Morgunblaðið - 09.10.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999
UMRÆÐAN
Geysir - goshver
eða heit laug
ÞAÐ er merkilegt
umhugsunarefni
hversu oft orðið EKKI
kemur fyrir í fyrir-
sögnum að viðtölum
við ráðamenn þegar
rætt er um Geysi í
Haukadal. Til dæmis:
„Ekki réttlætanleg
áhætta að bora.“ (Mbl.
31.7. ‘97.)
„Ekki forsendur fyr-
ir gosi í sumar.“ (Mbl.
28.6. ‘98.)
Það var sagt hér áð-
ur fyrr að það væri
aumt að deyja ráða-
laus. Það virðist samt
eiga að verða hlut-
skipti frægasta goshversins í heim-
inum.
Orðið „ekki“ kemur þó ekki fyrir
í fyrirsögninni að nýjustu greinar-
gerðinni sem bu*tist í Morgunblað-
inu 5. september 1999. Þar líkir
Helgi Torfason jarðfræðingur
Geysi við eldfjallið Heklu og spyr
hvort það að Geysir gýs ekki þessa
dagana sé merki þess að hann sé
ekki goshver. Þetta er ótrúleg sam-
líking frá jarðfræðingi. Ég hélt að
þeir reiknuðu oftar tímasetningu
eldgosa í öldum en klukkustundum.
Er Hekla ekki eldfjall ef hún gýs
ekki daglega? Það er alrangt hjá
Helga að ég hafi lagt til að steypa í
gosæð Geysis. Ég hef aldrei minnst
á slíka fjarstæðu og mun aldrei
leggja til að slíkt verði gert. Ég hef
sagt að ef of mikið vatn kæmi inn í
holu sem boruð væri í Geysi væri
hægt að tempra rennslið með því að
steypa þrengsli í holuna, það er allt
annað mál.
í blaðagreininni segir Helgi:
„Geysir er í dag sjóðandi vatns-
hver og úr honum renna tæpir 2
lítrar á sekúndu af um 100°C heitu
vatni.“
Þetta er því miður ekki rétt. Ef
frárennslið væri um 100°C heitt
myndi Geysir gjósa daglega. Það
kom í ljós með mælingum sem ég
gerði ásamt Sigurði V. Hallssyni
efnaverkfræðingi 1959
að Geysir gat þá gosið
án sápu ef hitastig
vatnsins í skálinni fór
yfir 94°C. Þetta sýnir
að ef innrénnslið væri
aukið svo að áhrif kæl-
ingarinnar frá yfir-
borði vatnsins minnk-
aði nóg til þess að hita-
stigið væri 94°C eða
hærra í skálinni myndi
Geysir gjósa daglega
eða oftar án sápu.
Hitastigið í frárennsli
Geysis er nú sennilega
um 90°C eða lægra.
Ég hef lúmskt gam-
an af því að þeir sem
eru á móti borun í Geysi í Haukadal
óttast að það gæti valdið því að
Strokkur hætti að gjósa. Ég vil
Hverasvæði
Við getum enn, segír
Isleifur Jónsson, gert
Geysi í Haukadal var-
anlega virkan goshver
fyrir árið 2000.
leyfa mér að benda á að Strokkur
er í dag „mannvirki" samkvæmt
skilningi Helga í fyrrnefndri blaða-
grein. Aðalmunurinn á Strokki og
goshvernum Strók á Öskjuhlíð er
sá að stálrörið nær alla leið upp í
yfirborð Stróks en fóðurrörin voru
tekin í burtu þegar borað var í
Strokk 1963 til að gera hann virkan
eftir að hann hafði verið óvirkur í
hálfa öld. Nú halda menn að
Strokkur hætti að gjósa ef borað
væri í Geysi og harma það mjög.
Þegar borað var í Strokk hafði það
engin áhrif á Geysi svo að ég sé
engin rök fyrir því að fullyrða að
bonm í Geysi myndi eyðileggja
Strokk. Þeir fá ekki vatnið úr sömu
sprungunni.
Það eru algjörir sleggjudómar að
halda því fram að borun í Geysi sé
óbætanleg eyðilegging á hvernum.
Sér einhver för eftir borinn sem
notaður var til þess að bora í
Strokk?
Það þarf að byggja burðargrind
undir borinn yfir Geysi svo að hægt
sé að koma honum fyrir. A meðan
borinn er yfir hvernum þarf að
dæla í hann köldu vatni svo að ekki
sé hætta á að hann gjósi á meðan á
borun stendur til að gera mönnum
fært að vinna yfir hvernum. Þetta
er nauðsynleg öryggisráðstöfun.
Borunin sjálf myndi byrja á 18m
dýpi og rörin tekin burtu að borun
lokinni. Það sjást engin ummerki á
yfirborðinu þegar borinn hefur ver-
ið fjarlægður. Borun í Geysi eins og
ég hef lagt til hefur engin áhrif á
gosrásina eins og hún er í dag. Það
vill svo til að gosrásin hallast til
suðausturs líklega um 3-4°. Það er
alþekkt að gosstrókur Geysis hall-
ast alltaf til suðausturs þegar hann
gýs. Menn geta staðið mjög nærri
hvernum á norðvesturbakkanum
þegar hann er í gosi. Borholan
myndi byrja í hallandi klöpp sem er
í 18m dýpi og að öllum líkindum
fjarlægjast núverandi aðrennslis-
sprungu þegar neðar kemur.
Hugmynd mín er því að búa til
nýja innrennslisæð í Geysi til hliðar
við þá gömlu. Holunni er ætlað að
opna leið inn í nýja sprungu og
auka þannig rennslið inn í hverinn.
Núverandi innrennsli breytist ekki.
Ef hæfilegt rennsli fæst inn í hol-
una myndi það gjörbreyta núver-
andi aðstæðum í hvernum. Hann
myndi aftur geta gosið án sápu.
Hversu oft hann gýs fer alveg
eftir hversu mikið og hve heitt vatn
rennur inn í hverinn. Ég tel að
hæfilegt vatnsmagn úr borholunni
sé um 3-10 1/sek. Stærð og kraftur
gosanna ætti að verða svipaður og
vai’ þegar hann var í essinu sínu
sem frægasti goshver í heimi fyrir
meira en hálfri öld.
Við getum enn gert Geysi í
Haukadal varanlega virkan gos-
hver fyrir árið 2000. Þar er enginn
2000-vandi í veginum.
I dag er Geysir heit laug, ekki
hver. Hverir eru með sjóðandi vatn.
Goshverir gjósa öðru hvoru.
Höfundur er verkfræðingur og
sérfræðingur íjarðborunum.
Isleifur
Jónsson
Hott, hott á hesti
NÚ í sumar mátti
lesa digrar yfirlýsingar
frá landbúnaðarráð-
herra Guðna Ágústs-
syni á síðum dagblað-
anna hér, varðandi sví-
virðilega framkomu
þýskara toUyfirvalda í
garð mörlandans á
heimsmeistaramóti ís-
lenska hestsins, þar í
landi. En þar voru
hestamenn ásakaðir
um gróf tolla- og
skattalagabrot við inn-
flutning á íslenskum
hestum til Þýskalands.
Nú berast fregnir af
því að tollayfirvöld í
Þýskalandi hafi farið ofan í
saumana á innflutningi íslenskra
hesta síðustu tíu ár. Þar mun koma
fram, að meðalverð á hesti sé skráð
20-30 þúsund íslenskar krónur.
Þarf vart að ræða slíkt mál, hvert
einasta mannsbarn veit betur, hér
er ekki skráð rétt verð.
Kemur nú upp í hugan vönduð
opnugrein í Morgunblaðinu 21. júlí
1991, sem var tekin saman af Guð-
mundi Löve. Þar kom fram, að
áætluð skattsvik í hestamanna
væru einn milljarður sjö hundruð
og fjörutíu milljónii’ á ári. Þar af um
fjögur hundruð og fimmtíu milljónir
í sölu á hestum til útflutnings.
Má því ætla að skattsvik hesta-
manna síðastliðin tíu ár séu á bilinu
17 til 20 milljarðar, þar af 4,5 til 5
milljarðar í útflutningssvikum.
Nú má velta því fyrir sér, hvort
nokkur hafi kjark til að
taka málið upp á hinu
háa Alþingi. Þar
mundu landbúnaðar-
ráðherra og fjármála-
ráðherra fá tækifæri
til að skýra frá því,
hvernig þeir ætla að
auka skatttekjur ríkis-
ins með því að inn-
heimta þessa skatta.
Aþingi og ríkis-
stjórn Islands verða að
beita sér í þessu máli.
Þetta er ekkert einka-
mál Islendinga. Hér er
um að ræða heiður
okkar í Þýskalandi og í
Evrópu. Við getum
ekki verið þekktir fyrir, að íslensk
yfirvöld geri ekkert í málinu. Við
viljum ekki, að litið sé á okkur, sem
ómerkilega skatta- og tollalagasvik-
ara. Við viljum ekki láta stimpla
þjóðina, sem Nígeríu norðursins.
Fyrir nokkru örlaði á slíku í fiskút-
Hrossaútflutningur
Alþingi og ríkisstjórn
—? --------------------
Islands verða að beita
sér í þessu máli, segir
Hreggviður Jónsson.
Þetta er ekkert
-----------7-----------
einkamál Islendinga.
flutningi okkar, en forystumenn
þeirrar greinar gengu beint til
verks, ásamt stjórnvöldum og þeir
aðilar, sem vísir voru að pretti voru
þegar í stað teknii-. Það ætti að
vera hrossakaupmönnum til fyrir-
myndar. Landbúnaðurinn á að hlíta
sömu reglum og annar rekstur í
landinu.
Höfundur er fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
!l|i
HUGSKOT
Bnisioinynd nföUue
1 0% afsláttur í október
Nethyl 2 ♦ S. 587 8044
Hreggviður
Jónsson
Helmingi meiri ^
vitleysa
ÞAÐ hefði nú verið
fallega hugsað af for-
kólfum RÚV á því
herrans ári 1975 að
bjóða upp á aðra sjón-
varpsstöð. Þá hefði
önnur sjónvarpsrás
ríkisins verið kærkom-
in viðbót við sjónvarps-
flóru sem aðeins var
ein rás. Þá hefðu sár-
þjáðir sjónvarpsáhorf-
endur fengið þriðja
valkostinn en á þeim
tíma höfðu menn um
aðeins tvo kosti að
velja: kveikt eða
slökkt. Árið 1975 hefði
ný rás táknað aukna
fjölbreytni, aukið val neytenda og
framþróun á fjölmiðlamarkaði.
Því er ekki að heilsa árið 1999.
Fjölmiðlun
Ein ríkisrekin sjón-
varpsstöð er yfírdrífíð
meira en nóg, segir
Viggó Orn Jónsson,
það þarf ekki að tvö-
falda vitleysuna.
Markús Örn ryðst fram á ritvöllinn
og básúnar nauðsyn nýrrar stöðvar
ríkisins á sama tíma og einkaaðilar
eru að koma á koppinn nýrri ís-
lenskri sjónvarpsstöð. Á sama tíma
og ungir menn eru að reyna að
koma á virkri samkeppni á fjöl-
miðlamarkaði vaknar gamla stofn-
unin skyndilega til lífs af svo mikl-
um krafti að það minn-
ir á tímabreytingarnar
á fréttum þegar Stöð 2
var að byrja hér um
árið. RÚV vill nú opna
aðra sjónvarpsrás og
til að sýna fram á
brýna nauðsyn þessa
var landsmönnum boð-
ið upp á 22 klukku- ^
stundir af golfi um síð-
ustu helgi.
Ríkissjónvarpið er
raunar stórmerkilegt
fyrirbæri. Ekki aðeins
fær þessi ríkisfjölmiðill
tekjur af skylduáskrift
sinni (25.000 krónur á
ári) heldur er RÚV
líka með auglýsingatekjur. Flestum
ríkisfjölmiðlum heims er bannað að
sýna auglýsingar því það skekkir
samkeppnisstöðu á fjölmiðlamark-
aði. En það er ekki nóg með að
RÚV sé með afnotagjöldin og aug-
lýsingarnar. RÚV er líka með beint
framlag frá ríkinu. Nú ætlar þessi
stöð, með fjárhagsáætlun sem þar^.
ekki að standa við, með tekjur sem
þarf ekki að vinna fyrir, með dag-
skrá sem þarf ekki að njóta áhorfs,
með yfirmenn sem þurfa ekki að
bera ábyrgð á vinsældum stöðvar-
innar, með ósanngjarna yfirburða-
aðstöðu á auglýsingamarkaði, nú
ætlar þessi stöð að opna aðra rás
sem á að reka á auglýsingum. Ég
skora á menntamálaráðherra að
binda enda á þessa fráleitu umræðu
strax. Ein ríkisrekin sjónvarpsstöð
er yfirdrifið meira en nóg. Það þarf_
ekki að tvöfalda vitleysuna.
Höfundur er formaður Heimdallar,
félags ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík.
Viggó Örn
Jónsson
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
HÁMARKS ÁRANGUR
s: 557 2450 • www.sigur.is
Dagsferð sunnud. 10. okt.
Frá BSÍ kl. 10.30 Grímannsfell.
Létt fjallganga Verö 1.400/1.600.
Næstu helgarferðir
15. —17. okt. Óvissuferð. Fjalla-
ferð með nýkviknuðu vetrar-
tungli.
26.-28. nóv. Adventuferð í
Bása.
4.-5. des. Aðventuferð jeppa-
deildar í Bása.
30. des,—2. jan. Áramótaferð.
Miðasala hafin í hina sívinsælu
áramótaferð í Bása.
Heimasíða: www.utivist.is.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferðir 10. október
Kl. 10.30 Móskarðshnúkar -
Trana. Um 6 klst. fjallganga.
Farin ný og falleg leið upp úr
Eyjadal i Kjós.
Fararstjóri: Jónas Haraldsson.
Verð 1.500 kr.
Kl. 13.00 Mosfellssel - Helgu-
foss — Bringur. Ný söguganga
í Mosfellssveit með Guðjóni
Jenssyni. Um 3 klst. láglendis-
ganga. Verð 1.300 kr., frítt f. börn
m. forráðamönnum. Brottför frá
BSÍ austanmegin og Mörkinni 6.
Miðvikudagur 13. október kl.
20.30
Myndakvöld í Mörkinni 6. Ólaf-
ur Sigurgeirsson sýnir myndir úr
sumarleyfisferð um Austfirði,
dagsferðum og ýmsu öðru. Allir
velkomnir á þetta fyrsta mynda-
kvöld vetrarins. Kaffiveitingar.
Sjá ferðir á heimasíðu: www.fi.is
og textavarpi bls. 619.
Fyrsti félagsfundur
vetrarins
verður haldinn í Síðumúla 35,
efstu hæð, þriðjudaginn 12. októ-
ber kl. 19.30.
Vinnufundur. Pökkun jólakorta.
Margar hendur vinna létt verkl
Stjórnin.
KRISTIDSAI
Dalvegi 24,
Kópavogi.
Laugard. 9. okt. Samkoma kl. 14.
Ræðumaður Helena Leifsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aglow Reykjavík
Næsti fundur verður haldinn
í Kornhlöðunni/Lækjarbrekku
mánudaginn 11. október nk.
kl. 20.00. Þátttökugjald kr. 600.
Innifalið er kaffi og meðlæti.
Ræðumaður verður Esther
Jacobsen.
Vonumst til að sjá sem flestar.
Stjórnin.
Kl. 13.00:
Laugardagsskóli fýrir krakka.