Morgunblaðið - 14.08.1999, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.08.1999, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 15 AKUREYRI Handverk "99 á Hrafnagili HANDVERKSSÝNINGIN Hand- verk ‘99 var opnuð á Hrafnagili á fimmtudaginn. Sýningin er sú sjöunda í röðinni, en þær hafa verið haldnar árlega síðan árið 1992. Þema sýningarinnar í ár er íslenska tréð, en á síðasta ári var ákveðið að fyrir hverja sýningu yrði eitthvert þema. Á næsta ári verður þemað kirkjan í tilefni af þúsund ára kristniafmæli Islend- inga, árið 2001 verður það síðan sauðkindin. Ýmislegt ber fyrir augu gesta á sýningunni, m.a. heldur danski eldsmiðurinn Thomas Nörgaard námskeið fyr- ir almenning og það gerir einnig sænski handverksmaðurinn Lennaert Calás sem vinnur lista- verk í tré. Það var Bjarni Krist- jánsson, sveitarstjóri Eyjafjarð- arsveitar, sem opnaði sýninguna, en hún stendur yfir til sunnu- dagsins 15. ágúst. Bjarni Kristjánsson kom inn á í opnunarræðunni að handverk væri hluti af sögu og menningu Islendinga. Annars vegar hefði þetta verið hluti af þeirri nylja- stefnu er einkenndi líf bóndans fyrr á öldum en á hinn bóginn hefði margur bóndinn fundið list- þrá sinni farveg í fagurlegum út- skurði eða Iistilegum fléttum. f dag væri handverk hins vegar blómlegur iðnaður. Gæði sýninganna aukist Bjami minntist einnig á að yfir- bragð og gæði sýninganna á Hrafnagili hefðu ávallt vaxið frá ári til árs. Hann tók það hins veg- ar fram að það þýddi ekki að ein- ungis útlærðir meistarar væru velkomnir á sýninguna, þvert á móti væri þetta einnig vettvangur fyrir nýliða til að sýna sín verk, þróa þannig handverkið og læra af þeim sem lengur hafa starfað. Eldsmiður frá Danmörku Á torgi sýningarinnar má heyra hamarshögg og sjá reykj- arstrók. Þar má sjá eldsmiðinn Thomas Nörgaard frá Danmörku beija til sjóðandi heitt járn. Nörgaard heldur námskeið frá kl. 9-12 alla sýningardaga en auk þess vinnur hann að eldsmíð- inni á meðan sýningin stendur yf- ir. „Ég hef verið eldsmiður siðan ég var 15 ára og nú er ég að nálgast sextugt, reiknaðu svo,“ segir hann með glettni í augum. Nörgaard vinnur mikið með muni sem líkjast hlutum sem for- Morgunblaðið/Kristján BJARNI Kristjánsson, sveitarstjóri EyjaQarðarsveitar, flytur setningarræðu. ELDSMIÐURINN Thomas Nör- gaard frá Danmörku hamrar járnið á meðan heitt er. ÁSRÚN Ágústsdóttir og Heiðbjört Ýr Guðmundsdóttir fylgjast með Ingu Sigrúnu Ólafsdóttur knipla. Þess má geta að Ásrún og Heiðbjört Ýr eru í 19. aldar búningum en Inga er í 20. aldar búningi. RÚBEN Raes virðir fyrir sér muni Guðmundar Magnússonar. feður okkar notuðu mörgum öld- um fyrr. Meðal annars hefur hann gert hnífa af ýmsum stærð- um og gerðum og platta til að baka á brauð í eldofni. Þegar Morgunblaðið hitti hann var hann einmitt að vinna að kerta- stjaka f anda miðalda. Tálgar við Sænski handverksmeistarinn Lennaert Calás býr í skóglendi í Svfþjóð og því ekki erfitt að sjá hvaðan hans köllun kemur, en hann tálgar við. Þeir munir sem hann er með á sýningunni eru margir hveijir örsmáir og var ekki laust við að blaðamaður velti fyrir sér þeirri nákvæmni sem á bak við þessa smíði býr. Hann heldur námskeið fyrir ung- linga mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 10-14 og sömu daga heldur hann námskeið fyrir fullorðna á kvöldin. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk var enn nóg pláss á þessum námskeiðum svo að áhugasamir geta enn skráð sig. Knipl og þjóðbúningar í einu herberginu heldur Heimilisiðnaðarfélagið til, ásamt vinnustofu Ingu Arnar. Þar eru það þjóðbúningar Islendinga sem ráða ríkjum. Að sögn Guðrúnar Einarsdóttur er.það litríki 19. aldar þjóðbúningurinn sem er í aðalhlutverki hjá þeim núna en margir halda að sá búningur sé ný framleiðsla en hið rétta er að hann er meira en aldar gamall. Þarna vann einnig Inga Sigrún Ólafsdóttir við það að knipla. Hún sagði að það væri aldagömul vinnuaðferð sem upprunnin væri á Ítalíu og slík áferð hefði verið vinsæl á brúðarfatnaði kónga- fólks hér áður fyrr. Áferðin er líkust blúndu og knipl er einmitt að finna á íslenska skautbúningn- um og 20. aldar búningi kvenna. I tilefni þess að þema sýning- arinnar er fslenska tréð er Skóg- ræktarfélag fslands með sýn- ingu. Þar eru áberandi munir Guðmundar Magnússonar, tré- smfðameistara og kennara á Flúðum. Hann hefur meðal ann- ars haldið námskeið fyrir skóg- ræktarfólk sem nefnist „Að lesa skóginn", en þar kennir hann þeim að höggva viðinn rétt svo hann hann nýtist til handverks. Guðmundur tók sér það eitt sinn íyrir hendur að ferðast um Norð- urlöndin og Grænland í eitt ár og kynna sér handverk þeirra landa. Reynslan af þvf ferðalagi hefur sfðan skilað sér f þeim munum sem hann skapar sjálfur. Eldur, tré og þjóðbúningar Lista- safnið á Akureyri SÝNING á verkum Hlyns Hallssonar og Japanans Ma- koto Aida verður opnuð í Listasafninu á Akureyri í dag, laugardaginn 14. ágúst, kl. 16. Á sýningunni eru ljósmyndir, málverk og myndbandsverk sem munu gefa áhorfendum innsýn í ólíka menningar- heima sem byggja á eða vísa til nýrra og fornra hefða heimalands listamannanna, segir í fréttatilkynningu. Við opnun sýningai’innar mun japanska danskonan Asa- ko Ishihasi, sem búsett er á Akureyri, stíga spunadans út frá myndverkum Aida. Sýn- ingin er opin alla daga, nema mánudaga, frá kl. 14 til 18. Þá segir einnig í fréttatilkynn- ingu að sýningin sé styrkt af Sasakawasjóðnum og að Flug- félag íslands verði stuðnings- aðOi sýninga Listasafnsins á Akureyri út árið 2000. Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Kvöldmessa sunnudaginn 15. ágúst kl. 21, sr. Svavar A. Jónsson messar. Morgunbæn þriðjudaginn 17. ágúst kl. 9 og kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 fimmtudaginn 19. ágúst. GLERÁRPRESTAKALL: Kvöldmessa verður í Lög- mannshlíðarkirkju kl. 21 sunnudaginn 15. ágúst. Sókn- arprestur. HJÁLPRÆÐISHERINN, Hvannavöllum 10: Sunnudag- inn 15. ágúst verður bæn kl. 19:30 og almenn samkoma kl. 20. Síðasta sögugangan _ SUNNUDAGINN 15. ágúst verður síðasta sögugangan farin á vegum Minjasafnsins þetta sumarið. Þá mun Hörð- ur Geirsson safnvörður leiða göngu um Innbæinn og Fjör- una. Lagt verður upp frá Lax- dalshúsi, Hafnarstræti 11, kl. 14. Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir. Feðgar á ferð ÁRNI Tryggvason og Örn Árnason verða með fjölskyldu- skemmtun í Sjallanum á Akureyri 14. og 15. ágúst kl. 21:30. Með þeim í för er píanó- undirleikai-i en þeir eru nú á ferð um landið með sýninguna. Gamall fjallamaður heiðraður Morgunblaðið/Rúnar Antonsson JÓN Sigurgeirsson og Halldór Eyjólfsson með menið á milli sin. HALLDÓR Eyjólfsson frá Rauða- læk brá undir sig betri fætinum og heimsótti félaga sinn Jón Sigur- geirsson, frá Helluvaði, til Akureyr- ar í þeim tilgangi að heiðra hann fyrir dugnað og atorku við vörðuleit á hálendinu. Halldór sagði að ástæðan fýrir því að hann væri að heiðra hann núna væri að búið væri að finna Eyvindargötu, sem Fjalla- Eyvindur og Halla voru látin vísa á 7. ágúst 1772. Halldór færði Jóni hálsmen sem á er teiknað lífshlaup Jóns en aftan á eru letraðar þakkir frá Halldóri fyrir starf hans í þágu gönguleiða á hálendinu. Halldór sagði að Eyvindur og Halla hefðu verið handsömuð við Hreysi og látin vísa veginn norður í land og sú leið væri nefnd Eyvind- argata. í mörg ár hafa menn legið yfir kortum og leitað uppi á heiðum að þessari Eyvindargötu og nú er hún sem sagt fundin og búið að merkja hana inn á kort. „Jón lagði mikið af mörkum við uppgötvun fomra gönguleiða og leit að vörðum á hálendinu og því fannst mér tilval- ið að heiðra hann nú þegar 227 ár eru liðin frá því að Eyvindur og Halla gengu Eyvindai-götu,“ sagði Halldór. Verkmenntaskólinn á Akureyri ÖLDUNGADEILD 0G MEISTARASKÓLI Innritun til náms á haustönn 1999 verður dagana 16., 17. og 18. ágúst. Innritun er á skrifstofu skólans á Eyrarlandsholti kl. 8.15 til kl. 15.00. Opið er í hádeginu. Öldungadeildin býður upp á fjölda áfanga í tungumálum, raun- greinum, tölvufræði, viðskiptagreinum o.fl. Nánari upplýsingar um námsframboðið eru á heimasíðu VMA: http://vma.ismennt.is og i síma461 1710 innritunardagana. ATH! Nýjungar eru byrjunaráfangi í frönsku, upprifjunaráfangi í dönsku og hagnýtir áfangar í fatasaumi og hollustufæði. Kynnið ykkur framboðið. Innritunargjald í öldungadeild er kr. 8.000 og greiðist við skrán- ingu. Greiðsla fyrir hverja kennda stund í öldungadeild er kr. 2.300, en hámarksgreiðsla kr. 19.500. Kennslustjóri öldungadeildar VMA.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.