Morgunblaðið - 09.10.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.10.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Ársfundur Norður-Atlantshafssj ávarspendýraráðsins Morgunblaðið/Kristján Kristín Haraldsdóttir, formaður íslensku sendinefndarinnar t.v., Amalie Jessen, nýkjörinn formaður NAMMCO, og Arnór Halldórsson, fráfarandi formaður, að loknum fundinum í gær. Nýting sjávarspen- dýra er þeim hugleikin en Amalie er í selskinnsjakka úr hringanóra og vöðusel, en Arnór ber bindi úr vöðuselsskinni. Hvala- stofnar of stórir AMALIE Jessen frá Grænlandi var kjörin formaður Norður-Atlants- hafssjávarspendýraráðsins, ' NAMMCO, á ársfundi ráðsins sem lauk á Akureyri í gær. Hún mun gegna formennsku í ráðinu til næstu tveggja ára og tekur við af Arnóri Halldórssyni. Kaj P. Mortensen frá Færeyjum var kjörinn varaformaður ráðsins. Á fundinum var farið yfir ráðgjöf vísindanefndar ráðsins, þar á meðal nýja úttekt hennar um ástand og veiðiþol langreyðarstofnsins við ís- land. Ástand stofnsins er að mati vís- indanefndarinnar gott og er talið að veiðar á 200 dýrum árlega næstu 10 ár muni ekki minnka stofninn niður fyrir 70% af því sem stofninn er tal- inn hafa verið áður en veiðar hófust í Iok síðustu aldar þótt gengið sé út frá varfærnustu forsendum. Vegna óvissu í stofngerð telur vísinda- nefndin rétt að mælast til að veiðun- um verði dreift innan Austur-Græn- lands/Islands-svæðisins í samræmi 'við hlutfallslega dreifíngu langreyð- arstofnsins á því svæði. Mælt er með auknum rannsóknum á langreyð, m.a. til að svara spurn- ingum um stofngerð, en talið er að um sjö stofngerðir langreyða sé að ræða. Rætt var um efnafræðirann- sóknir til að bera saman dýr af mis- munandi svæðum og eins með gervi- tunglarannsóknum til að vita meira um ferðir þessara dýra. Næsta verk- efni er hins vegar að rannsaka lang- reyðar við Færeyjar, en Færeyingar hafa óskað eftir að NAMMCO geri útttekt á langreyðarstofninum við eyjarnar. Á fundinum var mælt með því að auka veiðar á vöðusel og blöðrusel í Barentshafi og við Grænland. Stofn- arnir væru of stórir og því mælt með auknum kvóta. Mikið er af vöðusel í hafinu norður af Islandi. Hann hefur sést við Kolbeinsey og vitað að vöður hafa komið inn í lögsögu Islands og þykir vert að gefa því gaum. Sjó- menn sem stunda netaveiðar fyrir Norðurlandi hafa ekki farið varhluta af sístækkandi selastofnum, en sel- urinn hefur leikið fisk í netum grátt, rifið hann á hol og étið lifrina. Þá var á fundinum fjallað um hvalatalningar, en síðast var farið í hvalatalningu árið 1995 og stefnt að því að fara slíka leiðangra á 5-6 ára fresti. Flokkaraframleiðandinn Style ehf. telur að sér vegið Höfðar mál vegna dreifíngar teikninga STYLE ehf. í Garðabæ hefur höfðað mál á hendur Traustri þekkingu ehf. í Reykjavík fyrir að eigna sér hönn- un og smíði á fiskflokkunarvél og gefa ranglega til kynna að fyrirtæk- ið hafi og geti smíðað slíkar vélar. Style ehf. hefur um margra ára skeið hannað og smíðað fiskflokkun- arvélar og selt um 40 slíkar vélar hérlendis en einnig til útlanda. I stefnu fyrirtækisins á hendur Traustrar þekkingar ehf. segir að á íslensku sjávarútvegssýningunni sem haldin var í Kópavogi í septem- ber sl. hafi forsvarsmenn Style ehf. komist að því að Traust þekking ehf. dreifði þar bæklingum sem höfðu að geyma auglýsingar á vélum til loðnuvinnslu og þar hafi m.a. verið að finna ljósmyndir af fiskflokkunar- vél sem sýnt þyki að Style ehf. seldi Granda hf. árið 1997. Krafist var lögbanns vegna dreifingar bæk- lingsins og var lögbannið lagt á und- ir lok næstsíðasta sýningardags. Segir ennfremur í stefnunni að Traust þekking ehf. hafi birt á heimasíðu sinni á veraldarvefnum teikningu af fiskflokkara fyrir loðnu, sfld og eldisfisk sem sé nákvæm eft- irlíking af teikningu af Style-flokk- unarvélum. Ennfremur hafi for- svarsmenn Traustrar þekkingar ehf. farið um landið á undanförnum ár- um með auglýsingbækling sinn þar sem eftirlíkingu af teikningunni af flokkunarvél Style ehf. er að finna og boðið útgerðum fiskflokkunarvél- ar til sölu. Telur stefnandi að með þessu framferði sínu sé Traust þekking ehf. að eigna sér vinnu, orð- spor og reynslu sem Style ehf. hefur áunnið sér, sjálfum sér til fram- dráttar. Fjárhagslegur skaði Krafa um bótakröfu á hendur stefnanda byggist á því að Traust þekking ehf. hafi með framferði sínu skaðað hagsmuni Style ehf. veru- lega. I kröfunni segir að á nýafstað- inni sjávarútvegssýningu í Kópavogi hafí Traustri þekkingu ehf. tekist að slá ryki í augu sýningargesta þar sem margir þeirra hafi velt fyrir sér hver raunverulegur hönnuður þess- ara fiskflokkunarvélar væri. Útgáfa og dreifing Traustrar þekkingar á umræddu auglýsingaefni hafi skað- að það traust sem Style ehf. nýtur meðal viðskiptavina sinna og hugs- anlegra kaupenda. Það hafi svo aft- ur áhrif á sölu Style ehf. á fram- leiðslu sinni og því skaðað fyrirtæk- ið fjárhagslega. Stefnandi, Style ehf., fer fram á að dreifing auglýsingabæklingsins verði bönnuð, sem og dreifing Traustrar þekkingar ehf. á auglýs- ingaefni á veraldarvefnum. Enn- fremur er farið fram á skaðabætur að upphæð 1 milljón króna. Síldveiðar Rússa í landhelginni Reglugerð breytt í KJÖLFAR rannsóknar á meintu landhelgisbroti rússneska togarans Murman-2 fyrir helgi hefur reglu- gerð um heimild færeyskra, norskra og rússneskra skipa til sfldveiða við ísland á árinu 1999 verið breytt en rannsókn málsins var hætt að fenginni afstöðu Land- helgisgæslu Islands, eins og Morg- unblaðið greindi frá á miðvikudag. í 3. grein fyrmefndrar reglu- gerðar segir meðal annars að ekki skulu fleiri en 20 rússnesk skip hafa veiðileyfi og er þeim óheimilt að stunda síldveiðar innan línu sem dregin er milli þriggja skilgreindra punkta. Á eftir orðunum innan línu er bætt við orðinu „vestan" innan sviga til að ekki fari á milli mála hvað við er átt en skipstjóri rúss- neska togarans misskildi reglu- gerðina, taldi að hann mætti veiða alls staðar innan landhelginnar nema innan þríhyrnings sem punktarnir afmörkuðu. Við yfirheyrslur á Eskifirði kom fyrrnefndur skilningur fram hjá skipstjóranum. Gísli M. Auðbergs- son, lögfræðingur á Eskifirði og verjandi skipstjórans, segir að breytingin hafi verið óumflýjanleg því þótt hugmynd stjórnvalda með reglugerðinni hafi verið sú að draga ætti línu frá A til C í gegnum B og veiðiheimild Rússa væri aðeins austan við hana hefði allt eins mátt túlka reglugerðina þannig að á milli þessara þriggja punkta væru dregnar þrjár línur. „Þannig fæst þríhyrningur og innan hans er bannsvæðið eins og skipstjórinn skildi þetta. Sá skilningur var jafn réttmætur og hinn og ekki er hægt að refsa með tvíræða refsiheimild." Vill ekki tjá sig ÁRNI M. Mathiesen, sjávar- útvegsráðherra, vildi ekki tjá sig um beiðni bæjarstjórnar Vesturbyggðar um að leigja frá sér byggðarkvóta sveitar- félagsins, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á tillögunni í gær. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hefur bæjarstjórn Vesturbyggðar farið þess á leit við stjórn Byggðastofnunar að sveitarfé- laginu verði heimilað að leigja byggðarkvótan sem því hefur verið úthlutað, samtals 205 tonn, hæstbjóðanda sam- kvæmt ákveðnum skilyrðum. Stjórnarformaður Byggða- stofnunar hefur þegar hafnað tillögunni. Kurt Waldheim verst erlendum afskipt- um af austurrískum stjórnmálum Austurríki ekki land hægriöfga Vín. AP. KURT Waldheim, fyi-rverandi for- seti Austurríkis sem var meinað að ferðast til Bandaríkjanna vegna for- tíðar hans sem hermanns Þriðja rík- isins í síðari heimsstyrjöld, segir er- lenda gagnrýnendur ekki hafa neinn rétt á því að segja Austurríkismönn- um fyrir um hvernig þeim beri að velja sér menn til pólitískrar forystu. Waldheim tjáði austmrísku frétta- stofunni APA að hið alþjóðlega írafár yfir þeim möguleika að Frelsisflokk- ur Jörgs Haiders kynni að komast í stjórn væri „gersamlega óviðeig- andi“. Frelsisflokkurinn, sem byggði kosningabaráttu sína meðal annars á áróðri gegn innflytjendum, hlaut um 27% atkvæða í þingkosningum um síðustu helgi, og náði fleiri atkvæðum en Þjóðarflokkurinn, sem er kristileg- ur demókrataflokkur og hefur verið saman í stjórn með Jafnaðarmanna- flokknum undanfarin 13 ár. Þetta hef- ur aukið líkumar á því að Frelsis- flokkurinn komist í stjóm. Ómögu- legt er þó að fullyrða um það enn, þar sem flóknar stjórnarmyndunarvið- ræður era framundan. Talningu um 200.000 utankjörstaðaatkvæða er heldur ekki lokið enn, sem gerir að verkum að ekki er enn fullljóst hvaða flokkur er annar stærsti flokkm’ landsins eftir kosningai-nar, Þjóðar- flokkmánn eða Frelsisflokkurinn. Ekki hugmyndafræði Viktor Klima kanzlari ítrekaði í gær að Jafnaðarmannaflokkurinn útilokaði stjórnarsamstarf með Frelsisflokknum. Klima sagði hins vegar á fundi með Thomas Klestil forseta, sem hefur falið Klima stjóm- armyndunaramboðið sem leiðtoga stærsta flokksins, að íTkisstjórnin yrði að gera allt sem hún gæti til að sannfæra umheiminn um að Austur- ríki væri ekki „land hægriöfga- manna“. Waldheim tjáði APA að það væri „ekki í höndum útlendinga að segja Austurrfldsmönnum fyrir um hverja þeir veldu til setu í ríkisstjórn og hverja ekki“. Sagðist Waldheim, sem auk þess að hafa verið forseti Austur- ríkis á níunda ái’atugnum gegndi embætti framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna á áttunda áratugnum, sannfærður um að meirihluti kjós- enda Frelsisflokksins hefðu ekki látið hugmyndafræði stýra því hvernig þeir greiddu atkvæði heldur djúp- stæð löngun til breytinga eftir 13 ára óslitna valdatíð „stóru samsteypu" jafnaðarmanna og Þjóðarflokksins. Harkaleg viðbrögð í ísrael David Levy, utanríkisráðherra Israels, hefur varað við því að ísrael muni „endumieta" samband sitt við Austun-íki komist Haider í stjórn. Haider svaraði þessu með því að segja viðbrögð ísraela „móðursýkis- leg“. Hin hálfopinbera „Gyðingdóms- stofnun“ í Israel greindi frá því í fyrradag að sendimaður stofnunar- innar færi til Austurríkis til að hvetja hina u.þ.b. 9000 gyðinga sem búspttir era í Austurríki til að flytja til Isra- els. En Ariel Muzikant, talsmaður samtaka austurrískra gyðinga, sagði niðurstöðu þingkosninganna „hreint innanríkismál". Bandaríkjamenn deila um bann við kjarnorkutilraunum Stefmr í að þingið hafni samningnum Washingrton, New York. Reuters, AP. TALIÐ er útséð um að öldungadeild Bandaríkjaþings samþykki samning- inn um allsherjarbann við kjarn- orkusprengingum í tilraunaskyni í atkvæðagreiðslu sem ráðgerð er á þriðjudag. Bandai’íkjastjórn beitir sér nú fyrir því að atkvæðagreiðsl- unni verði frestað í von um að geta aukið stuðninginn við hann meðal þingmanna deildarinnar. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandai’íkjanna, ávarpaði utan- ríkismálanefnd öldungadeildarinnar í fyrradag og sagði samninginn mik- ilvægari en svo að hægt yrði að ræða hann til fullnustu á þeim stutta tíma sem leiðtogar repúblikana hafa ákveðið. Jesse Helms, foimaður nefndar- innar og andstæðingur samningsins, sagði hins vegar að ef Bill Clinton forseti vildi að atkvæðagi’eiðslunni yrði frestað þyrfti hún að fara fram eftir forsetakosningarnar á næsta ári. Trent Lott, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, ákvað að fresta ekki umræðunni um samninginn og hún hófst í gær. Stuðningsmenn til- raunabannsins viðurkenndu að samningurinn myndi ekki fá þau 67 atkvæði sem þarf til að hann verði samþykktur. Fari svo að samningurinn verði ekki staðfestur yrði það í fyrsta sinn í sögunni sem Bandaríkjaþing hafn- ar samningi sem miðar að því að tak- marka vígbúnað í heiminum. Reuters William Cohen Blair, Chirac og Schröder blanda sér í umræðuna Alls 154 ríki hafa undirritað samn- inginn um bann við kjarnorkutil- raunum en aðeins tvö kjarnorkuveld- anna, Bretland og Frakkland, hafa staðfest hann. I samningnum er kveðið á um að hann gangi ekki í gildi nema 44 ríki, sem geta framleitt kjarnavopn, undirriti hann, en að- eins 26 þeirra hafa gert það. Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands skoruðu á öldunga- deildina að samþykkja samninginn í sameiginlegri grein sem birt var í New York Times í gær. Þeir sögðu að ef öldungadeildin hafnaði samningnum gæti það orðið til þess að önnur ríki, sem hafa hald- ið að sér höndum, ákvæðu að stað- festa hann ekki. Með því að hafna samningnum myndi öldungadeildin ýta undir frekari útbreiðslu kjarna- vopna í heiminum og valda ágrein- ingi innan Atlantshafsbandalagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.