Morgunblaðið - 21.09.1999, Page 66
H£6 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÚTSÝNIÐ var ekki af verri endanum.
Ævintýraferð á Langjökul
SÓLIN skein glatt á jöklinum og bjuggu
menn sig undir ferðina með sólarvörn.
KULDATREKKURINN var meiri en Þjóð-
veijarnir áttu að venjast sem sumir voru að
koma úr 30 stiga hita.
KVIKMYNDATÖKUMENN voru á ferð og
flugi um jökulinn.
DANSINN dunaði upp á jökli og er eins og 12 metra hár ísbjörn í baksýn taki þátt í honum,
NÁTTÚRUIEGT
MEÐ RÓSABERJUM
RÚTÍN OG
BíOFLAVÓNÍÐUM
100 töflaí'
Náttúrulegt
C-vítamín
eilsuhúsið
Skðlavöröustíg, Kringlunnl, Smáratorgi
Morgunblaðið/Golli
KRÆSINGARNAR biðu Þjóðverjanna í veislutjaldi á Langjökli.
Dansað í
snjónum
STEMMNINGIN var með besta
móti á Langjökli síðastliðinn
föstudag þegar 100 fjörmiklir
Þjóðveijar voru ferjaðir upp á
jökulinn þar sem beið þeirra 12
metra hár ísbjörn, dýrindis hlað-
borð ásamt léttum veitingum í
sannkölluðu veislutjaldi og plötu-
sniíðar utan úr heimi sem spiluðu
fyrir dansi í snjónum.
Starfsmenn Langjökuls ehf.
höfðu lyft sannkölluðu grettistaki
um nóttina þegar þeir komu upp
tjaldbúðunum þrátt fyrir hávað-
arok uppi á jöklinum og var lengi
útlit fyrir að dansveislan gæti að-
eins farið fram í skálanum. Plöt-
usnúðar komu sér einnig fyrir við
skálann og léku fyrir dansi.
I lok dagsins var haldin flug-
eldasýning og svo var haldið í
bæinn enda næturlífið framund-
an. A laugardagskvöld skemmti
hópurinn sér svo á skemmtistað-
num Astró ásamt fjölinörgum ís-
lendingnm sem boðið hafði verið
til veislunnar. Fulltrúar
sjónvarpsstöðvanna RTL og MTV
fylgdust grannt með Islandsferð-
inni, sem farin var til kynningar
á Puschkin-vodka, og einnig
fjölmargir ljósmyndarar er-
lendra Qölmiðla, m.a. Pent-
house.„Það kom okkur skemmti-
lega á óvart hversu vel þetta
tókst þrátt fyrir erfiðar aðstæður
eins og oft vill verða í september.
Okkur fannst gaman að sjá hvað
þetta unga fólk hafði ofboðslega
gaman af þessu þrátt fyrir kulda
og rok; það var afskaplega já-
kvætt,“ sagði Þór Kjartansson,
framkvæmdasljóri Langjökuls
ehf.
Hann segir mikla vinnu hafa
legið í ísbirninum. „Snjórinn á
jöklinum er mjög grófkristallað-
ur og erfitt að binda hann saman
á þessum árstíma þannig að við
höfðum notað hálfan mánuð til að
hnoða saman 14 metra háum
siijóhóii. Svo tók það fjóra
austurríska listamenn með að-
stoð snjótroðara 10 daga að búa
til listaverkið og var með ólíkind-
um hvað þeir gátu gert. Við hefð-
um aldrei trúað að þetta væri
hægt, jafnvel við verstu aðstæð-
ur. Þeir lentu í snjókomu, rign-
ingu, roki og sól inn á milli en
samt tókst þetta. Það var synd að
ísbjöminn aflagaðist að hluta
þegar að deginum kom en tignar-
legur var hann engu að síður.“