Morgunblaðið - 21.09.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 31
LISTIR
Með mjúkum hljóm og
TðWLlST
Langholtskirkja
EINLEIKSTÓNLEIKAR
Peter Sykes lék verk eftir Jóhann
Sebastian Bach. Sunnudag- kl. 16.30.
ÞAÐ er sögulegur viðburður í ís-
lensku tónlistarlífi að á einum degi
skuli vígð hér tvö ný glæsileg orgel.
Fritz Noack, orgelsmiður í Boston í
Bandaríkjunum, smíðaði bæði org-
elin. A vígslutónleikum í Langholts-
kirkju á sunnudag lék bandan'ski
organistinn Peter Sykes fjölbreytt
verk eftir Jóhann Sebastian Bach,
allt írá íhugulli þýskri sálmatónlist
til veraldlegi'ar tónlistar í ítölskum
stíl. Verkin voru Prelúdía og fuga í
G-dúr BWV 541; Partítan 0
Menseh bewein dein Siinde grofi
BWV 622; 0 Gott, du frommer Gott
BWV 767; Fantasía og fúga i g-moll
BWV 542; Konsert í G-dúr BWV
592; Allein Gott in der Höh sei Ehr
BWV 662 og Prelúdía og fúga í h-
moll BWV 544.
Alla jafna er farið á tónleika til
að hlusta á tónlist, en þegar svo
mikið ber við sem vígsla orgels er
er ekki laust við að græjan sjálf
verði í aðalhlutverki og tónlistin
verði ekki annað en kvarðinn sem
notaður er til að mæla hvernig til
hefur tekist. Það var að vonum mik-
ill spenningur að heyra íyrstu
hljóma orgelsins - og sannarlega
var það indæl stund þegar upp
laukst leyndardómurinn. Hljómur
nýja orgelsins er mjúkur og þýður
- ekki hvellur. Hljómgun kirkju-
skipsins er mun minni en búast
hefði mátt við, og eftirhljómur tón-
listarinnar ekki mikill. Sumum
kynni að þykja þetta galli - en að
flestu leyti er þetta kostur. Það er
ekki síst kostur í flutningi þétt of-
innar og pólýfónískrar tónlistar á
borð við verk Jóhanns Sebastians
Bachs. Strax í fyrsta verki, Prelúd-
íu og fúgu í G-dúr, var ljóst að hver
einasti tónn myndi heyrast skýr og
tær; og hver einasti tónn fúgunnar
heyrðist svo greinilega, að auðvelt
var að fylgja stefjum eftir gegnum
þykkan tónvefmn. Val á röddum
hljóðfærisins kom smám saman í
ljós þegar á tónleikana leið og verk-
unum vatt fram hverju á fætur
öðru. Svo virðist sem mjög vel hafí
tekist til. Partítan 0 Gott, du
frommer gott, var eins og sýnisbók
orgelsins, þar sem opinberaðist sér-
staklega falleg blanda af flautu-
röddum og reyrblaðsröddum í
mörgum tilbrigðum verksins.
Þótt orgelið sjálft hafí verið í að-
alhlutverki á tónleikunum, verður
ekki látið hjá líða að nefna organist-
ann, Peter Sykes, sem lék feiknavel
og virtist hafa barokktónlist Bachs í
hendi sér. Partítan fyrrnefnda var
vel leikin og tilbrigði í raddavali
smekklega útfærð. Sálmurínn All-
ein Gott in der Höh sei Ehr var
leikinn með íhygli og tilbeiðslu.
Konsertinn í G-dúr, í hefðbundnu
þriggja þátta formi ítalska
konsertsins sýnir allt annan, ver-
aldlegan og móderne Baeh, og org-
anistinn lék listavel. Orgel- og
kirkjutónlist Bachs verður vafalítið
vel sinnt í Langholtskirkju hér eft-
ir, og vonandi einnig tónlist annarra
meistara ungra sem gamalla. í
Langholtinu er nú uppskorið eins
og til var sáð. í tæpa fjóra áratugi
hefur kirkjan verið orgellaus að
kalla, en þrátt fyrir það hefur tón-
listarfólk kirkjunnar með organist-
ann Jón Stefánsson í fararbroddi
haldið uppi mjög öflugu og metnað-
aríúllu tónlistarlífi með flutningi
marga tónverka stórra og smárra.
þýðum
Hvað útlit orgelsins varðar er
hægt að segja í einu orði að það sé
einstakt augnayndi. Það er gamal-
dags, úr ljósum hlýjum viði, með út-
skornu tréverki í gotneskum bog-
um utan um tíu misstóra pípu-
glugga. Það er alger andstæða
kaldrar og berrar steypunnar í
kirkjuskipinu, og ber við nýja
steinda glugga á austurgaflinum.
Orgelið er eins og vin í grámanum,
og á örugglega efth’ að laða til sín
bæði þá sem iðka tónlist og þá sem
vilja hlusta á hana og efla tónlistar-
líf kirkjunnar enn meir. Stóra
glæsilega orgelið í Hallgrímskirkju
heyi-ist stundum í hálfkæringi kall-
að Stóri Kláus, efth- umfangi þess
og hinum þýska Klais sem smíðaði
það. I sama hálfkæringi mætti kalla
orgelið í Langholtskirkju Gamla
Nóa, eftir gamaldags stfl hljóðfær-
isins og smiðnum Noack. En að
gamni slepptu er ekki annað eftir
en að hvetja fólk til að sækja org-
eltónleika sem verða daglega í
kirkjunni alla þessa viku, ekki bai-a
í Langholtinu, heldur í Neskirkju
líka, skoða hljóðfærin og hlusta á
þau og njóta þessa viðburðar í ís-
lensku tónlistarlífi.
Bergþóra Jónsdóttir.
Fjölbreyttur og fallegur tónn
TÓNLIST
IVeskirkja
Einleikstónleikar
Anders Bondeman Iék verk eftir Jó-
hann Sebastian Bach, César Franck
og Otto Olsson og lauk tónleikunum
á að spinna af fíngrum fram yfir
gamalt sálmalag sem hann fékk af-
hent rétt þegar tónleikarnir hófust.
Sunnudag kl. 20.30.
HLJÓMBURÐUR Neskirkju
hefur verið bættur töluvert og
einnig gerðar miklar breytingar á
kór kirkjunnar, m.a voru fjarlægð-
ar svalir þær sem gamla Kemper-
orgelið og kirkjukórinn voru áður
staðsett. Nýja orgelið er niðri á
gólfi og nýtir hæðina frá gólfi og
jafnhátt upp og rými gamla orgels-
ins leyfir og fær þar með meiri hæð
og betra pláss en áður. Ekki get ég
betur séð en að þessi breyting sé
eingöngu af hinu góða.
Anders Bondeman er organisti
við St. Jacobs-kirkjuna í Stokk-
hólmi og prófessor { spuna
(improvisation) við Konunglega
tónlistarháskólann og meðlimur
Konunglegu sænsku tónlistaraka-
demíunnar. Bondeman er frábær
orgelleikari sem virkilega kann að
nýta sér kosti orgelsins og láta tón-
listina lifa og hljóma skýrt hvort
heldur er í Hallgrímskirkju (17.
sept.) eða Neskirkju. Bondeman er
mikill kennari og hefm- án efa verið
að sýna tónleikagestum á þessum
vígslutónleikum hvaða möguleika
og fjölbreytni orgelið hefur og það
tókst honum svo sannarlega.
Talið er að Bach hafi samið
prelúdíuna og fúguna í h moll BWV
544 á árunum 1727-31 en þá starf-
aði hann í Leipzig. Bondeman lék
verkið með yfirvegaðri túlkun og
sýndi að auðvelt er að „registrera"
Bach fallega á orgel Neskirkju með
skýi-um og tærum barokkhljóm,
jafnt í sterku spili sem veiku og
einnig að gott jafnvægi er á milli
hljómborðanna. Ef til vill má segja
að hann hafi breytt full oft um reg-
istur en trúlega hefur það verið
vegna sérstöðu tónleikanna.
Næst á efnisskránni var róman-
tískt verk eftir C. Franck. Franck
var organisti við St. Clotilde-kirkj-
una í París í tæp 40 ár. Franck
samdi orgelverk sín mjög seint á
lífsleiðinni og hina 3 orgelkórala
sína samdi hann árið sem hann dó
eða 1890. Bondeman lék hér hinn
fyrsta í E dúr. Þessir kóralar eru
ekki samdir yfu’ ákveðið sálmastef
eins og hjá Bach og flestum öðrum
tónskáldum heldur yfir sjálfstæða
laglínu sem Franck samdi sjálfur.
Hér kvað við allt annan tón í orgel-
inu, hinn létti barokktónn sem hafði
hljómað rétt áður hvarf og nú birt-
ist sannur rómantískur tónn, þykk-
ur og ákveðinn principalhljómur en
samt mildur og fallegur. í þessu
verki sýnir orgelið mest allan skala
styrkleikans allt frá því veikasta til
hins sterkasta. Hér spilaði
Bondeman af mikilli yfirvegun og
tónlistin náði að fljóta um húsið og
hinn rómantíski tónblær orgelsins
naut sín til fulls. Næst komu svo lít-
il verk eða orgelkóralar yfii- 6
gamla gregorshymna eftir sænska
organistann Otto Olsson. Olsson
var organisti við Vasakirkjuna í
Stokkhólmi 1908-56 og eftir hann
liggja mörg kirkjuleg verk bæði
fyrir orgel og kór svo og stór hljóm-
sveitarverk.
Trúlega hefur Bondeman valið
þessa orgelkórala til flutnings til að
kynna orgelverk Olssons og ekki
síður til að sýna getu og fjölbreyti-
leika orgelsins. Hér naut hinn róm-
antíski hluti orgelsins sín virkilega
og ennig sannaðist að veikari raddir
orgelsins eru virkilega vel heppnað-
ar, syngjandi fiauturaddir á báðum
borðum, hinn sérstæða
bjöllugamba og mjúki kornettinn í
efra borðinu. Hér kom einnig í ljós
að bæði borðin eiga fallegar sól-
óraddir og einnig að undirleiks-
raddir beggja borðanna standa
fyllilega fyrir sínu.
Að lokum spann Bondeman af
fingrum fram litla orgelsynfoníu yf-
ir sálmalagið Faðir á himna hæð. Á
tónleikum í Hallgrímskirkju 17.
sept. spann Bondeman yfii- tvö lög
sem hann fléttaði saman. Þar
spann hann meira í frönskum stíl
og notaði sér kraft og stærð orgels-
ins svo og hljómburð kirkjunnar.
Þar notaði hann ekki síður hrynj-
anda laganna til að búa til stef. I
Neskirkju spann hann á allt annan
hátt og sýndi hvað eitt lítið lag get-
ur orðið stórt í einfaldleika sínum.
Hér notaði hann tónstef til upp-
byggingar og voru útfærslurnar
fjölbreyttar, einfaldur orgelkórall,
orgelkórall í stíl Bachs, barokk-
fúga, og nútíma útfærsla svo eitt-
hvað sé nefnt og endaði svo spuna
sinn á fullu verki sem kallað er, þ.e.
hann notaði flest allar raddir org-
elsins.
Nýa Noack-orgelið hefur 33
raddir sem skiptast á tvö hljómborð
og fótspil og það er ekki ástæða til
annars en að óska organista og
söfnuði Neskirkju til hamingju með
hljóðfærið og vona að það eigi eftir
að verða öllum til gleði og ánægju
bæði í kirkjulegum athöfnum og til
tónleikahalds. Gaman hefði verið ef
efnisskrá tónleikanna hefði gefið
einhverjar upplýsingar um orgelið
svo sem hver er orgelsmiður og op-
usnúmer, að maður tali ekki um
raddaval og hjálpartæki svo sem
kombinasjónir og tengingar. En
þetta er smáatriði sem má bjarga
fyrir næstu tónleika.
Jón Ólafur Sigurðsson
Grafíkverk
í Bflar
og list
NÚ stendur yfir sýning á grafík og
ljósmyndacollace Önnu G. Torfa-
dóttur í sýningarsal Bflar og list,
Vegamótastíg 4.
Sýningu sína nefnir Anna Mað-
ur og land og segir í fréttatilkynn-
ingu að viðfangsefnið, sem hún
notaði við undirbúning sýningar-
innar, byggist á jafnvægi milli
manns og lands. Hvernig maður-
inn getur sameinast landinu í
hugsun, orði og athöfn, numið
skilaboð um veður, atburði og ann-
að sem ýmsum er hulið.
Anna G. Torfadóttir stundaði
nám í Myndlista-og handíðaskóla
Islands, vefnaðarkennara- og graf-
íkdeild, og í Myndlistaskólanum í
Reykjavík, grafík. Hún hefur hald-
ið sýningar hér heima og erlendis
og verk eftir hana prýða opinberar
stofnanir hér heima og erlendis.
Sýningin er opin virka daga kl.
10-18, laugardaga kl. 10-16 og
stendur til 24. september.
Anna er einnig með sýningu á
veitingastaðnum Við fjöruborðið á
Stokkseyri.
---------------
Píanó-
tónleikar í
Stykkishólms-
kirkju
JÓNAS Ingimundarson heldur
tónleika miðvikudagskvöldið 22.
september kí. 20.30 í Stykkis-
hólmskirkju.
Á efnis-
skránni eru
tvö verk eftir
Ludwig van
Beethoven og
valsar eftir
Fredryk
Chopin.
Beethoven
samdi 32
sónötur fyrir
píanó á
starfsferli
sínum sem
sýna mjög vel
þá miklu breidd sem tónskáldið
hafði yfir að búa í listsköpun sinni,
má segja að sónöturnar fyrir píanó
séu eins konar ævisaga hans í tón-
um, segir í fréttatilkynningu.
Jónas mun að þessu sinni leika þá
fyrstu sem Beethoven samdi um
tvítugt og þá síðustu sem samin
var á síðustu æviárum hans. Chop-
in samdi 19 valsa og mun Jónas
leika 14 þeirra.
Jónas
Ingiraundarson
Orgelhátíð
í Langholtskirkju
21. sept. kl. 20.00 - Kór/orgeltónleikar:
Kór og Gradualekór Langholtskirkju.
22. sept. kl. 20.00 - Orgeltónleikar:
Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju.
23. sept. kl. 20.00 - Orgeltónleikar:
Jón Stefánsson, organisti Langholtskirkju.
26. sept. kl. 17.00 - Orgeltónleikar:
Prófessor Michael Radulescu frá Vínarborg.
Hádegistónleikar - opið hús þriðjudag 21. til
föstudags 24. sept. kl. 12 - 12.30.
Hádegistónleikarnir eru ókeypis.
Aðgangseyrir á kvöldtónleikana er 1.000 kr.
Geymið auglýsinguna
STOR UTSALA
UM ALLT LAND
útivistar & vinnufatnaður
66°N Skúlagötu 51 Reykjavík • Akureyri • Vestmannaeyjum
Hafnarbúðin ísafirði • SÚN Neskaupstað • Skipaþjónusta Esso Ólafsvík
Vélsmiðja Hornafjarðar • Skeljungsbúðin Keflavík