Morgunblaðið - 21.09.1999, Page 22

Morgunblaðið - 21.09.1999, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur stofnað fyrsta Netbankann á Islandi Stefnan að bjóða ávallt bestu kjörin Morgunblaðið/Pétur Kristjðnsson „Hér er um nvjög hagkvæma rekstrareiningu að ræða. Netbankinn byggir ekki á útibúum og þarf því ekki dýrt dreifinet eða mikla yfir- stjórn, sem gerir okkur fært að bjóða betri kjör en hingað til hafa þekkst á íslenskum fjármálamarkaði,“ segir Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri, sem sést hér t.v. ásamt Kristni Tryggva Gunnarssyni, verkefnisstjóra Netbankans. Heimasíða Netbankans á Netinu hefur slóðina www.nb.is. NETBANKINN, fyrsti bankinn á íslandi sem starfræktur er að öllu leiti á Netinu, tók foi-mlega til starfa í gær. Fyrirtækið sem er á ábyrgð og í eigu Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis, verður rekið sem sjálfstæð rekstrareining innan SPRON. Yfirlýst stefna bankans er að bjóða ávallt bestu kjör í vöxtum og að sögn forsvarsmanna hans verða innlánsvextir umtalsvert hærri og útlánsvextir nokkuð lægri en áður hefur þekkst hér á landi. Þetta er unnt með lítilli yfirbygg- ingu, miklu aðhaldi í rekstri auk þess sem Netbankinn rekur engin útibú. Aðgengi að bankanum verð- ur eingöngu í gegnum Netið, tölvu- póst, síma, sjálfsafgreiðslutæki (snertibanka og hraðbanka) og fax. Heimaslóð Netbankans er www.nb.is en forsvarsmaður hans er Geir Þórðarson. Bankinn mun til að byrja með ein- göngu þjónusta launþega. Ætlunin er m.a. að bjóða upp á debetkorta- reikning með stighækkandi vöxtum, sparireikninga með markaðstengdri ávöxtun, afborgunarsamninga, veltukort hliðstæð því sem SPRON hleypti af stokkunum í mars sl., og fasteignalán til allt að 30 ára. Lægstu innvextir á debetkorta- reikningum verða 3,02% en hæstu vextir 8,52%. Skiptingin verður með þeim hætti að inneign upp að 500 þúsund krónum ber 3,02% vexti. Fyrir inneign frá 501-1.500 þúsund krónum greiðast 8,02% vextir og 8,52% vextir ef inneign er hærri en 1,5 m.kr. Þjónusta óháð búsetu Kristinn Tryggvi Gunnarsson, verkefnisstjóri Netbankans, segir stighækkandi vexti á debetkorta- reikningi vera nýjung á íslenskum bankamarkaði sem miði að því að hámarka þjónustu við viðskiptavini sem þurfa ekki að færa peninga á milli reikninga til að fá betri kjör. „Fyrir þá sem vilja leggja fyrir til lengri tíma, bjóðum við upp á tvennskonar leiðir; Annarsvegar er um að ræða óbundinn markaðs- reikning sem tekur mið af ávöxtun á millibankamarkaði (REIBOR) og ber 9,02% vexti. Hins vegar er um að ræða bundinn markaðsreikning með 6,01% vexti og verðtryggingu sem tekur mið af ávöxtun spariskír- teina ríkissjóðs. Þá bjóðum við jafn- framt sérstakt netkort sem er hlið- stætt veltukorti SPRON. Þar eru vextir 15% og færslugjald 11 krón- ur. Stofngjald er 500 krónur og út- tektarheimild allt að 2 milljónum króna. Onnur nýjung eru afborgun- arsamningar sem eru einskonar skuldabréfalán til allt að fimm ára. Þar er lántökugjald einungis 1% og þau því hagstæðari en raðgreiðslur, venjuleg skuldabréf og jafnvel bfla- lán“, að sögn Kristins. Líkt og innlánsvextirnir, eru út- lánsvextirnir nokkuð breytilegir. Vextir af yfirdráttarlánum eru á bilinu 11,50-16%. Afborgunarsamn- ingar af óverðtryggðum lánum eru frá 10,50-15,20%, allt eftir greiðslu- getu og veðsetningu. Vextir af verðtryggðum fasteignalánum fara efth’ veðsetningarhlutfalli og tíma- lengd. Þar er um að ræða 5-30 ára veðlán með föstum vöxtum frá 6,2-8,50%. Að sögn Kristins, hafa allir ferlar verið hannaðir með það fyrir aug- um að auðvelda aðgang viðskipta- vina sem mest. „Fólk skráir sig ein- faldlega heima og fær kortið afhent í ábyrgðarpósti innan fimm daga. Þannig sitja allir landsmenn við sama borð hvað þjónustu varðar, óháð búsetu." Stefnt á að þjónusta stærri hópa Ólíkt því sem tíðkast í hefð- bundnum bankaviðskiptum krefst Netbankinn ekki ábyrgðarmanna, heldur er væntanlegum viðskipta- vinum gert að fylla út umsókn á Netinu og að lokinni eignakönnun og greiðslumati er úthlutað lána- heimild til viðskiptavinarins, sem tryggð er tryggingabréfi í fasteign. Að því fengnu getur viðkomandi gengið að lánaheimildinni vísri og það eina sem hann þarf að gera er að senda tölvupóst um upphæð og lánstíma og lánið er afgreitt um hæl. Lánsheimildinni má ráðstafa á milli ólíkra reikninga en til að við- halda henni þurfa viðskiptavinir að senda bankanum afrit af skatt- skýrslu sinni árlega. Guðmundur Hauksson, spari- sjóðsstjóri SPRON, segir aðdrag- andann að stofnun nýja Netbank- ans fremur stuttan, eða u.þ.b. tvö ár. „Með þessu framtaki viljum við byggja á nýrri og opinni hugsun sem gerir okkur kleift að þróa þessa tækni og samskipti við við- skiptavininn inn í næstu öld. Við er- um að sjá fjármálaþjónustu vera að færast í auknum mæli á Netið og þetta er einfaldlega liður í þeirri þróun.“ Hann leggur áherslu á að þrátt fyrir að bankinn þjónusti í upphafi einungis einstaklinga, þá er ætlunin að vinna áfram með hugmyndina og stefnt á að þjónusta stærri hópa í framtíðinni s.s. fyrirtæki, sjálfstæða atvinnurekendur og verktaka. Að- spurður um stofnkostnað Netbank- ans segir Guðmundur að hann hlaupi á tugum milljóna króna. „Hér er um mjög hagkvæma rekstrarein- ingu að ræða. Netbankinn byggir ekki á útibúum og þarf því ekki dýrt dreifinet eða mikla yfii’stjórn, sem gerir okkur fært að bjóða betri kjör en hingað til hafa þekkst á íslensk- um fjármálamarkaði." TÖLVUNAMSKEIÐ Þekking í þína þágu Microsoft sérfræðinámskeið Viö bjóöum gott úrval sérfræðinámskeiða hér á landi í samvinnu viö Pygmalion Group i Englandi. Námskeiðin eru hönnuö af Microsoft Education Services (MES) og hafa hlotiö viðurkenningu um allan heim. Þau eru góöur grunnur fyrir þá sem vilja taka próf og öðlast viðurkenninguna Microsoft Certified Professional (MCP). Námskeiðin eru kennd á ensku og námsgögn eru frá MES. Með þeim fylgir oftast hugbúnaður til þess að nota við námið og til æfinga. Deploying and Managing Microsoft Office 2000 (Course 1332) Ómissandi og mjög yfirgripsmikiö námskeið fyrir þá sem vinna við innleiðingu á Office 2000 í fyrirtækjum og stofnunum Timi: 4.-8. október, 5 daga námskeió Microsoft Exchange Server 5.5 Accelerated Training for Admin and implementation (Course 1313) Námskeið sem kennir allt um hvemig á að setja upp og reka þetta vinsæla tölvupóst- og hópvinnukerfi Timi: 11.-15. október, 5 daga námskeiö Accelerated Training for Microsoft Windows NT 4.0 (Course 983) Lykilnámskeið fyrir þá sem vilja verða góðir NT netstjórnendur Tlmi: 18.-22. október, 5 daga námskeið System Admininistration for Microsoft SQL Server 7.0 (Course 832) Á námskeiöinu er kennt að setja upp, stilla, reka og bilanaleita Microsoft® SQL Server™ 7.0. Timi: 1.-5. nóvember, 5 daga námskeið Mastering MicrosoftVisual Basic 6 Development (Course 1013) Kennt er að forrita i Visual Basic, búa til ActiveX og nota Intemettækni I forritum. Tlmi: 8.-12. nóvember, 5 daga námskeið Creating and Managing a Web Server Using Microsoft Internet Information Server 4.0 (Course 936) Kennt er að setja upp, stilla og nota allar einingar Intemet Information Server (IIS) vefmiðlarans. Timi: 22.-24. nóvember, 3 daga námskeið Námslýsingar á http://www.tv.is/serfraedi Námskeið fyrirfagfólk og metnaðarfulla einstaklinga Grensásvegi 16 108 Reykjavík Síml: 520 9000 Fax: 520 9009 Netfang: tv@tv.ls T ö I v u - o g ðjðfE! verkfræðiþjónustan Samningar FÍB-Trygginga við IBEX Samningar standa yfir RÚMLEGA 7.000 bifreiðar eru nú tryggðar hjá FÍB-Tryggingum, og stendur fyrir dyrum að semja um hækkun samalagðra hámarksið- gjalda við IBEX tryggingafélagið í Bretlandi eða önnur félög sem standa að Lloyd’s tryggingamark- aðnum í London, að sögn Halldórs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra vátryggingamiðlunarinnar Alþjóð- legrar miðlunar ehf., sem rekur FIB-Tryggingar fyrir hönd Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Lloyd’s of London. „Vegna mun betri viðbragða bif- reiðaeigenda við FÍB-Tryggingum en við bjuggumst við upphaflega hefur tekið skemmri tíma að ná upp í þann fjölda, sem ramma- samningur FÍB-Trygginga við IBEX tryggingafélagið í Bretlandi kvað á um. Slíkur samningur kveður á um ákveðna hámarksupphæð trygg- ingariðgjalda í heildina.,“ segir Halldór. Hann bætir við að það hafi verið vitað löngu fyrirfram að fjöldi þeirra sem tryggja bfla sína hjá FIB-Tryggingum myndi fyrr eða síðar ná þeim fjölda sem samið er um við IBEX. Halldór segir að IBEX og önnur félög á Lloyd’s tryggingamarkaðn- um í London starfi öðruvísi en tryggingafélög hérlendis. Þau tryggi sig ekki hjá endurtryggj- endum heldur dreifí áhættu sín á milli. Því sé hugsanlegt að samið verði við fleiri fyrirtæki en IBEX í næstu umferð, í samræmi tjónþol viðkomandi félaga. N ú t í m a innheimtuaðferöir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.