Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Iiman við 25% hlutafjár Skagstrendings í dreifðri eign
Sex mánaða frestur til
að uppfylla skilyrðin
YFIR 79% hlutafjár í Skagstrend-
ingi hf. er nú í eigu þriggja hlut-
hafa, Samherja, Höfðahrepps og
Burðaráss. Félagið uppfyllir því
ekki skilyrði í reglum Verðbréfa-
þings íslands um skráningu á Að-
allista. Þar er þess krafist að
a.m.k. 25% hlutafjár séu í dreifðri
eign. Skagstrendingur hefur sex
mánuði til að uppfylla skilyrðin að
nýju frá því VÞI er gert viðvart,
samkvæmt reglum þingsins.
Samherji hf. er stærsti hluthafi í
Skagstrendingi með 40,1%, Höfða-
hreppur á 20,9% og Burðarás
18,1%. Trygging hf. á 7,5% hluta-
fjár, Nafta ehf. 2,8% og Skeljungur
hf. 2,5%. Aðrir hluthafar eiga inn-
an við 1%. Hluthafar eru samtals
349.
I reglum um skráningu verð-
bréfa á VÞÍ segir í 9. grein: „Dreif-
ing eignarhalds hlutabréfaflokks
sem sótt er um skráningu á skal
vera þannig að a.m.k. 25 % hluta-
bréfanna og atkvæðisréttar séu í
eigu almennra fjárfesta. Með al-
mennum fjárfestum er átt við aðra
aðila en stjórn, lykilstjórnendur og
Yfir 50
miiljónir
söfnuðust í
tölvuátaki
TÖLVUÁTAKI Stúdentaráðs
og Hollvinasamtaka Háskólans
lauk í gær. Átakið tókst vonum
framar, en alls bárust gjafir að
upphæð 50.610.492 krónur,
sumar hverjar í formi vél- og
hugbúnaðar.
Ragnhildur Hjaltadóttir,
formaður Hollvinasamtak-
anna, sagði velvilja fyrirtækja
greinilegan. Betur hafi tekist
til en björtustu vonir gáfu til-
efni til, en fyrir andvirði gjaf-
anna er unnt að endurnýja og
auka um tæpan þriðjung tölvu-
búnað Háskólans.
Að sögn Sæþórs L. Jónsson-
ar, forstöðumanns Reikni-
stofnunar Háskólans, hefur
tölvukostur skólans því aldrei
verið í betra ástandi en nú.
Enda ríkir almenn ánægja með
hversu vel tókst til. „Við erum í
mun betri stöðu heldur en við
höfum nokkurn tímann verið,
en það má kannski gera bet-
ur,“ segir Sæþór og kveður
seint hægt að anna eftirspurn
á sjöunda þúsund nemenda.
Mikil vinna
liggur að baki
Söfnunarátakið hófst í sept-
ember 1998 og segir Finnur
Beck, formaður Stúdentaráðs,
mikla vinnu liggja þar að baki,
en fyrirtæki voru fengin til að
styrkja rekstur tölvuátaksins.
Finnur segist telja að slíkar
gjafir geti orðið viðvarandi
framlög atvinnulífsins, en þau
megi líta á sem traustsyfirlýs-
ingu á þeirri vinnu sem fram
fari í Háskólanum.
Þau fyrirtæki sem voru hvað
rausnarlegust í gjöfum sínum
til Háskólans voru Coneorde
Axapta ísland ehf., Kjaran ehf.
og íslensk erfðagreining.
Afram verður tekið við fram-
lögum til endurnýjunar á
tölvubúnaði Háskólans og hef-
ur verið stofnaður sérstakur
endurnýjunarsjóður í því
skyni.
einstaka hluthafa sem eiga 10%
eða meira, sem og aðila fjárhags-
lega tengda þeim, svo sem maka,
sambýlinga og ólögráða börn, svo
og móður-/dótturfélög. Eignarhald
almennra fjárfesta skal dreifast á
að minnsta kosti 300 hluthafa."
I 15. grein reglnanna kemur
fram að uppfylli félag sem skráð er
á Aðallista ekki lengur skilyrði um
skráningu skal það tilkynnt þing-
inu um leið og félaginu er kunnugt
um það. Félagið skal innan sex
mánaða uppfylla skilyrðin að nýju.
Tilkynnt 18. október
Jóel Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Skagstrendings, segir hlut-
höfum Skagstrendings vissulega
hafa fækkað aðeins og samkvæmt
nýjasta hluthafalista uppfylli félag-
ið ef til vill ekki skilyrði til skrán-
ingar á Aðallista Verðbréfaþings
Islands. „Verðbréfaþingi Islands
var tilkynnt um stöðuna með bréfi
18. október og félagið hefur sex
mánuði frá þeim tíma til að upp-
fylla skilyrðið um dreifða eignar-
aðild. Stærstu hluthafar eru með-
vitaðir um þetta og ég á ekki von á
öðru en að þeir bregðist við með
því að leggja sitt af mörkum til að
halda félaginu inni á Aðallista VÞI.
Því er ljóst að félagið fellur út af
Aðallista VÞÍ, uppfylli það ekki
skilyrðið innan sex mánaða en það
hlýtur að vera hagur allra hluthafa
að félagið sé skráð á VÞÍ,“ segir
Jóel.
Hann segist ekki geta svarað því
til hvaða ráðstafana verði gripið.
„Eg lít á þetta sem mál stærstu
hluthafanna að mestu leyti. í sum-
ar urðu miklar breytingar á eign-
arhaldi í félaginu og vegna þess
hversu seint upplýsingar bánist
frá verðbréfafyrirtækjum til skrán-
ingar á hluthafaskrá félagsins er
ekki langt síðan okkur varð þessi
staða ljós,“ segir Jóel.
VÞÍ aðhefst ekki
fyrr en nær dregur
Aðspurður segist hann ekki geta
svarað því hvort selt verði nýtt
hlutafé eða hvort stærstu hluthafar
selji af hlut sínum. „Málið hefur
ekki verið tekið upp í stjórn félags-
ins enn sem komið er.“
Stefán Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfaþings Is-
lands, staðfesti í samtali við Morg-
unblaðið að sex mánaða frestur
Skagstrendings til að uppfylla skil-
yrði til skráningar á Áðallista sé
hafinn fyrir nokkru. Aðspurður
segir Stefán VÞÍ fá vitneskju um
stöðu sem þessa hjá fyrirtækjum á
ýmsan hátt en væntanleg rafræn
eignaskráning muni auðvelda ferlið
til muna.
Skilyrðið um að 25% hlutafjár
skráðra félaga á VÞI sé í dreifðri
eign er tiltölulega nýtt, að sögn
Stefáns, en reglurnar voru settar í
desember árið 1997 um leið og
Vaxtarlisti var stofnsettur. „Það er
ekki komin mikil reynsla á þetta.
Þessi staða hefur komið upp áður
en leystist innan sex mánaða," seg-
ir Stefán og vísar til fjárfestingar
Orca í FBA.
Að sögn Stefáns mun VÞÍ ekki
aðhafast í máli Skagstrendings
fyrr en líður að því að frestur fé-
lagsins renni út, þ.e.a.s. 18. apríl á
næsta ári.
Níu hestar köfnuðu
um borð í Norrænu
Sýknaður
af ákæru
um brot á
lögum um
dýravernd
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri var
í gær sýknaður af ákæru ríkissak-
sóknara í Héraðsdómi Austurlands
um brot á lögum um dýravernd og
útflutning hrossa með því að hafa
vanrækt eftirlit með níu hestum,
sem hann fylgdi um borð í ferjuna
Norrænu við flutning þein-a frá
Seyðisfirði til Danmerkur. Atvikið
átti sér stað um miðjan ágúst 1998.
Hrossin köfnuðu í flutningskassa
á bifreið, en ekki hafði verið gangsett
rafmagnsvifta í bifreiðinni til að auka
loftun til hrossanna.
í niðurstöðu héraðsdóms kemur
fram að ákærði hafi farið til hross-
anna í lest Norrænu nánast um leið
og ferjan lagði frá landi og verið hjá
þeim í fjórar til fimm klukkustundir,
gefið þeim og brynnt. Hafi hann þá
yfirgefið hrossin og verið í burtu
eina og hálfa til tvær klukkustundir.
Fjarvera taldist
ekki vanræksla
Taldi dómurinn ekki sannað að
fjarvera frá hrossunum, einkum með
tilliti til þess að ákærði hefði verið
hjá þeim við umönnun þeirra í fjórar
klukkustundir áður, gæti talist slík
vanræksla að dauði hrossanna gæti
talist afleiðing af fjarveru ákærða.
Þá féllst dómurinn ekki á það að
ákærði bæri ábyrgð á því að raf-
magnsvifta í bifreiðinni hefði ekki
verið gangsett. Hefði dýralæknir
gefið þau fyi-irmæli að viftan skyldi
höfð í gangi á meðan á flutningnum
stæði. Voru þau gefin ákærða og
ekki síður umboðsmanni flutnings-
aðila og gat hvorki dýi-alæknirinn né
flutningsaðilinn komið ábyrgð á loft-
ræstingu á ákærða, sem hafði enga
möguleika á að annast gangsetningu
viftunnar.
Sjö Vínar-
tónleikar
hjá Sin-
fóníunni
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
Islands gengst fyrir sjö Vínar-
tónleikum í byrjun janúar, sex í
Reykjavík og einum á Egils-
stöðum. Mest hefur hljómsveit-
in haldið ferna tónleika af þessu
tagi áður.
Helga Hauksdóttir, tónleik-
astjóri SÍ, segir að skýringin á
þessum fjölda tónleika sé ein-
föld - gríðarlegur áhugi tón-
leikagesta. „Áhuginn hefur ver-
ið að aukast jafnt og þétt
síðustu ár, síðast þegar við vor-
um í Háskólabíói, 1998, vorum
við með ferna tónleika en í
fyrravetur færðum við okkur
yfir í Laugardalshöll og héldum
þar tvenna tónleika, sem
samsvarar fernum tónleikum í
Háskólabíói. Áhuginn hefur þó
aldrei verið svona mikill áður.“
Að sögn Helgu er þegar upp-
selt á fimm af sex tónleikum í
Reykjavík.
Tónleikarnir verða í Há-
skólabíói 5., 6., 7., og 8. janúar,
9. janúar á Egilsstöðum og svo
aftur í Háskólabíói 13. og 14.
janúar.
Einsöngvai-ar á tónleikunum
koma frá Vínarborg, sópran-
söngkonan Margarita Halasa
og tenórsöngvarinn Wolfgang
Igor Derntl, en hljómsveitar-
stjóri verður Gert Meditz.
Morgunblaðið/Golli
Stúdentar leggja blómsveig við leiði Jóns Sigurðssonar í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Stúdentar héldu fullveldisdaginn hátíðlegan
Hvetja til þess að
hugvitið verði virkjað
FULLVELDISDAGSINS var minnst í Háskóla ís-
lands með hátíðardagskrá og sagði Finnur Beck, for-
maður Stúdentaráðs, í ræðu sinni að liugvit væri hið
nýja virkjanaafl. Stjórnvöld ættu að virkja menntast-
ofnanir landsins betur með auknum stuðningi.
Finnur sagði einnig að ekki væri síður þörf á að
rækta Háskólann, en slíkt væri best gert með því að
leggja ekki hömlur á bóka- og húsakostnað. Bækur
væru nauðsynlegar til að þekking dafnaði. Fjárveit-
ingar stjórnvalda hafi hins vegar ekki tekið tillit til
hve ört nemendum Háskólans fjölgi líkt og nauðsyn
væri.
Ragnhildur Hjaltadóttir, formaður Hollvina-
samtaka HÍ og Finnur Beck afhentu við þetta tæki-
færi Páli Skúlasyni, rektor Iláskólans, ágóða úr
tölvuátaki sem Hollvinasamtökin og Stúdentaráð
stóðu í sameiningu að. En alls söfnuðust 50.610.492
krónur, sem notaðar eru til að bæta tölvukost skól-
ans.
Yfirskrift hátíðardagskrárinnar var Blindur er
bóklaus maður - bætum bókakost Háskóla íslands og
gerði rektor bókina og mikilvægi hennar fyrir ís-
lensku þjóðina að umræðuefni sínu. Bækur hafi
staðið undir andlegu lífi fslensku þjóðarinnar og
margskonar möguleikar fyrir frekari þróun bóka
felist í tækninýjungum.
Söknuður fylgir því
að kveðja góða bók
Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttamaður og
skáld, gerði bókhneigð og -hvöt að umræðuefni
sínu. En hann fjallaði m.a. um þá nautn sem felist í
lestri góðra bóka og þann söknuð sem fylgi því að
kveðja þær að lestri loknum. Þá fjallaði Þröstur
Helgason, blaðamaður og formaður Bókasambands
íslands, um tengsl íslendinga við bókmenntir sínar,
hvernig Islendingar kunni að lifa af bækur. En
bækur hafi verið hluti af veruleika landsmanna og
lífsbarátta þjóðarinnar fari að vissu leyti fram með
þeim.
Stúdentar minntust einnig fullveldisdagsins með
því að leggja blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar.