Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hluthafar í DB ehf. stefna
Sveini R. Eviólfssyni
Endurbætur
á Dyrhóla-
eyjarvita
UNNIÐ hefur verið að umtals-
verðum viðhaldsaðgerðum á vit-
anum í Dyrhólaey á árinu.
Vitinn var byggður eftir frum-
uppdrætti Guðjóns Samúeissonar,
þáverandi húsagerðarmeistara
ríkisins, og er af mörgum talinn
til fegurri vita. Hann var reistur
árið 1927, en endurbæturnar eru
stærsta viðhaldsverkefni vegna
vita á árinu.
Endurbætur Dyrhólaeyjarvita
eru þáttur í því markmiði
Siglingastofnunar að varðveita
a.m.k. einn vita þar sem híbýli
vitavarðar nálgast það að vera í
upprunalegu horfí.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
hluthöfum í Eignarhaldsfélaginu
DB ehf.:
„Hluthafar í Eignarhaldsfélag-
inu DB ehf., áður Dagblaðinu hf.,
hafa stefnt Sveini R. Eyjólfssyni
persónulega og fyrir hönd félags-
ins fyrir að hafa án heimildar í
samþykktum félagsins eignast
ráðandi hlut í Dagblaðinu hf. og
brotið þannig gegn forkaupsrétti
annarra hluthafa. Hafa þeir enn-
fremur krafist þess að sérstök
rannsókn verði gerð á sölu hluta-
bréfa Dagblaðsins og annarra
eigna þess. Málið var þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur 29. júní
sl. Gert er ráð fyrir að greinargerð
stefnda verði lögð fram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur 21. september
1999.
Meðal hluthafanna eru flestir af
stærstu hluthöfum í Eignarhalds-
félaginu DB ehf., sem áður hét
Dagblaðið hf. Þeir hafa höfðað mál
á hendur Sveini R. Eyjólfssyni,
einum aðaleiganda Frjálsrar fjöl-
miðlunar hf., fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur. Gera hluthafarnir
kröfu um að viðurkennt verði með
dómi að Sveinn R. Eyjólfsson hafi
eignast ráðandi hlut í Dagblaðinu
hf. án þess að virða forkaupsrétt
annarra hluthafa og brotið með því
gegn hlutafélagalögum.
Ólögmæt viðskipti með
hlutabréf Dagblaðsins
Dagblaðið hf. var stofnað árið
1975 og voru stofnendur í upphafi
20 talsins. Frá upphafi var kveðið
á um það í samþykktum félagsins
að allir eigendur þess skyldu hafa
forkaupsrétt að fölum hlutum í fé-
laginu. Síðan þá hafa stórir eignar-
hlutar í félaginu skipt um hendur
en jafnan orðið eign Sveins R. Eyj-
ólfssonar, án þess að öðrum hlut-
höfum hafi verið boðið að kaupa
hlutina, þrátt fyrir að þeir hafi haft
rétt til þess samkvæmt samþykkt-
um félagsins. Meðal annars hafa
þeir Jónas Kristjánsson, núver-
andi ritstjóri DV, og Páll Hannes-
son verkfræðingur selt hluti sína.
Yfírráð Sveins R.
Eyjólfssonar
Sveinn R. Eyjólfsson hefur öðl-
ast yfirráð í Eignarhaldsfélaginu á
grundvelli hinna umdeildu eignar-
hluta sem hann hefur komist yfir í
andstöðu við samþykktir félagsins
og lög um hlutafélög að mati ann-
arra hluthafa. Halda aðrir hluthaf-
ar því fram að hann hafi ekki þau
yfirráð í félaginu sem hann telji
sig hafa, þar sem hann geti ekki
farið með atkvæðisrétt á grund-
velli hlutabréfa sem hann hafi öðl-
ast í andstöðu við ákvæði laga.
Aðrir hluthafar í félaginu krefjast
þess því að héraðsdómur staðfesti
að Sveinn fari ekki með þann at-
kvæðisrétt í félaginu sem fylgdi
hinum umdeildu eignarhlutum.
Beiðni um sérstaka
rannsókn
Hluthafarnir hafa að auki kraf-
ist þess að fram fari sérstök rann-
sókn á öllum viðskiptum með
hlutabréf í Dagblaðinu hf. Er þess
sérstaklega krafist að rannsökuð
verði sala hlutabréfa þeirra Jónas-
ar Kristjánssonar og Páls Hannes-
sonar. Þá krefjast hluthafarnir
þess að einnig verði tekið til sér-
stakrar rannsóknar hvernig staðið
var að sölu Dagblaðshússins að
Þverholti 11-13 og annarra eigna
félagsins sem voru seldar til
Eigna, ráðgjafar og rekstrar ehf.
Stjórn þess skipa þau Sveinn R.
Eyjólfsson og kona hans, Auður
Eydal.
50% eignarhlutur í
Frjálsri fjölmiðlun hf.
Þess má geta að Sveinn R. Eyj-
ólfsson og Eyjólfur Sveinsson,
sonur hans, skipa núverandi
meirihluta stjórnar Eignarhalds-
félagsins DB ehf. Að auki er
Sveinn stjórnarformaður Frjálsr-
ar fjölmiðlunar hf. og útgáfustjóri
DV og Eyjólfur framkvæmda-
stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar hf. og
útgáfustjóri DV og Dags.
Eignarhaldsfélagið DB ehf. á
50% eignarhluta í Frjálsri fjöl-
miðlun hf. sem meðal annars gefur
út dagblaðið DV og er rekstrarað-
ili að dagblaðinu Degi og Við-
skiptablaðinu. Þá á Frjáls fjöl-
miðlun 70% í ísafoldarprent-
smiðju hf. og miklar húseignir við
Þverholt og Stangarholt (Hamp-
iðjuhúsin).“
Miklar endurbætur hafa verið unnar á Dyrhólaeyjarvita.
MÁL hluthafa Eignarhalds-
félagsins DB ehf., gegn
Sveini R. Eyjólfssyni verður
tekið fyrir í héraðsdómi
Reykjavíkur í dag, en það
var þingfest í lok júní síðast-
liðins. Stefnendur bera
Sveini m.a. á brýn að hafa
sniðgengið rétt annarra
hluthafa til að neyta for-
kaupsréttar.
í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í dag á Sveinn að leggja
fram greinargerð vegna
málsins sem fimmtán hlut-
hafar í DB ehf. hafa höfðað
gegn honum. Hluthafarnir
15 eiga samtals um 15% hlut
í DB ehf., áður Dagblaðinu
hf., sem á meðal annars
helmings hlut í Frjálsri fjöl-
miðlun, útgáfufyrirtækis DV
og Dags, en þar er Sveinn
stjórnarformaður og útgáfu-
stjóri.
Gunnar Sturluson, lög-
maður hluthafanna fimmt-
án, segir að hluti hópsins sé
á meðal þeirra tuttugu ein-
staklinga sem voru stofn-
hluthafar í Dagblaðinu hf.
árið 1975. Sveinn, sem verið
hefur framkvæmdastjóri fé-
lagsins frá upphafi, hóf upp
úr 1990 að kaupa litla hluti í
félaginu en stærstu hlutir
skiptu um eigendur þegar
Jónas Kristjánsson, núver-
andi ritstjóri, og Páll Hann-
esson verkfræðingur seldu
sína hluti í byrjun árs 1995.
Forkaupsréttur
ekki virtur?
Gunnar segir að af
skuldabréfum sem félagið
gaf út þann 1. janúar 1995
til Jónasar að upphæð rúm-
lega 13,5 milljónir króna og
til Páls að upphæð 4 milljón-
Sakaður
um að mis-
nota að-
stöðu sína
ir króna, verði helst ráðið að
félagið hafi keypt hluti
þeirra í félaginu og framselt
þá síðan til Sveins.
Við stofnun félagsins átti
Sveinn um 17% í félaginu að
sögn Gunnars og eftir kaup
sín á hann og fjölskylda á
milli 60 og 70% í félaginu, en
á seinasta aðalfundi fór
hann með tæp 80% hlutafjár
í félaginu.
Gunnar segir að í félaginu
hafí verið í gildi forkaups-
réttur þegar það yar stofn-
að, og eftir því sem umbjóð-
endur hans best viti, hafi
forkaupsréttarákvæðin
aldrei verið afnumin í félag-
inu. „Sveinn hefur haldið því
fram að á hluthafafundi í fé-
laginu í ágúst árið 1982 hafi
þessi ákvæði verið afnumin,
en fundargerð þessa fundar
ber það ekki með sér og
ekkert slíkt var skráð hjá
Hlutafélagaskrá," segir
Gunnar.
Á aðalfundi sem haldinn
var 2. desember í fyrra mót-
mælti lögmaður hluthafanna
fimmtán þeirri hlutaskrá
sem lögð var fram og benti á
að vegna ólögmætra eig-
endaskipta á hlutum í félag-
inu, gætu hlutir sem skipt
höfðu um eigendur fyrir 30.
júní 1998 ekki veitt núver-
andi handhöfum þeirra rétt-
indi til atkvæða á hluthafa-
fundi.
Atkvæði greidd með
umdeildum hlut
Tilraunir hluthafanna
fímmtán til að fá það sjónar-
mið staðfest voru hins vegar
að sögn Gunnars bornar of-
urliði í atkvæðagreiðslu um
málið, í krafti atkvæða
Sveins. Gunnar kveðst þeirr-
ar skoðunar að Sveini hafi
verið óheimilt að greiða at-
kvæði með þeim hlutum sem
deilt er um hvort hann hafi
öðlast réttöega. Sama máli
gildi um kröfu hluthafanna á
fundi í júní sl., þar sem þeir
óskuðu rannsóknar á hvernig
staðið var að sölu bréfanna.
Eignir félagsins seldar
Hálfum mánuði eftir aðal-
fundinn, 16. desember í
fyrra, seldi Eignarhaldsfé-
lagið DB ehf. fasteignir fé-
lagsins til Eigna, rekstrar
og ráðgjafar ehf., sem
Sveinn R. Eyjólfsson og eig-
inkona hans stýra. Þessar
fasteignir ásamt helmings
hlutar í Frjálsri fjölmiðlun
voru megineignir Eignar-
haldsfélagsins DB ehf. Við
söluna var veðskuldum á
eignunum aflétt á ábyrgð fé-
lagsins. I ársreikningum fé-
lagsins 1997 eru þessar
eignir bókfærðar á um 150
milljónir kr.
Gunnar segir að umbjóð-
endur hans hafi ekki fengið
nein svör um málið frá
Sveini, hvorki um hvernig
staðið var að kaupum hlutar
Jónasar og Páls, né hvernig
staðið var að sölu eigna fé-
lagsins til Eignar, rekstrar
og ráðgjafar ehf. Þeir hafi
heldur ekki fengið upplýs-
ingar um söluverð eignanna.
Vegna forsögu málsins hafi
þeir talið sig knúna til að
leita réttar síns fyrir dóm-
stólum.
„Það sem er alvarlegast í
þessu að mínu mati fyrir
minnihluta hluthafa, er að
þarna stendur maður sem er
kjörinn til að starfa sem
trúnaðarmaður félagsins í
framkvæmdastjórastöðu, í
því að kaupa hlutabréf og
hundsar ákvæði samþykkta
í félaginu um forkaupsrétt.
Við teljum að hann hafi mis-
notað sér aðstöðu sína til að
stunda viðskipti með hluti í
félaginu, sem honum er
óheimilt lögum samkvæmt.“
„Forkaupsrétt-
arákvæði var
fellt niður“
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi tilkynn-
ing frá Eignarhaldsfélaginu
DB ehf.:
„Vegna fréttatilkynningar
um málshöfðun vegna
ágreinings um afnám for-
kaupsréttar í Eignarhalds-
félaginu DB ehf. (áður Dag-
blaðinu ehf.) er rétt að eftir-
farandi komi fram:
Á aðalfundi félagsins hinn
27. ágúst 1982 voru gerðar
þær breytingar á samþykkt-
um félagsins að forkaups-
réttarákvæði var fellt niður.
Tilkynning um þetta var
send hlutafélagaskrá og er
handskrifað á skjöl þessi að
þau séu mótttekin af Ásberg
Sigurðssyni, þáverandi for-
stöðumanni hlutafélaga-
skrár. Hinsvegar voru hinar
breyttu samþykktir hvorki
skráðar í hlutafélagaskrána
né birtar í Lögbirtingar-
blaði. Engar skriflegar upp-
lýsingar liggja fyrfr um
ástæður þessa en eftir hin-
um breyttu samþykktum,
sem vissulega voru á allan
hátt lögformlega réttar, hef-
ur verið starfað í félaginu öll
þau 17 ár sem liðin eru, án
þess að athugasemdum væri
hreyft.
Margar sölur og kaup í fé-
laginu hafa átt sér stað síð-
an, meðal annars hefur fyrr-
verandi stjórnarformaður til
20 ára, Björn Þórhallsson,
keypt bréf, einnig fyrrver-
andi lögmaður félagsins svo
og Kassagerð Reykjavíkur
o.fl. Þannig er það efnislega
rangt sem stendur í ofan-
greindri fréttatilkynningu
að Sveinn R. Eyjólfsson hafi
einn keypt föl hlutabréf í fé-
laginu.
Þeir aðilar sem hafa
stefnt Eignarhaldsfélaginu
DB ehf. og Sveini R. Eyj-
ólfssyni persónulega vegna
ofangreindra atriða hafa
setið flesta aðalfundi félags-
ins á umræddu tímabili og
stóðu sumir sjálfir árið 1982
að breytingum á samþykkt-
um í þá veru sem hér er
deilt um. Aldrei hefur verið
hreyft athugasemdum um
þessi atriði fyrr né heldur
hafa aðilar að máli þessu
sýnt áhuga á hlutabréfa-
kaupum eða haft þá trú á
fyrirtækinu að þeir vildu
eignast aukinn hlut í því.
Þess skal getið að áður en
til þessara málaferla kom
höfðu þeir aðOar sem hér
um ræðir samband við lög-
mann félagsins og óskuðu
eftir því að vera keyptir út
úr félaginu ella myndu þeir
grípa til þeirra aðgerða sem
nú eru orðnar ljósar.
Jón Gunnar Zoéga hrl.,
lögmaður Eignarhaldsfé-
lagsins DB. ehf.“