Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 55
Nú er hún amma okkar fai-in í
langt ferðalag og líklegast það
lengsta sem hún hefur farið í því
hún fór aldrei til útlanda og oft var
hún hissa á útþrá okkar barnabarn-
anna og bað fyrir okkur fyrir hverja
ferð.Við vitum að nú er hún komin á
betri stað og er laus við veikindin
sem höfðu angrað hana síðastliðin
ár.
Arnma, eða amma Bogga eins og
við kölluðum hana alltaf, kom úr
hópi sextán systkina en tíu þeirra
komust til fullorðinsára og í dag er-
um við barnabörnin og barnabarna-
börnin einmitt sextán.
Þegar við minnumst hennar kem-
ur að sjálfsögðu margt upp í hugann
og oft var glatt á hjalla þegar fjöl-
skyldan kom saman.
Amma hafði skemmtilegan húmor
og gat reytt af sér brandarana þeg-
ar þannig lá á henni og hafði frá
mörgu skemmtilegu að segja. I
mörg ár komum við alltaf saman á
heimili ömmu og afa í Lundarbrekk-
unni á gamlárskvöld og fengum þar
besta lambahrygg í heimi. Alltaf
biðum við krakkarnir spennt eftir
þessu kvöldi og hlökkuðum til að sjá
skrýtna jólatréð þeirra en í mörg ár
stóð þar gamalt gei-vijólatré úr tré
sem við söknum mikið. En það verð-
ur víst bið á því að við hittumst og
borðum lambahrygg og frægu „suð-
rænu“ tertuna hennar ömmu.
Amma var alltaf gjafmild og eitt
er víst að barnabarnabörnin hennar
muna eftir hvað hún var dugleg að
setja í baukinn hjá þeim. Ef hún sá
ekki baukana þeirra leitaði hún að
þeim út um allt hús og tæmdi budd-
una í þá og ef klinkið var ekki nóg
var rokið á afa og hann „arðrænd-
ur“.
Það má því búast við að baukarnir
verði hálf tómir núna eins og við er-
um hálf tóm eftir þennan missi.
Guð geymi þig, elsku amma
Bogga.
Kveðja.
Börn og barnabörnin.
Nú, þegar Kristbjörg systir mín
er kvödd koma í huga mér margar
minningar frá æskuárunum. Hún
var yngst af systrunum í stóra
barnahópnum frá Heiðarbrún í
Vestmannaeyjum, þremur árum
eldri en ég, þar af leiðandi áttum við
meira sameiginlegt en eldri systkin-
in. Mér eru einkar hugstæðar þær
stundir þegar við lokuðum okkur
inni í herbergi til að geta sungið
saman íslensk ættjarðarlög og
kvæði, ég sjö ára og hún tíu. Krist-
björg hafði mjög gott eyra fyrir
hljómlist þó að hún léki ekki sjálf á
hljóðfæri. Hennar mesta gæfa var
þegar hún giftist Leó Ingvarssyni
og átti með honum tvær gullfallegar
dætur og eru allir afkomendur
þeirra myndarfólk. Þegar Ólafur
bróðir okkar byggði sér einbýlishús
keyptu Leó og Kristbjörg hans
hluta í Breiðabólstað þar sem for-
eldrar okkar aldraðir bjuggu á neðri
hæð hússins. Leó og Kristbjörgu
verður seint þakkað hvað vel þau
reyndust þeim.
Síðustu ár hafa verið erfið fyrir
systur mína, Leó og börnin vegna
langvarandi veikinda hennar. Eg vil
í þessum kveðjuorðum þakka Leó
og afkomendum þeirra hve kærleik-
srík þau hafa verið systur minni í
þessum erfiðu veikindum. Krist-
björg var trúuð kona, hún trúði á líf
eftir dauðann.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.Á grænum grundum lætur hann
mig hvílastjeiðir mig að vötnum, þar sem
ég má næðis njóta.Hann hressir sál mína-
,leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns
síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman da-
l.óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér-
,sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr
mér borð frammi fyrir fjendum mínum;
þú smyr höfuð mitt með olíu: bikar minn
er barmafullur.Já, gæfa og náð fylgja mér
alla æfidaga mína, og í húsi drottins bý ég
langa æfi. (Úr 23. Davíðssálmi.)
Megi það verða okkur, sem eftir lifum,
huggun harmi gegn.
Haraldur.
LILJA
SIG URÐARDÓTTIR
+ Lilja Sigurðar-
dóttir fæddist í
Bólstað í Vestmanna-
eyjum 26. mars 1919.
Foreldrar hennar
voru Sigurður Olafs-
son, trésmiður og út-
gerðarmaður frá
Hrútafellskoti undir
Eyjafjöllum, og kona
hans Auðbjörg Jóns-
dóttir, húsmóðir frá
Tungu í Fljótshlíð.
Systkini Lilju voru:
1) Óskar, f. 1.6. 1910,
kvæntur Soffíu Zóp-
haníasdóttur, þau
eru bæði látin, þau áttu þrjú börn.
2) Bára, f. 16.12.1925, gift Páli Ól-
afi Gíslasyni, þau eignuðust fimm
börn. Hálfsystir Lilju samfeðra
var Sigurbjörg, f. 5.5. 1895, henn-
ar maður var Kristján Egilsson,
þau eru bæði iátin, en þau áttu
fimm börn.
Hinn 15.8. 1942 giftist Lilja
Guðiaugi Ragnari Runólfssyni frá
Fáskrúðsfirði, f. 28.9. 1918, d.
13.4. 1991. Kjörsonur Lilju og
Ragnars er Emil Ragnarsson, f.
22.7. 1944. Kona hans hét Ingi-
björg Guðmun-
dsdóttir, f. 23.1.
1946, frá Uxahrygg
á Rangárvöllum.
Hún lést á Land-
spitalanum 22.11. sl.
Þeirra börn voru
fimm: 1) Inga Björk,
f. 20.10. 1965, henn-
ar maður er Hara-
ldur Ólafsson og
eiga þau þrjú björn:
Emil Inga, Hólmfríði
Lilju og Ólöfu Helgu.
2) Halla Guðlaug, f.
6.6. 1967, gift Sæv-
ari Halldórssyni, þau
eiga þrjú böm: Emmu Ósk, Guð-
laugu Lilju og Hafþór Inga. 3)
Guðlaugur Ragnar, f. 30.1. 1970,
kvæntur Astrós Guðmundsdóttur,
þau eiga tvö börn saman: Báru Sif
og Guðmundu Sjöfn, og fyrir átti
Guðlaugur Ragnar dótturina Elsu
Björgu. 4) Sigurður Þór, f. 11.1.
1971, kvæntur Hafrúnu Ósk Gisla-
dóttur, þau eigatvö börn: Birgittu
Þóru og Ágúst, Bjarka. 5) Guð-
mundur Hreinn, f. 11.1.1971.
Útför Lilju fór fram frá Eyrar-
bakkakirkju 30. nóvember.
Nú er komið að kveðjustund, elsku
Lilja mín. Frá því ég man eftir mér
áttir þú heima í næsta húsi og þægi-
legt var að vita af nálægð þinni. Oft
varst þú veik, en alltaf gátum við
systurnar komið til þín og leitað ráða
með flest sem við vorum að fást við á
æskuárunum. Margar voru farnar
ferðirnar til þín að leita aðstoðar
með handavinnuna úr skólastarfinu.
Og oft gekkst þú frá henni fyrir okk-
ur fyrir sýningar á vorin. Mikil vinna
hefur það verið að vinna þetta og
laga fyrir þrjár stelpur, þótt maður
gerði sér ekki grein fyrir því þá.
Aldrei sagðirðu nei, hversu veik sem
þú varst.
Alltaf munum við systumar eftir
fyrstu bíóferðinni, með þér og Ragn-
ari á Selfoss. Það var mikil upplifun.
Það er liðinn langur tími síðan og
margt hefur breyst. Nú síðustu árin
sem þú varst á Sólvöllum varstu svo
glöð og ánægð, eða eins og þú sagðir
svo oft, að þér hefði aldrei liðið betur.
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
EIGI minningargi-ein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. I mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi.
Að síðustu vil ég þakka þér íyrir
allt það góða sem þú gerðir fyrir
okkur systkinin.
Ég kveð með söknuði góða konu
og votta Emil og fjölskyldu hans
innilega samúð.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymisteigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj.Sig.)
Sigríður Sveinsdóttir.
H
H
H
H
H
H
Erfisdrykkjiir
P E R L A N
Sími 562 0200
rtrr TT TI IITIIT ITIT^
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Svcrrir Olscn, Sverrir tinarsson,
úil'ararsljíiri'* úlfararsljóri
Útfararstofa íslattds
SuðurhJið 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarliringinn, www.utfaríirstofa.chf.is
Þsgíií andlál fcar aiJ höndtini
Útfararstofan annast meginhluta allra útfara ó höfuðborgarsvæðinu.
Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
AlúSlegþjánusta sem byggir á langrireynslu .oarv.
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2 — Fossvogi — Sími 551 1266-www.utfarastofa.com
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
MIKKELÍNA S. GRÖNDAL,
hjúkrunarheimilinu Eir,
andaðist þriðjudaginn 30. nóvember síðast-
liðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Heidi og Benedikt Gröndal,
Sigurlaug Claessen,
Ingveldur og Halldór S. Gröndal,
Ingibjörg og Ragnar S. Gröndal,
Erla og Þórir S. Gröndal,
Ragnheiður Gröndal og Birgir Þorgilsson,
Þóranna og Gylfi Gröndal,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóður
og ömmu,
ERLU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Flatey,
Safamýri 45,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, föstu-
daginn 3. desember, kl. 10.30.
Gunnlaugur B. Óskarsson,
Guðmundur Gunnlaugsson, Greta S. Svavarsdóttir,
Óskar Bragi og Ingvar Geir Guðmundssynir
+
Fáðir okkar, afi og langafi,
MARKÚS GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON,
verður jarðsunginn frá Reykhólakirkju iaugar-
daginn 4. desember kl. 14.00.
Sætaferðir frá BSÍ sama dag kl. 9.00 með
viðkomu í Olís-nesti á Akranesi.
Jón Trausti Markússon, Guðrún Konný Pálmadóttir,
Viðar Auðunn Markússon, Hrefna Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför móður okkar,
GUÐFINNU JÓNSDÓTTUR,
Skútagili 2,
Akureyri,
fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju á morgun,
föstudaginn 3. desember, kl. 14.00.
Margrét Christensen,
Albert Wium Sigurðsson,
Jón Hlífar Guðfinnuson,
Amalía Vilborg Sörensdóttir,
Steinar Sigurjón Sörensson.
+
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
HÁLFDAN VIBORG,
Hrafnistu,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 25. nóvember, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
3. desember kl. 15.00.
Jóhanna Viborg, Höskuldur Frímannsson,
María Vibörg, Ólafur Friðriksson
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug þeim sem sýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar,
SIGMARS MAGNÚSSONAR,
Dölum,
Fáskrúðsfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins á
Egilsstöðum.
Guðbjörg Magnúsdóttir,
Herborg Magnúsdóttir
og aðrir aðstandendur.