Morgunblaðið - 14.08.1999, Page 14

Morgunblaðið - 14.08.1999, Page 14
14 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ •• Framkvæmdir við undirgöng undir Reykjanesbraut á mótum Oldugötu og Kaldárselsvegar Vandasamt en nauðsynlegt verk Hafnarfjörður . Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson FRAMKVÆMDIR við gerð ganga undir Reykjanesbraut eru nú hafnar. Mikið er af lögnum á þessum stað og verkið er því vandasamt. f baksýn má sjá gangbrautina og gatnamótin sem göngin verða lögð undir til að þjóna gangandi vegfarendum. Á þess- um stað er mikil og hröð umferð. FRAMKVÆMDIR við und- irgöng fyrir gangandi veg- farendur undir Reykjanes- braut á mótum Öldugötu og Kaldárselsvegar eru nú hafnar. Á svæðinu er mikil og hröð umferð sem gerir verkið vandasamt í fram- kvæmd auk þess sem stórar raf- og vatnslagnir liggja nálægt væntanlegum undir- göngum. Bæjaiyfirvöld telja þessa framkvæmd nauðsynlega til að tryggja öryggi gangandi vegfar- enda. Sett var upp gang- brautarvarsla á staðnum í vor eftir að hörmulegt dauðaslys varð á gang- brautinni yfir Reykjanes- braut. Jafnframt gerð undir- ganganna verður Kaldár- selsvegur færður til norðurs frá kirkjugarðinum. Einnig felur framkvæmdin í sér landmótun og stígagerð sitt hvorum megin við Reykja- nesbrautina. Bflastæðin sem verið hafa við kirkjug- arðinn meðfram Reykjanes- braut verða lögð af og í staðinn verða sett upp stæði norðan kirkjugarðs- ins þar sem Kaldárselsveg- ur liggur nú. Vegagerðin var búin að samþykkja að setja þarna upp stefnugreind ljósa- gatnamót með stýi'ihnappi fyrir gangandi vegfarendur. Áð sögn Ernu Hreinsdótt- ur, sem hefur umsjón með umferðarmálum hjá Hafn- arfjarðarbæ, ákváðu bæjar- yfirvöld þá frekar að fara í gerð undirganga undir Reykjanesbraut eftir að slysið varð. Upphaflega hafði verið fallið frá þeirri hugmynd vegna þess hve mikið er af lögnum á svæðinu, en bæjaryfirvöld telja undirgöngin nauðsyn- leg fyrir gangandi umferð. Við gerð ganganna þarf að færa til háspennustreng rafveitunnar en hann beyg- ir niður að húsi rafveitunn- ar á þeim stað sem göngin verða. Þar að auki liggur þarna aðalvatnsæð Hafn- firðinga og er því ljóst að verkið verður vandasamt í framkvæmd, að sögn Ernu. Erna segir að lögð verði mikil áhersla á öryggisað- gerðir á svæðinu á meðan á framkvæmdum stendur. Gangbrautarvarsla verður áfram til 1. október og verktakar munu verða í góðu samstarfi við gang- brautarverði. Gert er ráð fyrir að göngin verði komin undir götuna um miðjan september. Þá verður eftir ýmis frágangur umhverfís göngin og gatnamótin. Erna segir að starfsfólk Öldutúnsskóla muni að- stoða við að ræða við forráðamenn barna um að vara börnin við að fara um svæðið.á meðan á verkinu stendur. Einnig kveðst Erna vilja beina þeim til- mælum til vegfarenda að þeir sýni tillitssemi og aki varlega á meðan fram- kvæmdir standa yfir. Bæjarráð vUl hringtorg á gatnamótin Bæjarráð er búið að sam- þykkja að setja upp hring- torg á þessum gatnamót- um. Erna kveður tilganginn með hringtorginu fyrst og fremst þann að hægja á umferðinni. Hún segir Reykjanesbrautina vera orðna það mikla innan- bæjargötu á þessum kafla að nauðsynlegt sé að draga úr umferðarhraðanum. í dag standast gatnamót Reykjanesbrautar, Öldu- götu og Kaldárselsvegar engan veginn staðla Vega- gerðarinnar. Gatnamótin koma heldur ekki til með að breytast með tilkomu und- irganga fyrir akandi um- ferð. Erna segir að búið sé að grófhanna hringtorg á þessum stað og fáist til þess grænt ljós frá Vega- gerðinni verði farið í þá framkvæmd samstundis. Bæjarverkfræðingur er nú í viðræðum við vegamála- stjóra um gerð hringtorgs- ins. Morgunblaðið/Golli FYRRI áfangi stækkunar Árbæjarskóla er vel á veg kominn. Árbæjarskóli verður stækkaður um nálega 2.000 fermetra á næstu tveimur árum Aðstæður verða til fyrirmyndar HAFIST var handa við um- fangsmiklar bvggingarfram- kvæmdir við Árbæjarskóla í vor. Skólinn verður stækkaður um nálega 2.000 fermetra í tveimur áfóngum sem áætlað er að lokið verði haustið 2001, að sögn Þor- steins Sæberg skólastjóra. Árbæjarskóli er fjölmenn- asti grunnskóli landsins. „Hér eru 800 nemendur það er verið að byggja yfir þá. í dag erum við með fjöldann allan af lausum kennslustof- um hringinn í kringum skól- ann. Með tilkomu viðbygg- ingarinnar hverfa þær all- ar,‘‘ sagði Þorsteinn. f fyrri áfanga stækkunar- innar er byggt við unglinga- deild skólans. Áætlað er að ljúka þeim áfanga um næstu áramót. í kjölfarið verður hafist handa við síðari áfanga stækkunarinnar. Þær framkvæmdir verða gífur- lega viðamiklar, að sögn Þor- steins. „Sú bygging sem kemur til viðbótar er til þess að gera aðstæður allra nem- enda við skólann til fyrir- myndar,“ sagði hann. Skemmtilegar nýjungar Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar hannaði við- byggingamar sem falla vel að gamla skólahúsinu, að mati Þorsteins. „Skólinn verður ein heild þegar búið verður að byggja við. Ég fullyrði að með tilkomu þess- ara viðbygginga verður þetta einn glæsilegasti skóli lands- ins,“ sagði skólastjórinn. Viðbyggingarnar hafa ýmsar skemmtilegar nýjung- ar í för með sér, að sögn Þor- steins. Hann nefnir sem dæmi að við hönnun þeirra hafi verið sérstaklega leitast við að gera aðstöðu nemenda til aðgangs að upplýs- ingatækni sem best úr garði enda sé Árbæjarskóli kjarnaskóli í upplýsinga- tækni á íslandi. Þá verði aðstaða til kennslu listgreina með besta móti, til dæmis sé aðstaða til myndmennta- kennslu skemmtilega útfærð í teikningum að síðari við- byggingunni. „Þessi við- bygging verður stórglæsi- leg,“ sagði Þorsteinn að lok- um. Útlitið tekur mið af gömlum byggingarstil HAFNAR eru framkvæmd- ir við nýtt verslunar-, þjón- ustu- og íbúðarhúsnæði við Fjarðargötu gegnt Einars- búð. Húsið verður á þremur hæðum og verður leitast við að fella húsið inn í gamla miðbæjarstílinn. Bygging- araðili hússins er fyrirtækið Ingvar og Kristján ehf., sem keypti lóðina af Þorgils Ótt- ari Mathiesen. Bæjarstjórn samþykkti 23. mars sl. að breyta deiliskipulagi á þann hátt að grunnflötur hússins stækkaði úr 420 í 600 fer- metra og húsið yrði hækkað í þrjár hæðir í stað tveggja. Þá voru einnig felld niður áform um að Hamar- kotslækur liðist í gegnum svæðið og út í sjó. Að sögn Ingvars Geirs- sonar, annars bygging- araðila hússins, virðist eng- inn hafa séð ástæðu til að mótmæla tilvonandi bygg- ingu, sem óneitanlega er á viðkvæmum stað í miðbæn- um. Hann segir að húsið eigi eftir að falla vel inn í gamla miðbæinn. Jarðhæðin verð- Morgunblaðið/Eiríkur P. INGVAR Geirsson og Atli Orvar í grunninum við ný- steyptan sökkul lyftuhússins. ur klædd með gabbróstein- um en að öðru leyti verða þak og veggir klæddir báru- járni og útlit hússins tekur mið að gamla byggingar- stflnum. íslandsbanki mun flytja af Strandgötu 1 inn á jarðhæð hússins í rúmlega 300 fer- metra húsnæði. Búið er að selja um 200 fermetra undir verslunarhúsnæði, sem væntanlega verður leigt út. Á efri hæðunum tveimur verða átta um 110 fermetra lúxusíbúðir. Undir húsinu verður bflakjallri með stæð- um fyrir eigendur íbúðanna. Jafnframt því verður lyfta í húsinu. íbúðirnar eru ekki komnar á sölu, en margar fyrirspumir hafa borist ÞANNIG kemur húsið við Fjarðargötu 19 til með að líta út séð frá Hafnarfjarðarkirkju. Einarsbúð til hægri. Hafnarfjöröur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.