Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
O H-2b
Smáfólk
YE5,MAAM,HE 5 MY
D05.. P065 CAN'í TAKE
DANCE LE5SON5?
'—ur
THEN I 6UESS
WE'LL HAVE
T0 60 HOME.,
U)E HAVE SORTOF AN
A6REEMENT..HE 60E5
WHERE I 60, AND I 60
WHERE HE GOES..
-----uc
EXCEPT UIHEN HE S
FLVIN6, BUT DON'T A5K
ME TO EXPLAIN THAT..
Já, kennari, þetta er
hundurínn minn. Geta hundar
ekki farið í danstíma?
Þá verð ég
víst að fara
heim.
Við höfum eins konar sam-
komulag. Hann fer þangað
sem ég fer og ég fer
þangað sem hann fer.
Nema þegar hann flýgur,
en biddu mig ekki um að
útskýra það..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Tónlistarviðburður
í Skálholti
Frá Birni Jónssyni:
UM ÁRATUGA skeið hafa verið
haldin á vegum söngmálastjóra
Þjóðkirkjunnar námskeið fyrir
kirkjukóra og
orgamsta í Skál-
holti. I lok hvers
námskeiðs er svo
fjölbreyttur tón-
listarflutningur í
Skálholtskirkju
ásamt guðsþjón-
ustu. Oft hefir sá
sem þessar línur
lætur írá sér fara
Björn lagt leið sína í
Jónsson Skálholt til þátt-
töku í þessum lokaþætti námskeiðs-
ins, sem vel mætti nefna „uppskeru-
hátið“, að hætti íþróttamanna.
Merki-a tónlistarviðburða er jafn-
an getið í blöðum og um þá fjallað af
kunnáttufólki og fer vel á því. En
stundum hefir það vakið undrun
mína, að aldrei hefi ég séð einn ein-
asta stafkrók í neinu dagblaði, þar
sem fjallað er um eða getið þeirra
afreka, sem innt eru af hendi á tón-
listarsviðinu á þessum námskeiðum.
Þessu sinni fór námskeiðið fram
dagana 19.-22. ágúst síðastliðinn.
Var það bæði fjölsótt og vel heppnað
í alla staði, ekki síður en á hðnum
árum. Sumir höfðu jafnvel á orði, að
það hefði aldrei' tekist jafnvel. Á
sunnudeginum 22. ágúst voru að
venju tónleikar og guðsþjónusta.
Tónleikarnir, sem hófust kl. 13, voru
bæði fjölbreyttir og hrífandi. Ekki
er það ætlun mín að fjalla um ein-
staka þætti og listrænan flutning
þeirra, enda hvorki þekking eða
hæfni til þess hjá mér. Hinn fjöl-
menni kór þátttakenda í námskeið-
inu var voldugur, fagur og fagnaðar-
fullur. Hljóðfæraleikur, bæði undir-
leikur og einleikur, var frábær, en
mest hreif mig þó fiðluleikur Rósu
Jóhannsdóttur og Guðmundar Páls-
sonar og síðast en ekki síst einsöng-
ur Margrétar Stefánsdóttur. Guðs-
þjónustan var látlaus og hátíðleg.
Minnileg prédikun vígslubiskupsins
og fáguð altarisþjónusta, sem féll vel
að helgi Skálholtsdómkirkju. Kirkj-
an ómaði af söng hins fjölskipaða
kórs. Hjá því gat vart farið, að hinn
almenni kirkjugestur væri sem haf-
inn í hæðir á vængjum söngs og
tóna. Svo var mér a.m.k. farið. Hæst
fannst mér kórinn ná í söng síðasta
sálmsins: „Minn herra Jesús, hvert
fer þú?“ Það var ógleymanleg stund.
Þá get ég ekki stillt mig um að
minnast á tvo nýja sálma, sem
sungnir voru í guðsþjónustunni:
„Drottinn þú varst og verður“,
norskt verðlaunalag vegna 2000 ára
hátíðar eftir Svein Möller, við texta í
lauslegri þýðingu frú Rósu B. Blön-
dals. Bæði lag og ljóð hrífandi fag-
urt, og „Drottinn dýrðarinnar",
sálmur við altarisgöngu við texta
eftir sr. Heimi Steinsson. Heim-
sóknin í Skálholtskirkju þennan dag
var sannkölluð andans upplyfting,
sálarnæring og sálubót, sem sá er
fékk að njóta, hlýtur að búa lengi að.
Fram í hugann kemur saga, sem
einn af fremstu söngmönnum í
prestastétt (nú látinn) sagði mér ein-
hverju sinni. Á sínum yngri árum var
hann þjónandi í fremur afskekktu
prestakalli úti á landsbyggðinni. Ná-
grannapresturinn, sem einnig var
mikill og einlægur tónlistarunnandi,
var orðinn mjög við aldur. „Einu
sinni kom ég og messaði hjá honum,“
sagði viðmælandi minn. „Eftir messu
var gamli maðurinn innilega þakklát-
ur, hrifinn og hrærður, klappaði mér
öllum og sagði: „Þetta var nú á við
sjö messur!“„
Svipað mætti segja um stundina í
Skáíholtskirkju að breyttu því sem
breyta þarf. Hún var á við marga
tónleika og margar messur. Aug-
ljóst var, að mikill undirbúningur og
mikið starf lá að baki þeirrar ríku-
legu uppskeru, sem þar var á borð
borin. Þar á söngmálastjóri, Haukur
Guðlaugsson, og starfslið hans,
ómældar þakkir þjóðar og kirkju.
Hugheilar þakkir, með ósk um
blessun og blómgun því tónlistar-
starfi, sem söngmálastjóri Þjóð-
kirkjunnar hefir með höndum og
vinnur að.
BJÖRN JÓNSSON,
Akranesi.
Tölvunefnd víki
Frá Jóhannesi Tómassyni:
EFTIRFARANDI bréf hefur verið
sent Sólveigu Pétursdóttur dóms-
málaráðherra og umboðsmanni Al-
þingis.
Fyrirtækið deCode (íslensk
erfðagreining) hefur starfað að heita
má eftirlitslaust á íslandi sl. 3-4 ár.
Einungis tvær opinberar eftirlits-
nefndir hafa lagt takmarkaðar höml-
ur á starfsemi fyrirtækisins, sem
hefur annars vaðið á skítugum skón-
um yfir heilbrigðiskerfi Islendinga í
samstarfi við svokallaða samstarfs-
lækna. Fyrr eða síðar mun koma að
því, að krafist verður opinberrar
rannsóknar á starfsemi fyiirtækis-
ins og samstarfslæknanna. Þeir
tveir aðilar, sem hafa haft eftirlit
með fyrirtækinu, eru annars vegar
vísindasiðanefnd og hinsvegar
Tölvunefnd. Heilbrigðisráðherra
vék, eins og frægt er orðið, vísinda-
siðanefnd frá störfum, þegar nefnd-
in hugðist loks taka sig til og bæta
eftirlit sitt með fyrirtækinu. Ég hef
á sl. 1(4 ári haft talsverð samskipti
við fyrrverandi Tölvunefnd, sem var
undir stjórn Þorgeirs Örlygssonar,
og mér er vel kunnugt um misbresti
í eftirliti nefndarinnar með íslenskri
erfðagreiningu. Raunar hef ég þeg-
ar vísað tilteknu erindi til ríkissak-
sóknara til frekari skoðunar. Nú
hafa hinsvegai- þau ósköp gerst, að
nýskipuð Tölvunefnd undir stjórn
Páls Hreinssonar hefur gert sig
seka um þvílík mistök, að ekki verð-
ur við unað. Öryggi sjúklinga má nú
heita í fullkomnu uppnámi. Ég
krefst þess því af yður að þér víkið
þegar í stað nýskipaðri Tölvunefnd
frá störfum. Ljóst er að hún mun
aldrei geta notið trausts eftir þessi
afglöp.
Virðingarfyllst,
JÓHANN TÓMASSON,
læknir.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.