Morgunblaðið - 15.07.1999, Síða 37

Morgunblaðið - 15.07.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 37 Djass í Kaffileik- húsinu ÞRIÐJU tónleikamir í röðinni Bræðingi verða haldnir í Kaffileikhúsinu fimmtudaginn lö.júlí kl. 21. A efnisskrá verða lög hljóð- rituð af Miles Davis á árunum 1951-1954. Þetta tímabil á ferli Davis einkennist af til- raunastarfsemi, ekki síst í sambandi við mannaval, en upp úr tímabilinu varð til einn frægasti kvintett djasssög- unnar, segir í fréttatilkynn- ingu. Flest þau verk sem flutt verða eru fremur sjaldan spil- uð hér á landi en einnig verða teknar nokkrar vel þekktar perlur eins og Dear Old Stockholm og Round About Midnight í útsetningum ofan- greindra hljóðritanna, segir ennfremur. Trommuleikarinn Matthías Hemstock fer fyrir sveitinni sem auk hans er skipuð Kjart- ani Valdemarssyni á píanó, Sigurði Flosasyni á altó saxó- fón, Jóel Pálssyni á tenór sax- ófón og Tómasi R. Einarssyni á kontrabassa. Miðaverð er 800 kr. Aslaug Hall- grímsdóttir sýnir í Stöðlakoti ÁSLAUG Hallgrímsdóttir opnar sína fyrstu einkasýn- ingu í Stöðlakoti við Bók- hlöðustíg 6 laugardaginn 17. júlí kl. 14. Sýnd verða 17 verk, öll unnin á þessu ári með pastel á pappír. Aslaug stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1963-64 og 1981-84, síðast í málunardeild. Hún bjó og starfaði á austurströnd Bandaríkjanna samtals 20 ár og hefur tekið þátt í samsýn- ingum á Rhode Island og Pennsylvaníu. Sýningin verður opin dag- lega kl. 14-18 og lýkur 2. ágúst. Brynja sýnir á Hríseyjar- hátíð BRYNJA Ámadóttir opnar sýningu á pennateikningum í félagsheimilinu Sæborg í Hrís- ey laugar- daginn 17. júlí kl. 14. Þetta er ní- unda einka- sýning Brynju. Hefur hún áður verið með á samsýningu í Keflavík og haldið sýning- ar í Reykja- vík, Hafnar- •»■■ firði, Siglu- firði, Keflavík og Skagafirði. Sýningin stendur til 8. ágúst og er opin alla daga frá kl. 14-18. Myndlistarsýning í Varmahlíð RAGNHILDUR Magnúsdóttir opnar myndlistarsýningu laugar- daginn 17. júlí kl. Í4 í Gallcríi Ash Lundi, Varmahlíð í Skaga- fírði undir yfirskriftinni Andlit - einstaklingurinn á tímamótum. Á sýningunni eru grafíkmyndir og eitt málverk. Ragnhildur er uppalin á Akureyri. Hún útskrifaðist úr málaradeild Myndlistarskólans á Akureyri og hafði gestadvöl í grafíkdeild MHÍ ‘97 og í Lathi í Finnlandi ‘98. Flestar myndimar era hluti af lokaverkefni Ragnhildar frá skól- anum í vor í nýju umhverfi. Þetta er önnur einkasýning Ragnhildar en hún hefúr haldið einkasýningu í Myndlistarskólanum og tekið þátt í nokkrum samsýningum á vegum skólans. Sýningin er opin alla daga frá kl. 10-18 og stendur til 30. júlí. I^jfarde Brennsluofnar Dönsk hönnun og gæði. Stærðir: 3,5—9 kW. Verð frá aðeins kr. 56.905 stgr. Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900 mbl.is Baski sýnir í Lista- setrinu Kirkjuhvoli EITT verka Baska. SÝNING Baska (Bjarna Ketilssonar) hefst laugar- daginn 17. júlí í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi. Þar sýnir Bjarni um 20 olíumál- verk og verk unnin með blandaðri tækni. Bjarni er fæddur á Akra- nesi 1966 og nam við Mynd- listaskóla Akureyrar 1994-96. Hann lauk námi í málun hjá Listaakademiuoni Aki akademi voor beldd- enge kunst í Hollandi 1998. Hann hefúr haldið einkasýn- ingar á íslandi, Hollandi og Fríslandi og tekið þátt í samsýningum í Þýskalandi, Noregi og víðar. Sýningunni lýkur 8. ágúst. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18. JÓN Ingi með eitt verka sinna. Málverkasýning í Eden JÓN Ingi Sigurmundsson opnar málverkasýningu í Eden, Hvera- gerði, mánudaginn 19. júlí kl. 21. Á sýningunni eru olíu-, pastel- og vatnslitamyndir. Þetta er 15. einkasýning Jóns Inga en síðasta sýning hans var í Horsens á Jótlandi á síðastliðnu ári. Jón Ingi hefur auk þess tekið þátt í mörgum samsýningum Myndlistar- félags Ámessýslu. Sýningunni lýkur 2. ágúst. | Útsala hjá | 10 ti! 50% afsláttur Jakkaföt áður 14.900-17.900 kr. 50% afsláttur nú 7.450-8.950 kr. Dæmi: Ljósar buxur áður 2.900—5.900 kr. 50% afsláttur nú 1.450—2.950 kr. Skyrtur áður 1.900—3.900 kr. 50% afsláttur nú 950-1.950 kr. Stofnað 1910 Póstkröfuþ/ónusta Andrés Skólavörðustíg 22a, sími 551 8250 hR Helena RubinsteinI I YRSTA 100% 11 K SKA, IIRHNA RLIINO! VAKAN. Pl'Hi: Rlil lNoi Ki pair Tiiiuapv ElNSíðk Minnki in k HltUKM'M OG HLinskrMMUUM Kynning í dag og á morgun. Glæsilegur kaupauki fylgir þegar verslað er fyrir kr. 3.500 eða meira. Hvít snyrtibudda með varalit, hreinsimjólk 50 ml, maska 15 ml, Spectacular mini Mascara og húðmjólk 30 ml. Verðmæti kaupaukans kr. 5.000. I n HELENA IXrubinstein nú líka í Keflavík Hafnargötu 22, Keflavík. Sími 421 7220. Veldu besta stuðningsmannaliðið www.simi.is 0 x * I LANDSSÍMA DEILDIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.