Morgunblaðið - 09.10.1999, Side 20
1
vörumótt.
Hús A, 1 hæð,
um 3.900 ferm.
(Verksmiðjuhús
Skinnaiðnaðar)
bílastæði
bílastæði
bílastæði
KEA Nettó
og
Rúmfata-
lagerinn
bílastæði
Hús B, nýbygging
1 hæð, um 3.200 ferm.
Sérverslanir
Tengi-
bygging
vörumótt.
vörumótt.
20 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fjársektir
vegna
fíkniefna-
brota
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt tvo menn á þrí-
tugsaldri í fjársektir vegna fíkni-
efnabrota. Annar mannanna fékk
45.000 króna sekt en hinn 20.000
króna sekt. Pá voru tæp þrjú
grömm af hassi gerð upptæk.
Öðrum manninum var gert að sök
að hafa keypt 10 grömm af hassi í
Reykjavík í sumar og flutt það með
sér til Akureyrar. Þar notaði hann
efnið til eigin neyslu, uns lögreglan
lagði hald á afganginn af efninu, 2,7
grömm, sem hann hafði falið á sal-
emi í leiktækjasal við Ráðhústorg.
Hinum manninum var gert að sök
að hafa þegið að gjöf frá ónefndum
aðila 1 gramm af hassi sem hann og
maðurinn sem keypti 10 grömminn
í Reykjavík, reyktu í bifreið. Hluta
af efninu gleypti ákærði er lögregl-
an hafði afskipti af þeim.
Mennirnir viðurkenndu báðir
brot sín fyrir dómi. Ólafur Ólafsson
héraðsdómari kvað upp dóminn.
-----» ♦ ♦ .-
Menntasmiðjan
á Akureyri
Nýbúanám-
skeið fyrir
konur
MENNTASMIÐJAN á Akureyri
mun nú á næstunni bjóða upp á
námskeið fyrir erlendar konur sem
búsettar eru á Akureyri eða ná-
grenni. Haustið 1997 var sambæri-
legt námskeið haldið í Mennta-
smiðjunni og luku þá 12 konur og 2
karlar námi. Petta námskeið er ein-
göngu ætlað konum og hafa þær
forgang sem koma frá fjarlægum og
ólíkum menningarsvæðum. Ætlunin
er að halda nýbúanámskeið reglu-
lega við Menntasmiðjuna, sum ein-
göngu fyrir konur en önnur fyrir
bæði kyn.
Námskeiðið hefst 27. október og
stendur í sex vikur. Kennt er í
Menntasmiðjunni, Glerárgötu 28,
alla virka daga frá kl. 13 til 15.
Markmiðið er fyrst og fremst að
þátttakendur fái grunnþekkingu í
leikni í íslensku, en einnig að námið
gefí almenna lífsleikni í íslensku
þjóðfélagi. Samskipti og tjáning
verða þjálfuð og þá verður farið í
ýmsa þætti er varða hagnýta samfé-
lagsþekkingu. Atvinnurekendum
sem hafa erlendar konur starfandi á
sínum vegum er því sérstaklega
bent á að bjóða þeim þátttöku í
námskeiðinu sem hluta af starfinu
enda sé þekking á íslensku máli og
íslenskum samfélagsháttum grund-
vallarforsenda þess að nýbúar geti
náð að nýta krafta sína í lífi og starfí
hér á landi.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið fást í Menntasmiðjunni.
Hugmyndir að verslunarmiðstöð við Daisbraut á Gleráreyrum og nýtingu lóðar.
Hugmyndir um verslunarmiðstöð á Gleráreyrum
Mikill áhugi
á verslunarrými
HUGMYNDIR Kaupfélags Eyfirðinga, Rúmfatalagersins og fleiri aðila um
að byggja tæplega 8.000 fermetra verslunarmiðstöð á Gleráreyrum á Akur-
eyri hafa vakið mikla athygli. Þar er gert ráð fyrir að Rúmfatalagerinn
verði með verslun, KEA með Nettó-verslun og að sérverslanir verði í um
helmingi verslunarmiðstöðvarinnar.
Morgunblaðið/Kristján
Ljóð og litir í Kjarnaskógi
GILFÉLAGIÐ á Akureyri stendur
fyrir hópferð í Kjarnaskóg laugar-
daginn 9. október, undir yfirskrift-
inni Ljóð og litir í Kjarnaskógi. Þar
verður m.a. boðið upp á ljóðalestur
og söng. Farið verður með rútu frá
Deiglunni kl. 13.30.
Gengið verður um Kjarnaskóg
undir Ieiðsögn skógarvarða og áð
á nokkrum fegurstu stöðunum þar
sem ljóð verða lesin og sungin.
Stefnt er að því að dvelja í skógin-
um í eina og hálfa klukkustund og
ekið til baka sem leið liggur í
Listagilið. Lestur og söng annast
Helgi og hljóðfæraleikararnir
Bragi Snædal, Kristján Pétur Sig-
urðsson, Finnur Magnús Gunn-
laugsson, Jón Erlendsson, Jón Lax-
dal Halldórsson og fleiri. Gilfélag-
ið mælir með hlýjum fötum og
malpoka.
Það er orðið mjög haustlegt um
að litast á Akureyri og skartar
gróðurinn hinum fallegustu Iitum .
Þátttakendur í ferð Gilfélagsins
eiga vafalaust eftir að verða vitni
að því í Kjarnaskógi á laugardag.
Krónan -
Verslunarmiðstöð,
Hafnarstræti 97, Akureyri
Til leigu 90fm á 2. hæð -
bjart pláss, flísar á gólfum.
Hentar vel fyrir verslun, teiknistofu,
auglýsingastofu, hárgreiðslustofu o.fl.
húsinu er aðgengi að Heilsugæslustöðinni.
Upplýsingar gefa Úlfar/Vilborg
síma 895 6049.
Einnig eru fleiri pláss til leigu,
minni og stærri.
Þórarinn E. Sveinsson aðstoðar-
kaupfélagsstjóri KEA sagði að eig-
endur sérverslana hafa sýnt því
mikinn áhuga að komast undir þak
verslunarmiðstöðvarinnar og væri
sá áhugi mun rneiri en hann gerði
ráð fyrir. Hann sagði hins vegar
ekkert fyrirliggjandi um það á þess-
ari stundu hvemig staðið yrði að því
að leigja verslunarrými í húsnæð-
inu.
Hugmyndin er að kaupa húsnæði
Skinnaiðnaðar, kaupa húseignir
fjögurra fyrirtækja á samliggjandi
lóð, rífa þær og byggja nýja 3-4.000
fermetra viðbyggingu við Skinna-
iðnaðarhúsið. Fjárfestar sem að
málinu koma hafa sett fram tilboð
um kaup á hluta af fasteignum Sk-
innaiðnaðar og hefur það verið sam-
þykkt með nokkmm fyrirvörum.
Sérverslanir
í nýbyggingu
Gert er ráð fyrir að Nettó og
Rúmfatalagerinn verði til húsa í að-
alverksmiðjuhúsi Skinnaiðnaðar og
jafnvel verslunin Sportver, sem á
eitt þeirra húsnæða sem em á sam-
liggjandi lóð og til stendur að rífa.
Sérverslanir verða svo í nýbygg-
ingu sem tengist húsnæði Skinna-
iðnaðar.
Þórarinn sagði að ef þessar hug-
myndir gengju eftir myndi Skinna-
iðnaður flytja starfsemi sína á tíma-
bilinu desember til febrúar nk. og
að KEA og Rúmfatalagerinn yrðu
komin þar inn næsta vor. Fram-
kvæmdir við nýbyggingu hæfust
næsta sumar og að því stefnt að sér-
verslanir yrðu komnar þar inn fyrir
jólin árið 2000.
♦ ♦♦
Söng-
skemmtun
BJÖRG Þórhallsdóttir söngkona og
Daníel Þorsteinsson píanóleikari
halda söngskemmtun á skemmti-
staðnum Odd-Vitanum við Strand-
götu á Akureyri í kvöld, laugar-
dagskvöldið 9. október, og hefst hún
kl. 21.
Þau flytja létt lög úr ýmsum átt-
um eftir innlend og erlend tónskáld,
en sérstakur gestur þeirra Bjargar
og Daníels á þessari söngskemmtun
er María Björg Vigfúsdóttir.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun í Safnað-
arheimilinu. Guðsþjónusta kl. 14,
upphaf fermingarstarfsins. Tónlist
frá Taize. Fermingarbörn ásamt
foreldrum sérstaklega boðuð til
kirkju. Samvera í Safnaðarheimili
eftir guðsþjónustu. Fundur í
Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju
kl. 17. Æðruleysismessa kl. 20.30
um kvöldið, kaffisopi í Safnaðar-
heimili á eftir. Þeim sem hafa
áhuga fyrir 12-spora vinnu á trúar-
legum grunni er bent á að það
gefst tækifæri til að ræða um
myndum slíkra hópa. Biblíulestur í
Safnaðarheimili kl. 20 á mánudag í
umsjá sr. Guðmundar Guðmunds-
sonar. Morgunsögur á þriðjudag
kl. 9 og mömmumorgunn í Safnað-
arheimili kl. 10 til 12 á miðvikudag.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
vera og guðsþjónusta kl. 11 sunnu-
daginn 10. október, sameiginlegt
upphaf. Foreldrar, afar og ömmur
eru hvattir til að mæta með börn-
unum. Fundur æskulýðsfélagsins
kl. 18. Kyrrðar- og tilbeiðslustund
kl. 18.10 þriðjudaginn 12. október.
Hádegissamvera kl. 12 miðviku-
daginn 13. október, orgelleikur,
helgistund og léttur málsverður í
safnaðarsal. Opið hús fyrir mæður
og börn kl. 10-12 fimmtudaginn 14.
október.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Haldið verður upp á 75 ára afmæli
heimilasambandsins á sunnudag,
10. október kl. 16.30. Deildarstjór-
arnir Turid og Knut Gamst taka
þátt. Sunnudagaskóli verður kl. 11
um morguninn og unglingasam-
koma kl. 20.
HRÍSEYJARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli verður í kirkjunni kl. 11
á morgun. Guðsþjónusta kl. 14. Að
lokinni athöfn verður fundur með
fermingarbörnum og foreldrum
þeirra.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund kl. 9 í dag, laugardag.
Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl.
11.30 á morgun, kennsla fyrir alla
aldurshópa. Vakningasamkoma
sama dag kl. 16.30. Predikari á
báðum samkomunum verður
Bandaríkjamaðurinn Randy Willi-
ams. Fyrirbænaþjónusta.
Barnapössun. Skrefið og Krakka-
skrefið fyrir 8-12 ára börn á
þriðjudag, krakkaklúbbur fyrir
3-6 ára á miðvikudag. Gospelkvöld
unga fólksins á fostudagskvöld, 15.
október. Bænastundir alla morgna
kl. 6.30.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa
í dag, laugardag, kl. 18 og á morg-
un, sunnudag kl. 11 í kirkjunni við
Eyrarlandsveg 26.
LAUGALANDSPRESTAKAL
L: Þrjár messur verða í prestakall-
inu á morgun, sunnudag. Sú fyrsta
verður í Hólakirkju kl. 11, þá verð-
ur messað í Munkaþverárkirkju kl.
13.30 og loks á Kristnesspítala kl.
15. Væntanleg fermingarbörn eru
beðin að mæta til guðsþjónustu.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudaga-
skólinn byi'jar í Lundarskóla kl.
13.30 á morgun, sunnudag. Al-
menn samkoma á Sjónarhæð kl.
17. Barnafundir byrja á mánudag
kl. 18, allir krakkar velkomnir,
ekki síst Ástirningar.