Morgunblaðið - 14.08.1999, Síða 66
66 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
www.landsbanki.is
Tilboð til Vörðufélaga
Landsbankans
Varðan
Vörðuféiögum býðst nú ferð með
Samvinnuferðum Landsýn til
paradísareyjunnar Aruba í Karíbahafinu á
verði sem er engu líkt.
• Vikuferð (22.— 28. nóvember) með
flugi og gistingu í sex nætur fyrir aðeins
73.900 kr. á mann.*
* Aruba tilheyrir hollensku Antillaeyjum og
er ein af syðstu eyjum Karíbahafsins.
Vörðufélagar geta valið á milli tveggja
fjögurra stjörnu hótela: Sonesta Resorts í
hjarta höfuðstaðarins Orjanstad eða
Wyndham Resorts við eina bestu strönd
eyjarinnar.
(minni fontur)* Innifalið er flug, gisting, akstur til
og frá flugvelli erlendis, forarstjórn og íslenskir
flugvallaskattar. Ekki er innifalið erlenl
brottfarargjald $20 og fodallagjald, kr. 1.800.
Ymis önnur tilboð og afslættir bjóðast klúbbfélögum
Landsbanka fslands hf. sem finna mó á
heimasíðu bankans,
www.landsbanki.is
L
Landsbankinn
| Opið frá 9 til 19
ÍSLENSKA ÓPERAN
i III—_Jllll
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
Slfebb
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Lau. 14/8 kl. 20.00. Uppselt
Fim. 19/8 kl. 20.00.
Fös. 20/8 kl. 20.00.
Fös. 27/8 kl. 20.00.
Lau. 28/8 kl. 20.00.
Fim. 2/9 kl. 20.00.
Ósóttar pantanir
seldar daglega
ISDÚIjJ.j
S.O.S. Kabarett
í leikstjórn Sigga Sigurjónss.
3. sýn. í kvöld lau. 14/8 kl. 20.30
4. sýn. lau. 21/8 miðnætursýning
á menningamótt Reykjavíkur
HIRÐFÍFL HENNAR HÁTIGNAR
Næsta sýn. sun. 15/8.
Miöasala í s. 552 3000. Opið virka daga
kl. 10 — 18 og fram aö sýningu sýningardaga.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
5 30 30 30
Mtaata cpta taá 12-18 ob Inni að sýntaBU
týrtaBanlaw. Otfa Irá 111
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00
Mið. 18/8, Fim. 19/8.
Fös 20/8 ki. 23.00, Síðasta sýning
TJARNAhDANSLBKUR
laugardag 14.8 kl. 22.00.
Magga Str'rra og Hr.lngi.R leika fýrir
dansi.
TILBOÐ TIL LEEKHUSGESTA!
20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti (Iðnó.
Borðapantanir í síma 562 9700.
Æ
Mataróregla
Ertu með mat á heilanum?
Haldið verður 5 vikna námskeið fyrirfólk með anorexíu, bulimíu
og ofátsvandamál. Stuðst er við 12 spora kerfið. Nýtt námskeið
að hefjast.
Upplýsingar enj gefnar frá kl. 8—12 í síma 552 3132, annars símsvari.
Inga Bjarnason.
H-moll messa Bachs
n_a j | L Stórtónleikar
r r í Hallgrímskirkju
LISTAHATIÐ sunnudaginn 15. ágúst kl. 20.30. Uppselt. Ósóttar pantanir verða seldar kl. 17.00
1999 á sunnudaginn. Miðasala í Hallgrimskirkju alla daga, sími 510 1000.
FÓLK f FRÉTTUM
Djass- og blúshátíð á Hótel Selfossi um helgina
KRISTJANA Stefánsdóttir söngkona er einn af aðstandendum djass- og blúshátíðar á Selfossi.
MIKILL DJASSÁHUGI
Á SELFOSSI
ÞESSA helgi stendur yfir hin ár-
lega djass- og blúshátíð á Selfossi
sem nú er haldin í fjórða sinn. Að
henni stendur hópur heimafólks
sem tók sig til fyrir fjórum árum
og ákvað að stofna til hátíðar af
þessu tagi. Kristjana Stefánsdótt-
ir söngkona er einn af aðstand-
endum hátíðarinnar en kvartett
hennar sem auk hennar sjálfrar
er skipaður þeim Gunnari Jóns-
syni trommuleikara, Smára Krist-
jánssyni bassaleikara og Vigni
Þór Stefánssyni píanóleikara hef-
ur spilað djasstónlist á Selfossi við
ýmis tækifæri í nær tíu ár. Kvar-
tettinn kom fyrst fram í núver-
andi mynd árið 1990, á djass-
kvöldi sem var hluti af hátíðar-
höldum í tilefni hundrað ára af-
mælis Ölfusárbrúar.
Kristjana segir að fólk á Sel-
fossi hafi mikinn áhuga á djass-
og blústónlist og því hafi hópur
áhugasamra tekið sig til og ákveð-
ið að standa að veglegri árlegri
djass- og blúshátíð. Hún segir
tónleikana á hátíðinni vera virki-
lega vel sótta og að skemmtileg
stemmning ríki á þeim. Gestir
tónleikanna eru að stærstum
hluta heimafólk en einnig kemur
þó nokkuð af fólki úr nærliggjandi
sumarbústaðalöndum.
Á tónleikunum í kvöld spila
þrjár djasssveitir. Kvartettinn Is-
bráð kemur fyrstur fram en hann
skipa þeir Einar Valur Scheving
trommuleikari, Þórir Baldursson
sem leikur á Hammond-orgel, Jó-
hann Ásmundsson sem er bassa-
leikari og Óskar Guðjónsson saxó-
fónleikari. Þá leikur kvintett
Carls Möller en hann leikur sjálf-
ur á píanó, Árni Scheving leikur á
bassa, Álfreð Alfreðsson á
trommur, Þorleifur Gíslason á
saxófón og Stefán Ómar Jakobs-
son á básúnu. Að lokum kemur
Kristjana Stefánsdóttir fram
ásamt tríói sem er skipað þeim
Agnari Má Magnússyni sem leik-
ur á píanó, Þórði Högnasyni sem
leikur á kontrabassa og Einari
Vali Scheving sem leikur á
trommur.
Kristjana segir að til standi að
halda áfram að halda veglega og
skemmtilega djass- og blúshátíð á
Selfossi. Á næsta ári mun hátíðin
eiga fimm ára afmæli og þá megi
búast við að ýmislegt verði gert til
enn meiri hátíðarbrigða.
Loop Troop
s
á Islandi
SÆNSKA hip-hop sveitin Loop
Troop er nú stödd hérlendis en í
gær héldu þeir tónleika á Gauk á
Stöng en í kvöld verða þeir á Pí-
anóbarnum og á sunnudagskvöld
á Kaffi Thomsen.
Loop Troop hefur verið að gera
það gott undanfarin ár og eru þeir
meðal virtustu hip-hop sveita Svía
og tilheyra endurreisnararmi hip-
hop tónlistarinnar sem snýst um
að gera hlutina sjálfir.
Með Loop Troop kemur fram ís-
lenska hip-hop sveitin Tha Faculty
sem nýverið gaf út plötu hjá
Smekkléysu og einnig verða með
þeim nokkrir af bestu plötusnúð-
um landsins.
Millj ónamæringarnir á Broadway í kvöld
MILLJÓNAMÆRINGARNIR verða með sinn ár-
lega stórdansleik á Broadway í kvöld og munu
hvorki fleiri né færri en sex stórsöngvarar koma
þar fram með sveitinni. Það eru þeir Bogomil
Font, Páll Óskar, Stephan Hilmarz, Bjarni Ara og
Raggi Bjarna og auk þeirra kemur fram í fyrsta
sinn með Milljónamæringunum norðlenska stór-
söngkonan Helena Eyjólfsdóttir, sem Sunnlend-
ingar hafa fengið alltof fá tækifæri til að sjá og
heyra lengi.
Þarna verður því sannkölluð söngveisla. I upp-
hafi dansleiks mun hljómsveitin Casino leika nokk-
ur létt lög.