Morgunblaðið - 09.10.1999, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Skref til að jafna
fæðingarorlof
karla og kvenna
í SETNINGARÁVARPI ráðstefn-
unnar um konur og lýðræði við ár-
þúsundamót sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra að ríkisstjórn Is-
lands hefði ákveðið, í samvinnu við
verkalýðsfélög og samtök atvinnu-
rekenda, að jafna rétt til fæðingar-
orlofs þannig að feður hefðu sama
rétt og mæður að þessu leyti.
Davíð greindi frá því að ríkis-
stjórnin hefði ákveðið að beita sér
fyrir ferns konar úrbótum hér á
landi og nefndi ofangreint fyrst.
Hann vék einnig að því að ríkis-
stjórnin mundi beita sér fyrir sér-
stöku átaki til þess að tryggja að
karlar og konur í þjónustu ríkisins
hefðu jafna möguleika til launa og
starfsframa. I þriðja lagi mundi
ríkisstjórnin auka kennslu um
jafnréttismál í skólum og í fjórða
lagi hygðist ríkisstjórnin kynna
sérstakar aðgerðir til að gera körl-
um og konum betur kleift að sætta
skyldur sínar gagnvart starfí og
heimili. „Með þessum aðgerðum
vonast ríkisstjórnin til þess að
færa íslenskt þjóðfélag enn nær
lýðræðislegum hugsjónum," sagði
forsætisráðherra.
Hann lauk ávarpi sínu á eftir-
farandi orðum: „Við erum komin
hingað til að hlýða á raddir hinna
mörgu þátttakenda sem hér eru
komnir saman frá öllum helstu
sviðum samfélagsins. Með vali
okkar á þátttökuþjóðum vonumst
við til að hlúa að svæðisbundinni
samvinnu í Norður-Evrópu og
byggja um leið brýr til austurs og
vesturs. Fyrst og fremst viljum við
gera konum kleift að gerast
mótendur samfélagsins í sama
mæli og karlmenn. Það er mark-
mið okkar á nýrri öld því við vitum
að án fullrar þátttöku kvenna
stendur lýðræðið ekki undir
nafni.“
Morgunblaðið/Sverrir
Hillary Clinton á Bessastöðum
HILLARY Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, heim-
sótti Ólaf Ragnar Grímsson, forseta íslands, á
Bessastöðum skömmu eftir komuna til Islands síðla
í gær. Ræddust þau frú Clinton og Ólafur Ragnar
saman á tæplega klukkutíma löngum fundi áður en
forsetafrúin hélt til málsverðar í Perlunni. Á fund-
inum ræddu þau um verkefni nýrrar aldar og um
verkefni í tengslum við Iandafundaafmælið og við-
burði í Bandaríkjunum og Kanada. Það mun hafa
komið forseta íslands á óvart hversu góða þekkingu
Clinton hafði á þeim málum. Ennfremur var á fund-
inum fjallað um Island í nútíð og fortíð og um
kvennaráðstefnuna sem nú stendur yfír. Forsetinn
notaði m.a. tækifærið til að sýna frú Clinton þau
málverk, sem hanga uppi á veggjum Bessastaða, og
kynna henni sögu staðarins.
Skiptar skoðanir um sameiningu Orkuveitu og Vatnsveitu
Uppsetning á Aidu í Kaíró
Stefnt að sameiningu
um næstu áramót
BORGARSTJÓRN samþykkti í
fyrrakvöld að Orkuveita Reykja-
víkur og Vatnsveita Reykjavíkur
yrðu sameinaðar í eitt fyrirtæki
undir núverandi kennitölu og
rekstri Orkuveitunnar. Undirbún-
ingur sameiningarinnar hefst þeg-
ar í stað og stefnt er að því að hún
geti formlega átt sér stað um
næstu áramót. Tillaga borgar-
stjóra um skoðun á hagkvæmni
þess að fela sameinuðu veitufyrir-
tæki rekstur fráveitukerfis borg-
arinnar var einnig samþykkt á
Féll átta
metra ofan
af þaki
KARLMAÐUR féll ofan af þaki
nýju Select-verslunarinnar við
Hagasmára í Kópavogi um
hádegisbil í gær. Að sögn lögreglu
var fallið um átta metrar.
Maðurinn hlaut útlimabrot og var
fluttur með meðvitund á slysadeild
að sögn lögreglu og síðan lagður
inn á Landspítalann. Að sögn
læknis var hann ekki í lífshættu
þrátt fyrir beinbrotin.
fundinum. Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins sátu hjá við af-
greiðslu málanna tveggja. Samein-
ing Orkuveitu og Vatnsveitu hlaut
samhljóða samþykki stjórnar
veitustofnana 8. september síðast-
liðinn.
Borgarfulltrúar Reykjavíkur-
listans telja öll rök hníga að því að
eðlilegt og skynsamlegt sé að sam-
eina Vatnsveitu Reykjavíkur og
Orkuveitu Reykjavíkur af stjórn-
unarlegum og fjárhagslegum
ástæðum. Að mati borgarfulltrúa
R-lista hefur verið sýnt fram á að
fjárhagslegur ávinningur af sam-
einingunni nemi 100 til 200 millj-
ónum króna í rekstri á ári og þeir
segja athuganir sýna að mikil hag-
ræðing og sparnaður felist í því að
sameina fyrirtækin undir einu þaki
í stað þess að þau byggi yfir starf-
semi sína hvort í sínu lagi; miðað
við fyrirliggjandi athuganir yrði
sparnaður í húsnæðismálum a.m.k.
500 milljónir króna. Vegna samein-
ingar veitufyrirtækjanna verða
fasteignir veitnanna á Grensás-
vegi, í Ármúla og við Suðurlands-
braut seldar, en fyrirhugað er að
höfuðstöðvar hins sameinaða fyrir-
tækis verði á Eirhöfða/Þórðar-
höfða.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
telja að hagræðingu í rekstri Orku-
veitu og Vatnsveitu megi ná fram
að stórum hluta með öðrum ráð-
stöfunum en sameiningu fyrirtækj-
anna, t.d þjónustusamningum.
Sjálfstæðismenn á móti
breytingunni
I bókun sjálfstæðismanna frá
borgarstjórnarfundinum kemur
fram að veruleg breyting á skipu-
lagi orkumála á Islandi sé fyrirsjá-
anleg á næstu misserum. Stefnt sé
að því að skapa skilyrði fyrir sam-
keppni í vinnslu og sölu raforku en
það muni leiða til þess að hlutafé-
lagaform taki við í auknum mæli af
núverandi rekstrarformi. Með
væntanlegri samþykkt frumvarps
iðnaðarráðherra um raforkumál
sem kynnt hefur verið og byggir á
tilskipun EES sé fyrirsjáanleg
uppstokkun hjá Orkuveitu Reykja-
víkur svo að fyrirtækið geti mætt
nýjum aðstæðum og kröfum. Borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
telja að sameining Vatnsveitu og
Orkuveitu muni gera það ferli
flóknara en ella þar sem fyrirtækin
búi við gjörólíkt lagaumhverfi.
Borgarfulltrúar R-listans telja þá
staðreynd að vatnsveita telst til
skylduverkefna sveitarfélaga og
býr því við lagaumhverfí ólíkt raf-
og hitaveitu hins vegar ekki hindra
sameiningu fyrirtækjanna.
Kristján syngur
hlutverk Radamesar
KRISTJÁN Jó-
hannsson ópem-
söngvari er þessa
dagana staddur í
Kaíró í Egyptalandi
þar sem fyrir dyr-
um stendur ein
viðamesta upp-
færsla á óperanni
A'ídu eftir Verdi.
Kristján syngur
hlutverk Radames-
ar en hlutverk A'ídu
syngur hin franska
Sylvie Valayre og
sljórnandi er ítal-
inn Giorgio Croci.
„Framsýningin verður hinn
12. október og síðan verða sex
sýningar á jafnmörgum dög-
um og við skiptum með okkur
sýningunum, ég og ítalski ten-
órinn Nicola Martinucci,"
sagði Kristján í samtali við
Morgunblaðið. „Það eru ferða-
málayfirvöld hér í Egypta-
landi sem standa að þessari
sýningu og ekkert er til spar-
að. Hér hefur verið safnað
saman stóram hópi alþjóð-
legra listamanna og í allt taka
nokkur þúsund manns þátt í
þessu verkefni. Á sviðinu
verður t.d. 500 manna egypsk-
ur her og áhorfendapallar
hafa verið reistir hér innan
um píramídana fyrir 7 þúsund
manns. Mér skilst
að þegar sé búið
að selja um 40
þúsund miða,“
sagði Kristján.
Að sögn Krist-
jáns hefur öll
áhersla verið lögð
á að gera þessa
sýningu sem
glæsilegasta og á
næsta ári verður
hún tekin upp á
myndband til al-
þjóðlegrar dreif-
ingar. „Þetta á að
verða sýning ár-
þúsundamótanna, glæsilegri
en nokkur þeirra A'ídu-sýn-
inga sem færðar hafa verið
upp til þessa,“ sagði Krislján.
Þess má geta að Kristján er
væntanlegur til íslands í febr-
úar til að syngja hlutverk
Radamesar í konsertupp-
færslu Sinfóníuhljómsveitar
Islands undir stjórn Ricos
Saccanis í LaugardalshöIIinni.
Frá Kaíró heldur Kristján
til New York þar sem hann
syngur í Tosca í Metropolitan-
óperanni og kvaðst hann vera
spenntur fyrir því. „Ég er bú-
inn að syngja í Tosca yfír 150
sinnum en þetta er í fyrsta
sinn sem ég syng hlutverkið í
Metropolitan óperunni.“
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
Frakkar ætla sér að
skora strax / B3
ÍBV og Víkingur gerðu
jafntefli í Eyjum / B7
í dag
10 Liístlil
ALAUGARDOGUM
LLaDl>i\