Morgunblaðið - 14.08.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 9
FRÉTTIR
Landbúnaðarráðherra svarar gagnrýni fjárbænda
á 10% útflutningsskyldu á sumarslátrun
Vill ekki verða til þess
að stytta sláturtímann
GUÐNI Ágústsson landbúnaðar-
ráðhen-a segist ekki vilja verða til
þess að stytta sláturtímann en
bendir á að 10% útflutningsskylda
á sumarslátrun eigi, að vel athug-
uðu máli, ekki að draga úr áhuga
bænda þar sem um mjög litlar upp-
hæðir sé að ræða. Segist hann ætla
að skoða nánar í samráði við bænd-
ur hvaða áhrif útflutningsskyldan
hafí á sumarslátrun.
Eyjólfur Gunnarsson, formaður
Ferskra fjárbænda, gagnrýndi í
Morgunblaðinu í gær að 10% út-
flutningsskylda skyldi hafa verið
lögð á sumarslátrun. Áður hafi
sumarslátrun verið undanþegin út-
flutningsskyldu, og sagði hann
kvöðina draga úr áhuga bænda á
að slátra á þessum tíma.
Guðni Agústsson landbúnaðar-
ráðherra segir að því miður hafí
blasað við í ár að magnið sem flytja
þyrfti út væri mun meira en í
fyrra, þá hafi það verið 13%, en í ár
fari það líklega upp í 25%. Staðan í
ár sé því mun verri og hann hafi
fallist á tillögu Bændasamtakanna
og Landssambands sauðfjárbænda
til að bæta stöðuna. „Eg mun
grandskoða málið,“ segir ráðherra
og bætti við: „Ég bendi þó á að
þetta er ekki hátt gjald á hvert
lamb yfir sumarmánuðina."
Ráðherra segist taka undir með
Eyjólfi að það sé mikið hagsmuna-
mál að lengja sláturtíðina. „En
menn verða líka að skoða hvað
þessi 10% þýða. Þessi útflutningur
er auðvitað félagsleg aðgerð sem
allir bændur taka þátt í og þeir
sem trúa á hann, þeir trúa á að
hægt sé að ná þar hærra verði en
verið hefur, og að því vil ég vinna.“
Guðni sagðist einnig taka undir
með Eyjólfi að ekki væri nógu gott
hvað auglýsingin um útflutnings-
skylduna hafi verið seint á ferð-
inni, en að sögn Eyjólfs birtist
auglýsingin síðasta dag júlímánað-
ar.
„Það getur vel verið að þetta
hafi einhver „sjokkerandi" áhrif á
ágústslátrun. Þetta hefði þurft að
liggja fyrir fyrr, það er mjög mikil-
vægt, því við þurfum að sjá langt
fram í tímann á öllum sviðum. Eg
þarf að skoða þetta mál í samráði
við bændur og sjá hvaða þýðingu
það hefur því ég vil alls ekki verða
til þess að stytta sláturtímann.
Stærsta málið er auðvitað að
lengja hann og að greinin hafi sem
mest svigrúm til þess að keppa
með sínar vörur,“ segir landbúnað-
arráðherra.
Snumiillilli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sex vikur í
opnun nýrr-
ar Kringlu
NU eru einungis sex vikur þar til
viðbygging Kringlunnar verður
opnuð almenningi. Unnið er af
fullum krafti að byggingafram-
kvæmdum utan dyra og innan og
fyrstu verslunar- og veitinga-
husaplássin hafa þegar verið af-
hent til innréttingar.
Að sögn Ragnars Atla Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Eignarhaldsfélags Kringlunnar,
fá flestir verslunareigendur pláss
sín afhent til innréttingar um
helgina. Samhliða vinnunni inn-
andyra er haldið áfram utanhúss
við byggingarvinnu og við bfla-
stæðahús, útisvæði og tengingu
Kringlunnar við Borgarleikhús-
ið. Nær þrjú hundruð manns eru
um þessar mundir við vinnu á
byggingarstaðnum.
Nýjar vörur!
WM/k
Eddufelli 2 - sími 557 1730.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15.
Útsölulok!
Frábær tilboð
Nýjar vörur
eftir helgi
Tískuversiun • Kringlunni 8-12 •Sími 5533300
r VICTORIA-ANTIK
Antik og gjafavörur.
Sígihlar vörur. kynslóð efllr kynsióð.
Anlik cr fjárfesting * Antik er lífsstíll.
Fjölbreytt vöruúrvai.
Næg bílastæði á baklóð.
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. 11-17 og sun. 13-17.
VICTORIA-ANTIK
Grensásvegi 14
sími: 568 6076
Smart ogr spennandi
haustfatnaður
hjáXffáMtíMi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, Iaugardaga frá kl. 10.00—15.00.
BALLY
Einstakt tækifæri
Nokkrar gerðir
20-50%
afsláttur