Morgunblaðið - 14.08.1999, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forstjóra-
skipti hjá
Lands-
bréfum
GUNNAR Helgi Hálfdanar-
son, forstjóri Landsbréfa hf.
og framkvæmdastjóri sjóða-
sviðs Landsbanka Islands, hef-
ur ákveðið að láta af þeim
störfum og færa sig yfir til
bandaríska fjárfestingafyrir-
tækisins Alliance Capital
Management L.P.
Við störfum hans hjá Lands-
bankanum tekur Sigurður Atli
Jónsson, forstöðumaður eigna-
stýringar Landsbréfa.
Gunnar mun starfa hjá al-
þjóðlegri markaðsdeild banda-
ríska fyrirtækisins, og verður
framkvæmdastjóri viðskipta-
þróunarstarfs hennar á Norð-
urlöndum. Ailiance Capital
Management er eitt af stærstu
verðbréfasjóðafyrirtækjum
heims og stýrir sjóðum sem í
eru samtals um 321 milljarður
dollara.
Við rætur Vatnajökuls
Morgunbiaðið/Sigurður Aðalsteinsson
FERÐAMENNIRNIR á myndinni sýnast ekki stórir í samanburði við
Vatnajökul í allri sinni stærð. Jökullinn er svartur og úfinn við Hnútuna í
kverkinni milli Brúarjökuls og Eyjabakkajökuls vegna þess að hann er að
hopa og skilur eftir aur og grjót sem hann hrærði saman við snjóinn og
ísinn síðast þegar hann skreið fram. Á góðviðrisdegi er hollt og gott að
teyga að sér fjallaloftið víðsfjarri skarkala þéttbýlisins.
Þriggja ára átak fímm landa gegn sýklalyfjaónæmi er í undirbúningi
Reynt að draga úr notkun
með markvissum aðgerðum
ÞRIGGJA ára átak gegn sýklalyfja-
ónæmi er í undirbúningi á vegum
sérfræðinga á íslandi, í Svíþjóð,
Frakklandi, ísrael og Portúgal. Um
rannsókn er að ræða á vegum sér-
fræðinga í þessum löndum og er til-
gangur hennar að kanna hvort og á
hvaða hátt megi draga úr sýklalyfja-
notkun og sýklalyfjaónæmi með
markvissum íhlutandi aðgerðum.
Talið er að heildarkostnaður við
átakið gæti numið hátt í tvö hund-
ruð milljónum króna og hyggst und-
irbúningshópur fulltrúa þessara
landa sækja um styrk sem nemur
um helmingi þeirrar upphæðar til
Evrópusambandsins. Af íslands
hálfu sitja í hópnum Karl G. Krist-
insson sérfræðingur í sýklafræði og
Þórólfur Guðnason bamalæknir.
Sjónum beint
að leikskólum
„Mitt megináhugasvið er sýkla-
lyfjaónæmi, dreifíng þess og tengsl
við sýklalyfjanotkun. Sýklalyfja-
notkun rauk upp fyrir nokkrum ár-
um og náði hámarki 1990 en ónæm-
ið náði hámarki 1993, en síðan hefur
verið rekinn talsverður áróður til að
Kostnaður við verkefnið gæti numið á
annað hundrað milljónum króna
stemma stigu við notkun sýklalyfja.
Samfara því hefur sýklalyfjaónæmi
dregist saman, en eftir því sem
lengra líður frá hápunkti hætta
menn að hugsa um málið, þannig að
enn má minnka notkun lyfjanna og
draga um leið úr ónæminu,“ segir
Karl.
Með íhlutandi aðgerðum er meðal
annars átt við fræðslu og áróðri til
að reyna að tryggja rétta og skyn-
samlega notkun sýklalyfja og minna
á að hún sé ónauðsynleg í mörgum
tilvikum. Einnig á að reyna að gera
tilraunir með ákveðnar skammta-
stærðir sem draga úr ónæmi.
„Lungnabólgusýkillinn „pneum-
ococcus“ er mest áberandi af þeim
sýkingum þar sem sýklalyfjaónæmi
hefur myndast og hann smitast
mest á leikskólum. Hluti af íhlut-
andi aðgerðum gæti líka verið að
draga úr smiti á leikskólunum, en
það er eitt af því sem lítill gaumur
hefur verið gefinn og litlar upplýs-
ingar eru til um,“ segir Karl.
Frakkar ofnota mest
Hann segir að auk þeirra landa
sem áður voru nefnd, njóti rann-
sóknin stuðnings aðila við
Rockefeller-háskóla í Bandaríkjun-
um og einnig rannsóknaraðila í
Berlín í Þýskalandi. Ofnotkun
sýklalyfja og um leið sýklalyfjaó-
næmi er talið vandamál í öllum
þeim löndum sem að rannsókninni
koma, síst þó í Svíþjóð, sem nálgast
verkefnið með talsvert öðrum hætti
en fulltrúar hinna landanna, að sögn
Karls. Mest er sýklalyfjanotkunin
og ónæmið í Frakklandi og Israel er
þar á eftir, þá í Portúgal, á Islandi
og loks Svíþjóð, en þá er sýklalyfja-
notkun og tilvik sýklalyfjaónæmis
miðuð við höfðatölu.
„Sýklalyfjanotkunin segir ekki
alla söguna um sýklalyfjaónæmi,
það er ekki þannig að tilfellum
ónæmis íjölgi í beinu hlutfalli við
aukna notkun lyfjanna. Aðrir þættir
hafa talsverð áhrif, þar á meðal
hversu hátt hlutfall bama í viðkom-
andi landi sækir leikskóla, hlutfall
bama í heildaríbúafjölda, hversu
mikið þau dveljast innandyra í stór-
um hóp í þröngu húsnæði og svo
framvegis, þar sem þetta tengist
tíðni öndunarfærasýkinga og kvefs,
svo eitthvað sé nefnt,“ segir Karl.
Brýn þörf á rannsókn
Rannsóknin yrði bundin við þau
lönd sem að henni standa og kveðst
Karl vonast til að Evrópusamband-
ið sýni henni velvild, enda telji hann
brýna þörf á að rannsaka þá þætti
sem um ræðir og stemma stigu við
sýklalyfjaónæmi og sýklalyfjanotk-
un. Sótt er um styrk frá ESB sem
nemur um 15 milljónum króna fyrir
hvert aðildarland rannsóknarinnar,
eða fimm milljónir króna fyrir
hvert ár sem hún á að standa. Karl
segir að fyrir utan ísland njóti
rannsóknin stuðnings frá aðilum í
hverju landi fyrir sig, en hann von-
ist til að stofnanir hérlendis á borð
við RANNIS sýni verkefninu nauð-
synlegan áhuga til að hægt sé að
hrinda því í framkvæmd af fullum
þunga.
Fimmtíu
kennara-
stöður
lausar
UM fimmtíu kennarastöður
eru lausar við grunnskóla
Reykjavíkur, að sögn Gerðar
G. Óskarsdóttur, fræðslu-
stjóra Reykjavíkur, og að auki
vantar um 90 aðra starfsmenn
við skólana, svo sem skólaliða,
skrifstofufólk og húsverði.
Þessi vandi blasir við þrátt
fyrir að yfir 95% þeirra kenn-
ara sem sögðu upp störfum
sínum fyrr á árinu séu búin að
draga uppsagnir sínar til
baka.
Gerður segir að erfiðlega
hafi gengið að manna kenn-
arastöður við grunnskóla
Reykjavíkur undanfarin ár og
að útlit sé íyrir að svo muni
verða næstu árin, verði ekkert
að gert. „Mjög miklar breyt-
ingar eru að verða á skóla-
starfinu þessi árin. Skóladag-
urinn er að lengjast, þjóðinni
fjölgar og fleiri skólar bætast
við.“ Auk þess, segir Gerður,
hefur samtals 70 nýjum stöðu-
gildum verið komið á innan
skólanna í Reykjavík undan-
farin tvö ár í þeim tilgangi að
gera skólastarfið sveigjan-
legra.
- emu öðru Ukt!
DELHI - AGRA - JAIPUR
í jylgd tveggja kunnáttumanna opnar Heims-
klúbburinn þér hlið INDLANDS við bestu
aðstœður á ótrúlegu verði - á besta tíma
ársins- 3.-10. október (sól - ca 26C.)
Gullið tœkifœri, kemur ekki aftur.
Eina Indlandsferðin í 10 ár. Sœti fást enn á
tilboðsverði, sé staðfest um leið. PIUM/U*
- Takmarkaður fjöldi.
Breytt ferli lánsum-
sókna í gildi 20. ágúst
FYRIRHUGAÐAR breytingar á
ferli lánsumsókna íbúðalána íbúða-
lánasjóðs munu taka gildi 20. ágúst
næstkomandi. Þá munu væntanlegir
íbúðakaupendur hefja kaupferil sinn
með greiðslumati í banka eða spari-
sjóði.
í stuttu máli er ferlið þannig að
niðurstaða greiðslumatsins, sem
gildir í hálft ár, er sent íbúðalána-
sjóði á rafrænan hátt. Ef kaupandi
ætlar að fjármagna íbúðarkaup með
viðbótarláni leitar hann til viðkom-
andi húsnæðisnefndar, eftir að hann
hefur fengið greiðslumat, en áður en
hann gerir kauptilboð í fasteign.
Húsnæðisnefnd metur umsóknir
um viðbótarlán og kallar eftir frek-
ari gögnum ef þörf er á og gefur út
lánsloforð þar sem fram kemur há-
marksfjárhæð viðbótarláns og há-
markshlutfall. Nauðsynlegt er að
húsæðisnefndir gefi út lánsloforð á
grundvelli greiðslumats viðkom-
andi kaupanda. Slíkt loforð gæti þó
gilt í styttri tíma, t.d. einn til þrjá
mánuði.
Þá leitar kaupandi fasteignar og
gerir kauptilboð á grundvelli
greiðslumats og lánsloforðs fyrir við-
bótarláni. Fasteignasali sendir stað-
fest kauptilboð í eignina ásamt til-
skildum gögnum til Ibúðalánasjóðs í
umboði íbúðarkaupenda. íbúðalána-
sjóður ber saman kauptilboð og
greiðslumat sem borist hefur raf-
rænt frá banka eða sparisjóði. Láns-
umsókn er samþykkt ef hún þykir
fullnægjandi eða hafnað ef skortur
er á fylgigögnum eða ef kaupverð er
hærra en greiðslumat gerir ráð fyrir.
Að þessu loknu gengur íbúðalána-
sjóður írá fasteignaverðbréfi og af-
hendir fasteignasala, fasteignaveð-
bréfi er þinglýst og síðan skipt fyrir
húsbréf.
Að sögn Halls Magnússonar, yfir-
manns gæða- og markaðsmála
íbúðalánasjóðs, hafa verið haldnir
kynningarfundir með starfsfólki
banka, sparisjóða og fasteignasala á
höfuðborgarsvæðinu og verða sam-
bærilegir fundir haldnir á Akureyri í
næstu viku. „Meginkynningu er lok-
ið og þjónustufulltrúar ættu að vera í
stakk búnir að svara þeim spurning-
um sem berast." Hallur segir eitt-
hvað hafa verið spurt um nýja kerfið
en gera mætti ráð fyrir holskeflu
spurninga nú þegar opinber dag-
setning er komin í ljós, en breyting-
arnar verða kynntar almenningi með
auglýsingum í næstu viku.