Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra um yfírlýsingu Norsk Hydro
„Alveg ljóst að engin
breyting er á afstöðunni“
í YFIRLÝSINGU norska stórfyrirtækisins
Norsk Hydro, sem send var fjölmiðlum síðdegis
í gær, segir að tafir á byggingu fyrirhugaðrar
álverksmiðju á Reyðarfirði myndu, hvort sem
þær stöfuðu af aðstæðum á alþjóðaálmarkaði
eða öðrum ástæðum, auka hættuna á því að ekk-
ert yrði úr verkefninu. Eftir að yfirlýsingin
hafði borist fjölmiðlum sagði Finnur Ingólfsson
iðnaðarráðherra í samtali við Morgunblaðið að
ljóst væri að engin breyting hefði orðið á afstöðu
Norsk Hydro til framkvæmdanna. Málið snerist
nákvæmlega um það, eins og Norsk Hydro segði
í yfirlýsingunni, að yrðu tafir á umræddu verk-
efni yki það hættuna á því ekkert yrði úr fram-
kvæmdum. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra tekur í sama streng og iðnaðarráðherra
og segist ekki sjá annað en að málið sé í þeim
farvegi sem um hafi verið samið sl. sumar.
Tilefni yfirlýsingar Norsk Hydro var m.a. um-
mæli Helge Stiksrud, upplýsingafulltrúa um-
hverfismála Norsk Hydro, í Morgunblaðinu í
gær, þar sem hún segir að Norsk Hydro sé ekki
á móti því að fram fari lögformlegt mat á um-
hverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar og jafnframt
að fyrirtækið myndi ekki missa áhuga á verk-
efninu þótt einhver seinkun yrði á þeim tíma-
mörkum sem samþykkt hefðu verið af Norsk
Hydro og íslenskum stjórnvöldum í júní í sumar.
Þegar Morgunblaðið hafði samband við iðnaðar-
ráðuneytið í gær voru skilaboðin þau að ráð-
herra vildi ekki tjá sig um málið fyrr en yfir-
lýsing hefði borist frá Norsk Hydro. Þegar svo
yfirlýsingin barst sagði ráðherra þetta.: „Við
lásum Morgunblaðið í dag (í gær) og hlustuðum
á fréttir og það var náttúrulega eðlilegt að við
óskuðum eftir skýringu á því hvort þarna hefði
orðið um einhverja afstöðubreytingu að ræða
frá því sem áður var um talað. Nú höfum við
eins og þið fengið yfirlýsingu frá Norsk Hydró
og er alveg ljóst á henni að það er engin breyt-
ing á afstöðu Norsk Hydro. Yfirlýsingin undir-
strikar það að þeir hjá Norsk Hydro leggja
áherslu á að staðið verði við yfirlýsinguna sem
Landsvirkjun, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
og Hydro Aluminium undirrituðu á Hallormsst-
að hinn 29. júní sl.“ I yfirlýsingunni frá Hall-
ormsstað sem ráðherra vitnar hér til er sett
fram tíma- og vinnuáætlun með það að markm-
iði að unnt verði að taka endanlega ákvörðun um
títtnefnt verkefni í júní árið 2000.
I yfírlýsingu Norsk Hydro frá því í gær segir
að fyrirtækið standi við þá tíma- og vinnuáætlun
sem fram sé sett í fyrrnefndri Hallormsstaðar-
yfirlýsingu og að allar nauðsynlegar ráðstafanir
hafi verið gerðar til þess að fylgja þeirri áætlun
eftir. Þá segir í yfirlýsingu Norsk Hydro frá því
í gær að fyrirtækinu sé kunnugt um yfirstand-
andi pólitíska umræðu hér á landi um umhverf-
ishliðar virkjanaframkvæmdanna, en ítrekar
það álit sitt að um íslenskt pólitískt mál sé að
ræða og að Norsk Hydro bíði niðurstöðu Al-
þingis, sem það muni og virða.
Innanhússvandi hjá Norsk Hydro?
„Þetta er í samræmi við þau skilaboð sem við
höfum fengið frá viðsemjendum Norsk Hydro
hér á landi,“ segir Hjálmar Árnason, fonnaður
iðnaðarnefndar Alþingis, um yfirlýsingu Norsk
Hydro frá því í gær. Hann greinir frá því að við-
semjendur Norsk Hydro hafi ítrekað sagt að-
spurðir að það eigi að miða við að orkan verði af-
hent 2003 og „að í því skyni þurfi að vera hægt
að hefja ferlið allt saman strax upp úr ára-
mótum og loka formlegum samningum ekki
seinna en fyrrihluta næsta árs, ársins 2000.“
Þannig, segir Hjálmar, hefur ramminn alltaf
verið og er yfirlýsingin núna frá Norsk Hydro í
samræmi við það.
„Eg held því að þetta sé innanhússvandi hjá
stórfyrirtækinu NorskHydro, þetta útspil í gær
frá blaðafulltrúanum, sem mér skilst að sé til-
tölulega nýráðinn," segir Hjálmar að síðustu og
vísar þar til ummæla Helge Stikrud í Morgun-
blaðinu í gær.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti.
Horft til himins
Þingsályktunartillaga um Fljóts-
dalsvirkjun í umhverfísnefnd
Stefnt er að
afgreiðslu
6. desember
JÓLAMÁNUÐUR er genginn í garð
með tilheyrandi eftirvænlingu
yngri kynslóðarinnar. Þessir
hressu krakkar voru ánægðir með
lífið og tilveruna í snjónum í Hlíð-
unum og eru eflaust farin að spá í
hvað komandi tíð færi þeim í skó-
inn. Eitthvað vakti athygli þeirra
og greinilegan áhuga á himninum
og ekki annað að sjá en að það hafi
verið eitfhvað skemmtilegt.
Kannski það hafi verið fyrirboði um
að tími jólasveinanna sé að nálgast,
eða eru þau bara að athuga hvort
að ekki snjói meira? Hvort tveggja
gleður jafnan lítil hjörtu.
UMFJOLLUN iðnaðarnefndar Al-
þingis um þingsályktunartillögu rík-
isstjórnarinnar um framhald fram-
kvæmda við Fljótsdalsvirkjun hefur
gengið samkvæmt þeirri áætlun sem
gerð var í upphafi, að sögn Hjálmars
Amasonar, formanns nefndarinnar,
en nefndarviku lauk á Alþingi í gær.
Hjálmar gerir ráð fyrir að iðnaðar-
nefnd muni afgreiða málið til seinni
umræðu á Alþingi innan tveggja
vikna.
Hjálmar segh- að umhverfisnefnd
Alþingis, sem falið var að fjalla um
umhverfisþátt þingsályktunartillög-
unnar, eigi að skila sinni umsögn ekki
seinna en 6. desember næstkomandi,
eða eftir viku. A nefndadögum, sem
fyrirhugaðir eru 9.-11. desember,
gerir hann síðan ráð fyrir að iðnaðar-
nefnd fari yfir málið í heild sinni.
Hátt í 40 komið á fund
iðnaðarnefndar
„í framhaldi af því sé ég fyrir mér
að málið yrði afgreitt út úr nefnd
þannig að þingið sjálft geti tekið af-
stöðu til þess,“ segir Hjálmar.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
framlengdi að kröfu ríkissaksókn-
ara gæsluvarðhald yfir Þórhalli Öl-
veri Gunnlaugssyni til 14. janúar
síðastliðinn mánudag er manndr-
áps- og þjófnaðarákæra ríkissak-
sóknara á hendur honum var þing-
fest fyrir dómi. Atti gæsluvarðhald
hans að renna út í gær, 1. desem-
ber.
Akærði kærði úrskurð dómara til
Hæstaréttar.
Hátt í 40 manns hafa komið á fund
iðnaðarnefndar undanfarna daga, að
sögn Hjálmars. „Við erum búin að fá
þá gesti til okkar sem var óskað eftir
að fá til skrafs og ráðagerða, og til að
svara spurningum."
Tekur Hjálmar fram að bæði iðn-
aðarnefnd og umhverfisnefnd hafi
skapað sér afar traustan gi-unn í mál-
inu með því að fara í sameiginlega
ferð á Eyjabakkasvæðið í september
síðastliðnum. Dvöldust nefnd-
armeðlimir eystra í tvo sólarhringa
ásamt helstu sérfræðingum og aðil-
um sem að málinu koma og telur
Hjálmar að nefndin búi að þeirri ferð.
Aðspurðui' segir Hjálmar að fjölm-
argir hafi komið sér í samband við
iðnaðarnefnd í gegnum Netið. „Við
fáum töluverð viðbrögð, alveg upp í
sjö síðna bréf og afar ólíkar skoðanir.
Eg er mjög ánægður með það hvern-
ig þetta kemur út. Ég tel að þarna
séum við að fá hugrenningar og skila-
boð frá fólki sem annars hefði ekkert
sett sig í samband við nefndina, eða
komið sjónarmiðum sínum á fram-
færi.“
Þórhallur Ölver hefur setið í
tæpa fimm mánuði í gæsluvarðhaldi
vegna málsins, sem varðar lát Agn-
ars W. Agnarssonar, sem fannst
látinn af völdum stunguáverka í
íbúð sinni á Leifsgötu í miðjum júlí-
mánuði síðastliðnum.
Ákærði hefur lýst sig saklausan
af ákæru ríkissaksóknara um
manndráp og hefur málinu verið
frestað í Héraðsdómi Reykjavíkur
til 8. desember.
Hákon Aðalsteinsson flytur
drápu sína fyrir utan konungs-
höllina í Osló.
Flutti Nor-
egskonungi
íslenska
drápu
HÁKON Aðalsteinsson, Ijóðskáld
og Austfirðingur, tók sér í gær
stöðu fyrir framan norsku kon-
ungshöllina og flutti Noregs-
konungi drápu sem hann orti til
að mótmæla fyrirhuguðum virkj-
unarframkvæmdum á Eyjabökk-
um og áformum Norsk Hydro um
að byggja álver á Reyðarfirði.
Haraldur konungur vildi ekki
veita Hákoni áheyrn og greip
hann því til þess ráðs að flytja
drápuna fyrir framan konungs-
höllina klukkan níu að staðartíma
í gærmorgun. Að því búnu af-
henti hann fulltrúa hirðarinnar
drápuna, en í henni eru 12 kvæði.
í kvæðunum sækir Hákon inn-
blástur til íslenskra fornsagna.
Það gerði einnig hinn niu ára
gamli Björn Olavsson, sem í gær
gekk á fund Norsk Hydro í Osló
og bað ráðamenn þar að leggja
sitt af mörkum til að vernda ósn-
ortna náttúru íslands.
Norska blaðið Aftenposten birti
drápuna í heild sinni í blaðinu í
gær. Jafnframt því fjallaði blaðið
um deilurnar um Eyjabakka og
líkti þeim við deilur Norðmanna
um virkjun Altaárinnar, en þeim
deilum lauk með því að Altaáin
vai' stífluð árið 1987.
Oslóarjóla-
tréð flutt á
Ingólfstorg
LJÓSIN á jólatré Reykjavíkur-
borgar verða tendruð á sunnu-
daginn. Jólatréð er gjöf Óslóar-
borgar, sem gefið hefur
Reykvíkingum jólatré á hverju
ári í 48 ár. Frá upphafi hefur
tréð verið látið standa á Austur-
velli, en nú ber svo við að tréð
verður látið standa á Ingólf-
storgi vegna framkvæmda við
og á Austurvelli. Samkvæmt
upplýsingum borgarstjórnai'
ræður aðstöðuleysi fyrir jóla-
sveinana einnig þessari ákvörð-
un, þar sem þak Nýja köku-
hússins er ekki lengur til staðai'.
Ekki er ætlunin að færa stað-
setningu jólatrésins til fram-
búðar og mun því Óslóartréð
væntanlega standa á Austur-
velli á næsta ári. Austurvöllur
verður heldur ekki tijálaus að
þessu sinni, og mun þar verða
jólatré með ljósum í stað trésins
frá Ósló.
Athöfnin á Ingólfstorgi hefst
kl. 15.30 með leik Lúðrasveitar
Reykjavíkur. Sendiherra Nor-
egs, Kjell Halvorsen, afhendir
síðan tréð og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, veitir
trénu viðtöku.
Fiskar
OG FlSK\ EIÐAR
Fyrir
atvinnumenn
sem
áhugafólk
Umfangsmesta handbók
um fiska og fiskveiðar
sem komið hefur út á
íslensku. Lýst er um það
bil 300 tegundum, fæðu
þeirra og lífsháttum og
er öllum fiskum við
ísland gerð sérstök skil.
Mál og menning
malogmenníng.ís
N
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
Leifsgötumálið í Héraðsdómi
Gæsluvarðhald
ákærða framlengt