Morgunblaðið - 09.10.1999, Side 37

Morgunblaðið - 09.10.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ VIKU IM LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 37 Aukinn kostnaður vegna sykursýki talinn „nærri hættumörkumu Medical Tribune News Service. GRÍPA þarf til aðgerða til að draga úr kostnaði við heilsugæslu vegna sykursýki af gerð 2, sam- kvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var í átta löndum og greint var frá í Brussel í síðustu viku á ársfundi Evrópusamtaka um sykursýkirannsóknir. „Staðan er komin nærri hættumörkum," sagði prófessor Massimo Massi- Benedetti, forseti Evrópudeildar Alþjóðlega sykursýkisambands- ins. „Það sem mestu skiptir, til að bæta líðan fólks með sykursýki af gerð 2 og draga úr kostnaði í framtíðinni, er að snúa sér að langtímaafleiðingum sjúkdóms: ins,“ sagði hann í yfirlýsingu. I könnuninni voru teknar saman upplýsingar frá læknum og sjúk- lingum í Belgíu, Bretlandi, Frakk- landi, Hollandi, Ítalíu, Spáni, Sví- þjóð og Þýskalandi. Sykursýki af gerð 2, eða fullorð- inssykursýki, leggst yfirleitt á fólk sem komið er yfir þrítugt, en er al- gengara í eldra fólki. Fyrstu ein- kennin, til dæmis sjóntruflanir, slappleiki, ógleði og aukin þvaglát og þorsti, koma hægt í ljós og eru Reuters Eitt af einkennum sykursýki er þorsti. oft ekki greind strax. Dr. Robert Young, við Hope-sjúkrahúsið í Salford í Bretlandi, stýrði könnun- inni, og er það mat vísindamann- anna, að kostnaðurinn við að með- höndla þær tíu milljónir manna, sem þjást af sykursýki af gerð 2 í þessum löndum, sé um 29 milljónir evra, eða sem svarar nimlega 2100 milljörðum íslenskra króna. Það samsvarar um fimm prósent- um af heildarkostnaði við heilsu- gæslu í hverju landi. Könnunin leiddi í ljós, að sá sem haldinn er fullorðinssykursýki kostar heilbrigðiskerfið 1,5 sinn- um meira en sá sem ekki er hald- inn sykursýki. Þá geta fylgikvillar sykursýki aukið kostnaðinn enn frekar. Þrjátíu til 65 prósent af kostnaði við meðferð á sykursýki er vegna sjúkrahússlegu, þ. á m. vegna meðhöndlunar hjartasjúk- dóma og annarra fylgikvilla. Einungis um 2,7% kostnaðarins er vegna inntöku lyfja. Kostnaður vegna insúlíns, sem notað er þegar öll önnur meðferð er fullreynd, er um 18-39% af heildarkostnaðinum. Því er talið, að ef gripið er til með- ferðar snemma komi það ekki ein- ungis sjúklingunum til góða held- ur heilbrigðiskerfinu einnig. Vís- indamennirnir telja að ný gerð inntökulyfja geti dregið úr kostn- aði við meðferð, ef þau eru gefin á fyrstu stigum sjúkdómsins. Þessi lyf draga úr insúlínmótstöðu, sem er einn helsti þátturinn í sykur- sýki af gerð 2. Reuters Brýnt er að börn gangist undir þær ónæmisaðgerðir sem boðið er upp á. Kenna þarf börnunum að varast smit Medical Tribune News Service. NÚ þegar börnin eru byrjuð aftur í skóla deila þau ekki aðeins bókum, blýöntum og leyndarmálum heldur einnig sjúkdómum. „Tíður handþvottur er besta vörnin,“ segir Jan Drutz, prófessor í barnalækningum við Baylor-lækna- háskólann í Houston í Texas. Hann hvetur foreldra til að kenna börnum sínum að þvo hendurnar reglulega allan daginn, einkum eftir að hafa verið á salerninu og áður en þau borða eða handleika matvæli. Á meðal sjúkdóma, sem algengt er að börn smitist af í skólastofunum, eru sýkingar í efri öndunarvegi, hlaupabóla, tárubólga eða augnangur, og maurakláði, auk þess sem algengt er að börnin fái höfuðlús. Drutz brýnir fyrir foreldrum að tryggja að börnin gangist undir þær ónæmisaðgerðir sem boðið er upp á. Hann ráðleggur ennfremur foreldrum að segja börnum sínum að sitja ekki of nálægt bekkjarfélögum sem bera þess merki að vera veikir, eru t.a.m. með hósta eða hnerra. Drutz segir að maurakláði og höfuðlús geti breiðst hratt út í skólastofunum. „Maurakláði er ekki óalgeng- ur. Þetta er maur sem grefur sig inn í húðina og veld- ur kláða. Heilu fjölskyldurnar geta smitast vegna þess að maurakláði breiðist út við nána snertingu." Drutz segir að brýna þurfi fyrir börnunum að deila ekki greiðum, burstum eða handklæðum til að draga úr hættunni á því að lús breiðist út. Ennfremur sé mikilvægt að þegar krakkar fái að gista hjá vinum sín- um þá noti þeir ekki sama kodda. Hæfileg bið nauðsynleg Drutz segir að þegar foreldrar ákveða hvenær senda eigi börnin aftur í skólann eftir að þau veikjast þurfi ákvörðunin að byggjast á því hvort þau geti enn valdið smiti og hvernig þeim líði. „Ef barnið er enn með hósta eða hnerra þá skulið þið halda þeim heima eins lengi og kostur er, annarra barna vegna,“ segir Drutz. Fái börnin hita er æskilegt að þau fari ekki aftur í skólann fyrr en einum sólarhring eftir að hann hverf- ur, að sögn Drutz. Hann segir að fái börnin sýkingar í auga beri að halda þeim heima þar til læknir hefur skoðað þau. Al- gengar eyrnasýkingar séu ekki smitandi og það fari því aðeins eftir líðan barnanna hvort senda eigi þau í skólann. Drutz segir að rannsóknir hafi sýnt að börn geti ekki valdið hlaupabólusmiti fimm dögum eftir að bólurnar koma í ljós en margir skólar í Bandaríkjun- um vilji ekki fá börnin aftur fyrr en þær hafi alveg horfið. Þótt það komi sér stundum vel fyrir foreldra að senda börnin sem fyrst í skólann aftur er hæfileg bið nauðsynleg til að vernda þau og bekkjarfélaga þeirra. w Heilræði viku 40 Hvað er höfuðverkur? Höfuðverkur er tilfallandi kvilli sem langflestir upplifa einhverntíma á ævinni og oftast er hann ekki alvarlegur. Algengastur er höfuð- verkur sem verðurvegna rangrar líkamsbeit- ingar við vinnu, mikillar neyslu á tóbaki og áfengi, óreglulegra máltíða eða svefntruflana. Til að vinna á vægum höfðuðverk má notast við verkjastillandi lyf. forðast streitu, gera vöðvaslakandi æfingar og jafnvel stilla skrif- borðsstólinn nokkrum sinnum yfir daginn. Leitaðu frekari ráða hjá lyfjafræðingum okkar. Lyf&heilsa VOÐVAGIGT - VEFJAGIGT - VÖÐVABÓLGA - LIÐVERKIR - STREITA SVEFNLEYSI - KALDIR ÚTLIMIR Byltingarkennd nýjung í verkjameðferð Kynning á BlOflex undirsænginni með BlOflex segulbúnaði, ætluð fólki með þráláta/langvarandi verki og streituvandamál. GRÆNA TORGINU BLÓMAVALI 9.-10. október, laugardag og sunnudag kl. 12.00-17.00 BlOftex undirsængin hefur fengið fádæma góðar undirtektir í Danmörku, sem og í fjölda annarra landa, sem hjálp við ofangreindum kvillum. Búnaðurinn er viðurkenndur af fjölda sjúkrahúsa í Japan og Þýskalandi. Þá standa nú yfir tvíblindar rannsóknir á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn og eru áhugaverðar niðurstöður væntanlegar fljótlega. Söluaðilar Vello-Scandinavia verða með ráðgjöf og upplýsingar um búnaðinn. Enginn annar veitir svo víðtæka ábyrgð: Meira en áratugs reynsla af segulmeðferð. Fimm vikna skilaréttur með minnst 3ja vikna notkun. 10 ára ábyrgð á verksmiðjugöllum. 30 ára ábyrgð á BlOflex-virkninni. Raðgreiðslur VISA - EURO Sjá síðu 611 í textavarpi Allir velkomnir á GRÆNA TORGIÐ BLÓMAVALI Umboðsaðili * y —I ÍOÍÍO Nánari upplýsingar veittar í síma 588 2334 Eru rimlagardínurnar óhreinar! Vib hreínsum: Rimla, strimla, plíseruS og sólargluggatjöld. Setjum afrafmagnandi bónhúð. Sækjum og sendum ef óskaó er. ö tæHmihránsunin Si.IH.lmar 35 • Simt: 533 3634 • G5M. 897 3534

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.