Morgunblaðið - 15.07.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 35
LISTIR
Helgimyndir
MYNDLIST
Iláðhús Reykjavíkur
KLIPPIMYNDIR
12 KONUR
Opið þegar Ráðhúsið er opið.
Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ eru haldnar ýmsar sýningar í
Ráðhúsi Reykjavíkur, og fer ekki
sögum af þeim öllum í almennri rýni
blaðsins, en sá velur og hafnar sem
umboðið fær hverju sinni. Kannski
ekki heldur mikil ástæða til að fjalla
um núverandi sýningu sem byggist á
námskeiðum í helgimyndagerð hjá
Öldu Armönnu Sveinsdóttur mynd-
listarkennara, en þó skylt og rétt að
taka eina og eina til meðferðar,
svona af handahófi og helst til að
vekja athygli á framtakinu. Sam-
kvæmt einblöðungi og almennum
upplýsingum, byggist helgimynda-
gerðin á því að farið er ofan í mynd-
hefð kúkjunnar og annarra trúar-
bragða, íkonalistin skoðuð, ítalska,
hollenzka og rússnezka málarahefðin
fyrir og eftir endurreisn og síðan at-
hugað hverju búddisminn og nýöldin
geta bætt þar við. Að þessu skoðuðu
tekur við meira frelsi og leikur, skoð-
að hvað okkar tími er að fást við og
hvað er dáð og dýrkað...
Hér er það einmitt frelsið og leik-
urinn sem gildir, en minna fer fyrir
myndrænum átökum og skal ekki
lastað í þessu tilviki, hitt er meira
um vert að hér er vel staðið að verki
og frágangur myndanna óaðfinnan-
legur. Um er að ræða klippimyndir
og skærin notuð jafnt á listtímarit
sem glansblöð hvers konar en á
hvorugu sviðinu þurfa menn að
kvarta um ríkulega liti á góðan papp-
ír. Eins og verða vill eru blaðasnifsin
einnig skorin eða rifin og þarnæst er
myndeiningunum raðað og þeir límd-
ir á grunnflötinn.
Arangurinn er oftar en ekki hinn
þokkafyllsti og þá helst hjá kennar-
anum, einkum þegar hann teiknar
einnig til áherslu á flötinn, en ann-
ars er erfitt að gera upp á milli
sýnendanna, augljóst er að hér hafa
margar hendur hjálpast að og um
eins konar hópefli hefur verið að
ræða. Helst má finna að því að full
mikið og óskipulagt kraðak
myndsnifsa þekja oftar en ekki
myndflötinn. Því skipulegar sem
gengið er til verks, þeim mun áhrifa-
ríkari verður tímalaus boðskapurinn
sem gerendurnir leitast við að koma
til skila.
Bragi Ásgeirsson
HARNA ^ I ) Ö I. S K Y I. 1> U
LJÓSMYNDIR
Núpalind 1 - sími 564 6440
rétt við Smáran!
Útsalan hefst í dag
Dúndurverðlækkun
Kringlunni 8-12
Sími 568 6688
UTSALAN
er hafin
fierra
GARÐURINN
KRINGLUNNI