Morgunblaðið - 14.08.1999, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.08.1999, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Hljóðfrátt flygildi ÍSRAELSKIR vísindamenn hafa að undanförnu unnið að smíði mannlausrar smáflugvél- ar, sem á að geta flogið jafnt yfír sem undir hljóðhraða. Var hún reynd í fyrsta sinn í gær og er ekki annað vitað en að allt hafi gengið vel. Flygildi af þessu tagi eru yfirleitt aðeins notuð í einum tilgangi það er hernaðarlegum. Serbneska stjórnarandstaðan boðar mótmælafund gegn Milosevic Vara við borgarastríði hefjist umbætur ekki þegar Belgrad. AP. HOPUR óháðra sérfræðinga í Júgóslavíu lagði í gær fram áætlun um hvernig best væri að bjarga landinu úr þeim ógöngum, sem það er nú í, og koma Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta frá völdum eftir friðsamlegum leiðum. Sögðu þeir bráðnauðsynlegt að hefja endurreisnarstarfið áður en það yrði of seint og vöruðu ennfremur við hættunni á borgarastríði. Reuters „Þetta er lokatilraun til friðsam- legrar úrlausnar,11 sagði Predrag Markovic, meðlimur í svonefndu Stöðugleikabandalagi, við frétta- menn í Belgrad. Sagði hann að bandalagið, sem samanstendur af ýmsum hagfræðingum, lagasér- fræðingum og rithöfundum, nyti stuðnings flestra helstu stjómar- andstöðuflokkanna í landinu, sem og serbnesku rétttrúnaðarkirkjunn- ar sem hefur umtalsverð áhrif með- al íbúa landsins. „Engin ein stjórnmálasamtök hafa fram að þessu tryggt sér svo öflugan stuðning,“ sagði Markovic. Bandalagið kom fram á sjónarsvið- ið fyrr í þessum mánuði og lagði þá fram ályktun þar sem helstu stjómmálaflokkar landsins vom hvattir til að setja á laggirnar sér- staka umbreytingastjóm sem hafa myndi það verkefni að leggja drög að efnahagsumbótum og koma á samskiptum við umheiminn að nýju. Strax í næstu viku gæti reynt á hversu mikið fylgi Stöðugleika- bandalagið hefur en á fimmtudag er ráðgerður mikill mótmælafundur gegn Milosevie í höfuðborginni Belgrad. Hugmyndin með mót- mælaaðgerðunum, sem skipulagðar em að undirlagi Stöðugleikabanda- lagsins, er sú að sameina alla helstu hópa stjórnarandstæðinga og full- trúa rétttrúnaðarkirkjunnar, sem einnig hafa farið fram á afsögn Milosevics. Obradovic hættir við þátttöku í mótmælunum En það er til marks um sundr- ungina í Júgóslaviu að einn af leið- togum stjórnarandstöðunnar hætti í gær við að taka þátt í aðgerðunum. Vuk Obradovic, leiðtogi jafnaðar- manna sem aðild eiga að regnhlífar- samtökunum Samtök um breyting- ar, kvaðst ekki ætla að taka þátt í mótmælunum því þau væra „skipu- lögð með furðulegum hætti af jafn- vel enn furðulegra fólki“. Fór Obradovic fram á að fundinum yrði aflýst. Talsmenn Stöðugleikabanda- lagsins sögðu hins vegar að öllu skipti að fólk fjölmennti á mót- mælafundinn, ella væru litlar líkur á að takast myndi að koma breyt- ingum á í landinu með friðsamleg- um hætti. Afhjúpim ástarævintýris repúblikanans Newt Gingrich væntanleg Stúlkan miklu yngri en Monica Lewinsky SAMKVÆMT heimildum New York Post undirbýr bandaríska æsifréttablaðið Star frétt um sam- band Newt Gingrich, fyrrum tals- manns fulltrúadeildar Bandaríkja- þings, við ungan starfsmann þings- ins. Væri það vart í frásögur fær- andi hefði Gingrich ekki verið einn ötulasti baráttumaður lögsóknar- innar gegn Bill Clinton vegna sam- bands hans við Monicu Lewinsky. Gingrich lét af störfum eftir kosn- ingamar í fyrra þegar Repúblikana- flokkurinn missti fimm sæti í full- trúadeildinni. Kosningamar voru Mannskæð flóð í Bangladesh Híbýli hverfa und- ir leðju Chittagong, Reuters ÁTJAN manns létu lífið og að minnsta kosti hundrað særðust í miklum flóðum í suðaustur- hluta Bangladesh í gær. Flytja þurfti um fimmtíu þúsund manns af svæði umhverfís fljót- ið Matanuhri þegar heimili þeirra urðu undir aurskriðu. Allt að hálf milljón manna varð fyrir meiriháttar tjóni af völdum flóðanna, en um fimmtíu þorp lágu fjóra metra undir vatni þegar ástandið var verst. Mesta efnahagslega tjónið má þó ætla í uppskerubresti, en um fimm hundruð þúsund hektarar hrís- grjónakra fóru undir aur og vatn. Veðurstofan í borginni Chitta- gong mældi 295 millímetra úr- komu á sólarhring sem er mesta úrkoman til þessa á yfirstand- andi monsún-tímabili. Regn- tímabilinu lýkur ekki fyrr en í október. álitnar einskonar könnun á áliti almenn- ings á lögsókninni gegn Bill Clinton vegna meints ástar- sambands hans við Monicu Lewinsky. Gingrich vann ötullega að því að ákæran um embættisbrot forset- ans vegna ósiðsamlegs háttemis í starfi færi fyrir dómstóla. Minnir á Hillary Clinton Heimildir New York Post herma að Star hafi óyggjandi sannanir fyrir ástar- sambandi Gingrich, utan hjóna- bands, við stúlku sem er allnokkru yngri en Monica Lewinsky. Stúlk- an er 23 ára, eða 33 árum yngri en Gingrich, og vinnur sem lögfræð- Newt Gingrich, ingur hjá landbúnað- ardeild fulltrúadeild- arinnar. Hún er sögð vera aðíaðandi menntakona sem minni helst á Hillary Clinton forsetafrú. Fyrmefnd heimild segir sambandið hafa byrjað fyrir um þrem- ur ámm, sem skarast við málsóknina gegn forsetanum. Blaðið tel- ur það einnig vísbend- ingu að Gingrich sótti um lögskilnað frá eig- inkonu sinni fyrir um mánuði. Hann gegnir enn ábyrgðarstöðum fyrir flokkinn og reynist ásakanirnar réttar er hann kominn í sjálfsheldu sem kæmi sér afar illa fyrir starfsferil atvinnustjómmálamanns Repúbl- ikanaflokksins. Minni en maurinn ÞESSI maur sat fyrir hjá ljós- myndara í Huddersfield-háskólan- um í Englandi og það er örsmár tölvukubbur, sem hann er með í munnlimunum. Er það til marks um hve langt vísindamenn við ör- tæknideild skólans hafa náð á sínu sviði. Reuters Ibrahim Rugova heitir sam- vinnu við friðargæsluliðið nn Vín AP Rnidors ™ Pristina, Vín. AP. Reuters. IBRAHIM Rugova, leiðtogi Lýðræðisflokks Kosovo-Albana, hét í gær samvinnu flokks síns við Sameinuðu þjóðimar og alþjóðlegt friðargæslulið í Kosovo. Hashim Thaqi, foringi Frelsishers Kosovo, sagði í gær að samtökin hygðust stofna varnar- lið í héraðinu. Rugova, sem hefur tvisar verið kjörinn for- seti Kosovo í óformleg- um kosningum, sagði við fréttamenn í gær að flokkur hans, LDK, Ibrahim yrði endurskipulagður frá granni og myndi gegna lykilhlutverki við að byggja upp lýðræðis- legt þjóðfélag í Kosovo. Sagðist hann reiðubúinn að vinna með leiðtoga Frelsis- hers Kosovo (UCK), Hashim Thaqi, en UCK hefur lýst yfír yfirráðum í héraðinu. „Eg er Igörinn forseti Kosovo,“ sagði Rugova. „Og við munum öll vinna náið saman, þar á meðal Thaqi, og sem slík munum við taka þátt í stjóm alþjóðaliðs- TJ ins þar til gengið verður Rugova til kosninga.“ Annað hljóð var þó í Rugova í við- tali sem birtist við hann í þremur frönskum dagblöðum í gær. Þar segir hann varhugavert að UCK fari með stjóm í héraðinu, og segir nauðsynlegt að alþjóðlegt lögreglu- lið í Kosovo verði styrkt til að stemma stigu við yfirgangi Frelsis- hersins. UCK stofnar vamarlið Hashim Thaqi sagði í viðtali við austurríska dagblaðið Die Presse í gær að Frelsisher Kosovo yrði senn skipt í þrjá hluta, stjórnmálaflokk, lögreglulið og varnarlið. „Það er mikil þörf á vamarliði í Kosovo jafnvel þó að breyting verði á stjómmálaástandinu í Serbíu,“ sagði Thaqi í viðtalinu. „Ríkið Kosovo hefur landsvæði og íbúa sem munu ákveða hvað Kosovo er.“ Bardagar á landa- mærum Eþíópíu og Erítreu Friðar- samningur að engu hafður Addis Ababa, Eþíópía, Reuters. SAMKVÆMT fréttatilkynningu eþíópískra yfirvalda hafa 746 upp- reisnarmenn látið lífið í bardögum í austurhluta landsins síðastliðinn tvo og hálfan mánuð. Ásökuðu þau erítrísk stjórnvöld um að hafa út- vegað uppreisnarmönnunum her- búnað. Varnamálaráðuneyti Eþíóp- íumanna segir Erítreumenn þar með ekki fylgja ákvæðum friðar- sáttmála er undirritaður var af báðum löndum fyrir um mánuði. Eþíópía og Erítrea hafa átt í erjum um landamæri sín síðan í maí 1998 og talið er að þúsundir hermanna hafi nú þegar látist í blóðugum átökum. Löndin gengust undir friðarsáttmála Samtaka um sam- einaða Afríku (OAU) i júlí síðast- liðnum, en enn ganga ásakanir á víxl og smáatriði samningsins tefja samþykki þinga landanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.