Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 80
80 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORG’JNBLAÐIÐ
Jólakúlur og skraut
frá 17.00 til 20.00
Meister 165 aðeins kr. 18.740 stgr.
Husqvarna
Husqvarna saumavélar,
sœnsk gæðavara!
verð frá kr. 39.700stgr.
Gefið nytsamajólagjöf
sem enáist og endist!
TOUSTEiNN
Völusteinn / Mörkinni 1 / Sími 588 9505
í DAG
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hvar er styttan
af Tómasi Guð-
mundssyni?
TÓMAS Guðmundsson
hefur verið nefndur skáld
Reykjavíkur. Hafði hann á
langri ævi sannariega unn-
ið til þeirrar vegsemdar
eins og mörg kvæða hans
bera vott um. Fyrir all-
mörgum árum sýndi borg-
arstjórn Reykjavíkur hon-
um þann sóma að gerð var
af honum brjóstmynd er
hann var á lífi, sem að
sjálfsögðu var komið fyrir í
Austurstræti. Var hann
viðstaddur þá athöfn
ásamt konu sinni. Fyrir
nokkrum árum var brjóst-
myndin fjarlægð, líklega
vegna framkvæmda til
endurbóta á strætinu. Nú
er mér og fleirum nokkur
forvitni á að vita hvað veld-
ur að brjóstmyndinni er
ekki komið fyrir á ný þar
sem hún á heima. Heldur
finnst okkur það nöturlegt
fyrir borgarstjórn að
heiðra heiðursmann og
svipta hann svo heiðrinum
að honum látnum. Slíkt
tíðkast að vísu í ónefndum
löndum eftir því sem hinir
pólitísku vindar blása
hverju sinni. Ekki viljum
við trúa því að við förum
að taka okkur slíkt til fyr-
irmyndar eða hvað?
Grétar Eirfksson,
Háaleitisbraut 59.
Úngfrúin góða
SIGGA hafði samband við
Velvakanda og vildi hvetja
alla íslendinga tiþþess að
sjá myndina Ungfrúin
góða og húsið. Hún segir
að myndin sé stórkostleg
og að myndin sé bókin og
bókin sé myndin.
Áskorun til
bókaútgefenda
EINS og ýmsir hafa
kannski tekið eftir hefur
verið mikili áhugi á Feng
Shui á íslandi. Ekki síst á
þessu ári sem senn kveður
okkur. Vil ég beina þeirri
áskorun til stærri bókaút-
gefenda að þeir drífi sig í
að gefa út fallega og
skemmtilega bók um Feng
Shui strax á næsta ári. Það
jafnast ekkert á við hið
ástkæra ylhýra. An efa
yrðu mjög margir ánægðir
með framtakið.
Svava Gunnarsdóttir,
Lynghaga 20, R.
Þakklæti til DAS
JÚLÍANA hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri þakklæti
til starfsfólks DAS á
horninu á Tjarnargötu og
Vonarstræti. Hún lenti í
smá erfiðleikum fyrir ut-
an hjá þeim um daginn
þegar hún átti erindi til
þeirra. Starfsfólkið var
afskaplega hjálplegt og
vildi hún færa þeim sínar
bestu þakkir fyrir liðleg-
heitin.
Júliana Helgadóttir
Jesú-myndin
BJARNDÍS var óskaplega
reið og hrygg þegar hún
heyrði að það væri búið að
færa Jesú-myndina úr Kr-
inglunni í Húsdýragarðinn,
þar sem ekki hefði verið
pláss fyrir hana í Kringl-
unni vegna jólaskreytinga.
Er ekki full ástæða til þess
að minna á Jesú, þar sem
nú nálgast hin heilaga há-
tíð jólanna? Hvar eru jól-
in?
Bjarndís Guðjónsdóttir,
Blönduhlið 33 Rcykjavik.
Tapað/fundið
Gleraugu
týndust
GLERAUGU í svörtu
Gucci-hulstri, týndust í
kringum 20. nóvember sl.
á höfuðborgarsvæðinu.
Skilvís finnandi vinsamleg-
ast hringi í Sólrúnu í síma
423-7737.
Reiðhjólahjálmur
í óskilum
BARNA-reiðhjólahjálmur
fannst á Tjörninni. Hjálm-
urinn er nýr. Upplýsingar
í síma 551 4048.
Víkveiji skrifar...
Fyrir stuttu var hringt í Vík-
verja frá Gallup og hann beð-
inn um að taka þátt í skoðana-
könnun. Víkverji, sem hefur skoð-
anir á nær öllum hlutum, lét til
leiðast, sannfærður um að fengur
væri að því fyrir Gallup að kynn-
ast skoðunum hans. Fyrsta spurn-
ingin var: „Hvaða tegund af
sjampói kemur fyrst upp í huga
þinn?“ Víkverja vafðist tunga um
tönn og varð að viðurkenna að
engin sjampótegund væri ofarlega
í huga hans. Næsta spurning:
„Hvaða pastategund kemur fyrst
upp í huga þinn?“ Víkverji hafði
einmitt verið að borða kjöt þegar
Gallup hríngdi og átti ekkert svar
við þessari sérkennilegu spurn-
ingu. Næsta spurning: „Hvar
keyptir þú síðast bensín?“ Meira
en vika var síðan Víkverji keypti
síðast bensín og hann gat með
engu móti munað hvar þessi við-
skipti höfðu farið fram. Næsta
spurning: „Hvaða auglýsing var á
blaðsíðu 3 í Morgunblaðinu í dag?“
Víkverji varð að viðurkenna að
þessari spurningu gæti hann bara
ómögulega svarað nema því aðeins
að hann fengi að kíkja í blaðið.
Konan frá Gallup sagði að það
væri óþarfi, en hélt áfram að lesa
upp spurningar, sem hún fékk fá-
tækleg svör við.
Víkverji varð nokkuð hugsi eftir
að hafa kvatt konuna frá
Gallup. Mjög erfitt er að sjá hvaða
gagn er að þessum spurningum, en
taka ber fram að Víkverji hefur
aldrei lært neitt í markaðsfræðum.
Annars fannst Víkverja opinberast
í þessari könnun helsta vandamál
þeirra sem gera skoðanakannanir,
nefnilega að mjög stór hluti þjóðar-
innar hefur litlar eða engar skoð-
anir á því sem um er spurt.
XXX
I^haust var gerð skoðanakönnun á
því hvaða einstaklingur fólk
vildi að yrði leiðtogi Samfylking-
arinnar. Þar kom m.a. fram að
margfalt færri nefndu Jóhönnu
Sigurðardóttur en í skoðanakönn-
un sem gerð var í febrúar á þessu
ári. Frá þessari könnun var ítar-
lega greint í fjölmiðlum og tals-
vert fjallað um minnkandi „vin-
sældir“ Jóhönnu. Líklegasta skýr-
ingin á því að Jóhanna er sjaldnar
nefnd í skoðanakönnun í haust er
sú að skömmu áður en skoðana-
könnunin var gerð í febrúar sigr-
aði Jóhanna glæsilega í prófkjöri í
Reykjavík og var af þeim sökum
mikið í fjölmiðlum. Ekki bar sér-
staklega á henni í fjölmiðlum í
sumar og haust og ekkert hefur
gerst á þessum tíma sem breytir
stöðu Jóhönnu í stjórnmálunum.
Það eina sem hefur gerst frá því í
febrúar er að nafn hennar er ekki
eins oft nefnt í fjölmiðlum. Hvað
segir skoðanakönnunin um hæfni
Jóhönnu sem stjórnmálamanns?
Auðvitað ekki neitt.
XXX
Nokkur umræða hefur orðið um
skoðanakannanir í kjölfar
skoðanakönnunar um virkjun og
álver á Austurlandi. Ásakanir hafa
verið settar fram um að könnunin
hafi verið leiðandi. I fljótu bragði
verður ekki séð að könnunin hafi
verið gerð með öðrum hætti en
aðrar kannanir sem lagðar hafa
verið fyrir fólk. Það hefði þó verið
fróðlegt að sjá hvort það hefði haft
áhrif á svörin ef einnig hefði verið
spurt hvort fólk væri íylgjandi lög-
formlegu umhverfismati, en þeirri
spurningu var sleppt í könnuninni.
Náttúruverndarsamtök íslands
hafa einnig gert skoðanakönnun
um þetta mál, en þar hefur ein-
vörðungu verið spurt um umhverf-
ismatið, en ekkert um það hvort
fólk vildi virkja á Eyjabökkum;
sem er þó lykilatriði í málinu. I
báðum könnununum er sleppt lyk-
ilspurningum, væntanlega vegna
þess að þeir sem kaupa kannanirn-
ar vilja ekki heyra svörin.