Morgunblaðið - 14.08.1999, Side 68
568 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRÉTTUM
Jake Lloyd úr Stjörnustríði
SVARTHÖFÐI
var góðmenni
Það birtir yfir hvíta tjaldinu þegar Jake
Lloyd skýtur upp kollinum sem Anakin í
Stjörnustríði. Undir niðri kraumar yfir-
vofandi harmleikur því hans bíða myrkra-
öflin og huliðshjálmur Svarthöfða. Pétur
Blöndal sat blaðamannafund með bráð-
skörpum ungum leikara sem ætlar sér að
verða vísindamaður.
ÞAÐ á mikið eftir að mæða á Anakin í Stjörnustríði Lucas; Jake Lloyd fylgir honum úr hlaði.
S
atriði sem prýtt hefur hvíta tjaldið.
3PO er vélmenni sem Anakin smíðar og kemur við sögu
í öllum Stjörnustríðsmyndunum.
ÞAÐ er óneitanlega bjart yfír hinum unga Svarthöfða.
EG HEF aldrei séð svona
marga hljóðnema á ævi
minni,“ segir strákslega full-
orðinslegur strákur og horfir yfír
^fullan sal af ókunnugu fólki. Engu að
síður er hann öruggur með sig innan
um þessar sjálfumglöðu fullvöxnu
vitsmunaverur sem hafa atvinnu af
því að skrifa palladóma um náung-
ann; hann talar satt best að segja
eins og hann kunni hvergi betur við
sig en í steríói heimspressunnar.
Hann heitir Jake Lloyd og er tíu ára.
Ef þú ættir að velja á milli þess að
vera Jedi og leikari; hvað yrði fyrir
valinu? spyr einn fréttahaukurinn.
„Ég myndi velja leiklistina vegna
þess að þá gæti ég leikið Jedi og
Aipplifað það besta úr báðum heim-
um,“ svarar drengurinn og brosir.
Þú hefur unnið með Liam Neeson,
Susan Sarandon, Marisu Tomei og
Arnold Schwarzenegger svo aðeins
fáir séu nefndir. Hefurðu fengið
góða ráðgjöf frá mótleikurum þín-
um? er næsta spurning.
„Þau voru öll ráðagóð," svarar sá
stutti. „Þetta er eins og að ganga í
skóla; maður lærir allt og gleymir
því svo öllu aftur. Það rifjast samt
upp fyrir manni þegar maður tekst á
við hin ýmsu verkefni í lífínu, jafnt
leiklist sem annað.“
Þegar hér er komið sögu er orðið
ljóst að drengurinn kann að svara
fyrir sig, hvort sem hann hefur verið
>skólaður í því sérstaklega eða ekki.
Svo virðist sem það vanti aðeins að
Jake Lloyd vaxi grön og að röddin
verði áttund dýpri til að þetta líti út
eins og venjulegur fullorðins blaða-
mannafundur. Þó þarf að útskýra
fyrir honum hvað „cult“-myndir eru
og hann leggur ríka áherslu á að
Stjömustríðsmyndirnar séu leyfðar
öllum aldurshópum og að sama skapi
einhverjar vinsælustu myndir sem
framleiddar hafí verið; því skjóti
skökku við að flestallar hasarmyndir
sem framleiddar séu um þessar
mundir séu bannaðar bömum.
En hvemig líst drengnum, sem er
ákaflega bjart yíir, á að leika per-
sónu sem með tíð og tíma verður eitt
alræmdasta illmenni kvikmyndasög-
unnar, Svarthöfði?
„Hann er nú ekki svo slæmur,“
svarar Lloyd. „Hann kom á jafnvægi
í alheiminum, hann drap alla Seth-
stríðskappana og eirði aðeins Jedi-
meisturam, hann hefði getað drepið
Loga geimgengil þar sem hann lá
brjóstumkennanlegur og örmagna á
þrepinu en gerði það ekki. Að mínum
dómi gerir þetta hann að góðri per-
sónu.“
Og spurningamar halda áfram:
Hvernig er að eiga Pernillu August
fyrir mömmu?
„Mér fannst það frábært enda er
hún mikil leikkona. Ég verð að viður-
kenna að hún er ein stórkostlegasta
leikkona sem ég hef unnið með á
ferlinum," svarar Lloyd borabrattur.
Hvernig var að leika með Natalie
Portman sem er líka barnastjarna?
Lloyd svarar að bragði: „Ég var
átta ára þegar tökur fóra fram og
hún sextán, tvisvar sinnum eldri en
ég. Svo ég get varla tekið undir að
hún hafí verið barnastjarna. Núna er
hún orðin átján! Þetta var samt frá-
bært; hún er yndisleg stúlka.“
Lloyd segist ekki verða í næstu
tveimur Stjörnustríðsmyndum
vegna þess að hann þyki of ungur en
bætir þó við á léttu nótunum: „Það
tekur svo langan tíma að ráða í þess-
ar myndir að ég gæti átt möguleika."
Hvað ætlar hann svo að gera við
alla þá fjármuni sem hann þénar fyr-
ir stórmyndir á borð við Stjörnu-
stríð, leikur einum blaðamanni for-
vitni á að vita.
„Ég fæ víst ekki að koma nálægt
þeim þar til ég verð átján ára,“ svar-
ar hann. „En þetta fer allt í háskóla-
nám hvort sem er; ég myndi ekki
snerta á peningunum jafnvel þótt
mér leyfðist það. Ástæðan fyrir því
að ég leik í kvikmyndum er ekki pen-
ingarnir heldur sú að það er
skemmtilegt. Ég fæ að ferðast og
þroskast sem leikari."
Lloyd er með einkakennara þegar
hann vinnur að kvikmyndum og ann-
ars stundar hann skólann inn á milli.
Er hann ekkert hræddur um að hið
illa afl peninganna eigi eftir að spilla
honum?
„Nei, vegna þess að ég ætla í góð-
an háskóla og verða mér úti um
bestu menntun sem völ er á. Ef mað-
ur fer ekki í háskóla fækkar valkost-
unum sem því nemur þegar maður
fer út á vinnumarkaðinn.“
Hann segir að það hafi ekki verið
erfítt að næla í hlutverkið í Stjörnu-
stríði. „Það eina sem ég þurfti að
gera var að ganga inn á skrifstofuna
á sex mánaða fresti í tvö ár og heilsa
upp á fólkið svo það gæti fylgst með
því hvernig ég tæki út þroska. Loks
kom að því að fara í heimsókn á bú-
garð Lucas í morgunverð ásamt
tveimur öðram drengjum sem komu
til greina, við bragðum eitthvað á
leik og eftir það varð ég fyrir val-
inu.“
En hvernig brugðust vinir hans
við þegar hann fékk hlutverkið?
„Þeim gæti ekki verið mefra
sama,“ svarar Lloyd ákveðinn.
„Þetta er gott svo langt sem það nær,
en það hefur enga raunveralega þýð-
ingu. Ég er bara tíu ára krakki og
ætti að vera í fótbolta með vinum
mínum.“ Hann lítur út um gluggann
og bætir við: „Eina vandamálið er að
það er átta tíma mismunur.“
Hvað færðu mikið í vikupeninga
frá foreldrum þínum, spyr áhuga-
samur blaðamaður sem af ákafanum
að dæma gæti verið frá National
Enquirer.
„Það veltur á því hvort ég vinn
heimavinnuna mína, sem ég geri
sjaldnast,“ svarar Lloyd. „Ef það
kemur fyrir fæ ég um sjö dollara
[um 500 krónurj."
Það líður að lokum fundarins með
hinum unga Svarthöfða sem segist
vel geta hugsað sér að búa í Evrópu
ef atvinnan væri ekki í Kaliforníu.
Hann segist ætla að verða vísinda-
maður þar sem hann sé góður í
stærðfræði og að uppáhaldsbækur
hans séu eftir Tolkien og Harry
Potter. Af kvikmyndum er Október-
himinn í uppáhaldi og hann horfir
ekki á barnamyndir. „Hver hefur
gaman af teiknimyndum um blóm og
tré sem verða ástfangin. Hvers kon-
ar lærdóm eiga krakkar að draga af
því? Þau geta ekki einu sinni talað
saman!"
Ætli það sé ekki best að láta Lloyd
eiga síðasta orðið þegar hann er
spurður að því af einum blaðamanni
hvort hann sé alltaf svona snjall í til-
svörum eða hvort hann hafí lært þau
utanbókar. „Blaðamenn era þeir einu
sem skilja brandarana mína og flestir
þeirra ná þeim ekki,“ svarar Lloyd
sposkm' á svip. „Ég er raunar yfír-
leitt mun fyndnari en ég sýni af mér
hér í stóra herbergi fullu af ókunn-
ugu fólki frá öllum heimshomum sem
spyr sömu spurninganna aftur og aft-
ur og aftur. Það er ósköp takmarkað
hversu mikinn húmor er hægt að
kreista úr slíkum aðstæðum."
íA(ceturfjaíinn
Smiðjuvejji 14, íKopavojji, sími 587 6080
í kvöld leikur danssveitin
Cantabile
frá Akureyri
Opió frá kl. 22—3
Næturgalinn þar sem stuðið er
og alltaf lifandi tónlist