöfula Gu-
angdong-héraðs. Lítið sem ekkert er hins
vegar vitað um líf hennar næstu 10-15 árin
og síðan hún birtist í Bandaríkjunum árið
1991 hefur fortíð hennar verið afar óræð.
Frá því kunnugt varð um ástarsamband
hennar við Murdoch í október á síðasta ári
hefur komið í Ijós að Wendy hefur eytt
stærstum hluta síðustu tíu ára í að segja
sem minnst um fortíðina. Hafa vinir hennar,
samstarfsfólk og kennarar allir vitnað um
að lítið er af fortíð Wendyar að segja, og það
sem hún hafí látið uppi stangist oftast nær á
við annað sem eftir henni er haft.
Hins vegar er vitað að Wendy kom til
Bandaríkjanna fyrir átta árum með eigin-
mann og ríkan heimamund sér við hlið, og
hóf nám við ríkisháskólann í Kalifomíu.
Nafn eiginmannsins hefur þó aldrei verið
staðfest en sögusagnir herma að hann hafi
verið ríkur kaupsýslumaður, sennilega
bandarískur, sem starfað hafi í Guandong
seint á síðasta áratug og við ráðahaginn á
Wendy að hafa hlotið landvistarleyfi í
Bandaríkjunum og digra sjóði í sinn hlut.
Sögð hafa mikinn metnað
Þrátt fyrir óljósa fortíð hefur Wendy
Deng aldrei leynt því að hún hafi mikinn
metnað. Hún er sögð hafa verið afburða-
nemandi og skarað fram úr hópi þeirra 140
hagfræðinema er námu við Kalifomíu-há-
skóla. En jafnframt því var hún óráðin gáta;
ungur námsmaður með ógrynni fjár á milli
handa og einkalíf sem vakti upp spumingar
meðal samnemenda hennar.
„Hún var skemmtilegur nemandi, ætíð já-
kvæð og atorkusöm," sagði Prófessor Ken
Chapman, hagfræðikennari Wendyar, í við-
tali við ástralska blaðið Sydney Moming
Herald. „Hins vegar var alltaf afar erfitt að
átta sig á henni“. Hann sagði að Wendy væri
komin af vel stæðu fólld og að faðir hennar
hefði verið framkvæmdastjóri einnar eða
fleiri verksmiðja í Kína. Þá sagði hann að í
Bandaríkjunum hefði Wendy dvalist hjá fjöl-
skyldu um sinn en síðan flust í eigið húsnæði
er á háskólagöngu hennar leið.
Útgáfa Wendyar af komu sinni til Banda-
ríkjanna er þó á annan veg. Hún sagði sam-
nemendum sínum að hún væri gift vellauð-
ugum bandarískum kaupsýslumanni sem
hún hefði kynnst á viðskiptaráðstefnu í
Kína. Þau hefðu gifst og hann tekið hana
með sér til Bandaríkjanna með það fyrir
augum að hún gæti lært við bandarískan há-
skóla.
„Sagan sem ég heyrði var á þá leið að eig-
inmaðurinn væri afar hávaxinn maður og að
Wendy hefði verið beðin um að dansa við
hann eftir kvöldverðarboð þar sem hún var
hæst þeirra kínversku stúlkna er í teitinu
vora,“ sagði Chapman. „Flestir nemend-
anna við háskólann hafa ekki mikið fé handa
á milli en Wendy skorti hins vegar aldrei fé.
Hún átti alltaf nýjustu tölvumar á markaðn-
um og staldraði ávallt stutt við vegna eilífra
ferðalaga. Hún sagði að peningamir kæmu
frá auðugum eiginmanni sínum, og nú er
víst engin ástæða til að draga það í efa.“
Hinn dularfulli eiginmaður Wendyar, sem
enginn hefur séð og flestir álitu á þeim tíma
að væri hugarburður, var uppspretta sögu-
sagna meðal nemenda háskólans. „Við héld-
um nokkur teiti eftir að nemendumir úl>-
skrifuðust og tóku þeir maka sína ávallt
með. En Wendy kom alltaf einsömul," sagði
Chapman. „Það var eitthvað skrítið á seyði,
en ég vissi ekki hvað það var“.
Leiðir liggja saman
Wendy lauk námi sínu árið 1993 og sóttí
um inngöngu í Yale-háskóla þar sem hún
hugðist stunda MBA-nám. Chapman gaf
henni meðmæli sín en hefur ekki heyrt frá
henni síðan þá.
Til að ljúka MBA-námi sínu þurfti
Wendy að hefja starfsþjálfun hjá einhverju
stórfyrirtæki. Tók hún þá ákvörðun að
starfa fyrir fyrirtæki í Hong Kong. Þessi
ákvörðun varð tíl þess að leiðir hennar og
Murdochs lágu saman en Murdoch var um
þessar mundir að styrkja markaðsstöðu
sína í Asíu og leit vongóður til kínverska
markaðarins.
í flugvélinni á leiðinni frá Bandaríkjun-
um til Hong Kong sat Wendy við hliðina á
Brace Churchill, framkvæmdastjóra Star
TV, dótturfyrirtækis News Corp, í Asíu.
Nokkram Idukkustundum síðar, er vélin
lenti, höfðu þau afráðið að Wendy myndi
hefja starfsþjálfun hjá Star TV. Samstarfs-
fólk hennar hjá fyrirtækinu sagði í viðtölum
við Sydney Moming Herald að Wendy hefði
strax í upphafi sýnt mikinn metnað í starfi
og aflað sér tengsla meðal viðskiptamanna í
Asíu, sérstaklega í Kína.
Skömmu eftir að Wendy hóf störf hjá St-
ar TVhitti hún Murdoch í hanastélsboði þar
sem viðskiptasigrum fyrirtækisins var fagn-
að. Að sögn þeirra er á staðnum vora hafði
Murdoch vart augun af Wendy allt kvöldið
og er talið að ástarsamband þeirra hafi
byijað skömmu síðar.
Er Murdoch hélt til Peking á síðasta ári í
sama mund og Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti fór í opinbera heimsókn sína til Kína,
var Wendy með í lor og kynnti hún sig opin-
berlega sem túlk Murdochs. Af nafnspjaldi
hennar að dæma var hún titluð sem „yfir-
maður þróunar-, viðskipta- og lagamála" St-
arTV.
Samstarfsfólk hafði þá á orði að það kæmi
á óvart að Murdoch léti sjá sig í fylgd henn-
ar. Vissulega var vitað um metnað hennar
og framagimi en menn héldu að athygli
hennar beindist að forstjóra Star TV, Gaiy
Davey. „Við héldum öll að hún væri á eftír
Gary, en hún miðaði greinilega mun hærra
en það,“ lét einn fyrrverandi yfirmanna fyr-
irtækisins hafa eftír sér í samtali við blaðið.