Morgunblaðið - 21.09.1999, Síða 53

Morgunblaðið - 21.09.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 53' VIÐAR ALFREÐSSON + Viðar Alfreðs- son, tónlistar- maður, fæddist 26. maí 1936. Hann lést 11. september síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Háteigskirkju 17. september. Aðfaranótt 11. sept- ember féllu fyrstu snjókomin þetta haust í efstu tinda fjalla- kransins sem umlykur Norðfjörð. Morgunn- inn rann svo upp með suðvestan hvössum vindi en hlýju og björtu veðri. Skýjafar var mikið allan daginn og augljós átök í há- loftunum. Þegar leið að kveldi lyngdi og austurhiminninn yfír sjúkrahúsinu á Norðfirði var ægi- fagur í ofanskini kvöldsólarinnar. Það var eins og skaparinn væri að flytja sinfóníu í háloftunum, þar sem skýin, vindurinn og sólargeisl- arnir voru hljóðfærin. Þetta kvöld lést Viðar Alfreðsson tónlistarmað- ur. Atökin í háloftunum þennan dag voru eins og upprifjun á síðasta æviári Viðars, þar sem hann tókst á við erfiða sjúkdóma. í þeirri bar- áttu komu vel í ljós hans eðlislægu kostir, glaðlyndi, ljúflyndi og kímnigáfa. En hljómlist háloftanna gat einnig minnt á lífshlaup Viðars því það var einstakt á marga lund. Þar skipaði tónlistin æðstan sess frá upphafi. Segja má að hann hafi hlotið tónlistarlegt uppeldi því Al- freð faðir hans lék á píanó af snilld þó ómenntaður væri á því sviði og Theodóra móðir hans var söngelsk með eindæmum. Á heimilinu var oft fjör þegar komnir voru söngelskir gestir og var þá títt að hljóðfæra- leikarar slæddust með. Þetta leiddi af sér að öll börnin sjö spiluðu á hljóðfæri þó aðeins tvö þeirra, Við- ar og Sonja, legðu hljóðfæraleik og kennslu fyrir sig sem ævistarf. Við- ar óx upp til að verða frábær tón- listarmaður og naut hann þar auk uppeldisins sinnar eðlislægu tón- listargáfu. Til marks um hana má geta þess, að við Guildhall School of Music and Drama, þai' sem hann stundaði nám, tók hann hæsta próf sem tekið hafði verið í tónheyrn, fékk 97 stig af 100 mögulegum. Þegar leiðir okkar Viðars mágs míns lágu saman árið 1976 bjó hann á Urðarstíg 12 í miðbæ Reykjavík- ur. Þar í litlu húsi undi hann vel sínu piparsveinalífi. Á Urðarstígn- um átti hann um tíma silunga í tjörn í garðinum og mátti á honum skOja að hann stundaði merkilegar rannsóknir á sviði fiskeldis. Honum var annt um þessa vini sína og háði hetjuleg stríð gegn köttum hverfis- ins, sem sýndu þessum búskap ekki tilhlýðilega virðingu. Á þessum árum spilaði Viðar í Sinfóníuhljómsveit Islands sem fyrsti hornleikarþog kenndi í Tón- listarskólanum. I hópi tónlistar- mannanna átti hann sína bestu vini. Um þá talaði hann gjarnan sem hálfguði að mér fannst. Þeir end- urguldu honum það ríkulega ávallt síðan, sumir með því að halda við hann traustu vinasambandi en aðrir með því að vera til staðar þegar hann þarfnaðist þeirra. Og þeir voru fleiri sem voru tO staðar þegar hann þarfnaðist þeirra mest. Meðal þeirra var Alfreð bróðir hans, sem helgaði tíma sinn og krafta í um- hyggju um bróður sinn þetta erfiða veikindaár. Þegar við Theodóra systir hans komum í heimsókn utan af landi og beiddumst gistingar þá sló hann upp veislu og sagði sögur af náms- og starfsárum utan úr heimi. Viðar sagði sögur eins og honum einum var lagið. Hann hélt athygli áheyrandans gjörsamlega með sín- um frábæra frásagnastíl, sem ein- kenndist af glettni og ótrúlegu næmi á athyglisverða eiginleika í fari fólks. Þetta þýddi þó ekki að hann haOmælti fólki. Jafnvel þeir, sem mað- ur vissi að gert höfðu á hlut hans, guldu þess ekki. Og Viðar hafði frá mörgu að segja. Hann dvaldi þrettán ár er- lendis þar sem hann fyrst lærði og síðan starfaði með fremstu tónlistarmönnum álf- unnar á jafnréttis- grunni. Hann var ráð- inn við Sadlers Wells- óperuna í London um fimm ára skeið, lengst af sem fyrsti hornleikari. Síðar spO- aði hann með Utvarpshljómsveit breska útvarpsins, BBC, sem annar hornleikari og kom auk þess víða við sögu í bresku tónlistarlífi á þessum árum. Það hlýtur að hafa verið mikOl fengur að því fyrir Sin- fóníuna er hann fluttist tO landsins árið 1971. Þau voru hins vegar fljót að líða þessi 10 ár sem hans naut við á þeim vettvangi og því miður urðu atvik til þess að hann hvarf úr hljómsveitinni og hringiðu tónlist- arlífs höfuðborgarinnar og flutti út á land. Sem frábær djassari og tónlistar- kennari á Vopnafirði, Húnavöllum en lengst af á Mývatni helgaði hann dreifbýlinu krafta sína meðan heOs- an entist. Fyrh' vini hans í Bret- landi og marga kollega í Reykjavík var þetta eins og að vita af konungi í útlegð frá ríki sínu. Sjálfur var hann aldrei fylhlega sáttur við þessa skipan mála en hann átti erfitt með að fyrirgefa misgjörðir í sinn garð en var þeim mun betri vinur vina sinna. Upp úr 1990 fór að halla undan fæti hjá Viðari í heilsufarslegu til- liti. Á þeim tíma þurfti hann stund- um aðstoð og dvaldi þá oft lang- dvölum á heimili okkar Theodóru. Þau systkin voru sérstaklega náin og greiddist alltaf með einhverjum hætti úr erfiðleikum hans. Þó oft væri hann Ola stemmdur á þessum stundum þá gerði skaplyndi hans það að verkum að hann var alltaf aufúsugestur hjá öllu heimOisfólk- inu á Skorrastað. Minnist ég þess er móðir mín varð sjötug að hann greip til trompetsins um morgun- inn í sumarkyrrðinni, fór út á bæj- arhólinn og spOaði nokkur stef af slíkum krafti að undir tók í fjöOun- um. Viðar settist að hér á Norðfirði og átti hér heima tO hins síðasta. Síðastliðið sumar kenndi hann sér þess meins er lagði hann að velli langt um aldur fram. Hin erfiða sjúkdómslega bugaði hann þó aldrei og hann hélt sinni alkunnu Stofnað 1990 Utfararþjónustan ehf. Rúnar Geirmundsson, útfararstjóri Sími 567 9110 Mimwigarltprt ‘Kmbbtunrmsjelaflsins 5621414 V. Krabbameinsfélagið kímnigáfu bókstaflega fram í and- látið. Hann sagði í gríni við mig fjórum dögum áður en hann dó, að það væri gaman hvað hann væri vinsæll. Það væru bara allir að heimsækja hann. Eg bað hann þá um skýringu á því að ég væri ekki svona vinsæll. Þá svaraði Viðar á ensku: „You are not on the way, my friend." Og þegar hann var nær því orðinn meðvitundarlaus tveim dög- um fyrir andlátið og Vilhelmína systir hans sagðist ætla að skreppa fram og fá sér kaffisopa þá sagði Viðar: „Fáðu þér koníak út í, Villa mín.“ Þetta var öllum vinum hans sem upp á dauðastríðið horfðu ómetanlegt og gerði hann þar með ekki endasleppt við okkur. Viðar hélt alltaf í vonina um bata og átti nokkrar góðar vikur inn á milli stríðanna. I öllum veikindum sínum naut hann frábærrar umönn- unar lækna, hjúkrunarfólks, ætt- ingja og vina. Fyrir það var hann afar þakklátur. Nú þegar minningamar einar standa eftir þá fyllist ég þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast jafn góðum dreng og Viðari Álfreðssyni. Þau kynni láta mig ekki ósnortinn frekar en aðra sem honum kynnt- ust. Það getur enginn ætlað sér þá dul að lýsa lífshlaupi látins manns í einni stuttri minningargrein, hvað þá þegar Viðar á í hlut. Þessar fá- tæklegu línur eru því aðeins brot af því þakklæti sem ég hefði viljað sýna látnum vini með því að minn- ast hans. Guð blessi minningu Við- ars Alfreðssonar. Þórður Júlíusson. Þú fluttir hingað norður í Mý- vatnssveit haustið 1986, þá nýráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Mývatns- sveitar og landsþekktur tónlistar- maður. LQdega hittumst við fyrst þegar ég og sonur minn fórum til að innrita okkur í skólann hjá þér. Með okkur tókst fljótlega góður kunn- ingsskapur og vinátta. Þú hafðir ekki gengið heOl tO skógar og spOað- ir ekkert á þessum tíma. Eg man þegar ég fór tO þín um veturinn og bað þig að leika með okkur í smá- hljómsveit sem átti að sjá um undir- leik fyrir lítinn sönghóp á árshátíð Kísiliðjunnar. Og e.t.v. leika eitt eða tvö lög með okkur að auki. Þú tókst því ljúfmannlega að vera með í und- irleiknum þar sem lítið reyndi á, en sagðist ekki geta lofað meiru. Það yrði að koma í ljós þegar á hólminn kæmi hvort þú treystir þér tO að blása meira. Við æfðum samt nokk- ur lög. Og árshátíðin hófst. Söngur- inn tókst vel og hafði varla hljóðnað þegar þú hófst að spila My Way og laukst því með glæsibrag. Fögnuður áheyrenda var mikOl og þessi stund er mér ógleymanleg. Þú fórst að spOa aftur og við áttum eftir að eiga mai'gar ánægjustundir saman þegar þú hóaðir í gamla félaga til að spOa djass með þér og þá einnig á djass- hátíðum á EgOsstöðum þar sem þú fórst oftar en ekki fremstur í flokki. Eg varð síðar formaður skólanefnd- ar tónlistarskólans og við áttum náið og gott samstarf í nokkur ár. Eg man aOar skemmtOegu sög- m-nar þínar frá ýmsu sem þú upp- lifðir á löngum tónlistarferli. Ekki síst frásagnir af frægðar- og ævin- týraferðinni tO Moskvu með hljóm- sveit Gunnars Ormslevs á heimsmót æskunnar sumarið 1957, þar sem þið unnuð frækOeg gullverðlaun fyr- ir tónhstarflutning ykkar. Og ég* man þegar ég fékk þig til að leika á lokahófi ferðamálaráðstefnunnar sem haldin var í Reykjahlíð haustið 1993. Jón Stefánsson lék með þér á píanó. Þið höfðuð ekkert æft saman en stemmningin var rafmögnuð og trompetleikur þinn reis í hæstu hæðir. Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna. Síðar sagðir þú mér að líklega hefði þér aldrei tekist bet- ur upp en þama eftir að þú fluttir heim frá London. Ég held að þeir sem þarna voru viðstaddir minnist þessa tónlistarflutnings lengi. En það dró að lokum samstarfs okkar L tónlistarskólanum. Þegar á leið myndaðist dálítið bO mOli skóla- nefndarinnar og þín sem okkur tókst því miður ekki að brúa þó að við reyndum. Þú hvarfst á braut. Við hittumst á djasshátíð á EgOsstöðum. Mér datt ekki í hug að handtakið okkar þá yrði okkar síðasta kveðja. Og mér féll þungt að frétta af erfið- um veikindum þínum og hugsaði oft tO þín. Eg á örugglega eftir að hlusta oft á meistaralegan tónlistarflutning þinn á plötunni þinni og spólunni sem þú gafst mér. Kærar þakkir fyrir allar góðu stundimar sem við áttum saman. Ég tníi því að við eigum eftir að" hittast á nýjum vettvangi og nýrri djasshátíð. Þar munu lúðrai- hljóma í hæstu hæðum. Jón Illugason. Morgunblaðið/Arnór Sveit Landsbréfa, sigursveitin í bikarkeppni Bridssambandsins 1999. Talið frá vinstri: Þorsteinn Berg, stjórnarmaður f Bridssambandinu, en hann afhenti verðlaunin, þá bikarmeistararnir Bjöm Eysteins- son, Sigurður Sverrisson, Sverrir Ármannsson og Aðalsteinn Jörgensen. Sveitarforinginn Jón Bald- ursson var ekki til staðar er myndin var tekin. Sveit Landsbréfa bikarmeistari BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson SVEIT Landsbréfa sigraði með nokkrum yfirburðum í bikar- keppni Bridssamþandsins sem lauk um helgina. í sveitinni spil- uðu Jón Baldursson, Aðalsteinn Jörgensen, Sigurður Sverrisspn, Björn Eysteinsson og Sverrir Ár- mannsson. Magnús Magnússon var einnig skráður í sveitina en spilaði ekki. Sveit Landsbréfa spilaði á laug- ardag við sveit Jóhannesar Sig- urðssonar sem kemur af Suður- nesjum. Sunnanmenn áttu aldrei möguleika og töpuðu með 69-156. Svipað vai' uppi á teningnum í hin- um leiknum. Þar vann sveit Strengs sveit Stillingar mjög ör- ugglega. Lokatölur 166 gegn 83. Urslitaleikurinn var svo spilað- ur á sunnudag og byrjaði sveit Strengs vel og vann fyrstu lotuna 30-26. Eftir það var eitt lið á vell- inum og lokatölurnar 146-64 Landsbréfum í vil. I silfurliðinu spiluðu Júlíus Sig- urjónsson, Sveinn R. Eiríksson, Sigurður Vilhjálmsson, Tryggvi Ingason, Ragnar Magnússon og Guðmundur Sveinsson. I fyrra sigruðu Guðlaugur Jó- hannsson, Örn Arnþórsson, Ás- mundur Pálsson, Jakob Kristins- son og Aðalsteinn Jörgensen bik- arkeppnina þannig að Aðalsteinn einn spilara varði bikarmeistara- titil sinn. Sveit Landsbréfa hefir a.m.k. þrisvar áður orðið bikai'- meistai-i. Það vai' 1990, 1991 og 1996 en forsvarsmaður sveitarinn- ar, Jón Baldursson var fyrst bik- armeistari fyrir 16 árum eða árið 1983. Keppnisstjóri vai’ Jakob Krist- insson, mótsstjóri Stefanía Skarp- héðinsdóttir og Þorsteinn Berg af- henti verðlaun í mótslok. Bridsfélagið Muninn Sandgerði Miðvikudaginn 15. september hófst þriggja kvölda tvímenningur hjá félaginu og er staða efstu para þessi. Svala Pálsdóttir - Svavar Jensen 127 ÓliÞ.Kjartansson-GarðarGarðarsson 124 Þröstur Þorláksson - Birkir Jónsson 123 Gunnar Guðbjömsson - Kjartan Ólason 120 Miðlungur er 109. Þar sem gilda tvö kvöld af þremur eiga fleiri möguleika á að koma og farið nú að láta sjá ykk- ur. Þess má geta að það er breyttur tími og hefst spilamennska kl. 19.30. Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 16.9. var spilað- ur eins kvölds tvímenningur og mættu 14 pör. Lokastaðan: Sigurður Sigurjónsson - Ragnar Bjömsson 176 Georg Sverrisson - Bernódus Kristinsson 173 Garðar V. Jónsson - Loftur Pétursson 165 BirgirÖ.Steingrímsson-ÞórðurBjömsson 164 Meðalskor var 156 Fimmtudaginn 23.9. hefst þriggja kvölda tvímenningur Ca- talínu-mótið. Allir spilarar eru hvattir til að mæta, spilað er í Þinghóli í Kópavogi og hefst spila- mennska kl. 19.45. Fréttasendingar í bridsþáttinn Að venju mun bridsþátturinn taka við og birta helztu fréttir bridsfélaganna, þ.e. þeirra sem þess óska. Einu skilyrðin sem um- sjónarmaðurinn setur er að föður- nafn fylgi nöfnum spilai-anna. Senda má fréttirnar á póstfaxi og er númerið 569-1181 eða í tölvupósti en þar er sendingin norir@mbl.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.