Morgunblaðið - 21.09.1999, Side 51

Morgunblaðið - 21.09.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 51 þeim myndir af börnunum mínum. Þá sagði Hulda: „Stebbi, nú verður þú að gangast í jiað að Gréta fái betra húsnæði. Eg ætla ekki að deyja fyrr en það er gengið í garð.“ Við Stefán horfðumst í augu - Hulda lést tveimur vikum síðar. Þessi sam- verustund er mér ógleymanleg, er hægt að gleyma svona orðum dauð- vona konu? Stefán stóð við orð sín og um það bil ári síðar flutti ég í íbúð sem mér var úthlutað af húsnæðis- nefnd Reykjavíkur. Eg lít svo á að þar hafi Stefán lagt sitt af mörkum og stutt umsókn mína við ráðamenn. Eg er þakklát íyrir kynni mín af þeim hjónum. Vegna fjarveru minn- ar í dag kvaddi ég jarðneskar leifar Stefáns við kistulagningu sem fram fór þ. 14. september sl. Ég bið Guð að blessa minningu þeirra og að þau njóti hvíldar í friði. Gréta Óskarsdóttir. Fallinn er frá Stefán Þ. Gunnlaugs- son; góður drengur og dyggur sjálf- stæðismaður af eldri kynslóðinni. Ég kynntist Stefáni þegar ég var sjálfur að hefja störf með Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fyrir um tíu árum. Stefán var áberandi í öflugum hópi, sem starfaði undir merkjum Málfimdafé- lagsins Óðins í Sjálfstæðisflokknum. Við ungu mennimir áttum margvís- legt samstarf við Óðinsmenn, jafnt í kosningabaráttu sem og innra starfi flokksins. Töluverður aldursmunur var á okkur Heimdellingunum og mörgum Óðinsmönnum en vandfund- inn er sá hópur sem var eins traustur félagsskapur og_ laus við kynslóðabil og karlamir í Óðni. Stefán bjó yfir eldmóði og reynslu í ríkum mæli, sem hann var ætíð reiðubúinn að miðla af og er óhætt að segja að hann hafi þannig víkkað sjóndeildarhring okkar unga fólksins. Stjómmálaskoð- anir Stefáns mótuðust á miklum um- brotatímum þegar þjóðfélagið tók meiri breytingum á nokkmm áratug- um en það hafði áður gert öldum sam- an. Stefán gekk ungur til liðs við Óðin sem var mikilvægur samstarfs- og samkomuvettvangur reykvískra launamanna og þar hlaut hann eld- skím. Um miðja öldina var verkalýðs- hreyfingin óspart notuð í pólitískum tilgangi og var oft harkalega tekist á um völdin í einstökum félögum eða samböndum hennar. Tvær meginiylk- ingar, kratar og kommúnistar, börð- ust um völdin, en þeir, sem vom óflokksbundnir eða fylgdu öðrum flokkum að málum, m'ðu oftar en ekki út undan í starfi verkalýðshreyfingar- innar. Mörgum blöskraði að hreyfing- in væri notuð í þessu skyni og var Málfundafélagið Oðinn ekki síst stofn- að til að berjast gegn þessu óréttlæti. Sjálfstæðismenn í verkalýðshreyfing- unni notuðu félagið sem vettvang til að komast til áhiifa í reykvískum verkalýðsfélögum og draga þannig úr ofurvaldi krata og kommúnista. Hinn harðsnúni hópur Óðins- manna hafði oft erindi sem erfiði og smám saman varð það sjaldgæfara að verkalýðshreyfingunni væri beitt í sérpólitískum tilgangi þeirra flokka, sem réðu henni hverju sinni. Þegar Stefán lýsti grjótharðri baráttu þess- ara ára fyrir okkur ungu mönnunum, var ekki laust við að honum þætti kosningabarátta okkar tíma vera hreinasti barnaleikur í samanburði. Er ég raunar ekki frá því að hann hafi saknað vopnaglamursins eins og Egill Skallagrímsson forðum. Þrátt fyrir að Stefán væri dyggur sjálfstæðismaður var hann óhrædd- ur við að gagnrýna það sem honum fannst miður fara í starfi flokksins. Hann var mikill fundamaður og var ófeiminn við að láta rödd sína heyr- ast. Hann vildi gjarnan að tekist væri á um málefnin á almennum flokksfundum og lét ekki sitt eftir liggja í þeim efnum ef honum fannst stefna í daufiegan fund. Hann taldi að flokkurinn væri hinn rétti vett- vangur til að takast á um menn og málefni en vildi að flokksmenn sýndu eindrægni og samstöðu út á við. Engum gat dottið í hug að þar færi maður á níræðisaldri, sem Stef- án gekk um götur, kvikur í hreyfing- um og með gamanyrði á vörum. Stundaglas hans rann út er hann var á skemmtiferðalagi um Vesturland og ef það er ekki að deyja með reisn, kann ég því ekki nafn að gefa. Kjartan Magnússon. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi INGVAR J. HELGASON forstjóri, lést í Reykjavík 18. þ.m. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigríður Guðmundsdóttir, Helgi Ingvarsson, Sigríður Gylfadóttir, Guðmundur Ágúst Ingvarsson, Guðríður Stefánsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Júlía Guðrún Ingvarsdóttir, Áslaug Helga Ingvarsdóttir, Guðrún Ingvarsdóttir, Elísabet Ingvarsdóttir, Ingvar Ingvarsson, Svanhildur Blöndal, Markús Möller, Jóhann Guðjónsson, Gunnar Hauksson, Helga Hrönn Þorleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET ALDA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Brekku, Ingjaldssandi, lést fimmtudaginn 16. september. Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. september kl. 15.00. Útför verður frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 25. september kl. 14.00. Jarðsett verður í Sæbólskirkjugarði sama dag. Fyrir hönd annarra ástvina, Oddbjörn Stefánsson, Árilía Jóhannesdóttir, íris Ósk Oddbjörnsdóttir, Ólafur Jakobsson, Harpa Oddbjörnsdóttir, Árelía Oddbjörnsdóttir, Jakob og Heigi Ólafssynir. t Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSA SIGURÐARDÓTTIR, Bláhömrum 13, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 18. septem- ber. Jarðarförin auglýst síðar. Ingólfur Sveinsson, Halla Hjörleifsdóttir, Páiína Sveinsdóttir, Valgeir K. Gíslason, Ásmundur Sveinsson, Tammy Ryan, Jón Guðlaugur Sveinsson, Jóhanna Siggeirsdóttir, Baldvin Sveinsson, Sigurlína Helgadóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, EINAR G. ÞÓRÐARSON, Vatnsleysu, Vatnsleysuströnd, lést sunnudaginn 19. september. Jarðarförin auglýst síðar. Alice Lid, Geir Einarsson, Laila Park, Halldór Einarsson, Þórunn A. Einarsdóttir, Hannes H. Gilbert og barnabörn. t JÓN GÍSLI HÖGNASON frá Læk, Hraungerðishreppi, andaðist föstudaginn 3. september á hjúkrun- arheimilinu Ási, Hveragerði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðný Guðnadóttir, Hörður Harðarson. + Ástkær faðir okkar, sonur og bróöir, HÖRÐUR ZOPHONÍASSON, lést á Landspítalanum sunnudaginn 19. september. Hrönn Harðardóttir, Erna Harðardóttir, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Zophonías Kristjánsson, Kristján Zophoníasson, Viðar Zophoníasson, Steinunn Zophoníasdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN SNJÓLAUG REYNISDÓTTIR, Engjaseli 70, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 14. september síðast- liðinn, verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 22. september kl. 10.30. Ragnar Þorsteinsson, Reynir Ragnarsson, Halldóra Gísladóttir, Anna Nína Ragnarsdóttir, Þorsteinn Hreggviðsson, Þorsteinn Ragnarsson, Svava Sigurðardóttir, Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, Ingimundur Einarsson, Snorri Ragnarsson, Elínborg Ragnarsdóttir, Michael Clausen, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Valdimar Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðír, tengdamóðir, dóttir, amma og systir, KRSTÍN SÓLBORG ÓLAFSDÓTTIR, Rofabæ 45, Staðarbakka, Snæfellsbæ, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 23. september kl. 13.30. Ingi Arnar Pálsson, Ólafur R. Ingason, Steinunn Rut Ægisdóttir, Eva S. Bjarnadóttir, Arnar Logi, Sonja Lára, Guðrún Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur. + Elskulegur bróðir okkar og mágur, RAGNAR S. GUÐMUNDSSON fyrrv. birgðastjóri hjá Lyfjaverslun ríkisins, Spítalastíg 2, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. september kl. 13.30. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Guðríður Stella Guðmundsdóttir, Þorvarður Guðmundsson, Sigríður Sigbjörnsdóttir, Þorbjörn Guðmundsson. Sigurrós Sigurðardóttir. LEGSTEINAR I rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára Verið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. jj S.HELGASON HF STEINSMIDJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410 f X

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.