Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 35
LISTIR
Nýjar bækur
• BRÉFtil
Brands er eftir
Harald Bessason,
fyrrverandi pró-
fessor í Winnipeg
og háskólarektor
á Akureyri.
Haraldur rifjar
upp minningar úr
Skagafirði, þar
sem hann er
fæddur og uppalinn og segir sögur
af fólki sem hann kynntist meðal
landa í Kanada og Bandaríkjunum.
Inn í þessar frásagnir spinnur hann
söguþætti af sjálfum sér og fléttar
saman við fróðleik og spakvitrar
hugleiðingar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ennfremur segir að frásagnirnar
séu felldar inn í bréf til Brands, fóst-
ursonar höfundar, sem býr í Toron-
to, en hann hafði beðið Harald að
ski'ifa upp sögurnar sem hann hafði
haft svo mikla unun af að heyra af
vörum fósturföður síns á árum áður.
Utgefandi er Ormstunga. Bókin
er2B4 bls., prentuð í Steindórs-
prenti-Gutenberg. Félagsbókband-
ið-Bókfell sá um bókband. Ingólfur
Júlíusson hannaði kápu. Verð: 3.980
kr.
• STAFRÓF tónfræðinnar eftir
Jón Þórarinsson er endurútgefið.
Höfundur hefur endurskoðað
bókina og gert
ýmsar leiðrétt-
ingar og breyt-
ingar sem hann
hefur talið nauð-
synlega. Bókin er
grundvallarrit og
handbók fyrir þá
sem eru í tónlist-
arnámi og jafn-
framt fyrir þá
sem eru lengra
komnir í þeim fræðum. Öll tóndæmi
í bókinni eru tölvusett, hvert við-
fangsefni er merkt með tölustöfum
og atriðaorðaskrá er í bókarlok.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 111 bls., prentuð í Grafík
hf. Margrét E. Laxness gerði kápu.
• TUNGUMÁL
veraldar er yfir-
litsrit um tungu-
mál og málaættir
eftir Baldur
Ragnarsson.
I fréttatil-
kynningu segir
að ritið sé hið
fyrsta sinnar
tegundar á ís-
lensku.
Ennfremur segir m.a.: „Erfítt er
að komast að niðurstöðu um fjölda
tungumála jarðarbúa en þó má
nefna tölu um eða yfír 4.000 sem
mætti líklega meira en tvöfalda ef
mállýskur, sem rísa undir nafni,
Verð: 2.499 kr.
Baldur
Ragnarsson
Jón
Þórarinsson
væru taldar með. í þessari bók er
getið 280 tungumála, þ. á m. nokk-
urra fornmála, blendingsmála og
planmála."
Baldur Ragnarsson hefur um-
langt skeið kennt íslensku við
Menntaskólann við Hamrahlíð.
Hann hefur samið á annan tug
kennslubóka í öllum greinum ís-
lenskukennslunnar í fram-
haldsskólum auk ljóðabóka á ís-
lensku og esperanto.
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókin er 293 bls., kilja. Verð: 2.600
kr.
• HJARTA í molum, er eftir Car-
sten Folke Möller, í þýðingu Jóns
Daníelssonar.
Hér segir af Lúkasi sem er vitlaus
í Júlíu. Gallinn er bara sá að hún er
besti vinur hans. Það er þess vegna
ekki alls kostar einfalt að reyna við
hana.
Kenneth er vitlaus í „Barbiegirl“,
dulúðugri stúlku sem hann kynntist
á Netinu og er alveg við það að næla í
- heldur hann. Lúkas er sannur vin-
ur, þannig að þegar Kenneth kemst
að því að hann hefur verið hafður að
háði og spotti á Lúkas ekki annarra
kosta völ en að hjálpa vini sínum að
endurheimta æruna.
Fyrsta unglingasaga Möllers, Ast,
peningar og allt í rugli, kom út á ís-
lensku fyrir síðustu jól og hlaut þeg-
ar vinsældir.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
206 bls. prentuð í Singapúr. Verð
2.280 kr.
• OPINBERUN
Jóhannesar er
með myndum eft-
ir Leif Breið-
fjörð.
Þessi bók bibh'-
unnar er auðug af
myndefnum og
hafa margir
þekktir mynd-
hstarmenn unnið
með þau í aldanna
rás. Opinberunarbókin er sú bók
biblíunnar sem oft var myndskreytt,
sérstaklega á öldum áður. Nú um ár-
þúsundamótin hefur texti Opinber-
unarbókarinnar oft verið til umfjöll-
unar um allan heim.
Leifur Breiðfjörð hannaði bókina
og hugsaði hana sem nokkurs konar
bókverk, en ekki aðeins mynd-
skreytingu við Opinbenmarbókina
né heldur sem hefðbundna lista-
verkabók.
F ormála að bókinni skrifar biskup
Islands, heira Karl Sigurbjömsson.
Bókin kemur út í tengslum við
sýningu Leifs á pastel- og vatnslita-
myndum sem nú stendur yfir í Hall-
grímskirkju.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin, sem er 180 bls., er gefín út í
sérstakri viðhafnarútgáfu. Bókin er
unnin í Prentsmiðjunni Odda hf.
Verð: 4.980 kr.
Tímarit
• ANDVARI, rit Hins íslenska
þjóðvinafélags, er komið út. Þetta
er 124. árgangur,
hinn fertugasti í
nýjum flokki.
Ritstjóri er
Gunnar Stefáns-
son. Hann skrif-
ar forystugrein
sem hann nefnir
Hugleiðingar á
kosningaári.
Vésteinn Óla-
son, for-
stöðumaður Stofnunar Arna Magn-
ússonar, skrifar aðalgreinina að
þessu sinni. Það er ítarlegt ævi-
ágrip Einars Ólafs Sveinssonar,
prófessors, fyrsta forstöðumanns
Handritastofnunar Islands, en 12.
desember í ár er öld liðin frá fæð-
ingu hans.
Annað efni ritsins er af sviði bók-
mennta og stjórnmálasögu.
Kristján Arnason skrifar um skáld-
skap Sigfúsar Daðasonar; Þórir
Óskarsson ritar greinina Hvað er
rómantík?; Soffía Auður Birgis-
dóttir fjallar um íslenska endur-
ritun Gunnars Gunnarssonar og
Birna Bjarnadóttir ritar um skáld-
ævisögu Guðbergs Bergssonar.
Þá er grein eftir Guðmund Hálf-
danarson, Guðfeður flokkakerfís,
um stjórnarmyndanir Jóns Þor-
lákssonar og Jónasar Jónssonar frá
Hriflu. Ljóð eru eftir Baldur Ósk-
arsson og ljóðaþýðingar eftir Arn-
heiði Sigurðardóttur.
Andvari er 160 síður. Prent
smiðjan Oddi prentaði, en dreifíngu
annast Sögufélag, Fischersundi 3.
Verð: 1.540 kr.
Gunnar
Stefánsson
Verð óður 52.900.-
Ótiúiesi verð - flflcíns kr.
Ku
áirúiest verð - fiðeins kr.
LG-videotæki 2 hausa
T
T
J
Nýtt videotæki frá LG með frábærum myndgæðum. Long play
afspilun og upptaka. NTC afspilun. Allar valmyndir á skjá, fjarstýring,
Video Doctorfsiálfbilanagreining) barnalæsing o.fl.
Þú gerir ekki betri kaup'.
Ódýrustu og fullkomnustu
videotæki á íslandi
mmm LG-Hi-Fi videotæki 6 hausa
Ný hönnun fra LG með frabærum myndgæðum. Long play
afspilun og upptöku. NTSC afpilun á PAL TV, 100% kyrrmynd.
Breiðtjaldsstilling 16:9. Barnalæsing, fjarstýring, Video
Doctor(sjálfbilanagreining) o.fl.
pþvou^
\sVand'
----$fil
■ -
EXPERT er stærsta heimilis-
og raftækjaverslunarkeðja
í Evrópu - ekki aðeins á
Norðurlöndum.
RflFMKMPERZLUN ISLflNDS Ff
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Uppbvottavél LVP-25 Þú sparar kr. 18.000.-
fyrir 12 manns, 2 hitastig (55/65 gráöur) vatnsöryggi,
20" LG sjónvarp með Black Hi-Focus skjá sem gefur einstaklega skarpa
mynd. Hátalarar að framan, ACMC sjálfvirkur stöðvaieitari, 100 rása
minni og innbyggðum tölvuleik. Fjarstýring og rafræn barnalæsing
o.fl.