Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Heimastjórn N-Irlands tekur
formlega við völdum í dag
Irar falla endan-
lega frá kröfum
Dyflinni, Bclfast. AP, AFP.
José Ramos Horta snýr aftur til Austur-Tímor
Hvetur landa sína til
sátta við Indónesa
Dili. AP, AFP.
Reuters
Horta, þjóðfrelsishetja A-Tímora, faðmar
að sér barn við komuna til A-Tímors í gær.
Gusmao, hittu á þriðju-
dag Abdurrahman Wa-
hid, forseta Indónesíu, á
sögulegum fundi í Jak-
arta. Gusmao, sem af
mörgum er talinn munu
verða fyrsti forseti sjálf-
stæðs ríkis á A-Tímor,
var þangað til fyrir
þremur árum fangi Ind-
ónesíustjórnar. Hann
dvaldi sjö ár í fangelsi í
Jakarta vegna vopnaðrar
baráttu sinnar gegn yfir-
ráðum Indónesa. Á fund-
inum lofaði Wahid að
koma á nánum og vinsa-
mlegum tengslum við A-
Tímor og reyna þannig
að bæta fyrir áratuga
hernám Indónesa þar.
José Ramos-Horta
barðist í 24 ár gegn inn-
limun A-Tímor í Indónes-
íu. Hann hafði þar á und-
an barist gegn
nýlendustjórn Portúgala
á eyjunni sem blaðamað-
ur á dagblaði í höfuð-
borginni Dili. Horta varð
MEÐ varanlegan frið í sjónmáli á
Norður-írlandi lýsti í gær Bertie
Ahern, forsætisráðherra írska lýð-
veldisins, yfir „óafturkallanlegum"
vilja írska ríkisins til að falla frá
kröfunni um yfirráð yfir landshlut-
anum í norðri, sem haldið hefur
tengslum við Bretland.
Ahern sagði í ávarpi á írska þing-
inu í Dyflinni, nokkrum stundum áð-
ur en brezka ríkisstjórnin fói nýrri
heimastjórn N-írlands valdaumboð
sitt, að stjórnarskrá írska lýðveldis-
ins frá 1937 yrði breytt í dag,
fimmtudag, í samræmi við ákvæði
samningsins frá í fyrra um frið á N-
Irlandi, sem kenndur er við föstu-
daginn langa.
Samþykkt í
þjóðaratkvæði
„Með fullt pólitískt samkomulag
nú í þann mund að komast til fram-
kvæmda, höfum við sterkasta mögu-
lega grundvöllinn fyrir varanlegum
friði á Irlandi, betri en nokkru sinni
áður í sögunni,“ lýsti Ahern yfir.
I þjóðaratkvæðagreiðslu í fyrra
veittu írskir kjósendur yfirgnæf-
andi samþykki sitt fyrir stjórnar-
skrárbreytingunni, sem gengur út á
að fellt sé út úr henni ákvæði þar
sem Norður-írland er lýst „hluti af
landi írsku þjóðarinnar". Pess í stað
setja Irar traust sitt á að einn góðan
veðurdag komi að því, að mótmæl-
endur á N-írlandi sækist sjálfir eft-
ir því að tilheyra sameinuðu Irlandi.
„Allir málsaðilar hafa orðið að
taka áhættu í þágu friðarins," sagði
Ahern. „Þetta er áhættan sem við
tökum.“
„Risastórt skref“
Stjórnarskrárbreytingin á írlandi
gat fyrst komizt til framkvæmda
eftir að stríðandi fylkingar á N-ír-
landi leystu ágreining sinn um af-
vopnun Irska lýðveldishersins
(IRA) og myndun samstjórnar allra
helztu flokkanna á n-írska þinginu.
Hinir 12 meðlimir heimastjórnar-
innar voru útnefndir á mánudag eft-
ir að David Trimble, leiðtogi
stærsta flokks sambandssinna,
UUP, féll frá kröfu flokksins um að
IRA hæfi afvopnun áður en ráðherr-
ar Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA,
fengju að taka sæti í henni.
í Lundúnum tilkynnti Tony Blair
forsætisráðherra að Elísabet II
drottning hefði samþykkt lögin um
framsal valds til heimastjórnarinn-
ar, sem gengu í gildi á miðnætti.
„Það eiga eftir að verða mörg ljón
í veginum, en ég tel að risastórt
skref hafi verið stigið,“ tjáði Blair
þingheimi í neðri deild brezka
þingsins.
Heimastjórnin heldur sinn fyrsta
fund í Stormont-kastala í Belfast í
dag.
NÓBELSVERÐLAUNAHAFINN
José Ramos Horta, seni lengi barð-
ist gegn yfirráðum Indónesa á A-
Tímor, snéri aftur til heimalands
síns í gær eftir 24 ára fjarveru. Þús-
undir stuðningsmanna hans fögn-
uðu honum í miðborg Dili, höfuð-
borgar A-Tímors, og hrópuðu „lifi
Ramos Horta!“. Horta hlaut friðar-
verðlaun Nóbels árið 1996 fyrir
baráttu sína gegn kúgun og mann-
réttindabrotum Indónesa á íbúum
A-Tímor.
„Hinar raunverulegu hetjur eru
þeir sem þraukuðu hér á tíma her-
námsins,“ sagði Horta við mann-
fjöldann. „Það eru þeir sem hafa
þjáðst, þeir hafa sætt pyntingum,
verið nauðgað og drepnir. Við vott-
um þeim öllum virðingu okkar.“
Horta hvatti fólk til að leita sátta
og sýna Indónesum sem vilja búa
áfram á A-Tímor umburðarlyndi.
Fjölmargir Indónesar voru búsettir
á A-Tímor áður en skálmöldin hófst
þar í september síðastliðnum.
Margir þeirra hröktust þaðan
meðan á átökunum stóð, margir
til vestari hluta Tímoreyju, en vilja
nú snúa aftur ef þess er kostur. „Ef
Indónesar munu halda áfram að
búa hér verðum við að búa í sátt við
þá, tala við þá. Við verðum að hlýða
guðs orði og fyrirgefa. Ef við
bregðumst við á þann hátt mun
heimurinn taka ofan fyrir okkur,“
sagði Horta.
Hann hvatti einnig aðrar fyrrver-
andi nýlendur Portúgala á svæðinu
að aðstoða A-Tímora við upp-
byggingu í landinu og þakkaði
Sameinuðu þjóðunum fyrir að beita
sér fyrir sjálfstæði A-Tímors.
Ramos Horta og fyrrverandi leið-
togi skæruliða A-Tímora, Xanana
fyrsti ráðherra í ríkis-
stjórn sjálfstæðs ríkis á A-Tímor ár-
ið 1973 en neyddist til að flýja það-
an aftur tveimur árum síðar þegar
Indónesíúher gerði innrás. Hann
hefur ferðast víða um lönd og talað
máli íbúa á A-Tímor, hjá Samein-
uðu þjóðunum og víðar.
Domsmálið gegn hugbúnaðarrisanum Microsoft enn óútkljáð
Sáttasemjari
Líkur hafa aukist á að sættir takist í máli
dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna og nít-
ján ríkja gegn hugbúnaðarrisanum Micro-
soft, eftir að dómari við áfrýjunardómstól
var skipaður sáttasemjari í málinu. í pistli
Ragnhildar Sverrisdóttur kemur fram, að
einstaklingar og fyrirtæki hafa þegar höfð-
að dómsmál til að fara fram á skaðabætur
vegna verðlagningar Windows-stýrikerfís-
ins. Slíkar málshöfðanir ættu að hvetja hug-
búnaðarfyrirtækið til að semja sem fyrst.
leitar lausna
AP
Dómarinn Richard Posner, sem skipaður hefur verið sáttasemjari í deil-
unni, átti sinn fyrsta fund með dciluaðilum á þriðjudag.
ALRÍKISDÓMARI í Bandaríkjun-
um kvað upp þann úrskurð 5. nóvem-
ber sl. að Microsoft nyti einokunar-
aðstöðu og hefði nýtt hana til að
beita önnur fyrirtæki viðskipta-
þvingunum. Þá hafi Microsoft selt
Windows 98-stýrikerfí sitt á nær
tvöfalt hæn-a verði en þurfti til að
hagnast og þannig nýtt sér þá yfir-
burðastöðu að 90-95% allra einka-
tölva í heiminum nota stýrikerfi
Microsoft. Neytendur sátu líka uppi
með vafrann Internet Explorer, sem
var innbyggður í Windows og al-
mennt hafi hegðun Microsoft hamlað
nýsköpun. Það hafi komið niðri á
neytendum.
Vilja bætur vegna
verðlagningar
Blekið var varla þomað á pappír-
um dómarans þegar ný mál á hendur
Microsoft voru höfðuð. I San
Franciseo héldu þrír lögmenn því til
dæmis fram fyrir hönd skjólstæð-
inga sinna að Microsoft hefði haft
milljónir á milljónir ofan af almenn-
um neytendum og fyrirtækjum með
okri á Windows. Ekki gátu lögmenn-
imir nákvæmlega tilgreint hve mik-
ill skaðinn væri, og hvaða bætur yrði
farið fram á, en sögðu að sérfræðing-
ar ynnu að slíkum útreikningum.
Þeir eiga ýmsu öðru ólokið, til dæmis
þurfa þeir að sýna fram á hvenær
Microsoft varð það einokunarfyrir-
tæki, sem dómarinn segir það vissu-
lega vera nú, til að geta fært að því
rök að sú staða þess hafi skaðað
skjólstæðinga þeirra. Lögmennirnir
þrír, sem eru allir reyndir í málaferl-
um af þessu tagi, segja að þeir muni
halda málunum tO streitu, jafnvel
þótt Microsoft, dómsmálaráðuneytið
og ríkin 19 semji og aldrei verði
kveðinn upp dómur.
í New York hefur svipað dómsmál
verið höfðað. Þar er það auglýsing-
astofa, sem hyggst reka málið sem
prófmál fyrir hönd fjölda annarra
smáfyrirtækja, sem hafi borið skaða
af því að þurfa að kaupa Windows við
okurverði.
Sérfræðingar hafa bent á, að
Microsoft eigi möguleika á að verjast
fimlega í málaferlum af þessu tagi.
Flestir neytendur hafi ekki keypt
Windows-stýrikerfið eitt og sér,
heldur fengið það uppsett í tölvunni
þegar hún var keypt. Um 90% af allri
sölu á Windows 98 fór þannig fram
að kerfið var sett í tölvur, sem síðan
voru seldar. Sá sem keypti slíka
tölvu var í raun „óbeinn“ kaupandi
stýrikerfisins. Miðað við dóm
Hæstaréttar Bandaríkjanna árið
1977 geta „óbeinir" kaupendur ekki
farið fram á skaðabætur í málum
sem rísa vegna hugsanlegra brota á
lögum um varnir gegn auðhringa-
myndun. Sá úrskurður getur ef til
vill hlíft Microsoft víða, en í Kaliforn-
íu, New York og 16 öðrum rfkjutn
hafa verið sett lög frá því að þessi
dómur féll, þar sem opnað er fyrir
þann möguleika að „óbeinir" kaup-
endur fái skaðabætur, sem geta
numið allt að þreföldum fjárhagsleg-
um skaða.
Fleiri svipuð mál hafa verið höfðuð
annars staðar í Bandaríkjunum,með-
al annars í Ohio, Alabama og Louisi-
ana. Sumir tala um að kapphlaupið
fyrir dómstóla sé hafið, allir ætli sér
að verða fyrstir til að ná milljónum
undan blóðugum nöglum hugbúnað-
arrisans, sem dómarinn sló svo fast á
puttana.
Ekki er víst að mál þessi fái snara
meðferð fyrir dómstólum. Eins og
fram kom þegar alríkisdómarinn
kvað upp úrskurð sinn, var í raun um
efnislegar niðurstöður hans að ræða,
en hann heimfærði hegðan Microsoft
ekki upp á tiltekin lagaákvæði, hvað
þá að hann tiltæki hæfilega refsingu.
Þehrar niðurstöðu hans, eiginlegs
dómsorðs, er ekki að vænta fyrr en í
byrjun næsta árs. Og svo gæti farið,
að hún sæi aldrei dagsins ljós, þ.e. ef
aðilar ná samningum. Þar með yi-ðu
síðari málaferli afar þung í vöfum
fyrir einkaaðila, sem þyrftu nánast
að byrja frá grunni. Þeir gætu til
dæmis ekki vísað til efnislegra nið-
urstaðna dómarans; lagalega væru
þær úr sögunni.
Dómari við áfrýjunardómstól
leitar sátta
Efnislegar niðurstöður Jackson
alríkisdómara voru reiðarslag fyrir
Microsoft, því hann tók undir nær
allar gagnrýnisraddir hins opinbera í
dómsmálinu. Microsoft hefur borið
sig vel, sagst ætla að berjast áfram
fyrir áfrýjunardómstóli, en flestir
telja að fyrirtækið muni reyna að
koma alríkismálinu út úr heiminum
með samningum og gera þar með
einkaaðilum erfiðara fyrir að krefj-
ast skaðabóta fyrir dómstólum. Þai-
kemur til skjalanna annar alríkis-
dómari, sem Jackson leitaði til og
óskaði eftir að tæki að sér hlutverk
sáttasemjara í málinu. Sá er Richard
E. Posner, dómari við áfrýjunar- h
dómstól í Chicago og virtur fræði- I
maður, sem fréttaskýrendur telja j
ákaflega góðan kost og raunar einn
fárra manna sem gæti leyst af hendi
það mikla verkefni að ná sáttum sem
allir aðilar geti unað við.
Sú ákvörðun Jackson, að fá sátta-
semjara sem starfar hjá áfrýjunar-
dómstól til að ganga á milli fylkinga,
er óvenjuleg, en hins vegar mjög
skiljanleg þegar litið er til þess að
Microsoft og hið opinbera hafa all- |
nokkrum sinnum sest að samninga- |
borði undanfarið ár, án þess að ná |
hinum minnsta árangri. Posner ætti f
að geta leitt báðum aðilum fyrir sjón-
ir hvað bíður þeirra á næsta dómst-
igi, nái þeir ekki samkomulagi nú.
Hann leiðir Microsoft áreiðanlega í
allan sannleika um að engin trygging
sé fyrir því að áfrýjunardómstóll líti
öðrum augum á málið en alríkisdó-
marinn Jackson. Og hann bendir
hinu opinbera á, að það hafi kannski
náð sínum besta árangri í málinu nú J
þegar, áfrýjunardómstóll geti gert I
þann árangur að engu.
Af hálfu Microsoft og hins opin-
bera hefur skipan sáttasemjarans
verið tekið fagnandi. Talsmaður
dómsmálaráðuneytisins segir, að þar
á bæ hlakki menn til að eiga viðræð-
ur við sáttasemjarann, enda hafi ráð-
uneytið ávallt verið tilbúið að ræða
hverja þá leið, sem tryggt gæti sam-
keppni, nýsköpun og valfrelsi neyt- .
enda. Talsmaður Microsoft segir
sína menn líka íúlla tilhlökkunar að I
starfa með Posner til að finna rétt- *
láta og sanngjarna lausn sem kæmi
bæði neytendum og hugbúnaðar-
heiminum til góða. Viðskiptaheimur-
inn hefur sýnt velþóknun sína, því
gengi hlutabréfa í Microsoft hækk-
aði lítillega eftir að tilkynnt var um
sáttasemjai’ann. Vonandi reynast
sáttafundirnh’ standa undir allri
þessari tilhlökkun. Fyrsti fundur
ráðuneytisins og Microsoft var hald-
inn á þriðjudag en markmið hans var j
einungis að „kynna“ aðila hvern fyrir I
öðrum. Munu eiginlegir samninga-
fundir hefjast á næstunni.