Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ELSA
BR YNJÓLFSDÓTTIR
+ Elsa Brynjólfs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 8. maí
1957. Hún lést á
heimili sínu 19. nóv-
ember síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Fossvog-
skirkju 26. nóvem-
ber.
Mig langar til að
minnast frænku minn-
ar, Elsu Brynjólfsdótt-
ur, með nokkrum orð-
um. Elsa ólst upp á
sameiginlegu heimili
móður sinnar, Þórunnar M. Eiríks-
dóttur (Eddu), og móðurforeldra
okkar, þeirra Eiríks Bjamasonar og
Else A. Figved. Það var alltaf mikill
samgangur á milli heimilis þeirra í
Sporðagrunni 1 og heimilis okkar.
Fjölskyldan átti einnig sumarbústað
í landi Laxness í Mosfellssveit og
dvaldi þar allt sumarið ár hvert. Þar
sem við frændsystkinin vorum öll á
svipuðum aldri má segja að við Þórð-
ur bróðir höfum að mörgu leyti verið
uppeldisbræður Elsu.
Stofnað 1990
Útfararþjónustan ehf,
Aðstoðum við skrif minningarrgreina
Rúnar Geirmundsson, útfararstjóri
Sími 567 9110
Það er að sjálfsögðu
margs að minnast frá
þessum árum og uppá-
tækin mörg. Eitt sinn
að sumri var Edda í
bænum en við krakk-
arnir uppi í sumarbú-
stað ásamt móður
minni og ömmu. Elsa
var alveg sannfærð um
að mamma hennar
kæmi upp í bústað þá
um kvöldið og fékk
okkur bræðuma til að
labba með sér á móti
henni út á veg. Við
lögðum af stað og bið-
um dágóða stund á fyrsta áningar-
stað að Gljúfrasteini. Ekki kom
Edda og var þá ákveðið að ganga
lengra og var næst áð dágóða stund
við brúsapallinn að Hraðastöðum.
Ekki kom Edda og var því haldið að
næsta brúsapalli og svo koll af kolli
þar til tveir peyjar, fímm og sex ára,
ásamt níu ára gamalli frænku sinni
voru komnir niður í kaupfélagið í
Mosfellsbæ. Þegar við skiluðum okk-
ur aftur í sumarbústaðinn seint um
kvöld voru þær amma og mamma
orðnar nær frávita af skelfingu. Elsa
var nokkrum árum eldri en við og lit-
um við því upp til hennar í hvívetna.
Hún kynnti tónlist þess tíma og
Blómobóðin
C\c\
,om
v/ FossvogsUiekjMgaeS
Sími, 554 0500
t
Elskuleg dóttir okkar, móðir, tengdamóðir og
amma,
BJÖRG HAUKSDÓTTIR,
Dísarborgum 9,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju föstu-
daginn 3. desember kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á að láta líknardeild Landsþít-
alans eða heimahjúkrun Karítas njóta þess.
Haukur Jörundarson,
Ástríður Sigurmundardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við þeim, sem
sýndu okkur mikla samúð og hlýhug við frá-
fall eiginmanns míns, sonar, föður okkar,
tengdaföður og afa,
HREINS H. HERMANNSSONAR
fyrrum útibússtjóra
hjá Landsbanka íslands,
Gullsmára 9,
Kópavogi.
Valdís Þórarinsdóttir,
Þorgerður Pétursdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
klæðaburð fyrir okkur og við kynnt-
umst unglingapartíum fyrst þegar
Elsa hélt bekkjarpartí heima hjá
ömmu og afa. A sínum tíma skil-
greindu þær vinkonurnar Elsa, Solla
og Gunnhildur orðið „pæja“ fyrir
mér.
Elsa giftist ung Sigurði Trausta
Þorgrímssyni og átti fyrsta barnið,
Sigurð Þór, rétt rúmlega sextán ára.
Það hefur verið sagt að börn barna
séu lukkubörn og það hefur átt við
um Sigurð. Þeir eru ekki síður vel
gerðir yngri bræður hans, Guðni
Már og Andri Freyr. Elsa reyndist
strákunum sínum vel og var ekki síð-
ur félagi þeirra en móðir. Elsa og
Trausti skildu og var seinni maður
Elsu Ólafur Haraldsson. Fjölgaði nú
börnum í lífi Elsu enda á Ólafur þrjú
börn af fyrra hjónabandi. Elsa var
orðin amma og stjúpamma fyrir fer-
tugt. Barnabörnin voru henni og Óla
til mikillar gleði og heimili þeirra
stóð þeim alltaf opið. Elsa var mjög
gestrisin og bjó fjölskyldu sinni
fallegt heimili. Síðustu tvö árin átti
Elsa við mikla vanheilsu að stríða.
Hún bar sig samt ávallt vel og kvart-
aði ekki. Að lokum vil ég þakka Elsu
samfylgdina og votta strákunum,
Eddu, Óla og öðrum aðstandendum
samúð mína.
Eiríkur Steingrímsson.
KIRKJUSTARF
Áskirkja
Safnaðarstarf
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. I mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14-17. Biblíulestur í safnað-
arheimilinu kl. 20.30. Frætt um upp-
haf kirkjunnar í ljósi
postulasögunnar. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
Bústaðakirkja. Mömmumorgunn
kl. 10-12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 14-16 í safnaðarheim-
ilinu.
Grensáskirkja. Mæðramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil böm sín.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur
málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Ljós lífsins, þagn-
aríhugun kl. 20. Taize-messa kl. 21,
fyrirbæn með handa yfirlagningu og
smurning. Tómas Sveinsson.
Langholtskirkja. Foreldra- og
barnamorgunn kl. 10-12. Fræðsla:
Afbrýði eldri systkina. Sóldís
Traustadóttir hjúkrunarfræðingur.
Söngstund með Jóni Stefánssyni kl.
11. Svala djákni les fyrir eldri börn.
Endurminningahópur karla kl. 13-
15.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
tónlist til kl. 12.10. Að stundinni lok-
inni er léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu. Einfalt, fljótlegt og
innihaldsríkt í erli dagsins.
Seltjaraarneskirkja. Starf fyrir
6-8 ára börn kl. 15-16. Starf fyrir 9-
10 ára böm kl. 17-18.15.
+
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MAGNÚSÍNA (ÍNA) BÖÐVARSDÓTTIR,
Gullsmára 9,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju á morgun,
föstudaginn 3. desember, kl. 13.30.
Svala Arnfjörð Sigurgarðarsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Rita Arnfjörð Sigurgarðarsdóttir, Jón Jörundsson,
Bjarmi Arnfjörð Sigurgarðarsson, Ólöf Ýr Lárusdóttir,
Bylgja Arnfjörð Sigurgarðarsdóttir, Haraldur Eggertsson,
Sindri Arnfjörð Sigurgarðarsson, Ása Erlingsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir
10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30-
17.30.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdótt-
ur og Bjargar Geirdal. Kl. 11.15 leik-
fimi aldraðra. Kl. 18 bænastund.
Fyrirbænaefnum má koma til prests
eða kirkjuvarðar. Kl. 20.30 fræðslu-
stund á vegum Reykjavíkurprófast-
sdæmis eystra. Jólaímyndin. Kristj-
ana Eyþórsdóttir, jarðfræðingur,
fiytur erindi.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11- 12 ára drengi kl. 17-18. Æsku-
lýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Mömmum-
orgnar kl. 10-12. Fræðandi og
skemmtilegar samverustundir,
heyrum guðs orð og syngjum með
bömunum. Kaffisopi og spjall. Alltaf
djús og brauð fyrir börnin. Æsk-
ulýðsstarf fyrir unglinga í 8. bekk kl.
20-22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar.
Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera aldr-
aðra í safnaðarheimilinu Borgum kl.
14-16. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Fyrirbænaefnum má koma til
prests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Strákastarf fyrir 9-12
ára á vegum kirkjunnar og KFUM
kl. 17.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyiir ung börn og foreldra þeirra kl.
10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Op-
ið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 22. Kaffi eftir athöfn.
Biblíulestur kl. 21.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Víðistaöakirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára
börnkl. 17-18.30.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 sam-
koma. Kommandörarnir Margaret
og Edward Hannevik tala.
Lágafellskirlqa. TTT-starf fyrir
10-12 ára böm frá kl. 17-18. Umsjón
Hreiðar og Sólveig.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund
kl. 18.30.
Hvammstangakirkja. Kapella
Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi-
og bænastund í dag kl. 17. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
prests.
ið þurfum að ræða málin, getum
við ekki hist á sunnudaginn kl. 16:30
Komið, eigumst lög við! segir Drottinn. Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær
verða hvítar sem mjöll. Þó að þær séu rauðar sem purpuri, skulu þær verða sem ull.
JESAJA 1:18
-JHVH -
Samkomur alla sunnudaga kl. 16:30, þriðjudaga kl. 20:30 og laugardaga kl. 20:30
HLIÐASMARA 5-7
SÍMI 554 33 77
krossinn@skima.is