Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 19
LANDIÐ
Piparköku-
bakstur í
Barnabóli
Skagaströnd-„Þegar piparkökur
bakast, kökugerðarmaður tekur...“ er
byrjun á frægum söng úr Dýrunum í
Hálsaskógi. Sá söngur átti vel við á
piparkökudeginum á leikskólanum
Barnabóli á Skagaströnd þegar
krakkamir í honum komu þar saman
einn laugardagsmorgun ásamt for-
eldrum sínum til að baka piparkökur.
Það fór fyrir sumum bömunum
eins og bakarasveininum að þau vom
ekki alveg með uppskriftina á hreinu
en þar gripu pabbi og mamma inn í
þannig að allir fengu indælar kökur
úr ofninum. Sumum krökkunum
fannst reyndar óþarfl að vera að baka
kökumar og borðuðu deigið af bökun-
arplötunum meðan beðið var eftir að
koma þeim í ofninn. Þær kökur sem
náðu þó að bakast vom síðan skreytt-
ar af mikilli list með marglitum glass-
úr. Auðvitað þurfti líka að smakka á
glassúmum til að vita hvaða munur
væri á bragðinu af rauðum og græn-
um. Allir krakkamir fóra síðan heim
með kökurnar sínar í bauk eða poka
til að geyma fram að jólum.
Leikfélagið frumsýnir Halta-Billa frá Miðey
Húsavík-Leikfélag Húsavíkur
frumsýndi sl. föstudag sjónleikinn
Haiti-Billi frá Miðey eftir Martin
McDonagh í þýðingu Karls Guð-
mundssonar og Hallmars Sigurðs-
sonar í leikstjórn Hallmars.
Leikendur eru Sigurður Hall-
marsson, Herdís Birgisdóttir, Ma-
rfa Axfjörð, Guðný Þorgeirsdótt-
ir, Halla Rún Tryggvadóttir,
Sigurður IHugason, Baldur Krist-
jánsson, Friðfinnur Hermannsson
Sigurður
Hallmarsson
heiðraður
og Jóhann Kr. Gunnarsson. Sköp-
uðu þeir heilsteypta og skemmti-
lega sýningu sem vel var fagnað á
frumsýningu og á eftir að gleðja
margan nú í skammdeginu.
Þetta var margföld hátíðarsýn-
ing því á þessu leikári er Leikfé-
lag Húsavíkur 100 ára og aðal-
eikari þessarar sýningar,
Sigurður Hallmarsson, varð 70
ára 24. október. Sigurður og
kona hans, Herdís Birgisdóttir,
sem skapar í þessari sýningu eft-
irtektarverða persónu, eiga bæði
50 ára leikaraafmæli. Leiðir
þeirra á Ieiksviði lágu fyrst sam-
an í leikritinu Galdra-Lofti, sem
leiddi þau til hjúskapar, sem nú
hefur staðið í tæp 50 ár. Börn
þeirra tvö hafa haslað sér völl á
listabrautinni. Hallmar sem leik-
ari og leikstjóri og Katrín sem
óperusöngkona.
Að lokinni frumsýningu ávarp-
aði forseti bæjarstjórnar, Tryggvi
Jóhannesson, leikara og sérstak-
lega Sigurð og færði honum
blómakörfu sem vott þakklætis
bæjarbúa fyrir hans mikla og óm-
etanlega starf sem hann hefði
unnið fyrir menningarmál bæjar
og héraðs.
Að lokinni 2. sýningu á laugar-
dag bauð fjölskylda Sigurðar til
mikils veislufagnaðar þar sem
veitt var af rausn og margar ræð-
ur voru haldnar og Sigurði flutt-
ar þakkir fyrir hans mikla og
fórnfúsa starf sem eftir hann lægi
á 50 ára starfsferli sem spannaði
breytt menningar- og félagssvið
en hann hefur á listabrautinni
víða komið við. Hann er þekktast-
ur fyrir leiklistina enda færni
hans á því sviði með því besta
sem gerist hjá íslenskum leikur-
um,“ eins og sagt hefur verið um
liann í ritdómi. Tónlistinni hefur
hann sinnt, leikið á harmoníku
fyrir dansi frá því hann var ung-
lingur, stjórnað kórum og hljóm-
sveitum auk þess sem mörg mál-
verk hans prýða mörg heimilin.
Nemendur hans úr barnaskóla
Húsavíkur fæddir 1947 fjöl-
menntu til Húsavíkur til að fagna
góðum kennara en á milli þessa
nemendahóps og Sigurðar hefur
myndast sérstök vinátta frá því
hann leiðbeindi þeim á æskuárun-
um.
Ath Sendum i póstkröfu.
Laugavegi 18b Sími 562-9730 Fax 562-9731 Grænt númer 800-
Kringlunni Sími 568-0800 Fax 568-0880 Grænt númer 8006880